Þjóðviljinn - 04.07.1973, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 4. júil 1973.
Ari, hvað eigum við að fara i? spyr Helgi.
Ég vil fara i bilana, segir Ari.
Ég vil fara i bátana, segir Helgi.
Hvers vegna er ekkert
Tívolí á íslandi?
I dag er sólskin og
hlýtt, og við höfum á-
kveðið að fara í Tívolí
með Ara Gísla, sem er 6
ára, og Helga, sem líka
er 6 ára. Við förum með
strætó niður í bæ. Hann
stoppar fyrir utan Tívolí
og við förum úr.
Tívolí-garðurinn er al-
veg í miðri Kaupmanna-
höfn. Hann var opnaður
fyrir meira en 100 árum.
Á daginn ber mest á
blómunum, sem eru þar
í öllum regnbogans lit-
um, og allavega litum
húsum, en á kvöldin er
allt upplýst.
Þegar við komum inni
garðinn er allt fullt af
fólki á öllum aldri sem
situr á bekkjum,
spásserar eða drekkur
kaffi eða gos i veitinga-
húsunum. öðru hverju
heyrast veinin úr
rússíbananum þegar ek-
ið er upp eða niður snar-
brattar brekkur á mikilli
ferð, svo að maginn á
farþegunum hoppar
uppíháls. I Parísarhjólið
hef ég aldrei þorað að
fara, en fólkið virðist
skemmta sér vel svona
hátt uppi og það veifar
glaðlega niður til okkar.
Það er stundum erfitt
að ákveða hvaða tæki
skuli farið í, því það er
dýrtað reyna mörg tæki.
En Helgi og Ari Gísli eru
ekki í vafa. Þeir vilja
fara i bílana og bátana.
Við göngum lengi um
og skoðum mörg tæki og
horfum á krakka leika
sér. Allt í einu segir
Helgi: — Hvers vegna er
ekkert Tívolí á (slandi?
Hér er Ari seztur undir stýri. —
Þetta er ofsagaman, segir hann.
Helgi er niðursokkinn við að stýra
eftir teinunum.
Frá, frá, frá, Fúsa liggur lifið á —
annars stimi ég á, segir Helgi.
Nú verð ég vist að fara að beygja,
hugsar Ari Gisli.
Þegar við höfðum gengið stutta stund sáum við
Tivoli-sporvagninn. Ari Gisli og Helgi vildu óðara
stiga upp i hann.
d9 42
m ■■ m mi 3940 m
3130M23 L/ 38 37 ^41 45
* 3S I 36 43 44 I I
Það þýðir vistekkertað hanga hér. Það eru margir
klukkutimar þangað til leiksýningin byrjar.
Dragðu strik frá 1 til 2 og 2 til 3 og svo framvegis, til að sjá af hverju
þessi teikning er.