Þjóðviljinn - 30.07.1972, Síða 16
aOBmim
Sunnudagur :iO. júli 1972
Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna
29. júli til 4. ágúst er i Lyfja-
búðinni Iðunni og Garös
Apóteki. Næturvarzla er i Stór-
holti 1.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
Hættir Eagleton
við framboð?
WASHINGTON 29/7. George
McGovern frambjóðendaefni
Demókrata sagði i gær, að hann
Kaglcton: ó-amcriskt að lcita
læknis?
vildi láta Thomas Eagleton um
það sjálfan að taka ákvöröun um
það, hvort hann hætti við framboð
sem varaforsetaefni flokksins.
McGovern sagði við blaðamenn
i gær, að þeir Eagleton hefðu
komið sér saman um að Eagleton
skyldi taka málið til endur-
skoðunar, ef i ljós kæmi, að við-
brögðin við upplýsingum um aö
hann hefði gengið til geðlæknis á
s.l. áratug reyndust of óhagstæð.
Reyndar hafa þau tiðindi að
Eagleton hafi átt við streitu að
striða og jafnvel verið sektaður
fyrir iilvun við akstur haft nei-
kvæð áhrif á fjársöfnun til Dem-
ókrata og áhrifarik blöð eins og
New York Times.
McGovern endurtók fyrri um-
mæli um að hann bæri fyllsta
traust til Eagletons, en ljóst er
nú, aö hann mun ekki andmæla ef
Eagleton ákveður að draga sig i
hlé.
Norður-írland:
Áhlaup á vígi
kaþólskra eru
í undirbúningi
Hrczkir hcrnieiin biða átckta fyrir utan liin lokuðu kaþólsku hverfi. Nú
ætla þcir inn l'yrir götuvigin — enda cru margar fjölskyldur lagðar á
flótta til irska lýðvcldisins.
BELFAST 29/7. Kaþólskur hótel-
eigandi var myrtur i gær og ann-
ar kaþólskur maður beið bana i
átökum á Norður-trlandi. Hótel-
eigandanum var rænt og stolið af
honum 1000 pundum sem hann
ætlaði i launagreiðslur, en siðar
fannst hann dauður með skotsár á
höfði.
4000 manna brezkur liðsstyrkur
er kominn til Irlands og eru þar
nú 21 þúsund brezkir hermenn.
Whitelaw trlandsmálaráðherra
gaf til kynna i sjónvarpsviðtali i
gær, að liði þessu mundi nú beitt
til nýrraratlögu gegn bólvirkjum
kaþólskra manna á Norður-tr-
landi. Hann sagði m.a. að innan
skamms munduhersveitir Breta
geta l'arið um allar götur og
hverfi i Ulster, hvað sem trúarbr.
liði og átti þá bersýnilega við hin
lokuðu hverfi kaþólskra i London-
derry og fleiri borgum. Whitelaw
sagði að öll götuvígi mundu rifin
niður.
80 ÞÚS. FÉLLU
1BURUNDI
NEW YORK 29/7. Sendinefnd
sem fór á vegum Sameinuðu
þjóðanna til Mið-Afrikurikisins
Burundi segir i skýrslu sinni til
Kurts Waldheims, að 80 þúsund
manns hafi látið lifið i innan-
landsátökum þar siðan i april.
Yfirgnæfandi meirihluti hinna
föllnu munu vera af Hutu-þjóð,
sem er i meirihluta i landinu, en
lýtur pólitisku forræði Watutsi-
manna.
Nefndin segir, að unt hálf milj-
ón manna séu hjálparþurfi i land-
inu og þurfi þegar i stað um 8
miljónir dollara til matvæla-
kaupa og kaupa á öðrum nauð-
synjum. Þá er talið að um 40 þús-
und manns hafi flúið frá Burundi
til nágrannarikjanna. 4.500 hús
hafa verið brennd til ösku og
margir skólar og aðrar opinberar
byggingar eyðilagðar.
Hafliði Guðmundsson GK, í einni af brautum Skipasmíðastöðvar Njarð-
vikur. (Ljósm. Á.Á.)
Dreginn úr djúpinu
Það mun vera einsdæmi,
að bátur sé dreginn upp af
45 faðma dýpi við strönd
hér við land, en þetta
gerðist er m/b Hafliði
Guðmundsson frá Garði
var dreginn úr djúpinu og
færðurá land í skipasmíða-
stöð Njarðvikur, þar sem
báturinn er nú í viðgerð.
Blaðið hafði samband við Óskar
Guðmundsson skipasmið og verk-
stjóra i Skipasmiðastöð Njarðvik-
ur, og fékk hjá honum þær upp-
lýsingar, að báturinn hafi verið
búinn að liggja á hafsbotni siðan i
april, en þá hvolfdi honum þar
sem hann var að netadrætti
nokkuð undan Grindavik.
Báturinn var nýr, og sjóróðrar á
honum höfðu aðeins verið
stundaðir i 3 vikur.
Báturinn mun hafa fengið hnút
á sig meðan á netadrættinum stóð
með þeim afleiðingum, að hann
sökk i djúpið, en mannskapurinn
slapp með naumindum.
Einhver náungi hjá
tryggingunum, svo og lögreglu-
maður úr Grindavik, keyptu
bátinn af tryggingunum þar sem
hann lá á hafsbotni, en hafa nú
selt hann útgerðarmanni i
Grindavik.
Þegar Hafliði var kominn i
slipp i Njarðvikum var vél
bátsins sem er 100 hestafla disel-
Skotbardagi í flugvél
Lin Piaos?
OTTAWA 29/7. Sovézkir sérfræð-
ingar sem rannsökuðu flakið af
kinverskri flugvél sem hrapaði
yfir Mongóliu _ i september i
fyrra með staðgengli Maós innan-
borðs, halda þvi fram að þeir hafi
fundið vegsummerki um skotbar-
daga i vélinni.
Segir hin opinbera fréttastofa
Kanada að Kosygin forsætisráð-
herra Sovétrikjanna hafi
skýrt Trudeau forsætisráð-
herra Kanaúa frá þessu mánuði
eftir að slysið varð. Opinberir að-
ilar kinverskir hafa þegar stað-
fest, að Lin Piao hafi farizt er
hann reyndi að flýja land eftir
misheppnuð áform um að koma
Maó formanni fyrir kattarnef.
Sovézku sérfræðingarnir munu
hafa komizt að þeirri niðurstöðu
að áhöfnin i flugvélinni, sem var
af brezkri gerð, hafi reynzt trygg
Maó formanni og tekið þátt i
vopnaviðskiptum sem urðu, þeg-
ar Lin Piao og hans menn tóku
vélina á sitt vald nóttina milli 12.
og 13. september.
vél af Buck-gerð, skoluð út með
boroliu og rauk hún þá i gang.
Við spurðum óskar að þvi hvort
ekki væri einsdæmi, að vél sem
hefði legið svo lengi i sjó, færi i
gang.
Sagði hann það ekki vera, þvi ef
vél, sem hefði legið á kafi svona
lengi væri strax hreinsuð út, væri
hún jafn góð eftir sem áður, það
er að segja ef ekki næði að þorna
á henni. Hefði báturinn hins veg-
ar legið i sjó, þar sem flóðs og
fjöru gætti, þannig að þornað
hefði á henni, hefði hún verið
orðin ónýt fyrir löngu.
Óskar sagði að báturinn væri
verulega skemmdur, þvi gera
þyrfti stórviðgerð á byrðingi
hans, bakborðsmeginn.
Við fengum þær upplýsingar
hjá Óskari að báturinn hefði verið
smiðaður á Seyðisfirði, af manni
noskrar ættar, sem hefði smiðað
marga báta, er allir væru hin
beztu fley, enda maðurinn lista-
smiður.
Þvi miður tókst okkur ekki að
ná tali af smiðnum, en úr þvi
verður vonandi hægt að bæta
siðar. —úþ.
Loftárásir á stíflu-
garða og veðurstríð
WASHINGTON PARIS 29/7. Full-
trúar Norður-Vietnams á friðar-
viðræðunum i Paris halda þvi
fram, að bandariskar loftárásir
hafi þegar valdið tjóni á stiflu-
garðakerfi landsins á um 100
stöðum. Bandariska utanrikis-
ráðuneytið heldur þvi hins vegar
fram, að loftmyndir sýni tjón á
aðeins 12 stöðum, og sé það lftil-
væglegt.
I gær samþykkti öldungadeild
Bandarikjaþings að fella skyldi
niður 4,5 miljón dollara fjárveit-
ingu til tilrauna til að búa til rign-
ingu i hernaðarlegum tilgangi.
Hermálaráðuneytið hefur játað
að hafa rekið slikan veðurfræði-
legan hernað i Indókina.
Hutu-nieiin, með liendur bundnará bak aftur, bíða eftir að ganga fyrir aftökusveit.