Þjóðviljinn - 04.07.1973, Side 6
» SÍÐA — ÞJ6ÐV1LJINN i Mt6vikwJ»gtt,r 4. Júlf 1973.
DMVIUINN
MALGAGN SÓSIALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Clgáfufélag Þjó&viljans
Framkvæmdastjóri: Ei&ur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgrei&sla, auglýsingar:
Skóiav.st. 19. Simi 17500 (5 Jinur).
Askriftarv.erö kr. 300.00 á mánu&i.
Lausasöluverö kr. 18.00.
Prentun: Bla&aprent h.f.
EINSDÆMI í SÖGUNNI?
I fyrradag gerðist sá atburður á Vest-
fjarðamiðum, að ein af hinum brezku
freigátum NATO-flotans, sem eru i
„kurteisisheimsókn”, mannaði fallbyssur
sinar og hótaði að skjóta niður varðskipið
Ægi, ef það stuggaði við vestur-þýzkum
togara, sem var að veiðum innan islenzku
landhelginnar, á bátamiðum Vestfirðinga.
Á þessum slóðum voru engir brezkir
togarar, og bendir þessi atburður til þess,
að samstarf Breta og Vestur-Þjóðverja
innan NATO og Efnahagsbandalagsins sé
nú að komast á nýtt stig, þegar brezki
flotinn telur það hlutverk sitt, að gæta ekki
aðeins brezkra veiðiþjófa i islenzkri land-
helgi, heldur einnig þýzkra.
Það er vissulega full ástæða til fyrir
okkur íslendinga að draga okkar
ályktanir af þessu bróðurlega samstarfi
„bandamanna” okkar i Atlanzhafsbanda-
laginu, en reyndar mun það ekki hafa
gerzt oft i veraldarsögunni að brezka
flotanum væri beitt til að vernda þýzka
„hagsmuni”.
Hér sjá menn sem sagt býsna nýstár-
legan árangur af þvi nána samstarfi hinna
gömlu stórvelda Evrópu er þróazt hefur
siðustu árin innan NATO og Efnahags-
bandalagsins. Áður var verkalýður
þessara þjóða jafnan með skömmu milli-
bili sendur á vigvellina til að berast þar á
banaspjót i styrjöldum milli Englendinga
og Þjóðverja, — en nú hafa þessir fornu
fjandmenn loks snúið bökum saman til
varnar og sóknar gegn sameiginlegum
óvini; íslendingum.
Segi menn svo, að fjölþjóðlegt samstarf
innan NATO sé litils virði.
Reyndar ber heimildum i Bonn og
London ekki nákvæmlega saman um
þessa siðustu atburði. Brezka varnar-
málaráðuneytið gefur út tilkynningu um
að brezki flotinn hafi engu hótað og engar
fallbyssur mannað á Halamiðum á mánu-
daginn. Slik tilkynning er að sjálfsögðu i
fullu samræmi við þá meginreglu brezku
ihaldsstjórnarinnar i samskiptum við ís-
lendinga og aðrar þjóðir, sem ógna for-
réttindum Breta frá heimsvaldaskeiði
þeirra, — að staðhæfa það eitt, sem
gengur þvert á staðreyndir.
Fulltrúi Bonnstjórnarinnar, þýzki
sendiherrann i Reykjavik, treysti sér hins
vegar ekki til að taka undir með varnar-
málaráðuneyti vopnabræðra sinna i
London, en lét þess getið i blaðaviðtali, að
þátttaka brezka herskipsins i vörn þýzka
togarans gegn Ægi hafi verið byggð á mis-
skilningi, — brezki flotinn hafi nefnilega
haldið að Ægir væri að skjóta á sig, en ekki
að skjóta púðurskotum á þýzkan veiðiþjóf.
Vonandi tekst þeim bandamönnum i
London og Bonn að samræma túlkun sina
hvað þetta snertir, ekki sizt ef fram-
kvæmdastjóri NATO sæi sér fært að tala á
milli þeirra.
í nýlegum fréttum var frá þvi greint, að
eitt alvarlegasta eiturlyfjamál i sögu
brezka flotans hafi einmitt komið upp nú á
dögunum hér á íslandsmiðum, svo að
snúa varð við öllu lauslegu um borð þegar
NATO-drengirnir komu aftur til heima-
hafnar, eins og um ótinda smyglara væri
að ræða i stað vaskra hermanna frelsis og
réttlætis.
Með tilliti til þessara frétta má vera, að
eitthvað sé til i tali sendiherra Bonn-
stjórnarinnar i Reykjavik um misskilning
brezka sjóhersins.
Kvenfélagasamband Islands
240 kvenfélög með um
20.000 félagskonur
60 fulltrúar á þingi
Dagana 20. til 22. júní s.l. var
20. iandsþing Kvenfélagasam-
bands islands haidið aö
Hallveigarstöðum. Þingið sátu
fulltrúar frá 21 héraðssambandi
og einu kvenfélagi, sem er beinn
aðili að K.Í., en það er Kven-
félagið Likn i Vestmannaeyjum.
Innan héraðssambandanna eru
240 kvenfélög og alls eru tæplega
tuttugu þúsund konur félags-
bundnar i aðildarfélögum K.I.
Eitt samband gekk i K.l. á
þessum fundi, Bandalag kvenna i
Hafnarfiröi, en þaö var stofnað
s.l. vetur Fuiltrúar og gestir sem
sátu þingið voru um 60.
Meöal ályktana og áskorana,
sem samþykktar voru á þinginu
voru þessar:
20. landsþing Kvenfélagasam-
bands Islands, haldiö að
Hallveigarstööum dagana 20.-22.
júni 1973, heitir á alla landsmenn
aö sýna órofa samstöðu um það
lifshagsmunamál þjóðarinnar að
fá viöurkenndan rétt hennar yfir
50 milna fiskveiðiiögsögu við
strendur iandsins
Einnig þakkar þingið skips-
höfnum landhelgisgæziunnar hve
þær hafa gætt mikillar hófsemi og
prúðmennsku i störfum viö
erfiðar og hættulegar aöstæöur.
20. landsþing Kvenfélagasam-
bands Islands telur óviöunandi
þann vanda, sem mikill fjöldi
heimila og einstaklinga á við að
striöa vegna skorts á sjúkrahús-
rými og ófullnægjandi
meðferðaraöstöðu fyrir geðsjúk-
linga og þar með talda áfengis-
sjúklinga. Skorar þingiö á rikis-
stjórnina að fylgja eftir ákvæði
stjórnarsáttmálans um að leysa
vandkvæði þessara sjúklinga og
taka nú þegar fyrstu skrefin i þá
átt með þvi að hefja byggingu
geðdeildar Landspitalans á þessu
ári. Jafnframt verði lögð áherzla
á að ljúka byggingu hælis fyrir
áfengissjúklinga að Vifilsstöðum
sem fyrst. Ennfremur verði unnið
að undirbúningi annarra ráðstaf-
ana, sem nauðsynlegar eru til
iausnar á þessu mikla vandamáli.
20. landsþing Kvenfélagasam-
bands Islands beinir þeirri
áskorun til viökomandi stjórn-
valda, að þau geri allt sem I
þeirra valdi stendur, til að bæta
úr þeim alvarlega lækna- og
hjúkrunarkvennaskorti er rikir
enn viða úti á landsbyggöinni.
20. landsþing Kvenfélagasam-
bands tslands befnir þeirri
áskorun til Alþingis og mennta-
málaraöherra, aö nú þegar verði
gerðar ráöstafanir til að tryggja
sem jafnasta aðstöðu dreifbýlis-
og þéttbýlismanna til mennta.
1 framhaldi af 2. grein 1. kafla
grunnskólafrumvarpsins viil
þingið leggja áherzlu á nauðsyn
þess, að lögð sé sérstök rækt við
að innræta börnum og unglingum
trúrækni, ábyrgðartilfinningu,
skyldurækni, umbyrðarlyndi,
háttvisi og tillitssemi við aðra,
svo og virðingu fyrir skoðunum
annarra.
Landsþingið beinir þeirri
áskorun til fræðsluyfirvalda, að
þau hlutist til um, að móðurmáls-
kennsla i skólum sé bætt, m.a.
með stóraukinni kennslu i fram-
buröi og framsögn og jafnframt
verði leitazt við að auka oröa-
forða nemenda. Þingið telur, að
brýn þörf sé á útgáfu kennslu-
bókar um þetta efni. Einnig telur
þingið nauðsynlegt, að börnum sé
kennt að njóta tónlistar þegar i
upphafi skólagöngu. Bendir
þingiö á hlutverk hljóövarps og
sjónvarps á þessum sviðum.
Landsþingið telur, að gefa eigi
fullorðnu fólki kost á endur-
hæfingar- og fræðslunámskeiöum
til að kynnast nýjungum á sviði
atvinnuveganna, til upprifjunar
eða til að auka þekkingu sína.
Slika fræðslu gætu kennslu-
stofnanir á hverjum stað annast.
Komið sé á fót foreldrafræöslu i
uppeldismálum, svo aö uppeldis-
hlutverkið verði foreldrum
auðveldara, enda eðlilegast að
uppeldi barna fari að mestu leyti
fram á heimilunum.
Landsþingið varar viö sivax-
andi neyzlu unglinga á áfengi og
fiknilyfjum, sem stundum viröist
mega rekja til óeðlilega mikilla
fjárráða,
20. landsþing Kvenfélagasam-
bands Islands þakkar dagskrár-
stjórum sjónvarps og hljóðvarps
fyrir ágæta fræðsluþætti um
uppeldis- og fræðslumál, sérstak-
lega ber að þakka þættina um
mannslikamann, almenna kyn-
fræðslu og um viðhaid og þróun
lifsins. Landsþingiö óskar eftir
áframhaldandi fræðslu á þessum
sviðum og telur hana til mjög
mikils gagns við uppeldisstörf
heimilanna.
Landsþingiö þakkar einnig
aðra fræösluþætti, svo sem um
garðyrkju, almenna húsmæðra-
fræðslu o.fl., og væntir þess, að
árlega verði fluttir slíkir þættir.
Landsþingið óskar eindregið eftir
að þessi fræðsla verði aukin að
mun i samráði við Leiðbein-
ingastöð húsmæðra og Heimilis-
iðnaðarfélag Islands, þar sem
það telur, að slik fræðsla nái til
allflestra heimila i landinu.
Landsþing K.I. leggur til, aö
lögð verði aukin áherzla á
verndun sögustaða og merkingu
þeirra, sem og náttúruvernd.
Landsþing K.I. lýsir af gefnu
tilefni óánægju sinni með
dreifingu mjólkur og mjólkur-
afurða á ýmsum stöðum landsins
og telur eðlilegt að þær verzlanir,
sem uppfylla sett skilyrði geti
haft á boðstólum sem fjöl-
breyttastar mjólkurvörur i
aðgengilegum umbúðum.
Þá skoraði landsþingið á fjár-
veitinganefnd Aiþingis að veita
Kvenfélagasambandi tslands þá
fjárhæð til starfsemi sinnar, sem
um er sótt fyrir næsta ár og minnir
i þvi sambandi á ótal sjálfboða-
störf, sem kvenfélög landsins
leggja af mörkum i þjónustu
menningar- og mannúðarmála
um land allt.
Landsþingiö beinir þvi til
félaga innan vébanda K.I. aö þau
stuöli að aukinni félagslegri
aðstoð við foreldra vangefinna
barna.
VIPPU - BlíSKÚRSHURÐIN
Z-k«raur
LagerstærSlr mlðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
- 210 - x - 270 sm
Aðrar siærðir.smíðaðar eftir beiðnL
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúja 12 - Sími 38220
ENDURNVMUN
Dregið á morgun,
fimmtudaginn 5. júli