Þjóðviljinn - 29.07.1973, Blaðsíða 1
(RO
MÐVIUINN
Sunnudagur 29. júli 1973. — 38. árg. — 172. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
APOTEK
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7.
| NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2.'
SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
Villtum elt-
ingaleik lauk
með fótbroti
Vilitum cltingaleik
lögrcglunnar viöpiltá mótorhjóli
i fyrrinótt lauk með þvi að liann
lcnti á ljósastaur og fótbrotnaði.
Þctta gerðist á Skúlagötunni og
inunaði minnstu að pilturinn lenti
i sjónum.
Þetta var rétt eftirkl. 1 um
nóttina og hafði lögreglan elt
piltinn frá Hlemmi móti einstefnu
um nokkrar götur á miklum
hraða. A Hlemmtorgi var hann
staddur i hópi mótorhjólagæja,
en lagði á flótta. er lögreglan
ætlaði að hafa tal af þeim. Var
pilturinn ekki talinn allsgáður.
Mikið um slys
Óvenju mikið var um slys i
borginni fyrri sólarhring og var
slökkviliðiö kallað út niu sinnum
til slysaflutninga á föstudag og
þrisvar aðfaranótt laugar-
dagsins. Fæst slysanna reyndust
alvarlegs eðlis.
Líkamsárás
Skömmu eftir miðnætti i
fyrrinótt var ráðizt á gangandi
mann á mótum Þverholts og
Rauðarárstigs og hann sleginn i
götuna. Var þar ungur piltur að
verki og lá maðurinn i götunni
blóðugur i andliti og á höfði er
lögreglan kom að, en reyndist
ekki alvarlega slasaður.
Þessar föngulegu skólastelpur voru að gera hreint um borð í togaran um Úranusi á fimmtudaginn. t blaðinu
I dag er grein um skólakrakka, sem nú taka fullan þátt i atvinnulifinu.
Eldur í vélarrúminu-
én snarræði bjargaði
— flogið með froðutæki til Arnarfjarðar
Það er þakkað snarræði
áhafnar mb. Árna
Kristjánssonar BA 100 frá
Bíldudal, að báturinn
Stór sigur
Frjálslyndra
í Englandi
London 27/7 —. Frjálslyndi
flokkurinn i Englandi vann
mikinn sigur i dag, þegar hann
náði tveim þingsætum i neðri
málstofunni, af ih^þjsflokknum.
Hefur ihaldsflokkurinn haft þessi
þingsæti frá 1945.
Er þetta mesta áfall, sem
ihaldsflokkurinn undir stjórn
Edwards Heath hefur orðið fyrir
siðan hann tók við völdum 1970.
Það er álitið að kosningarnar hafi
farið á þennan veg vegna þess
hve illa horfir i efnahagsmálum i
Englandi þessa stundina.
Frjálslyndi flokkurinn er mjög
litill i Englandi, hefur aðeins 10
þingsæti af 630 i neðri málstofunni
eftir þessar siðustu kosningar. En
flokkurinn hefur unnið mjög á að
undanförnu. Undanfarin 40 ár
hefur svokallað tveggja flokka
kerfi verið i Englandi.
A undanförnum 9 mánuðum
hafa frjálslyndir náð 3 þingsætúm
af ihaldsmönnum og einu af
verkamannaflokknum.
skyldi ekki verða eldinum
að bráð í fyrrinótt, þegar
kviknaði í vélarrúmi hans,
þar sem hann var staddur
um 20 mílur út af Kóp.
Eldurinn kom upp undir
rafmagnstöflu i vélarrúmi
bátsins laust fyrir miðnætti og
brugðu þá skipverjar við, birgðu
öll op og sprautuðu þvi sem til var
af kolsýru niður I vélarrúmið, aö
þvi er Pétur Bjarnason oddviti á
Bildudal sagði Þjóðviljanum, og
tókst þannig aö forða þvi að
eldurinn breiddist út.
Um kl. 2 kom Brimnesið frá
Tálknafirði á vettvang og dró
bátinn inn Arnarfjörð til Bildu-
dais og komu þeir þangað um sjö-
leytið i gærmorgun. Þá voru
komnir fljúgandi vestur tveir
menn frá slökkviliðinu i Reykja-
vik og einn frá Brunamála-
stofnuninni og höföu þeir með-
ferðis nýja gerð froðutækja, sem
hægt er að fylla með vistarverur
án þess að menn þurfi að fara inn
I þær og kæfir froöan eldinn al-
gerlega.
Sagði Pétur, að við björgun
bátsins hefði verið haft samráð
við Slysavarnafélagið, Bruna-
málastofnunina og Slökkvilið
Reykjavikur og heföu allir
brugðizt einstaklega vel við.
Árni Kristjánsson er 170 lestir
að stærð og gerður út á linu frá
Bildudal. —vh
Fjöldi bygginga
sprengdur í loft
upp í Nikosíu
Nikósiu 28/7 — Margar byggingar
voru eyðilagðar i sprengjuárás-
um i nótt i Nikósiu, á Kýpur. Ekki
sakaði neinn mann, en mikil
verðmæti voru eyðilögð.
Voru sprengdar i loft upp
verksmiðjur, ibúðarhús og
verzlanir. Alls sprungu um 30
sprengjur. Var ibúðarhús
iðnaðarmálaráðherrans, Michael
Colocassides m.a. sprengt i loft
upp, en hann var ekki heima.
Nokkrar sprengjur sprungu
annars staðar á Kýpur, bæði i
bænum Larnaca, og i Limassol á
Suður-Kýpur.
Tveir fangar létu
lífið í uppreisn
í ríkisfangelsi í
Oklahoma
Oklahoma 28/7 —. Uppreisn
var gerð i rikisfangclsi i Okla-
hóma f Bandarikjunum i nótt.
Tóku mörg hundruö fangar
þátt i uppreisninni og krefjast
ýmissa umbóta i fangelsinu,
m.a. vilja þeir fá að fara
frjálsir ferða sinna á milli
deilda fangelsisins.
Hafði föngunum tekizt að ná
upp undir 20 fangavörðum á
sitt vald og halda þeir þeim
sem gislum.
Tveir fangar létu lifið og
tveir fangaverðir særðust i
ólátunum. Sprengdu fangarnir
bensinsprengju til þess að ná
vaktturni á sitt ald. Fanga-
verðirnir skutu á fangana með
vélbyssum, og mikill fjöldi
lögreglumanna og manna úr
þjóðvarnaliðinu umkringdu
fangelsið.
Fangarnir kveiktu i ýmsum
byggingum á fengelsis-
svæðinu, til þess að undir-
strika kröfur sinar.
Fangar gera upp
reisn í Róm
R 28/7 — t nótt gerðu á þriðja
hundrað, fangar uppreisn i
fangelsi i Róm. Kveiktu þeir i
hluta fangelsisins, og tóku að
þvi er álitið er 3 fangaverði
sem gisla.
Yfir 1000 lögreglumenn
umkringdu fangelsiö og fjöld-
inn allur af fólki hafði safnazt
saman framan við fangels-
isgarðinn til þess að fylgjast
með gangi mála.
Fangarnir sprautuðu vatni
á lögregluna, og nokkur hluti
þeirra fór upp á þak fangelsis-
ins, og hrópaði slagorð eins og
„umbætur og frelsi okkur til
handa”.
Bruni í Keflavík
Eldur kom i fyrrinótt upp i einu
clzta húsinu i Kcflavik og
skemmdist það talsvert.
Um hálffimmleytið i fyrrinótt
kom upp eldur að Klapparstig 6,
sem er litið, forskalað timburhús,
ibúðarhæð með kjallara undir.
Þrennt var i húsinu og komst
strax út og tókst slökkviliðinu i
Keflavik að ráða niðurlögum elfs-
ins á rúmum klukkutima.
Sennilegt þykir að kviknað hafi
i útfrá oliukyndingu og er húsið
mikið skemmt, þó er talið að hægt
verði að gera við það. Húsið er
með elztu húsunum i Keflavik og
bjó þar á sinum tima Einar
Einarsson koparsmiður og var
þá smiðja i kjallaranum.