Þjóðviljinn - 04.07.1973, Side 13
Miðvikudagur 4. juli 1973. þJOÐVILJINN - SIÐA 13
JON CLEARY:
Sendi-
fulltrúinn
— Við neitum samt. Hún hefur
nægar áhyggjur fyrir —
bað var barið á hurðina og Lisa
stakk höfðinu inn fyrir. — Denzil
yfirlögregluþjónn er kominn.
Quentin reis upp þegar Denzil
og Coburn komu inn, teknir og
þreytulegir. Þeir voru þjálfaðir I
að búast við og hindra banatil-
ræði, en þetta var fyrsta reynsla
þeirra i sliku. Lisa stóð i dyrun-
um, en Quentin hristi höfuöið i
áttina til hennar og hún gekk út
fyrir og lokaði á eftir sér. Malone
laut niður og svipaðist eftir skón-
um sinum, svo afréð hann aö biöa
meö að fara i þá og stóð upp á
sokkaleistanum. Denzil leit á
hann, en sagði ekkert; sjálfur
myndi hann áreiöanlega fyrr láta
drep hlaupa i tærnar á sér en aö
hann færi úr skónum i návist
sendiherra.
— Okkur hefur dálitið orðið
ágengt, sagöi hann við Quentin. —-
Viö vitum ekki ennþá, hver hinn
látni var. En fyrir aðgæzlu herra
Malones tókst okkur að ná i
Pallain. Hann er á Yardinum
núna.
— Hvaö hefur hann að segja?
spurði Malone.
— Hann er ekkert nema van-
þóknun og vonzka. Hann er
franskur að hálfu, vietnamskur
að hálfu og notar það versta úr
báðum ættum. Það er eins og aö
kljást við de Gaulle og Ho Chi-
minh þegar versti gallinn er á
þeim báöum.
Quentin brosti að hugarflugi
Denzils, það var augljóst að hann
haföi i upphafi vanmetið yfir-
lögregluþjóninn engu siður en
Malone. — Þá veit hann ekkert?
Denzil hristi höfuðið. — Ekki
nokkurn skapaðan hlut.
— Hvern var hann að heim-
sækja i þessari ibúðablokk?
Malone verkjaöi enn I tærnar,
hann hreyfði tærnar rétt einu
sinni og Denzil leit niöur og þótti
þetta bersýnilega trufla sig. Bak-
við hann var engu likara en
skugga af brosi brygði fyrir á
andliti Coburns. — Ég fór inn i
anddyrið, en þar var enginn hús-
vörður, og engin nöfn voru við
meiri hlutann af dyrabjöllunum á
skiltinu. Ég fylgdist með lyftunni
— hann fór upp á sjöttu hæð. Svo
sá ég þegar lyftan kom niöur
aftur og faldi mig. Og þá komu
tveir asiumenn út.
— Af hverju ákvaðstu að elta
þá i stað þess að biða þess að
Pallain kæmi aftur niður?
Kokkurinn mælir
með Jurta!
Malone yppti öxlum. — Ég veit
það ekki. Sennilega eðlisávisun.
Það var ekki einu sinni hugboð.
Ef til vill var ég bara að reyna að
komast að þvi hverjir fleiri væru
flæktir i þetta hvaðan þeir kæmu.
Það hvarflaði ekki að mér að þeir
væru að labba sig út með
sprengju. Það fór allt i einu um
hann hrollur. —■ Ég þakka minum
sæla fyrir að hafa ekki náð hon-
24
um. Hamingjan sanna, að elta
náunga og springa i loft upp — !
Þaö var stundarþögn. Svo sagöi
Denzil: — Jæja, en við vitum ekki
hver hinn látni var né félagi hans.
En Pallain var aö heimsækja
konu að nafni madama Cholon.
Malone lyfti brúnum. —
Cholon?
— Þekkirðu hana?
—-Segjum að ég hafi hitt hana.
Malone sagði þeim frá fundum
sinum og madömu Cholon kvöldiö
áður. — Hún stingur viða upp
kollinum. I morgun var ég að tala
um hana við náunga að nafni
Jamaica.
— Hver er hann?
— Ég veit það ekki með vissu.
Hann vinnur i bandariska sendi-
ráðinu.
— Við tölum viö hann. Kannski
veit hann eitthvað um hana.
— Þvi ekki að tala við hana?
Spurði Quentin.
— Hún var farin, herra minn,
þegar viö komum þangað aftur.
Með farangur og allt saman.
Kannski af landi burt. Við fengum
góða lýsingu á henni hjá dyra-
verðinum. Hann var kominn á
vaktþá. Hann haföi ekki séð hana
fara. En hann ber skynbragð á
kvenfólk og lýsti henni mjög
nákvæmlega. Hún virðist vera
eitthvað fyrir augað. Hann leit á
Malone
— Hún er vissulega augnayndi,
sagði Malone. — En ég er ekki
viss um að ég myndi kæra mig
um að komast of nærri henni.
Quentin gekk aftur að skrif-
borði sinu og settist. Hann tók upp
dagblaðið og leit á það; forsiöu-
fréttinni um sprenginguna fylgdi
mynd af gignum I götunni á ár-
bakkanum. — Þetta er ótrúlegt —
af hverju ætti kona að vilja mig
■feigan?
— Við vitum ekki hvort það er
hún, herra minn, sagði Denzil
varfærnislega.
— Ég veit það, yfirlögreglu-
þjónn. Ég tek hana bara með sem
hugsanlegan möguleika. Hann
lagði frá sér dagblaðið og hallaði
sér aftur á bak I stólnum. — Það
er auðvitað út i bláinn aö spyrja
hvers vegna hún eða einhver
annar skuli vilja drepa mig. Ég
veithvers vegna. Þeir eru ekki að
elta mig persónulega. Þetta hefði
getað komið fyrir hvern þann sem
hefði getað náð eyrum
fulltrúanna á ráðstefnunni. En
aðferðin virðist dálitið hranaleg.
Hafið þér nokkra hugmynd um
hver þessi madama Cholon er?
— Nei, alls ekki. Dyra-
vörðurinn sagði að hún sýndist
kinversk. En ég er hræddur um
að i augum venjulegs
Englendings séu allir meö skásett
augu eins og kinverjar.
— Ég held hún sé vietnömsk,
sagði Malone.
— Auðvitað! Quentin kinkaði
kolli með ákafa. — Þetta er senni-
lega ekki hennar rétta nafn.
Cholon er kinversk tviburaborg
við Saigon.
— Það er kannski barnalegt,
sagði Denzil, — en mér hættir tií
að tortryggja fólk sem skiptir um
nafn.
— Já, sagði Quentin og leit á
Malone sem notaði tækifærið til
að lúta niður og klæða sig i skóna.
Denzil virtist ekki taka eftir
klaufaskap sinum og hélt áfram:
— Ég vildi gjarnan að herra
Malone kæmi með mér á
Yardinn. Colburt undirforingi
fylgir yður heim, sendiherra.
Malone stóð upp aftur og
kveinkaði sér þegar skórnir hertu
aftur að tánum. — Viltu að ég liti
á Pallain?
— Ef þú getur þekkt hann
örugglega sem manninn sem þú
sást við Belgrave-torg i gær-
kvöldi, þá getum við haldið hon-
um ögn lengur. Ef til vill þar til
ráðstefnunni lýkur.
Malone leit á Quentin sem
sagði: — Viö biðum eftir yður með
kvöldmatinn. Ég get sagt konunni
minni að þér hafið hitt gamlan vin
og tafizt örlitið. Hann leit á
Coburn. — Við ætlum að reyna að
leyna konuna mina þvi, að
sprengjan hafi verið ætluð mér.
Mér þætti vænt um áð þér hefðuð
þaö i huga, undirforingi.
— Ég held þér verðið ekki fyrir
frekari óþægindum, sagði
Coburn. — Það eru aðeins nokkrir
dagar eftir af ráðstefnunni og þá
getið þér slakað á.
— Já, sagði Quentin, og nú
mætti Malone kaldhæðnislegu
augnaráði hans. í þetta skipti tók
Denzil eftir þvi lika og kafroðnaði
allt i einu.
Malone steig varlega i fæturna
á leið sinni út með Denzil. Þegar
þeir gengu framhjá Lisu á fremri
skrifstofunni, sagði hún: — Er
sendiherrann á heimleiö, herra
Malone? Frú Quentin er búin að
hringja. Hún virtist áhyggjufull.
— Hvers vegna?
— Hún sá fréttirnar i sjón-
varpinu um sprenginguna viö ár-
bakkann. Hún hafði veriö að mála
á sér varirnar þegar þeir komu
fram; hún þrýsti nýju vörinni að
þeirri gömlu, en hún var lika með
áhyggjusvip. — Stóð það i nokkru
sambandi við herra Quentin?
— Nei, alls ekki, sagöi Malone
og kveinkaði sér.
— Hvaðerað? Ertuveikur? Er
eitthvað að? Hún trúði honum
ekki. Hún var svartsýn eins og
allar konur, hugsaði hann. Það
skipti hann engu, þótt grunur
hennar væri á rökum reistur.
Hann lyfti öörum fætinum. —
Skórnir eru að drepa mig.
— Ö,erþaðalltogsumt? Henni
létti bersýnilega og brosti til
beggja. — Mér þætti hræöilegt ef
eitthvað kæmi fyrir — Hún
kinkaði kolli i átt að skrifstofu
Quentins.
— Það þætti okkur öllum, sagði
Denzil og brosti uppörvandi.
Hann dró magann inn. — Við lit-
um eftir honum.
Mennirnir tveir gengu út úr
ibúðinni. Svartur lögreglubill stóð
við gangstéttina, og einkennis-
klæddur ekillinn var að lesa
iþróttafréttirnar i Evening
Standard. Hann lét blaðiö siga,
fór út úr bilnum og opnaði dyrnar
fyrir Denzil og Malone.
— Hvernig standa leikar?
spurði Denzil.
— Kylfumennirnir okkar
standa höllum fæti.
—■ Ekki spyr ég að. Þeim
hrakar óðum. Denzil benti
Malone að setjast i aftursætið,
settist siðan við hliðina á honum.
— Hefurðu áhuga á krikket?
Malone kinkaði kolli. — Ég lék
reglulega þangaö til fyrir svo sem
tveim árum.
Denzil kinkaði kolli með
ánægjusvip og horfði á hann með
nýjum áhuga. Hver sá sem lék
krikket hlaut að vera ágætis
náungi. — Ég lék sjálfur einu
sinni. Þegar ég var i Nairobi. Þeir
voru bara aldrei nógu góðir þar.
Lék stundum með M.C.C. þegar
ég var heima i leyfi. Lék einu
sinni á Wally Hammond. Hann
kinkaði kolli, rifjaði upp hápunkt
leikferils sins. Hann sat álútur
stundarkorn,en leit siðan upp og
brosti þessu óvænta brosi. —
Konan min segir að það sé það
versta sem komið hafi fyrir mig á
ævinni. Segir aö það hafi hindrað
andlegan þroska minn i tuttugu
ár. Konur skilja aldrei neitt, er
það?
— Þess vegna er ég pipar-
sveinn.
Denzil leit á hann út undan sér
og brosti enn, svo hvarf brosið allt
i einu af andliti hans og hann
sagði: — Hve lengi hefurðu þekkt
sendifulltrúann?
Malone vissi að þetta var ekki
spurning út i bláinn, Denzil spurði
MIÐVIKUDAGUR 4. júlí
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ármann Kr. Einarsson
les ævintýri úr bók sinni
„Gullroðnum skýjum” (9).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli liða. Kirkjutónlist'
kl. 10.25: Svend Pripfeikur
Þrjú tónljóð op. 22 eftir
Gade og orgelkonsert i d-
moll eftir Matheson-Hansen
á Frobenisorgel Dómkirkj-
unnar i Kaupmannahöfn.
Fréttir kl. 11.00 Tónlist eftir
George Gershwin: Sondra
Bianca og Pro Musica Sin-
fóniuhljómsveitin i Ham-
borg leika Konsert i F-dúr
fyrir pianó og hljómsveit /
Leontyne Price, William
Warfield og fleiri flytja með
kór og hljomsveit atriði úr
óperunni Porgy og Bess.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siðdegissagan: „Eigi
má sköpum renna” eftir
Harry Ferguson. Axel Thor-
steinson þýðir og les (2).
15.00 Miðdegistónleikar: ts-
lenzk tónlista. „ömmusög-
ur” hljómsveitarsvíta eftir
Sigurð Þórðarson. Sinfóniu-
hljómsveit Islands leikur;
Páll P. Pálsson stjórnar. b.
Lög úr óperettunni „í álög-
um” eftir Sigurð Þórðarson.
Guðrún A. Simonar, Guð-
mundur Jónsson, Magnús
Jónsson og SvavaÞorbjarn-
ardóttir syngja með kór og
hljómsveit, Dr. Victor Ur-
bancic stjórnar. c. „Sjö-
strengjaljóð” eftir Jón As-
geirsson. Strengjasveit
Sinfóniuhljómsveitar Is-
lands leikur; Páll P. Pálsson
stjórnar. d. Lög eftir Jón
Ásgeirsson. Guðrún Tómas-
dóttir syngur. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
16.25 Popphorniö.
17.10 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Bein lina. Umsjónar-
menn: Vilhelm Kristinsson
og Einar Karl Haraldsson.
20.05 Samleikur i útvarpssal.
Flytjendur: Rut Ingólfs-
dóttir, Gisli Magnússon,
Halldór Haraldsson, Rögn-
valdur Áreliusson og Guð-
rún Kristinsdóttir. a. Tvö
smálög fyrir fiðlu og pianó
eftir William Walton. b.
Hveralitir eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. c. Arioso
eftir Fiocco. d. Largo og
Allegretto eftir Benedetto
Marcelle. e. Roundelay eftir
Allan Richardson.
20.25 Sumarvaka a. Fjöl-
skyidan i Fagrahvammi;
Agúst Vigfússon kennari
flytur frásöguþátt. b.
Kvæðalög; Sveinbjörn Bein-
teinsson kveður úr Hænsna-
Þóris rimum eftir Jón
prest Þorláksson á Bægisá
og Svein Sölvason lögmann.
c. Um þjóðbraut þvera;
Guðmundur Þorsteinsson
frá Lundi segir frá. d. Kór-
söngur. Kammerkórinn
syngur islenzk lög. Rut
Magnússon stjórnar.
21.30 tltvarpssagan „Blómin i
ánni” eftir Editu Morris.
Þórarinn Guðnason þýddi.
Edda Þórarinsdóttir les (1).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Eyja-
pistill.
22.35 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Kára Jónassonar.
22.50 Nútimatónlist. Halldór
Haraldsson kynnir Sinfóniu
og Visage eftir Berio.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
flR Jóásm'tJ? H-
INDVERSK UNDRAVERÖLD
Nýkomið: margar geröir af fallegum
útsaumuðum mussum úr indverskri
bómull. Batik — efni i sumarkjóla. Nýtt
úrval skrautmuna til tækifærisgjafa.
Einnig reykelsi og reykelsisker i miklu
úrvali.
JASMIN
Laugavegi 133 (við Hlemmtorg)
fi»S&lJSIflí*flBlflftfft