Þjóðviljinn - 04.07.1973, Síða 16
Miövikudagur 4. júll 1973.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags’ Reykjavikur, simi
18888.
Nætur-, kvöld og helgidags-
varzla lyfjabúöanna vikuna 29.
júni —5. júli veröur i Lyfjabúðinni
Iðunni og Garðsapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhringinn.
Kvöld- nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Trjámaðkur herjar
á borgina
Verjandi að
garð-
eigendur
úði sjálfir?
Ráðunauturinn
ráðalaus og vísar
á einkaaðilana,
sem ekki anna
eftirspurn
Hættulegt ástand virðist
vera að skapast i görðum i
Iteykjavik er garöeigendur
taka unnvörpum til þess ráðs
að úða sjálfir tré sin og plöntur
með eiturefnum. Vill þá oft
gleymast lögboðin kvöð um
merkingu auk þess sem mörg-
um er hættan af efnunum alls
ekki Ijós.
En hvað á að gera? Trjá-
maðkur herjar nú á garða
borgarinnar og eðlilega þykir
mörgum sárt að sjá Iauf
trjánna, sem þeir eru búnir aö
hafa svo mikið fyrir að rækta
upp, skorpna saman og falla
svo strax um mitt sumarið
vegna ágangs maðksins.
Aðeins þrir aðilar, garð-
yrkjumenn, taka að sér að úða
garða fyrir fólk og hjá þeim
öllum eru bókaðar pantanir
fyrir allt sumarið. — Við get-
um komið i fyrsta iagi næsta
vor, sagði einn, og eiginkona,
sem svaraði simanum hjá
öðrum, sagði hann löngu búinn
að banna sér að skrifa upp
fleiri staði.
Til er i bænum embætti, sem
nefnist garðyrkjuráðunautur
borgarinnar og sneri blaða-
maður Þjóðviljans sér þang-
að. En einu ráðin, sem þar
fengust voru að snúa sér til
einkaaðilanna þriggja eða
reyna að annast verkið sjálf-
ur. Og reyndar er hægt að fá
keypt úðunartæki, sem kostar
á annað þúsund krónur, og
einnig eiturefni til notkunar i
þessu skyni.
En er þetta verjandi? Lát-
um liggja milli hluta óvana og
lofthræðslu margra, sem
þyrftu að klifra upp i há tré,
kannski i fyrsta sinn á ævinni.
Hitt er alvarlegra að láta
óvana nota eiturefni eftirlits-
laust. Hvað segir heilbrigðis-
eftirlitið?
Hjá heilbrigðiseftirlitinu
náðum við tali af Guðjóni
Magnússyni aðstoðarborgar-
lækni, sem fannst mjög óvar-
legtvegna mengunarhættu, að
fólk færi að standa sjálft i
garðaúðun. Benti hann einnig
á, að einmitt vegna óvarkárni
meðan öllum var frjálst að
nota slik eiturefni án sérstaks
leyfis, hefðu komið á slysa-
stofuna nokkur eitrunartilfelli
vegnaúðunar. M.a. þessvegna
voru sett i nýju lögin um með-
ferð eiturefna ákvæði um að
sækja þyrfti um heimild yfir-
valda til notkunar vissra efna
og miðaðist leyfi þá við sér-
fróða menn, s.s. garðyrkju-
menn i þessu tilfelli.
— Það gefur auga leið, að
þegar svona lög eru sett, er
það ekki fyrir hvern sem er að
taka þessi efni til heimilis-
notkunar, sagði Guðjón, enda
hafa þeir sem leyfið fá.mjög
ákveðin fyrirmæli um méð-
ferð og merkingu garða með
viðvörunarspjöldum á eftir.
Ekki er vist, að öllum húseig-
endum væri ljós þessi kvöð ef
þeir tækju almennt til við að
úða trén sin sjálfir. vh
Ekki allt líkt með skyldum
Eðli og tíðni krabbameins
á Norðurlöndum
Fulltrúar Nordisk Cancerunion á fundi hér
Tiðni og eöli krabbameins-
tiifella á Norðurlöndunum er
mjög mismunandi frá landi til
lands og jafnvel frá landshluta til
landshluta sumsstaðar. Virðist
sem ólikar neyzluvenjur og
lifnaöarhættir hafi þar talsvert að
segja, einkum til langframa.
Þannig hafa Finnar td. hlutfalls-
lega langflest tilfelli lungna-
krabba, en islendingar hæsta
hlutfall krabbameins i maga.
Þetta kom fram ma. á blaða-
mannafundi meö fulltrúum nor-
rænu krabbameinsfélaganna,
sem hér hafa setið fund samtaka
félaganna, Nordisk Cancerunion,
undanfarna tvo daga. Vildu
fulltrúar Finnlands, þeir próf.
O.Jarvi form. finnska félagins og
aðalritari þess N.Voipio, kenna
hið háa hlutfall lungnakrabba i
landi sinu þeirri staðreynd, að
Finnar reyktu meira sigarettur
eða öllu heldur hefðu gert það
lengur en hinar Norður-
landaþjóðirnar, enda heföi þar
verið sett á stofn sigaettuverk-
smiðja fyrir mörgum áruatugum.
í þvi sambandi mætti vera Is-
lendingum ihugunarefni, benti
nýkjörni form. islenzka félagsins
Ólafur Bjarnason læknir á að
þetta háa hlutfall i Finnlandi á viö
karlmenn, hinsvegar er tiðni
lungnakrabba meðal kvenna hæst
á tslandi af Norðurlöndunum,
hver sem orsökin kann nú að
vera.
Formenn hinna einstöku félaga
eru fulltrúar þeirra i Nordisk
Cancerunion, en auk þeirra sitja
árlega fundi samtakanna fram-
kvæmdastjórar félaganna og eru
fundir haldnir i löndunum til
skiptis. Kom fram á blaöamanna-
fundinum i gær, að krabbameins-
félögin á Norðurlöndunum eru
frjáls samtök einstaklinga og
aðaltilgangur samtaka að auka
kynnin, veita upplýsingar og
ræða möguleika á sameiginlegum
verkefnum.
Sagði Ólafur Bjarnason, að til
umræöu á fundinum hér hefði
verið samanburður á starfsemi
HELSINGFORS 3/7. — Fyrir
hádegi i dag hófst öryggisráð-
stefna Evrópu i Helsingfors. Ráð-
stefnuna sitja 34 utanrikis-
ráðherrar, einn forsætisráðherra
og aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, Kurt Waldheim. Full-
trúar allra Evrópulandanna
nema Albaniu voru mættir og auk
þess fulltrúar Kanada og Banda-
rikjanna. Margir fulltrúanna
höföu meðsér lifvörð, en auk þess
vinnur fjölmennt lögreglulið við
að gæta þess að ekki verði ráðizt á
hina háu herra.
Utanrikisráðherra Finnlands
setti þingið, og vonaðist hann til
aö árangur af þvi yrði góður. Þá
talaöi Uhro Kekkonen, forseti
Finnlands, og bauð hann gesti
velkomna. Siöastur tók til máls
Kurt Waldheim,sem sagði að með
þessu þingi væri merkum áfanga
náö og markaði það timamót i
sögu Evrópu og alls heimsins.
Þessi fyrsti fundur stóð aðeins i
hálfa klukkustund, en siðar i dag
áttu að vera fundir. Þar átti utan-
rikisráðherra Ráðstjórnarrikj-
anna, Andrej Gromyko, m.a. að
tala og gera þá grein fyrir stefnu
Rússlands i ýmsum málum og
framtiðaráætlanir. Mörg dag
blöð i Moskvu ræða um
ráðstefnuna og eru mjög ánægð
með hana og álita að friðvæn-
legra verði i Evrópu vegna
hennar. Þau fagna þvi einnig að
þar með virðist kalda striðið
algjörlega úr sögunni.
Fundurinn mun standa i eina
viku. Aðalefni fundarins verður
aö utanrikisráðherrar munu
Framhald á bls. 15.
Hitabylgja
í Evrópu
HAMBORG 3/7. — Mikil hita-
bylgja hefur undanfarna daga
geisað I Evrópu. Fólki liður illa af
hita og óheilnæmu lofti, og
nokkrir hafa beðið bana af
völdum veðursins.
Svo virðist sem þetta veður
muni haldast a.m.k. i nokkra
daga enn. Hitabylgja nær allt frá
syðsta hluta Spánar að
N V Rússlandi. Almennt er
hitinn yfir 30 gráöur C, en hæst
hefur hann komizt i ferðamanna-
staðnum Cordoba á Spáni, 38
gráður. 1 Madrid er hitinn 35
gráður og i S-Frakklandi er hann
37 gráður.
Danir kaupa tvær floskur af öli
á mann dag hvern, og við
Miðjarðarhafið er morgun hvern
unnið að hreinsun baðstrand-
anna, þvi þrátt fyrir hitann
kvarta baðstrandargestir meira
undan mengun i fjörunni og i
sjónur.i en hitanum. Miðjarðar-
hafið er smám saman að verða aö
óhreinum polli.
í Þýzkalandi hafa þeir mestar
áhyggjur af þvi að sjúklingar með
hjartasjúkdóma fari sér að voða i
hitanum, en þar hefur fólk farizt
af völdum hitans eins og reyndar
annars staðar á þessu hitabylgju-
svæði.
Pólverjar leita uppi i sveitir og
á baðstaði, og borgirnar eru nærri
tómar. Til Póllands hópast lika
fólk frá Norðurlöndunum, en þar
er hiti mikill.
sl. árs og undirbúningur undir
alþjóblegt þing krabbameins-
félaga i október 1974, þar sem
norrænu félögin ætla að standa að
sameiginlegri kynningarsýningu.
Jafnhliða formannafundinum er
haldinn fundur forstöðumanna
krabbameinsskráningar i löndun-
um fimm (Færeyjar eru ekki
með), en fyrir tilstuðlan krabba-
meinsfélaganna hefur verið
komið á I öllum löndunum reglu-
legri skráningu allra nýrra
sjúklinga með illkynjuð æxli.
Hefur nú komið út samanburöar
um þessi tilfelli i Finnlandi,
Noregi, Sviþjóð og Islandi
Starfsemi félaganna er með
mismunandi hætti i hverju landi
fyrir sig, en sameiginlegur þáttur
er auk skráningarinnar almennu
fræðslustarfsemi um orsakir,
einkenni og eðli hinna ýmsu
illkynjuðu sjúkdóma að svo miklu
leyti, sem kunnugt er. Mismun-
andi er hinsvegar að hve miklu
leyti félögin hafa beitt sér fyrir
krabbameinsleit, stuðningi við
1 æ k n i n g a s t a r f s e m i og
visindalegum grunnrannsóknum.
A Islandi hefur Krabba-
meinsfélagið td. beitt sér fyrir leit
að krabbameini á byrjunarstigi i
sérstökum leitarstöðvum, sem
kunnugt er, en á hinum Norður-
löndunum hafa visindalegar
grunnrannsóknir verið styrktar.
Mikilvægast ,í samstarfi
norrænu krabbameinsfélaganna
töldu fulltrúarnir vera
upplýsingaskiptin um reynslu af
leitarstöðvunum og um
fræðslustarfsemi meðal
Framhald á bls. 15.
Aðalstarf CIA verður
Undirróður í
öðrum löndum
0
□
er eina blöndunartækiö, sem er stillanlegt meö
annari hendi eöa olnboganum. Falleg og afar
hentug í hverju tilviki - í baöherbergiö, í eldhúsiö
- aö ógleymdum sérhönnuðum blöndunar-
tækjunum - fyrir sjúkra - og tannlækningastofur.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Innflutningsdeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080