Þjóðviljinn - 04.07.1973, Side 8
Afli humarbáta minnkar til muna. Ekki hefur fengizt helmingur
þess aflamagns, sem landað var í fyrra —Mikið er byggt af
íbúðarhúsnæði og nýtt frystihús tekur til starfa næsta vetur.
Á Homafirði hefur tíð
verið heldur stirfin í vor, en
heldur hefur rætzf úr
veðrinu að undanförnu.
Afli humarbáta hefur veríð
heldur tregur, og minnkar
hann nú með hverju árinu.
AAikill byggingahugur er í
mönnum, og er unnið að
smíði allmargra einbýlis-
húsa, þar á meðal 20
norskra húsa á vegum
Viðlagasjóðs. Auk þess er
hafin vinna við byggingu
tveggja fjölbýlishúsa og
raðhúsa.
Nýtt frystihús verður
væntanlega tilbúið til
loðnufrystingar um næstu
áramót og Vélsmiðja
Hornafjarðar hefur
starfsemi innan tíðar.
Um síðastliðin áramót
bjuggu á HORNAFIRÐI
ROSKLEGA 1000 manns,
og er reiknað með að
íbúaf jöldinn verði um 1200
um næstu áramót.
Þorsteinn Þorsteinsson
sendi Þjóðviljanum myndir
frá Hornafirði og sagði
blaðamanni fréttir þaðan.
Kalt vor
A Hornafiröi hefur verið frekar
kalt vor, og kuldinn stundum með
eindæmum i mai og fram eftir
júnimánuði, og hefur þvi allur
gróður verið seinn til. En siðustu
daga hefur brugðið til betri tiöar,
og er grasspretta nú á góðri leið,
en hvergi er sláttur hafinn. En
reikna má með, að hann hefjist
um 10. júli. 1 lok siðustu viku
rigndi talsvert, en i gær var þurrt
og gott veður.
Minnkandi afli
humarbáta
Sjávarútvegurinn hefur gengið
heldur illa. Nú er af sú tiö, að
menn komu með báta hlaðna af
humar til Hornafjarðar. t hitteð-
fyrra voru komin á land um
mánaðamótin júni-júli um 150
tonn, i fyrra um 100 tonn, en nú
aöeins 60 tonn. 14 bátar gera út á
humar að þessu sinni, heldur
fleiri en i fyrra.
Mikil og aukin ásókn báta viða
af Suðurlandi er á miðin.
Hornfirzkir sjómenn hafa veitt
þvi athygli, að aðkomubátar hafa
verið að veiðum á stöðum, sem
Hornfirðingar hafa hlift, vegna
þess að þeir álita þá vera
uppeldisstöðvar. Þar fæst að visu
talsvert magn, en humarinn er
mjög smár.
Mikið er talað um að gaumgæfa
þurfi friðunarmálin miklu betur.
Byggingar
Liðlega 20 einbýlishús eru i
smiðum á vegum einstaklinga.
Auk þess eru önnur 20 hús i
byggingu á vegum Viðlagasjóðs
og vinna 12 Norömenn við að
reisa húsin á grunnana. Liklega
verða húsin tilbúin einhvern tima
á haustdögum.'Nú eru um 4. til 5
Viðlagasjóðshús fokheld.
A vegum sveitarfélagsins er
verið að hefjast handa um
byggingu tveggja fjölbýlishúsa og
verða 14 ibúðir i hvoru.. Flestar
verða ibúðirnar seldar
einstaklingum, en hreppurinn
mun sjálfur eiga einar 4.ibúðir,
þvi að alltaf er þörf á ibúðum
fyrir kennara, svo að eitthvað sé
nefnt.
Bygging raðhúss er einnig á
döfinni, og verður hreppurinn
nokkurs konar tengiliður milli
eigendanna og verktaka, og hefur
forgöngu um byggingu þeirra.
Nýr gagnfræðaskóli
og frystihús
Gagnfræðaskólahús hefur um
hrið verið i byggingu, og er
áformað, að kennsla geti hafizt i
þvi i haust. Hornfiröingar hafa
ekki haft sérstakt hús fyrir
gagnfræðaskóla til þessa. Þeir
hafa kennt 1. 2. og 3. bekk
gagnfræöanáms i húsnæði
Barnaskólans, en nú mun þar
verða á talsverð breyting til
batnaðar. Hugmyndin er að hafa
engan stanz i byggingu skóla-
húsnæðis og hefjast handa um
byggingu iþróttahúss strax að
lokinni byggingu
gagnfræðaskólans. Þó mun verða
að lúta vilja æðra fjármálavalds i
þeim efnum.
Stórt og nýtizkulegt frystihús
Kaupfélagsins er i byggingu. Það
er hugsað til þess að taka ein-
hvern hluta þess til notkunar um
næstu áramót, að minnsta kosti
til loðnufrystingar. Möguleikar
til fiskvinnslu aukast mjög mikið
við tilkomu þessa húss, og
væntanlega eykst útgerð frá þvi
sem verið hefur. Þorsteinn sagði,
að sumir hefðu látið sér detta i
hug, að keyptur yrði togari til
Hornafjarðar til að mæta þverr-
andi afla humarbátanna. Nýja
frystihúsið kæmi sér vel, ef gripa
þyrfti til þeirra ráða.
Mikil íbúafjölgun
Um siöustu áramót bjuggu á
Hornafirði rösklega 1000 manns
Margt þykir benda til að sú tala
verði komin upp i 1200 um næstu
áramót. Væntanlega fara Vest-
mannaeyingar þangað i allmikl-
um mæli og flytja inn i Viðlaga-
sjóðshúsin. Býsna margir ibúar
Hornafjaröar eru ekki innfæddir
Hornfirðingar, en e.t.v. eru þeir
komnir i meirihluta.
Ekki eru mikil brögð að þvi, að
ungt fólk fari úr byggðinni. At-
vinnuástandið hefur verið gott og
margt af unga fólkinu hefur stilað
uppá sjávarútveginn og atvinnu i
kringum hann. Talsvert vinsælt
hefur veriö að fara i stýrimanna-
skólann og kaupa siðan bát i fé-
lagi við kunningja sina.
Vélsmiðja
Vélsmiðja Hornafjarðar er nú
að stiga fyrstu sporin. Vélsmiðja,
sem fyrir var i plássinu, rækt-
unarSambandið, búnaðarsam-
bandið, kaupfélagið og útgerðar-
menn stofnuðu með sér hlutafé-
lag. Þvi að talsvert vantaði á að
unnt væri að uppfylla þær kröfur,
sem gerðar voru til járniðnaðar.
Byggt hefur verið 1500 fermetra
stálgrindahús, og starfsemin er
um það bil að byrja. t öðrum enda
hússins verður vélsmiðja.en bif-
reiðaþjónusta og verzlun i hinum.
Þórður Gislason, sem kominn
er vestan frá Flateyri, mun veita
smiðjunni forstöðu.
Hafnarhreppur hefur byggt sér
ráðhús. Á efri hæð hússins verða
skrifstofur hreppsins og fundar-
salur. Væntanlegur lögreglustjóri
mun hafa þarna aösetur sitt og
Rafmagnsveitur rikisins skrif-
stofu.
A neðri hæð hússins verður
héraðsbókasafnið til húsa. t bak-
álmu lögreglustöð, fangaklefar
og aðsetur slökkvibila og slökkvi-
liös. óp
Kaupfélagið er að láta byggja stórt og nýtizkulegt frystihús. Starfsemi I þvi mun
hefjast næsta vetur.
Ráðhúsið á Hornafirði. Hafnarhreppur hefur látiö reisa húsið, og eru i þvi skrifstofur og
miðstöðvar ýmissa opinberra þjónustustofnana.