Þjóðviljinn - 04.07.1973, Page 5
Miövikudagur 4. júll 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Eftirfarandi erindi var
fluttá aðalfundi Sambands
íslenzkra rafveitna, sem
haldinn var í síðustu viku.
Þar sem erindi þetta
snertir mjög brennandi
hagsmunamál hefur
Þjóðviljinn leitað eftir
leyfi flytjenda þess að fá
það birt, og var það leyft.
Fyrirsagnir eru
Þjóðviljans.
Byggð hefur haldizt á Islandi i
nær ellefuhundruö ár. A ýmsu
hefur gengiö meö mannfjöldann á
hverju timabili Islandsbyggðar.
Fólki hefur fjöigaö og fækkaö til
skiptis á hinum ýmsu timabilum.
Kuldatimabil, hafistimabil, ár
faraldra og drepsótta, allt hefur
þetta höggvið stór skörð i mann-
fjöldann i gegnum aldirnar. Viö
hin frumstæðu skilyrði, sem
núlifandi kynslóð þekkir aðeins
af sögum og frásögnum, hefur
vafalaust oft sorfið hart að ibúum
þessa lands, þegar illa hefur
árað.
A söguöld er talið, að húsa-
kostur hafi oft á tiðum verið rúm-
ur á lslandi. Það lætur að likum,
að til þess að hita upp þennan
rúmgóða húsakost hafi þurft
mikið eldsneyti. Vafalaust hefur
mest verið notað af trjáviði til
þessa, enda talið, að iandið hafi
þá verið „skógi vaxið milli fjalls
og fjöru.” Innflytjendur hafa
vafalaust verið vanastir
trjáviðarbrennslu frá heimalandi
sinu, Noregi. Fljótlega mun þó
hafa gengið á beztu skógana, sem
bæði voru nýttir til bygginga og
eldiviðar. Enn hefur sigið á
ógæfuhliðina, þegar kvikfénaður
gekk hart að hrisinu og skógar-
plöntunum i þessu hrjóstruga
landi.
Svörður eða mór mun fljótlega
hafa verið notaður mikið til
brennslu, þar sem hann var fyrir
hendi. Þá var gengið á mosa-
gróöur og lyng. Sauðataðinu var
viða brennt og rekaviði og þangi.
Þannig hefur þetta gengið öld
fram af öld á tslandi, og allt fram
á vora daga. Ekki er að efa, að oft
hefur kuldinn og vosbúðin leikið
ibúa landsins hart á liðnum
öldum og margur átt skemmri lif-
daga fyrir bragðið, en ella hefði
orðið. Stórhýsin frá söguöldinni
urðu siðar aö smáhreysum. Allt
seig á ógæfuhliðina fyrir gróðri
landsins, ekki reyndist unnt að
hlifa honum, ef maðurinn ætti aö
halda lifi, það varð að nota hann
til brennslu og miskunnarlausrar
beitar, og ber landið þessa
ótviræð merki. Það var fyrst upp
úr siðustu aldamótum, að litils-
háttar var byrjað á að flytja inn i
landið eldsneyti, kol og steinoliu.
I áratugi framan af öldinni var
þetta þó i smáum mæli, þótti hálf-
gerður munaður fyrir almúgafólk
a.m.k. Fólk lét sér nægja að hita
upp eitt iveruherbergi eða svo;
jbláa_ stássstofan” var sjaldnast
hituð upp, en gestinum boðið i
hana, kannski bæði blautum og
sveittum. Þar varð hann að dúsa,
þar til kaffið kom og margur
vafalaust fengið lungnabólgu af,
svo tið sem hún var þá.
Upphaf
rafhitunar
Það mun hafa verið á þriðja tug
aldarinnar og upp úr 1930, sem
farið var nokkuð almennt að
leggja miðstöðvarkerfi i ibúðar-
hús. Voru þau að sjálfsögðu aðal-
lega kolakynt, ýmist frá eldavél
eða sérstökum kyndikötlum. A
árunum 1940 og nokkuð fram yfir
1950 varð gjörbylting á þessu
sviði. Reykjavik fékk hitaveitu i
meginhluta aöalbyggðarinnar
og i vaxandi mæli var tekin upp
oliukynding húsa i stað kola-
kyndingarinnar. Þetta hitunar-
fyrirkomulag hefur svo að mestu
haidizt siöan, nema hvað fleiri og
fleiri kaupstaðir og kauptún hafa
fengið hitaveitu og einnig hefur
rafhitun húsa færzt nokkuð i vöxt
á vissu árabili.
Ég hefi nú rakið litillega „hús-
hitunarsögu” Islendinga fram til
þessa, en það væri ómaksins vert
að hún yrði skráð, svo snar þáttur
sem hún er i lifi þjóöarinnar á
þessu landi vosbúðarinnar. Oft
hefur veriö eytt mikilli vinnu i
ómerkari söguskráningar.
Áfangaskipti
Enn ánýerkomiðaöáfanga-
skiptum i okkar húsahitunar-
Áfangaskipti í
rikjandi, hvað geti komið i staö
olíunnar á hinum ýmsu sviðum,
en hins vegar augljóst, að flestir
finnanlegir kostir verða dýrir.
Talið er, að verðlag á oliu stór-
hækki á næstu árum og. jafnvel
margfaldist á næsta áratug.
húshitunarmálum
Ef þessi mynd, sem tekin
var í vetur af viðgerö við
misheppnaða línulögn frá
Búrfellsvirkjun, verður
ekki táknræn fyrir
raflagnir á islandi, hlýtur
rafhitun húsa að verða sú
fra mtfða rhitun, sem
við notumst við ásamt
heitavatni í heimi þar sem
orkuskortur gerir sífellt
. meir og meir vart við sig.
málum. Nú er svo komiö, að
nauðsyn ber til að kanna ræki-
lega, hið fyrsta, hvaöa þétt-
byggðir landsins eigi i næstu
framtið að byggja á jarðvarma-
veitum, og hvaða þéttbyggðir á
rafhitun. Allur hitunarbúnaöur,
sem notaður er við þessar tvær
upphitunaraðferðir, er svo gjör-
ólikur, aðekkertersameiginlegt
með honum (ef frá eru talin sér-
stök kyndikerfi), og þvi miklum
verömætum á glæ kastað, ef til-
viljanir ráða um valaöferðai ein-
stökum húsum á hinum ýmsu
landsvæðum. Um meginhluta
ibúasvæða landsins mun vera
augljóst, hvort valin verður hita-
veita eöa rafhitun, en um önnur
svæði leikur nokkur vafi.
Um sveitabýlin þarf ekki að
ræða i þessu efni; þau verða aö
sjálfsögðu næstum öll rafhituð.
Það verður æ ljósara, að innan
fárra ára verður svo komið, hvort
sem okkur iikar betur eða verr,
að þar sem jarðvarmaveitur til
hitunar koma ekki til greina, þar
verður að hita upp með raforku.
Það gengur svo ört á oliuforöa
heimsins, og er ekki beinlinis
uppörfandi að þvi skuli spáð, aö
hann verði að fullu þrotinn eftir
hálfan mannsaldur eða svo. Jafn-
framt er ennþá mikil óvissa
Fjárfrekar
framkvæmdir
Af þessu er augljóst, að
Islendingar geta ekki haldið að
sér höndum og beðið þar til
reiðarslagið er dunið yfir. Við
erum svo hólpnir að eiga i fórum
okkar „óþrjótandi” orku, þar
sem vatnsorkan og jarðvarminn
er. Þessa orku þurfum við að
beizla stig af stigi til eigin þarfa
og losna undan ógnvaldinum,
hinni ort þrjótandi oliu, að svo
miklu leyti sem kostur er á. Þvi
miður er ekki annað að sjá en að
fiskiskipin verði henni háð á kom-
andi áratugum.
Ekki má gleyma þeirri stað-
reynd, aö hér er um mjög fjár-
frekar aðgerðir að ræða. Það er
ekki nóg að byggja orkuver fyrir
framleiðsluna, það verður jafn-
framt að byggja orkuflutnings- og
dreifikerfi, en það er a.m.k.
annar eins kostnaður og allt upp i
tvöfaldan byggingarkostnað
orkuveranna miðað við sömu
afkastagetu. En vera má, að hér
geti verið um mjög hagstæðár
fjárfestingar að ræða, áður en
langt um liður, enda þótt margir
hafi haft horn i siðu rafhitunar
allt til þessa, ekki talið hana
timabæra i náinni framtið.
Það er mjög aðkallandi að
hafizt sé handa um heildar-
áætlunargerð fyrir allt landið i
þessu skyni. Enda þótt niður-
stöður sýndu, að rafhitun kynni
enn að vera nokkru dýrari en
oliuhitun, getur sá samanburður
snúizt viö áður en varir, en þá er
of seint að hefjast handa um slika
langtima áætlunargerð.
Það eru fleiri svið hér að lút-
andi, sem þarf aö taka til með-
ferðar, og ætla ég að ræða litil-
lega tvö þeirra.
Verölagning
og gjaldskrá
Verðlagningu og sölufyrir-
komulag orkunnar, bæði i heild-
sölu og smásölu, þarf að taka til
rækilegrarendurskoðunar. Þegar
tekin er upp almenn sala á raf-
orku til húshitunar, þarf i flestum
tilfellum að gjörbreyta þvi gjald-
skrárformi, sem nú er mest
notað, en það er vafalaust tima-
frekt verkefni.
Einangrun húsaá Islandi hefur
verið mjög ábótavant til þessa,
enda þótt mikil framför hafi orðið
á þvi sviði hin siöari ár með til-
komu nýrra einangrunarefna og
tvöfaldra glugga. En betur má ef
duga skal. Húsbyggjendum er
almennt ekki ljóst, hve þýðingar-
mikill þessi þáttur er, en þó
kostnaðarlitill i samanburði við
heildarbyggingarkostnað. Það er
allt of algeng staöreynd að spöruð
sé t.d. litilsháttar þykktaraukn-
ing á plasteinangrun og að gólf,
veggir og loft sé með alls ófull-
nægjandi frágangi á einangrun,
jafnvel þótt magn hennar sé nóg.
A þetta ekki hvað sizt við um frá-
' gang á einnar hæöar húsum i
kauptúnum og sveitum landsins.
Mest stafar þetta af kunnáttu- og
hugsunarleysi.en alls ekki að við-
komandi ætli sér aö lækka
byggingarkostnaöinn á þennan
hátt.
Það er mikil nauðsyn á, að
þjónustufyrirtæki byggingar-
iðnaðarins og hitaorkufyrirtækin
beiti sér fyrir sameiginlegri upp-
lýsingar- og kynningarstarfsemi
á þessu sviði.
Fallvaltleiki peninganna
Gengi austurriska skild-
ingsins hækkar um 4,8%.
Vestur-þýzka markið var
hækkað um 5.5% á föstudag-
inn var, og kom þvi hækkunin
ekki á óvart. Er þetta orðið
mikið og flókiö mál að fylgjast
með öllum þessum breyting-
um sem sifellt verða á gengi
ýmissa gjaldmiðla, og þá mest
til að forða bandariska daln-
um frá aö falla meira en orðið
er. Er illt til þess aö vita hve
margar þjóðir hafa stuðzt við
þann gjaldmiðil og miðað öll
kaup sin og sölu við gengi
hans. Hafa t.d. viöskipti, milli
landa sem hvorugt hafa haft
dalinn sem opinberan gjald-
miöil, oft farið fram i þessum
margnefndu dölum, og sést ef
til vill nú hve óheppilegt þaö
er.
Við þessar sifelldu breyting-
ar á ýmsum gjaldmiðli, sést
lika, hve takmarkað gagn
peningarnir geta gert sem
gjaldmiðill — eða kaup — fyrir
vinnu. Það sést, að með einu
pennastriki er hægt að skerða
kaupmátt fjölda fólks mjög
mikið, — gera efnahag heillar
þjóöar allan annan og þá ým-
ist betri eða verri en var —
gagnvart öðrum þjóöum. Það
eru ýmsir aðilar sem ráða
miklu um þessi mál, eins og
t.d. risastór alþjóðafyrirtæki
sem ráöa yfir fjármagni á við
margar þjóðir og leika sér svo
að þvi að kaupa mikið af
gjaldmiðli einhvers eins ríkis,
sem siðan hefur i för með sér
ýmsar breytingar á gjaldmiðli
hins vestræna heims.
Allt er gert til þess að láta
gjaldmiðil eins og t.d. banda-
rikjadal halda velli eins lengi
og hægt er, þrátt fyrir fjár-
málakreppu og öngþveiti.
Reynt er aö fá rikisstjórnir
t.d. Þýzkalands og Japans til
þess að hækka gengi gjald-
miðils sins til þess að forðast
fall dalsins.