Þjóðviljinn - 30.07.1972, Page 9
Sunnudagur 30. júll 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9.
Verk ungu ítöisku leikstjóranna
hafa veriö algjörlega afskipt
hérlendis. Þaö hlýtur að teljast til
stórtiðinda, að Háskólabió hefur
keypt nýjustu mynd Bernardo
Bertolucci, II Conformista (1970),
en ég held að fáar myndir siðari
ára hafi fengið jafn magnaðar
undirtektir og óhemju lof. M.R.
klúbburinn hefur sýnt 2 fyrri
myndir hins unga meistara, Fyrir
byltinguna (’64) og Félagi (’68).
Satyricon Federico Fellinis er
önnur italska myndin á þessari
sýningarskrá.
Japan.
„Óður I fölu tunglskini” (1953)
eftir Mizoguchi, skipar
heiðurssess i sögu japanskra
kvikmynda, og þegar timaritið
„Sight and Sound” lét gagn-
rýnendur hvaðanæva að velja tiu
beztu myndir, sem gerðar hafa
verið, lenti myndin árið 1962 i 4.
sæti og i þvi 9. árið 1972. Myndin
reikar yfir landamæri lifs og
dauða og ber boð frá heimi þjóð-
sagna og munnmæla, heimi þar
sem dauðir hlutir gæðast lifi, þar
sem skilvitleg tilvera er um leið
óraunveruleg, þarsem ekki verð-
ur sagt með vissu, hvort
áþreifanleg öfl séu að verki eða
draumórar. Myndin sýnir fram á
fánýti styrjalda: hún er lofsöngur
friðar.
Yojimboeða Lifvörðurinn (61),
ein frægasta „samuraia” -mynd
Akira Kurosawa og gamall
kunningi hérlendis.
Dodeska-den (70), nýjasta
mynd Kurusawa, hin fyrsta i
fimm ár, og eina litmynd hans.
4. Leo the Last, Marceilo
Mastroianni i aðalhlutverkinu.
Bretland.
Tvær verðlaunamýndir:
Leo the Last, John Boorman
< ’70).
Thc (ío-Between, Joseph Losey
(’71), hlaut gullpálmann i Cannes
'71.
Sviþjóö
Passion.Ingmar Bergman 1969.
Loksins Bergmans-mynd á
næsta leiti, en enn vantar
Skömmina og Snertinguna.
Utvandrarna, Jan Troell 1970.
Myndin hefur slegið öll
aðsóknarmet i Sviþjóð og ætti að
vera afar forvitnileg okkur
Islendingum þar sem hún fjallar
um harða lifsbaráttu sænskra
innflytjenda i Vesturheimi á
sama tima og mestu fólks-
flutningarnir héðan áttu sér stað.
Bióið hefur sýnt allmargar
nýrri kvikmynda Svia, og hafa
þær undantekningalaust verið
mjög góðar. Vonandi verða þær
fleiri, þvi af nógu er aö taka.
Þá er ógetið nýrrar myndar
eftir Brasiliumanninn Glauber
Kocha, „Ljónið ineð höfuðin sjö”,
gerð i Frakklandi 1970, en áöur
hefur bióið sýnt Antonio das
Mortes.
„Fylgzt vel með lcstunum”,
eftir Tékkann Jiri Menzel (66).
Hlaut Oscarsverðlaunin sem
bezta erlenda myndin i Banda-
rikjunum 1968. Og að lokum
Oktober Sergci Eisensteins. Alls
20 kvikmyndir.
Þ.S.
1. Matteusarguöspjallið, frumsýning i Háskólabíói á morgun.