Þjóðviljinn - 04.07.1973, Page 3
Miövikudagur 4. júlí 1973. ! ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Vegurinn
frá
Hveravöllum
heflaður og
ruddur
Myndin hér að ofan var
tekin við upptök Svartár á Kili
sl. laugardag, en starfsfólk
Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins var þar efra i
skemmti- og fræðsluferð.
Hugmyndin var að koma að
Hveravöllum, en ráðlegast
þótti að snúa við á Fjórðungs-
öldu, eða Geirsöldu eins og
margir segja. Ekki eru
margar hindranir á leiðinni
frá Kerlingarfjöllum að
Hveravöllum og hægt að
komast þá leið á jeppum eða
framdrifnum bilum. A
Fjórðungsöldu sást til þriggja
jeppa, sem voru að koma að
norðan, en norðurúr höföu
farið einhverjir útlendingar á
mótorhjólum.
í spjalli við Vegaeftirlitið i
gær kom fram, að nú er veriö
aö bera ofan i veginn milli
Gullfoss og brúarinnar á
Hvitá, þar sem hefja á smiði á
nýrri brú yfir Hvitá, en gamla
brúin er hrörleg og mjög
þröng. Verða gerðar það
miklar endurbætur á veginum
að hann þoli þungaflutninga.
Búið er að hefla veginn
norðan við Hveravelli og
verður heflað i dag og á
morgun alveg suður að brúnni
á Hvita. Það veröur að koma
norðanmegin að, vegna þess
að enginn hefill kemst sunnan
aö yfir brúna. Vegurinn um
Auðkúluheiði hefur komið vel
undan vetri, en mikið vatn er i
öllum ám þannig að menn á
litlum bilum ættu ekki að
freista þess að komast yfir
Kjöl að sinni.
Sprengisandur er ófær eins
og er, enda óvenjumikill snjór
á hálendinu. Athugað verður i
þessari viku og næstu hvernig
staðið verður að þvi að ryðja
veginn yfir Sprengisand.
Allir aðrir fjallvegir á
landinu eru greiðfærir. sj
MET-LAXVEIÐI
I FLESTUM AM
Vaxandi ásókn útlendinga veldur ugg
Eftir fyrstu tvær til þrjár vikur
laxveiðivertiOarinnar er ljóst aö
laxagengd er nú almennt meiri i
ám landsins en dæmi eru til um
áður. Laxinn er líka óvenju-
snemma á ferðinni, og veiði þar
af leiðandi miklu meiri en áður,
vfða tvöfalt meiri en i fyrra og vel
það.
Stangaveiðifélag Reykjavikur
hefur lengi haft margar vinsælar
og gjöfular laxveiðiár á leigu, og
bæöi I þeim ám og öðrum hefur
mikil fiskirækt stóraukið veiðina.
SVFR selur veiðileyfi til út-
lendinga aðeins i tveimur ám,
Norðurá og Grimsá, um 6 vikna
tima, en að öðru leyti leitast
félagið við að tryggja fslenzkum
stangaveiðimönnum aðgang að
ánum. Island er vfst oröið bezta
og vinsælasta laxveiöiland i
heimi, og islenzkir veiðimenn
horfa með ugg á þá þróun að
auðugir útlendingar leggja i
stöðugt vaxandi mæli undir sig
bezta hluta veiðitimabilsins.
Ekki má gleyma þvi að stanga-
veiðimenn og laxabændur hafa
bæði unnið að stóraukinni laxa-
ræktun undanfarin ár og aukið
göngusvæði laxins. A siðustu
árum hefur SVFR t.d. unnið að
viðtækri laxarækt á Lagarfljóts-
svæðinu austanlands, og eru
menn bjartsýnir um að það starf
fari að sýna verulegan árangur.
Þjóðviljinn aflaði sér i gær upp-
lýsinga um veiðina i nokkrum
laxveiðiám.
LAXA t AÐALDAL
Hjá ráðskonunni i veiðihúsinu á
Laxamýri fengum við þær fréttir
að veiði væri að glæðast að nýju á
noröursvæðinu eftir nokk'urra
daga deyfðartimabil. Veiði hófst
10 júni og hefur lengst af veriö
ágæt. Á land eru komnir 425 laxar
á 13 stengur á norðursvæðinu. Allt
er þetta vænn fiskur, 12-20 punda.
LAXA t KJÓS
35 laxar veiddust i Laxá i Kjós á
mánudag, og 30 voru komnir á
land fyrir hádegi i gær. Veiði i
ánni hefur stöðugt farið vaxandi
frá byrjun veiðitimabils hinn 10.
júni. Alls höfðu veiðzt 382 laxar i
ánni um hádegi i gær. Jón
Erlendsson veiðivörður sagði i
gær að talsverður fiskur væri
kominn upp fyrir Laxfoss, en
vegna mikillar fiskgengdar fyrir
neðan fossinn væru menn ennþá
latir að leita mikið upp fyrir.
Nokkrir vænir laxar hefðu þó
veiðzt i Bugðu. Veitt er á 10
stengur i Laxá i Kjós, og eru nú
nær eingöngu útlendingar viö
veiðar þar.
STÓRA-LAXA i Hreppum
Þær ánægjulegu fréttir berast
nú frá Stóru-Laxá að þar sé veiði
að glæðast og horfur góðar, en
nokkur deyfð var yfir veiðinni þar
i fyrra. Allgóð veiði hefur verið i
ánni i ár og fallegur fiskur m.a.
tveir yfir 20 pund.
ELLIÐAAR
Það er vist ekki viða i heimin-
um sem hægt er að fara i strætis-
vagni innanbæjar til að komast i
úrvals laxveiðiá. Nú eru Elliða-
árnar morandi af fallegum laxi
og um 300 laxar komnir á land. I
ánum eru fjórar stengur, og einn
veiðimaður hafði t.d. landað
fjórum fyrir hádegið i gær. Engin
höfuðborg önnur en Reykjavik
mun geta státað af sliku náttúru-
undri.
Skipulagið
á beinu
línunni
Þátturinn Bein lina er á dag-
skrá útvarpsins i kvöld klukkan
19.20 til 20 . Að þessu sinni svarar
Hilmar Ólafsson, forstöðumaður
Þróunarstofnunar Reykjavikur-
borgar, spurningum hlustenda
um skipulagsmál borgarinnar.
Verða eflaust margir til að
hringja, þar sem skipulagsmálin
eru ofarlega á baugi nú á þessum
timum hraðbrautaframkvæmda
og útrýmingar gróöurs og gam-
alla húsa. Þeir sem hafa hug á að
ná tali af Hilmari geta hringt i
sima 22260 á útsendingartima.
Samkvæmt iðnfræöslulög-
gjöfinni þurfa þeir nemendur sem
hafa lokiö námssamningi og iðn-
skólanum að gangast undir próf
sem iðnfræðsluráð hcldur.
Nemendur i húsasmiði hafa
stöðugt verið á hrakhólum með
húsnæði undir próftökuna, iðn-
fræðsiuráð hefur leigt hvers
konar sali og hús i eina viku á
hverju sumri til þessarar próf-
töku. Slik bráðabirgðaaðstaða
veröur að sjálfsögðu aldrei góð,
en i ár keyrir þó úr hófi.
Væntanlegum húsasmiðum er
boðið upp á svo skammarlega
lélega aðstöðu til próftöku sinnar
að jaðrar við reginhneyksli.
1 kjallara lðnskólans er um
þcssar mundir unnið að múrvinnu
og innan um sandbingana,
steyputunnur, hjólbörur og
semcntsryk eru nemarnir látnir
vinna i 5 daga við sveinsstykki
sin. Ekki má gleyma lýsingunni,
hún var svo aurn, aö strákarnir
tóku sig til og komu sjálfir með 15
ljósaperur . sem þeir hengdu
siöan i loftið. gsp
■ "*■ — '' :