Þjóðviljinn - 04.07.1973, Qupperneq 15
Miðvikudagur 4. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Botnliðin
Framhald af bls. 11.
leikurinn af þófi og leiðindaknatt-
spyrnu, sannkallaður botnliöa-
leikur. Varnir beggja opnuBust
illa og tækifæri voru þvi nokkur.
Þannig bjargaði Einar Þór-
hallsson á marklinu á 5. min.,
GuBmundur Þórðarson misnotaBi
dauBafæri á 6. min., Þór HreiB-
arsson misnotaBi skotfæri á 24.
min. o.s.frv.
ÞaB var svo á 30. min. sem ann-
aB markið kom. Baldvin Eliasson
fékk boltann upp úr hornspyrnu
frá hægri og skoraBi fallega
framhjá Gissuri markverBi
Breiðabliks. Hann kom inná i staB
Ólafs Hákonarsonar sem varB að
yfirgefa völlinn i hálfleik vegna
veikinda.
Leikurinn bar þess augljós
merki að hér var leikur botnliB-
anna. KR-ingar voru þó mun betri
aðilinn, og á köflum geröu þeir
nokkuö skemmtilega hluti. Eng-
inn bar af öörum i liöi þeirra,
þarna voru jafngóöir einstakling-
ar sem meö betri samvinnu og út-
færslu leikaöferöa gætu hæglega
náð góðum árangri i framtiðinni.
Lið BreiBabliks var lakari aöil-
inn og kom mjög illa út úr þessum
leik. Ekki vantar breiddina i liðiö,
það er sama hve margir eru for-
fallaöir, alltaf virðist nóg af
mönnum til aö fylla skarBiö.
Þarna eru margir mjög skemmti-
legir leikmenn og er furðulegt aö
ekki skuli nást meiri árangur út
úr svona góðum einstaklingum.
Það hlýtur að vera röng uppbygg-
ing i þjálfuninni eða þá algjört á-
huga- og viljaleysi leikmanna
sjálfra.
— gsp.
Styrkir
Framhald af bls. 4.
19. Páll Skúlason settur prófessor
kr. 175.000 vegna kostnaðar við að
ganga frá doktorsritgerð, sem
varin veröur við háskólann i
Louvain.um heimspekikenningar
Pauls Ricoeur.
20. Rögnvaldur Hannesson
hagfræðingur kr. 250.000 til að
ljúka doktorsritgerð um hag-
kvæma nýtingu þorskstofna i
Noröur-Atlanzhafi og þá fyrst og
fremst þorskstofnsins, sem hefur
heimkynni sin við strendur Is-
lands.
21. Samnorrænar rannsóknir á
Vesturheimsferðum kr. 250.000 tii
að vinna að hinum islenzka þætti
þeirra rannsókna, en umsjá með
verkinu hefur Þórhallur
Vilmundarson prófessor.
22. Sigfús H. Andrésson
skjalavörðurkr. 150-OOO^til að full-
semja ritið Upphaf fríhöndlunat
og almenna bænarskráin
—tslenzka verzlunin 1774-1807
(lokastyrkur).
23. Dr. Simon Jóh. Agústsson
prófesor kr. 75.000 til að kosta töl-
fræðilega aöstoð og tölvuúr-
vinnslu við að ijúka rannsókn á
tómstundalestri 10-15 ára barna.
24. Sólrún Björg Jensdóttir B.A.
kr. 150.000 til aö vinna að doktors-
ritgerö við Lundúnarháskóla um
samskipti Breta og Islendinga
1914-1945 með megináherzlu á
hinni stjórnmálalegu hliö þeirra
samskipta i heimsstyrjöldunum
báöum.
25. Sveinbjörn Rafnssonfil, kand.
kr. 150.000 til að ljúka doktors-
ritgerð viö háskólann i Lundi um
Landnámabók frá heimildar-
gagnrýnislegu sjónarmiði.
26. Dr. Þuriður J. Kristjánsdóttir
lektor kr. 125.000 vegna kostnaðar
við að ljúka hluta sálfræðilegrar
ferilrannsóknar á rúmlega 200
barna hópi.
Undirróður
Framhald af bls. 16.
skýra frá skoðunum ríkisstjórn-
anna á vandamálum sem varða
frið og samvinnu i Evrópu. óttast
er aö forsætisrráðherra Möltu
fari fram á aö Túnis og Alsir fái
aö senda fullgilda fulltrúa. Við
undirbúning ráðstefnunnar var
sendiherra Möltu mjög umhugað
aö koma þessu hugöarefni sinu
að, og ef utanrfkisráðherra er
eins umhugaö að koma fulltrúum
þessara Afríkurlkja á þing með
kosningarétt, gæti það haft i för.
með sér að tsraelsrfki vildi fá
fulltrúa. Það verður að sam-
þykkja allar slikar tillögur sam-
hljóða.
Þingfulltrúar óttast,að ef Israel
yrði með á þinginu yrði vanda-
máliö fyrir botni Miðjarðarhafs
tekiö fyrir og það þykir of erfitt
viöfangsefni fyrir þessa ráð-
stefnu.
En þingi þessu er fyrst og
fremst ætlað að leysa vanda-
mál Evrópulanda og þótt Kanada
og Bandarikin séu með, verða
vandamál Bandarikjanna i S-A-
Asiu ekki rædd.
Krabbamein
Framhaid af bls. 16.
almennings. Er þá leitazt við að
nýta reynslu hvers annars svo og
ritaðar greinar, myndir og annaö
upplýsingaefni.
I sambandi við fulltrúafund
félaganna er árlega veittur
styrkur til náms eða rannsókna
og rennur hann til þess lands, sem
fundinn heldur. Hlaut að þessu
sinni styrkinn Gunnlaugur Geirs-
son læknir, sem er við
framhaldsnám i meinafræði i
Bandarikjunum, til aö kynna sér
greiningu á krabbameini meö
frumurannsóknum i sambandi
viö leit að krabbameini á
byrjunarstigi.
1 dag fara fulltrúarnir til
Akureyrar þar sem þeir munu
ma. kynna sér starfsemi
Akureyrardeildar Krabbameins-
félags tslands. —vh
Sindri
Framhald af bls. 1.
iðnaðarmanna beitt sér mikiö
fyrir þvi að úrbætur verði geröar.
Það eina sem lagfært hefur ver-
ið er.að daglegri ræstingu á kaffi-
stofu var komið á (hún var ekki
ófullnægjandi.heldur alls ekki til
staöar) en þó ekki eins og æski-
legt væri,þvi gólf kaffistofunnar
er dúklaust og svo til óvinnandi
verk að halda henni hreinni og
þokkalegri meðan svo er. Þá
fengu þeir einn rafmagnsofn i
renniverkstæði fyrir bláfrosta-
timann i vetur. Loftræstingu i
aðalsmiðju og á renniverkstæði
er enn á þann veg háttaö að háls-
bólgutilfelli eru tið meðal starfs-
manna.
Rafmagnsleiöslur liggja enn
um öll gólf i plötu- og klippud.,
þrátt fyrir umsögn eftirlita um að
þær skapi mikla slysahættu.
öðrum atriöum hefur ekki verið
sinnt.
Birgir sagði að eins og eðlilegt
væri ýttu samstarfsmenn hans á
eftir þvi aö hann sæi til þess að
lagfæringar væru geröar. Hann
sagöist einnig hafa reynt aö gera
þaö eftir megni.en ,,það stoppar
allt i kerfinu”. Hann sagöist
margsinnis hafa rætt við eftirlit-
ið, en ekki hafa fengiö nein skýr
svör. Sagði hann að honum hafi
verið tjáð að málið væri komið
lengra en til eftiriitsins, en enga
nánari skýringu á þvi hvar i kerf-
inu það væri statt.
Fjórir og hálfur mánuður hafa
liðiö og ekkert er farið aö gera i
málinu. Birgir sagði blaðamanni
aö hann væri oröinn þreyttur á
þessu og láir honum það lfklega
enginn.
//Erum að senda bréf"
Hjá heilbrigðiseftirlitinu voru
þeir okkur Birgi sammála að
fjórir og hálfur mánuður væri
anzi langur timi. Fulltrúinn sem
blaöamaöur ræddi við, staðfesti
orð Birgis um það aö litið sem
ekkert heföi verið framkvæmt af
úrbótum, en vildi bæta viö aö
ræsting heföi verið aukin á sal-
ernum.
Hvað varðar aðgerðir eftirlits-
ins sagði fulltrúinn,að síðan 16.
febrúar heföi ekkert verið aöhafzt
utan það.að eftirlitsmenn hefðu
farið i eina skoöunarferö á staö-
inn. Hann sagði einnig að málið
væri enn hjá embætti borgar-
læknis,en ekki komiö lengra eins
og Birgi var tjáö.
,,Af hverju þarf það aö biða i
fjóra og hálfan mánuð sem beðið
er um ,,án tafar” og ,,nú þeg-
ar”?”
,,Ja, af hverju eru menn svona
lengi að taka við sér? (!) Það er
nú það”.
,,Er það ekki ykkar að ýta á
eftir mönnum?”
„Jú, við gerum þaö, viö ýtum
náttúrlega á eftir mönnum. En
við gerum ekki meira en þetta.
Það er yfirmanna okkar eöa heil-
brigðisráðs að afgreiða þetta, aö
loka þessu. Það er hlutur sem
ekki er farið út i nema alveg i það
ýtrasta”.
,,Af hverju ekki? Þarna er
fjöldi starfsmanna sem er i
hættu”.
,,Já, ég veit það að þetta með
rafmagnið, það er alveg stór-
hættulegt. En þeir (þ.e. eigendur
fyrirtækjanna) hafa alltaf ein-
hverjar afsakanir meö það af
hverju þetta er ekki komið.
„Þetta er alveg aö koma” og
svona nokkuö. En við erum með
fleiri staði og þess vegna dregst
FHA FL UCFEUXCIIMU
Skrifstofustúlka óskast
Flugfélag Islands óskar að ráða skrif-
stofustúlku til starfa i bókhaldsdeild
félagsins. Enskukunnátta, ásamt góðri
vélritunarkunnáttu nauðsynleg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást á skrif-
stofum félagsins, sé skilað til starfs-
mannahalds i siðasta lagi þann 16. júli n.k.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F.
FLUGFELAG ISLAJVDS
Hjartans þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, sem
vottuðu okkur samúð og vinarhug viö hið sviplega fráfall
mannsins mins og föður okkar
HALLDÓRS SVEINSSONAR
Vesturbergi 50
Helga Sumarliðadóttir
Guðriður Dóra Halldórsdóttir
Sveinbjörn Halldórsson
Guðný Halldórsdóttir
Sonur minn og bróðir okkar.
JÓN VALGEIR BJARNASON,
FRÁ ÞORKELSGERÐI, SELVOGI.
lézt á Borgarspítalanum 2. júli.
Þórunn Friöriksdóttir
og systkini hins látna.
það hjá okkur aö viö komum aft-
ur”.
„En nú er ástandið þarna það
alvarlegt að ástæöa er til aö þiö
beitið ykkur sérstaklega i þessu
máli”.
„Já, já, og við gerum þaö. Það
er alveg i undirbúningi”.
„Er það i undirbúningi, eftir
fjóra og hálfan mánuð?”
„Ja, við tökum okkur ekki
neinn ákveðinn tima”.
„En hvað hyggist þiö gera?
Veitið þiö fyrirtækinu frest til lag-
færinga?”
„Nei. Við sendum fyrirtækinu
bréf, og ef þvi veröur ekki sinnt,
verður máliö lagt fyrir Heil-
brigðisráð og timinn hafður nógu
stuttur, liklega um hálfur mánúð-
ur. Siðan tekur ráðiö afstöðu i
málinu”.
„Hvaö heldur þú aö þaö taki
langan tima?”
„Það getur afgreitt það á ein-
um fundi. Hvaö þaö gefur langan
frest skal ég ekki segja. En þaö er
bréf aö fara núna.”
„Hvað getur Heilbrigöisráð
gert?”
„Þaö getur lokaö staönum”.
Gott var nú aö heyra þetta.
Heilbrigðiseftirlitið er sumsé bet-
ur á vegi statt en öryggiseftirlitið
aö þvi leyti,aö það hefur völd til
að loka vinnustöðum ef kvörtun-
um þeirra og fyrirmælum er ekki
sinnt.
En af hverju dregst beiting þess
valds svo lengi sem raun ber
vitni?
Umsögn Guðjóns Jónssonar
Guöjón Jónsson, formaður Fé-
lags járniönaðarmanna, hefur
ákveönar skoöanir á þvi af hverju
tafirnar stafa. Hann telur. að
stofnanir þær sem annast vinnu-
staðaeftirlittaki meira tillit til út-
gjalda fyrirtækjanna en heil-
brigðis starfsmanna. Þaöersum-
sé meira hugsað um að spara eig-
endum fyrirtækja fé.en að starfs-
menn haldi fullri heilsu.
Varðandi ummæli öryggiseftir-
litsins i gær um að það hefði ekki
völd til að loka fyrirtækjum vildi
Guðjón minna á 38. grein laga um
öryggisráðstafanir á vinnustöð-
um,en hún hljóðar svo:
„Ef öryggiseftirlitiö hefur kraf-
izt þess með hæfilegum fyrirvara
af einhverju fyrirtæki, að
öryggisútbúnaður verði lagfærð-
ur eða nýjum öryggisútbúnaði
komiö fyrir og lagfæringin hefur
eigi verið gerð, þegar frestur sá
er liðinn, sem öryggiseftirlitið
hefur gefið til framkvæmdanna,
getur öryggismálastjóri látið
framkvæma lagfæringarnar á
kostnað fyrirtækisins. Slikan
kostnaö má innheimta jafnhliða
opinberum gjöldum, og fylgir lög-
taksréttur þeim kröfum.
Telji öryggiseftirlitið sérstaka
hættu á ferðum fyrir lif eða heil-
brigði verkamanna eöa annarra,
getur það krafizt þess, að strax sé
bætt úr þvi, sem ábótavant er,eða
látið hætta vinnu i þeim hluta
starfseminnar, sem þannig er á
sig kominn.” (Leturbreytingar
eru blaðsins.)
öryggiseftirlitið hefur þvi
greinilega meira vald en það vill
vera láta. Hvers vegna er þvi ekki
beitt? ÞH
SKIPAUTGCRB RIKISINS
M/s ESJA
fer mánudaginn 9. júli
vestur um land i
hringferð. Vörumót-
taka i dag, á morgun
og föstudag til Vest-
fjarðahafna, Norður-
fjarðar, Siglufjarðar,
Ólafsfjarðar, Akur-
eyrar og Húsavikur.
Laus störf
Viljum nú þegar ráða fólk til almennra
bankastarfa. Vélritunarkunnátta æskileg.
Umsóknir sendist til starfsmannastióra
fyrir 6. þ.m.
/f\
pFBÍNAÐARBANKl
\Í\J ÍSLANDS
Skólastjóra
og íslenzkukennara
vantar að gagnfræðaskólanum i Neskaup-
stað.
Umsóknarfrestur til 15. júli.
Upplýsingar hjá fræðslufulltrúa i sima
7285 eða 7518.
Fræðsluráð Neskaupstaðar.
Frá Tékknesk-
íslenzka félaginu
Félaginu gefst kostur á að senda 5 börn á
áldrinum 11-13 ára til 25 daga sumar-
dvalar i Tékkóslóvakiu dagana 3. — 28.
ágúst n.k.
Fararstjóri verður Vilborg Dagbjarts-
dóttir, kennari.
Þeir sem áhuga hafa gefi sig fram við hana
i sima 16698 eða Björn Svanbergsson i
sima 18614, i siðasta lagi fyrir 15. júli.
Stjórnin