Þjóðviljinn - 30.07.1972, Page 7
Sunnudagur 30. júll 1972 ÞJÓDVILJINN — StÐA 7.
Emerson, Lake
•s:
&
Palmer: Trilogy
Samsteypuna E,L&P. þarf
varla að kynna lesendum. Sér-
hverrar nýrrar skifu frá hendi
þeirra félaga er beðið með eftir-
væntingu, og nú er sú fjórða i röð-
inni komin út. Hún er hulin af-
burða ljótu umslagi, en það kem-
ur ekki að sök, tónlistin skiptir
mestu.
Fyrsta lagið á plötunni er „The
endless enigma”. Það skiptist i
tvo hluta, og eru þeir rofnir sund-
ur af litilli fúgu eftir Emerson.
The endless enigma er ágætt
dæmi um hversu langt hljóm-
sveitir á borð við ELP eru komn-
ar frá frumstæðu bfti fyrri timá.
Þeir Emerson og Lake verða ekki
sakaðir um einfaldleik hvað
þessu lagi viðvikur. Mikið er lagt
i útsetningu, og stefið er fallegt.
En einhvernveginn snart lagið
mig ekki sérlega djúpt. Mér þótti
útsetningin engan veginn tilgerð-
arlaus og hljóðfæraleikurinn sunv
staðar i einhverju illkynjuðu
ójafnvægi.
Fúga Emersons er stutt pianó-
verk i klassiskum anda, eins og
nafnið gefur til kynna. Ég fæ ekki
betur heyrt en að Emerson hafi
kunnáttu og leikni á við hvaða
konsertpianista sem er.
Annars hefur Emerson, þrátt
fyriralla sina snilld, tvo áberandi
galla sem hljóðfæraleikari: ann-
ars vegar tilhneigingu til vél-
rænu, hins vegar tilgerðar.
Af laginu „Frorn the beginn-
ing” á Lake mestallan heiður.
Hann er höfundur lags og texta,
syngur og leikur á bassa-, kassa-
og rafmagnsgitar. Geri aðrir bet-
ur!
Leikur hans á kassagitar ber
það með sér, að hann hefur lært á
klassiskan gitar. Rafmagnsgitar-
leikur hans minnir dálitið á
Shadows. Lake er mjög fágaður
gitarleikari og leikur hans á Pict-
ures of an exhibition er með þvi
bezta, sem ég hef heyrt. Sem
bassaleikari virðist hann af skóla
McCartneys; bassinn notaður ti)
uppfyllingar og dýptar, ekki sem
hálfgildings sólóhljóðfæri eins og
hjá Bruce eða Jackson.
„From the beginning” er ágætt
lag og prýðileg tilbreytni frá hinni
rútinukenndu framleiðslu ELP.
„The sheriff” nefnist næsta lag.
Það hefst á stuttu trommusólói og
lýkur á fjörugum „ragtime”-
pianóleik. Sjálft lagið er kúreka-
ballaði og minnir töluvert á ýmsa
söngva Woody Guthries.
Skemmtilegt lag.
Plötusiðunni lýkur á Hoe-down,
kafla úr balletnum Rodeo eftir hið
þekkta bandariska nútimatón-
skáld Aaron Copland. Rodeo er
afspyrnu þjóðlegur ballett (fjall-
ar um hálfvitalegar ástarfarir
kúreka og kúrekaskjátu) og Hoe-
down, lokaatriðið er i þjóðdansa-
stil. Hljómsveitin fylgir frumút-
setningUhili eins og frekast er
unnt. Trióið er sannarlega i ess-
inu sinu i þessu lagi, hljóðíæra-
leikurinn mjög vel samstilltur.
Carl Palmer sýnir glögglega hver
töggur er i honum við húðirnar.
Trilogy, fyrsta lagið á plötusiðu
tvö, er byggt kringum afar fallegt
stef. Lagið skiptist i tvo hluta. f
þeim fyrri leikur Emerson á
pianóið af viðkunnri snilld, en
Lake syngur. I siðari hlutanum
taka rafmögnuðu hljóðfærin við,
með sjálfan Moog i broddi fylk-
ingar. Þessi hluti verksins er að
minu viti um of langdreginn og
helzt til vélrænn i sniðum. Þar er
einmitt komið að helzta veikleika
ELP, þeirri tilhneigingu að láta
tæknilega fullkomnun hafa for-
gangsrétt fram fyrir lifandi tón-
list. Þessi tilhneiging gjöreyði-
lagði Tarkus á sinum tima. „Liv-
ing sin” er eini verulega dauði
punkturinn á plötunni, leiðinlegt
lag.
Abaddons Bolero er eins konar
sambland af hergöngutónlist og
tónlist uppúr spiladós. Ljúft lag. t
heild er Trilogy góð plata, en ekki
frábær. Hún stendur þeirri fyrstu
að baki, en boðar framför frá
Tarkus.
Von er á einleiksplötu með
Emerson i haust, og mun hann
leika djass einvörðungu.
Hljómsveitin er i hljómleika-
ferð um Evrópu og lék nýlega fyr-
ir tuttugu þúsund áhorfendur i
Milanó.
Hvað margir mundu koma i
höllina að sjá þá?
'
Trúbrot: Mandala
Mandala er merk fyrir þær
sakir einar að vera fyrsta til-
raun islenzkrar hljómsveitar
til sjálfstæðrar hljómplötuút-
gáfu. Sú tilraun kom ekki til af
góðu, heldur vegna tregðu
hljómplötufyrirtækja hér-
lendra tilað gnnast útgáfu
rokktónlistar.
í máli Trúbrots olli miklu
um hversu illa Lifun seldist,
en sú virðist ekki vera raunin
á með Mandölu sem selst afar
vel. Heppilegasta aðferðin til
tryggingar útkomu rokktón-
listar hér á landi er einhvers
konar samvinnufyrirtæki tón-
listarmannanna sjálfra, og
gæti framtak Trúbrots visað
veginn i þá átt. Er þvi fyllsta
ástæða til að óska Mandölu
sem mestra vinsælda.
Tónlistin á Mandölu er að
mestu fáguö og létt,langt frá
þvi að vera frumleg.
Hljóðfæraleikurinn er frek-
ar tilþrífalftill, en samt i alla
staði frambærilegur. Fyrsta
plata Trúbrots inniheldur
bezta hljóðfæraleik sem þeir
hafa látið frá sér fara. Þar
veldur miklu um sú sterka til-
finning sem þar gætir. Þeirri
tilfinningu hafa þeir ekki náð
siðan. Aftur á móti hefur þeim
félögum farið stórlega fram i
söng hin siðari ári.
Bezta lagið á Mandölu er
vafalitið titillagið, mjög gott
frá hvaða sjónarmiði sem er.
Áhrif frá Pink Floyd eru
greinileg, en það kemur ekki
að sök nema að siður sé.
Hið geysivinsæla My friend
and I er engan veginn gott lag,
pianóleikurinn vægast sagt
hörmulegur. To-day ber alltof
mikinn keim af tónlist Carole
King eöa Elton John til að
Frh. á bls. 15