Þjóðviljinn - 04.07.1973, Qupperneq 1
SCNDIBÍLASTÖBIN Hf
BlLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA
Margrét
maður hennar Henrik prins.
Drottningin
kemur í dag
Margrethe drottning
Danmerkur kemur í dag
ásamt fylgdarliði í opin-
bera heimsókn til íslands
með konungsskipinu
„Dannebrog". Heimsóknin
hefst með opinberri mót-
töku á hafnarbakkanum í
Reykjavík kl. 10.00. f fylgd
með Margrethe og Henrik
prins verður menntamála-
ráðherra Danmerkur Knud
Heinesen.
Drottning og maður
hennar munu búa í Ráð-
herrabústaðnum meðan á
heimsókninni stendur. For-
seti fslands og kona hans
hafa hádegisverðarboð
fyrir gestina, en kl. 16.00
verður þeim sýnt Þjóð-
miniasafnið og Lista-
safn fslands. Þá mun
drottning taka á móti for-
stöðumönnum erlendra
sendiráða í Reykjavík, en
um kvöldið halda forseta-
hjónin veizlu að Hótel Sögu
til heiðurs hinum konung-
legu gestum.
Margrethe drottning hef-
ur setið á stóli hátt á annað
ár. Góð vinátta er nú með
Dönum og fslendingum og
óskar Þjóðviljinn þeim
hjónum góðrardvalar hér á
landi.
Almannavarnanefnd Vestmannaeyja:
GOSINU LOKIÐ
Almannavarnanefnd
Vestmannaeyja gaf í gær
út tilkynningu um að eld-
gosinu á Heimaey væri lok-
ið, gígurinn væri lokaður
og gosvirkni hætt. Tilkynn-
ingin er byggð á mati sér-
fræðinga að undangengn-
um rannsóknum.
bjóðviljinn náði i gærkvöldi tali
af Jóni Þorsteinssyni, fulltrúa
bæjarfógeta i Vestmannaeyjum,
sem er einn af fulltrúum i al-
mannavarnanefndinni. Hann
sagði að tilkynningin væri i fram-
haldi af fyrri tilkynningum nefnd-
arinnar til að upplýsa um ástand-
ið á gosstöðvunum og svæðinu
umhverfis. Tilkynninguna bæri
ekki að skoða sem grænt ljós fyrir
fólk um aö flytjast aftur til Eyja,
þvi aö enn vantaöi rafmagn i
hluta bæjarins svo og vatnsveitu.
Þorbjörn Sigurgeirsson
prófessor fór ásamt nokkrum
mönnum niður á gigbotninn á
mánudagskvöld og gekk úr
skugga um aö gigurinn væri að
fullu lokaður. Hraunrennsli hefur
ekkert verið úr gignum siöan i lok
maimánaðar, en með þvi hefur
verið fylgzt með loftmyndum.
Þorbjörn telur hverfandi likur á
þvi að gosiö hefjist að nýju, það
hafi fjarað út jafnt og þétt og allt
bendi til þess að þvi sé endanlega
lokið.
Tilkynning almannavarna
Tilkynningin sem blaðinu barst
i gær frá Almannavarnanefnd
Vestmannaeyja, er svohljóðandi:
„Fundur haldinn 3. júli 1973 i
Almannavarnanefnd Vestmanna-
eyja samþykkir svohljóðandi til-
kynningu:
Að mati sérfræðinga og vis-
indamanna er það staðreynd að
gigurinn er lokaður og gosvirkni i
fellinu hætt. Þar sem ekki er hins
vegar enn laust við gasmengun i
miðhluta bæjarins einkanlega á
svæðinu vestur af Heiðarvegi,
upp að Hásteinsvegi, Hvitinga-
vegi og Birkihlið, eru þvi þeir,
sem hug hafa á að setjast að á
umræddu svæði, beðnir að hafa
samband við Almannavarna-
nefnd Vestmannaeyja i sima 99-
6911 eða 99-6912, og fá þar upplýs-
ingar um ástand með tilliti til
gasmengunar. Nefndin vill jafn-
framt itreka, að foreldrar láti
ekki börn sin vera fylgdarlaus á
umræddu svæði.
Vestmannaevium 3. júli 1973
Al.M ANN AVAKNANEFNI)
Vestmannacyja”.
Heilbrigðiseftirlitið og Sindri:
Ekkert gert í 41/2 mánuð
— Hefur þó vald til að loka
Viö boðuðum í gær að sagt
skyldi frá frammistöðu Heil-
brigðiseftirlits Reykjavikurborg-
ar varðandi fyrirtækið Sindra hér
i borg og skal það loforö nú efnt.
Er blaðamaður var að
afla upplýsinga um vinnuslysið i
Sindra i fyrradag hafði hann tal
af trúnaðarmanni járniðnaöar-
manna á vinnustaðnum, Birgi
Agústssyni. Hafði hann ýmislegt
fróðlegt að segja okkur um sam-
skipti sin við heilbrigðiseftirlitiö.
Þann 16. febrúar sl. fékk hann
bréf frá cftirlitinu þar sem greint
var frá þeim athugasemdum sem
það hafði að gera við hollustu-
hætti I hinum ýmsu deildum
fyrirtækisins. Voru þær i sjö lið-
um og spönnuðu allflestar deild-
irnar.
1 fyrsta lagi var það kaffistofa
starfsmanna. Þar var daglegri
ræstingu sagt ábótavant. i aðal-
smiðju var loftræsting úfullnægj-
andi og sömu sögu var að segja af
renniverkstæði.
Úrbætur „án tafar"
Við plötu- og klippudeild haföi
eftirlitið miklar og stórorðar
athugasemdir að gera og hljóöar
kaflinn um þá deild orðrétt þann-
ig: „Þarna er hiti ófullnægjandi
og þarf að framkvæma úrbætur
án tafar. Ennfremur kom i ljós,
að rafmagnsleiöslur liggja milli
járnbita og innan um járnaaf-
klippur á gólfi. Slikt hlýtur að
skapa mikla slysahættu fyrir
starfsmenn og er það sérstakt
lán, að ekki hafi hlotizt af stór-
slys.” (Leturbreytingar eru
blaðsins.) Þess má geta, að
öryggiseftirlitið hefur einnig gert
athugasemdir við seinna atriöi
þessarar athugasemdar.
Þvottaaðstaða starfsmanna
var sögö ófullnægjandi og úrbóta
krafizt „nú þegar”. Fataskápa
vantaði fyrir starfsmenn og
standsetningu og daglegri ræst-
ingu á salernum sagt mjög ábóta-
vant. „úrbætur þarf að fram-
kvæma eins fljótt og auðið er”.
„Þetta stoppar í kerfinu"
Eftir 16. febrúar segist Birgir
ekkert hafa heyrt til heilbrigðis-
eftirlitsins nema þegar hann
hafði sjálfur samband við það til
að spyrja hvað framkvæmdum
liði. Auk Birgis hefur Félag járn-
Framhald á bls. 15.
Þrjú
Suður-Amerikuriki
Lýsa yfir
fyllsta
stuðningi
við ísland
GREIÐFÆRT í KERLINGARFJÖLL
Fréttamaður blaösins
skrapp um helgina i
Kerlingarfjöll meö starfsfólki
Rannsóknarstofnunar sjávar-
útvegsins. 1 Kerlingarfjöllum
var starfsemi Skiðaskólans i
fullum gangi, þar var margt
unglinga sem höfðu fengið
góða.lærdómsrika viku. Verið
var aö reisa einn skiðaskála til
viðbótar og kominn grunnur
að öðrum, en til stendur einnig
aö stækka aðalskálann, þar
sem þröngt er um fólkið yfir
háannatimann.
Eins og sést á meðfylgjandi
mynd er skiðabrekka fyrir
byrjendur rétt handan við ána
og þar voru þeir unglingar
sem eru byrjendur, en þeir
sem meira kunna fara ofar i
fjöllin. Þeir Kerlingafjalla-
bændursjá sjálfir um að ryðja
veginn uppeftir snemma
sumars og þangað var prýðis-
góður vegur um helgina fyrir
stærri bila og jeppa.
v'Ult,
Ferðafélag tslands á skála i
Kerlingarfjöllum og sést hluti
hans i hægra horni
myndarinnar, en á vegum
Skiðaskólans og aðstandenda
hans hafa verið reistir fimm
skálar, og tveir verða reistir i
sumar til viðbótar.
sj-
Þann 21. júni undirrituðu
rikisstjórnir þriggja rikja i
Suður-Ameriku yfirlýsingu,
þar sem lýst er eindregnum
stuðning við málstað
tslendinga i landhelgis-
deilunni.
Rikin þrjú eru Chile,
Ecuador og Perú. Þessi
stuðningsyfirlýsing hefur nú
borizt islenzku ríkisstjórninni
og er vissulega ástæða til fyrir
tslendinga að fagna eindregn-
um stuðningi þessara rikja,
sem eru i hópi raunverulegra
bandamanna okkar.
Hér fer á eftir yfirlýsing
rikisstjórnanna þriggja:
„Vegna þeirrar baráttu,
sem tslendingar heyja nú til
varnar rétti sinum til fiski-
miðanna við tsland og vegna
þeirra atburða, sem átt hafa
sér stað i sambandi við þessa
baráttu, þá vilja rikisstjórnir
Chile, Ecuador og Perú itreka
stuðning sinn við réttlátan
málstað tslendinga og láta i
ljós þá von, aö takast muni aö
tryggja rétt islendinga i sam-
ræmi við ályktun Sameinuðu
þjóðanna, er gerir ráð fyrir
yfirráðarétti strandrfkja yfir
náttúruauölindum hafsins við
strendur viðkomandi lands í
þágu framfara og velmegunar
til handa ibúum þess”.