Þjóðviljinn - 29.07.1973, Síða 9
Sunnudagur 29. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Viö stef num að þvi að ala
þessi börn upp í að vera
sem mest eins og annað
fólk og helzt að geta
stundað einhverja vinnu,
þegar fram i sækir. Eigi
það að takast þurfa þau að
fá uppeldislega þjálfun,
þau verða að fá að gera
ýmislegt, sem önnur börn
gera, og koma út á meðal
annarra, en vera ekki alltaf
lokuð hér inni eins og á
hæli.
Þannig lýsa þær starfi sinu i
Skálatúni, forstöðukonan Katrin
Guðmundsdóttir og þroska-
þjálfarnir Jarþrúður Einarsdóttir,
Guðný Guðmundsdóttir, Alda
Sveinsdóttir og Rannveig
Traustadóttir, sem við hittum að
máli, þegar við renndum þar við
einn daginn fyrir skömmu.
Skálatúnsheimilið i Mosfells-
sveiter vistheimili fyrir vangefna
og dveljast þar að jafnaði á
veturna 54 vistmenn á aldrinum
5-45 ára, en þá er reyndar yfir-
fullt, þvi gert er ráð fyrir 45. A
sumrin eru enn fleiri i Skálatúni,
td. eru þar nú 63 vistmenn, og eru
þá tekin til skemmri dvalar börn,
sem annars dveljast heima hjá
foreldrum sinum, til að gefa
foreldrunum kost á aö fara i
sumarfri. Til að létta á heimilinu
(jr flokkastarfinu. Unniö er við ýmiss konar handavinnu. A myndinni sjást þær Katrin forstöðukona og
Jarþrúöur Einarsdóttir, þroskaþjálfi.
Stúlkurnar, sem við töluðum
við, voru mjög ánægðar með
flokkastarfið, sagði Alda
Sveinsdóttir td. mikið atriði að
vera alltaf með sömu börnunum.
— Þau þekkja okkur og við þau og
þetta verður hálfgert foreldra-
samband. Við kynnumst miklu
betur, þegar svona fá eru i
hópnum og það skapar öryggis-
tilfinningu hjá börnunum.
Og Jarþrúður sagði: — Við
komumst miklu nær þeim og
náum betri árangri i þjálfuninni.
Þeim er mikils virði að hafa sömu
manneskjuna til að leita til og eru
enda oft með ýmsa óeðlilega hætti
við ókunnuga, taka upp á að gera
ýmislegt, td. væta buxur og
fleira, sem kannski var búið að
leggja mikla vinnu við að venja
þau af. Með þvi að hafa alltaf
sömu börnin komum við lika
betur auga á, hvað hægt er að láta
þau gera, en það tekur nýtt
starfsfölk oft langan tima að læra
að skilja þau, þvi þessi börn tjá
sig hvert á sinn hátt.
Það skapast þannig persónu-
legra samband milli barnanna og
stúlknanna, sem sjá um þau, og
þau verða öruggari og rólegri,
segja þær. Og þegar börnin eru
róleg eiga þau mun betra með að
tjá sig á eðlilegan hátt. Þau verða
óróleg þegar ókunnugir taka við
umsjóninni og er þaö svosem ekki
öðruvisi en með heilbirgð börn,
eða hver þekkir ekki uppá hverju
krakkar eiga til að taka, þegar
Rennt í hlað í Skálatúni og spjallað við nokkrar starfsstúlknanna
Þau eiga aö fá aö
gera það
sama ogönnur börn
á meðan hefur undanfarin ár
verið farið i viku sumarbústaðar-
dvöl með börnin til skiptis, en að
þessu sinni fékkst ekki leigður
neinn heppilegur bústaöur, auk
þess sem þetta hefur þótt dálitið
kostnaðarsamt. Eru þetta von-
brigði bæði starfsfólki og ekki sizt
börnunum sjálfum, þvi þessar
sumarferðir hafa ævinlega verið
þeim mikil upplyfting og margra
mánaða tilhlökkunarefni, en
fyrirkomulagið hefur verið
þannig, aö tvær stúlkur hafa farið
með 6 börn i senn.
— Við reynum að taka inn
sumarbörnin samt sem áður,
sagði Katrin, en auðvitað er það
erfiðara. Þær starfsstúlkurnar
hafa nú hug á að fara i sumar-
ferðalag með börnin i staðinn, td.
til Akureyrar, — þvi þau verða aö
fá að gera ýmislegt einsog önnur
börn og eiga ekki alltaf að vera
lokuð hér inni, sögðu þær. Til að
venja börnin við að sjá og vera
innan um annað fólk en kennara
sina og starfsfólkið á heimilinu er
stundum farið i Reykjavikur-
ferðir og hafa þau td. farið að
skoða Þjóðminjasafnið og fleira,
labbað um bæinn og mas. farið á
kaffihús.
— Þetta hefur verið algerlega
án vandræða og öll svona til-
breyting er börnunum hér ótrú-
lega mikið ævintýri.
Þegar við komum i hlað i
Skálatúni skömmu eftir hádegi
voru flest börnin úti við og mörg
þeirra sátu kringum litið
transistortæki, hlustuðu á tón-
listina, vögguðu sér og trölluðu
með. Að þvi er starfsstúlkurnar
segja hafa þau mjög gaman að
allskonar tónlist og mörg eru
mjög næm á þvi sviði. Þau tóku
okkur svo hjartanlega, ókunnug-
um blaðamanni og ljósmyndara,
að við urðum hálffeimin, — jafn-
framt skammast maður sin;
svona er maður kominn langt frá
uppruna sinum, að það veldur
blygðun þegar aðrir láta til-
finningar opinskátt i ljós.
Og það er einmitt óvani okkar,
sem teljumst heilbrigð, við að sjá
og umgangast þá sem öðruvisi
eru, sem einna helzt getur valdið
vandræðum, þegar farið er með
börnin innanum annað fólk, en
ekki þau sjálf né þeirra fram-
koma. — Aður var eitthvað um
vangefið fólk i öllum þorpum og
bæjum;menn vöndust þvi að um-
gangast það, segja Skálatúns-
kennararnir. En nú er reynt að
koma flestu þessu fólki fyrir á
einhvers konar stofnunum, sem
oftast er lika betra fyrir það, en
jafnframt verður það til þess, að
almenningur tekur þvi ekki sem
jafn sjálfsögðum hluta þjóð-
félagsins og jafnvel þótt fólk sé og
vilji vera fordómalaust, verður
það ósjálfrátt óeðlilegt i fram-
komu. Kannski þarf að ala upp
þjóðfélagið ekki siður en van-
gefnu börnin.
Rétt eftir að við komum fóru
börnin inn til leikja og starfa.
Leikskólameðferð er hluti af
uppeldisþjálfuninni i Skálatúni og
sú nýjung hefur verið tekin upp,
að börnunum er skipt i fjóra
flokka og eru alltaf sömu stúlkur
með sömu börnin. Þetta fyrir-
komulag hefur gefizt mjög vel
ber starfsfólkinu saman um, og
börnin viröast taka meiri þroska
en áður. I flokknum eru vistmenn
á aldrinum 5-26 ára, að jafnaði 8 i
flokki i umsjá tveggja stúlkna,
þroskaþjálfara og starfsstúlku,
og fer flokkastarfið fram fimm
daga vikunnar kl. 8-16.
Hver flokkur hefur sinar vistar-
verur og reynt er að hafa sem
mestan heimilisbrag á hverjum
flokki. Unnið er með uppeldisleik-
föng, kubba, púsluspil, pappir,
liti, lim, leir, perlur og ýmiskonar
efni eftir þvi sem hægt er og
einnig verið i útileikjum, göngu-
feröum og sundi, og stundum
farið i bæinn, eins og áður var
sagt.
Aður var starfræktur leikskóli i
einni stofu i umsjón einnar stúlku,
kl. 8,30-15, en að öðru leyti dvöldu
vistmennirnir i dagstofum
heimilisins i 14-18 manna hópum i
umsjá einnar stúlku hvor og gefur
auga leið, að við þær aðstæður
hefur varla verið fært að gera
mikið' meira en að passa, að
enginn færi sér að voða.
gestir eru eða þau einhversstaðar
i heimsókn.
Það kemur fram, að i þremur
flokkanna eru börn á aldrinum 5-
15 ára, en i þeim fjórða eldri ein-
staklingar, þe. á aldrinum 17-26
ára, en þau standa það lágt i
þroska, að ekki er taliö mögulegt
að hafa þau i handavinnu. En
Katrin og þær stúlkurnar telja, að
hefðu þau fengið leikþjálfun nógu
snemma gætu þau nú unnið
handavinnu eða á vinnustofu.
Þeir sem eru i flokkunum eru
ekki jafnframt i handavinnu-
kennslu, en handavinnutima
sækja 20 vistmenn, 18 stúlkur og 2
piltar á aldrinum 12-45 ára, fimm
daga vikunnar. Handavinnu
kenna þær Asdis Sigurgestsdóttir
og Þóra Svanþórsdóttir og eru
verkefni af ýmsu tagi, mest þó
hnýttar mottur og teppi, auk
krosssaums og ýmiskonar
föndurs. Ahugi er á að kenna
meðferð saumavéla, en þær eru
þvi miður ekki til á heimilinu og
er það skaði, þvi ætla má, að
sumir gætu siðar meir einmitt
unnið eitthvað við sauma,ef þeir
fengju nauðsynlega þjálfun.
Þá eru um 20 börn i bóklegri
kennslu og hefur hún farið fram
tvo vetur i yngri og eldri deild
eftir þroska. Kennarar hafa verið
þær Charlotta Sverrisdóttir og
Kari ólafsdóttir og sýndi Katrin
okkur prófskirteini nokkurra
þeirra, en lögð voru fyrir þau
nákvæmlega samskonar próf i
lestri og við almennu barna-
skólanna. Hafa sum náð ótrúleg-
um árangri einkum einn
drengurinn, sem kennararnir
hafa nú mikinn áhuga á.að fái að
ganga i Höfðaskólann. En
vandræðin eru, að langt er að
sækja skóla i Reykjavik úr Mos-
fellssveit og drengurinn er austan
af landi og hefur ekkert heimili til
að vera á i Reykjavik.
Það er almennur mis-
skilningur, segja þær, að til-
gangslaust sé að eyða tima, fé og
fyrirhöfn i kennslu vangefinna
barna, en það hefur sýnt sig, að
svo er ekki, það er vel mögulegt,
en tekur að sjálfsögöu lengri tima
en hjá heilbrigðum börnum. Þau
barnanna, sem geta lært að lesa
hafa af þvi ákaflega mikla
ánægju og þau miðla hinum
börnunum á heimilinu lika af getu
sinni og meiri þekkingu, svo þetta
verður i reynd til að vikka sjón-
deildarhring þeirra allra.
Þannig lesa þessi börn t.d.
alltaf meira og minna i dag-
blöðunum, sagði Katrin okkur,
fletta þeim i gegn og fylgjast
með, hvað er að gerast. Rétt eins
og á öðrum .heimilum verða stór-
atburöirnir umtalsefni, einkum
þeir sem okkur eru nálægir, td.
Framhald á bls. 15.
Sundlaugin nýtur mikilla vinsælda og er einnig þýöingarmikið tæki við likamsendurhæfingu.