Þjóðviljinn - 29.07.1973, Blaðsíða 15
Sunnudagur 29. júll 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
Kvikmyndir
Framhald af bls. 7.
Boorman: Ég er ekki að leita aö
leikurum, heldur listamönnum
sem geta túlkað mjög ólikar
persónur. Ég vil blanda saman
leikurunum á sama hátt og
heimurinn er samtvinnaður af
óliku fólki. Leó finnst heimurinn
langt i burtu. Hann hefur ekki
getað samið sig að honum. Þess
vegna er heimurinn ekki til með
honum.Hannhorfirá hanneins
og áhorfandi á fyrsta bekk i
leikhúsi horfir á leikarann, og sér
aöeins litið brot af og til. — En
það er mikið af gleri og margir
veggir á milli Leós og heimsins.
— Geturðu skilgreint
kvikmyndastil þinn?
Boorman: Það er mjög einfalt.
Ég hef engan kvikmyndastil.
Kvikmynd er lifandi tungumál,
sem er sifellt að breytast. Maður
getur talað þetta tungumál með
alls kyns mállýzkum og áherzlum
og það er jafn tjáningarikt hverju
sinni. —
Kostir og gallar
Framhald af bls. 11.
menn, sem eru 820 að tölu, og
athuga siðan hvaða aldursflokkar
það væru sem vinna i ákvæðis-
vinnu. Þessi rannsókn segir
okkur býsna mikið um það, hvers
eðlis ákvæðisvinnan er og hverjar
afleiöingar hún hefur, en út i það
hef ég ekki tima til þess að fara
hér, heldur aðeins gefa ykkur
nokkra punkta um þessa aldurs-
skiptingu. A aldrinum 20-30 ára
eru 37,3% af félögum Trésmiða-
félags Reykjavikur. Af þessum
aldursflokki vinna hins vegar 67%
i ákvæðisvinnu. Þegar við förum
hins vegar út i aldursflokkinn 50-
60 ára, þá eru 39,6% af þessum 820
i þeim aldursflokki, en það eru
aðeins 11,5% þeirra, sem vinna i
ákvæðisvinnu.
Staðreyndin er sú, að eftir að
menn eru komnir um og yfir
fertugt, þá eru þeir búnir að
missa það starfsþrek sem þarf til
að vinna ákvæðisvinnuna og það
er ljótasti blettur á ákvæðis-
vinnunni i dag i byggingariðnaði,
frystihúsum og hvar sem hún er.
Það er þvi m.a. þetta sem gerir
það að verkum, að ég fullyrði,að
ákvæðisvinnan i hvaða formi sem
er, getur aldrei orðin nein alls-
herjar framtiðarlausn varðandi
launafyrirkomulag. Hún er það
launagreiðslufyrirkomulag sem
óhjákvæmilegt er fyrir okkur nú
að fjalla um, en við veröum að
nota fyrsta tækifæri til þess að
komast út úr, vegna þess að hún
skapar ekki það öryggi sem laun-
þeganum er nauðsynlegt að hafa i
nútima tæknivæddu þjóðfélagi.
Hún ber i sér þá hættu, ef illa er á
haldið, að launþeginn verði þræll
vinnunnar.
Hákarlar
Framhald af bls. 6.
hún stórveldunum átyllu til að
gripa inn i þróun mála annars
staðar, þegar þau telja það nauð-
synlegt. En þegar þannig þarf á
henni að halda breytir hún þó oft
um mynd þannig að erfitt er að
sjá, að rótin er sú sama.
„Abyrgðarleysi” tslendinga
getur þannig breytzt i lævislegt
samsæri til að eyðileggja NATO
(með aðstoð rússneskra vopna
eins og Le Monde gaf i skyn!).
Frá sjónarmiði þess arðráns-
kerfis sem stórveldin hafa komið
sér upp er þetta nefnilega eitt og
hið sama og þau ráða áróðrinum.
—e.m.j.
Krakkarnir
Framhald af bls. 8.
innar. Þegar við komum inn i her
bergi til hans, var hann önnum
kafinn við að hjálpa skipstjóra á
fiskibáti um is. Brátt kom þó i
ljós, að hvergi var is aö fá, svo að
skipstjórinn hafði gengiö bónleiö-
ur til búða.
Við spurðum hann um
skólafólkið.
— Þetta er óskaplega misjafnt
fólk, en staðreyndin er, að
krakkagreyin hreinlega bjarga
okkur á sumrin. Hátt i þrir fjórðu
hlutar starfsfólksins hérna nú er
skólafólk. Það væri vonlaust að
vinna það, sem berst á land, ef
þessi fjöldi kæmi ekki til starfa.
Það er fyrst og fremst fjöldinn
sem vinnur þetta.
— Meirihlutinn er góöur. Ætli
þetta sé ekki svipað og i skólunum
á veturna. Krakkarnir fá sæmi-
lega vel borgað hér, aö minnsta
kosti miklu meira en þeir fá i
unglingavinnunni svokölluðu.
— Ég hef látið þá böldnustu
fara og ráðið aðra i þeirra stað.
Það er þrotlaust framboð af
krökkum.
— Að vissu leyti má segja, að
þetta sé barnaþrældómur. Atta
stunda vinnudagur væri við hæfi
15 ára unglings, en hér er
sárasjaldan unnið til 5. Við erum
oftast að'fram til klukkan 7 eöa 11
á kvöldin. Raunverulegur
vinnutimi verkamanna er orðinn
svipaður og hann var um siðustu
aldamót, þó að talað sé um 40
stunda vinnuviku á pappirnum.
— Það eru lika vandræði að
láta krakkana sem búin eru að
vera inni við allan veturinn vera i
innivinnu allt sumariö. Það er
nógu slæmt,að fullorðið fólk þurfi
að una við það, en alveg ótækt að
börn, sem enn hafa ekki náð full-
um þroska, séu lokuð inni frá
morgni og langt fram á kvöld.
Borgar sig að vera í skóla.
Við vöruskemmur Eimskips
var lif og fjör . Verið var að skipa
upp úr Dettifossi alls konar varn-
ingi heybindivélum, gólfteppum,
ljósaperum og virrúllum.
Sigurður Stefánsson og Steven
Rawlinson sáu um að hafa bretti
til taks, þegar vörurnar komu á
bryggjuna. Báðir voru þeir i skóla
siðasta vetur. Sigurður i 3. bekk
en Steven i 2. bekk gagnfræða-
skóla. Báðir ætla þeir aftur i skóla
að hausti.
Þeir voru sammála um, að
skemmtilegra væri að vinna en að
vera i skólanum, Það væri
kannski ekki beinlinsis erfitt að
vera i skólanum, en óskaplega
leiðinlegt að hanga yfir þvi, sem
ekkert væri.
Við spurðum, hvers vegna þeir
ætluðu þá að fara i skóla aftur i
haust.
— Það gerum við til að fá ein-
hver réttindi, svo aö við getum
siðar fengiö betur borgaða vinnu,
sögðu þeir. Þaö borgar sig að
hanga i skólanum einhvern tima
þó að manni leiðist þaö, þvi að
maður fær miklu betri vinnu á
eftir.
Skammt frá þeim Siguröi og
Steven lá Arni Jóhannsson og
hvildi lúin bein. Hann lauk
skyldunámi nú i vor.
— Mér finnst miklu leiðinlegra
i skólanum heldur en i vinnu,
sagði hann. Þessi vinna er þó ekk-
ert sérstaklega skemmtileg.
— Ætli ég fari ekki aftur i skóla
i haust. Maður ræður sér ekki
alveg sjálfur, og foreldrar minir
vilja endilega að ég fari i skóla.
Ef ég réöi þessu algerlega sjálfur,
heldi ég áfram að vinna. Ekki
hér, ég fengi mér skemmtilegra
starf.
— ó.P.
Þau eiga
Framhald af bls. 9.
vakti fundur Nixons og Pompi-
dous mikla athygli barnanna og
mjög mikið var rætt um heim-
sókn Margrétar Danadrottningar
og skoðaðar myndirnar af henni
og eiginmanni hennar.
Oft er efnt til skemmtana i
Skálatúni og eru kvöldvökur td.
liður i daglegri starfsemi
heimilisins, haldnar að jafnaði
tvisvar i mánuði. Eru þá til
skemmtunar ýmiskonar mynda-
sýningar, spurningakeppni, disk-
ótek, upplestur, söngur ofl. Sjá
börnin á heimilinu sjálf um
skemmtiatriði að nokkru leyti og
stundum koma skemmtikraftar i
heimsókn og er það mjög vel
þegið.
Aðalskemmtanir ársins eru þó
á 17. júni og kringum jólin, þegar
settur er upp jólaleikur fyrir
foreldrana. Er það gert i sam-
bandi við söngkennsluna og
sýndir jólasöngleikir og sungnir
jólasöngvar og sálmar og létt
sönglög. Sl. vetur var jólaleik-
urinn settur upp i Hlégarði fyrir
foreldra og aðra gesti og tóku 44
vistmenn þátt i leiknum.
17. júni er haldin þjóðhátið i
Skálatúni með tilheyrandi þjóð-
hátiðarbrag. Er þá slegið upp
danspalli og staðurinn skreyttur
fánum, blöðrum og veifum. Sölu-
tjaldi með pylsum, öli og sælgæti
er komið fyrir og fariö i skrúð-
göngu. Fjallkonan ávarpar sam-
komugesti og siðan eru leik-
sýningar, söngur og kappleikir,
ss. sundkeppni og reiptog og siðan
er dansað. Heimafólk sér um
skemmtiatriðin að nokkru leyti,
en auk þess koma aöfengnir
skemmtikraftar, oft mas. þeir
sömu og skemmta i Reykjavik
sama dag.
Leikur og vinna, eðlilegt lif. Að
þvi er stefnt með starfseminni i
Skálatúni, en vandkvæðin eru
margvisleg. Helzt þyrfti td. að
geta verið fleira starfsfólk, en
ófullnægjandi húsnæði er þó
stærsta vandamálið. Hefur við
teikningu hússins i upphafi ekki
verið gert ráð fyrir jafn margvis-
legri starfsemi og þar er nú og
heldur ekki jafn mörgu vistfólki
og þar er. Eins er þörf á ýmis-
konar leik- og vinnutækjum.
Er nokkur þörf á að ætla þessu
fólki að vinna fyrir sér i fram-
tiðinni? kann nú einhver að
spyrja. Svar þeirra sem með
þeim starfa er, að það sé mjög
mikilvægt. Fólkið hefur ánægju
af að vinna og það finnur til sin
sem persóna, þegar það getur af-
kastað einhverju. Eldri
stúlkurnar sumar vinna td. i eld-
húsinu og við ræstingu og eru
stoltar af, helzt vildu þroska-
þjálfarnir fá að borga þeim svo-
litið kaup fyrir, sem þær mættu
siöan eyða til eigin þarfa. Hitt er
annað, að þetta fók kemur ekki til
með að fara út á hinn almenna
vinnumarkaö i samkeppni við
heilbrigt fólk. Það þarf verndaöa
vinnustaði og þeir eru þvi miður
of fáir hér á landi ennþá. — vh
Kristinn
Framhald af 12 siðu
Og i þessari sömu bók heitir eitt
kvæðið morgunn og hefst svo:
I morgunsárið
er bundið fyrir augu barnsins
og skollaleikurinn hefst
aldrei skaltu vita
hver leiðir þig hver notar þig
hver á þig
Það eru fersk við-horf og skörp
sjón i þessum kvæðum öllum, og
uppreisnarhugur skáldsins er
alger. confessin' thc bluesendar:
hatur þit't er heilagt
ef þú notar það ekki
ertu glataður
pappirstigrisdýrið
étur góðu börnin
t siðustu bók Einars, sem ég fór
um hörðum orðum, endurvekur
siöasti flokkurinn þær vonir um
skáldið sem menn hljóta að gera
sér eftir lestur fyrstu bókar hans.
Samúðin er aftur fersk með þeim
sem þjást:
I
Undir fölum himni þjáist borgin
af næringarskorti, skánkalaung
og döpur,
með afkima sina og nakin brjóst,
biður einhvers undir
hlifðarlausri
ljósaperunni, börn
að leik úti i portinu.
Adeila er skörp og hvassyrt:
III
Nákuldinn finnur likn
hjá blóðhlaupnum augum
hrædýrsins,
fiskurinn blindast
við gullhnappinn þegar afætan
leggur net sin i nóttina,
mildar eru greipar þinar
spenntar i hræsni
En skáldið hefur ekki þá þekk-
ingu á framfaraöflum timans né
sögu Islands, náttúru og hinni
máttugu bókmenntaarfleifð, er
geti lyft honum i reisn og hæðir
bjartsýninnar, heldur finnast
honum draumarnir hverfa bak
viö múr, auðvaldið myrkvar hug
hans:
VII
Draumurinn hverfur
meðal annarra drauma
uns svefninn
verður stjörnubjartur, steypist
yfir skrúðgaunguna, gleðin,
undrunin, allt hverfur
bak við múrinn meðan auðnin
heldur garðveislu, klædd
nektinni
og svörtum stigvélum.
Ég hef hér að framan gert svo
háar kröfur til Einars Ólafssonár
vegna þess að ég sé hjá honum
ótviræða skáldlega hæfileika sem
eiga aðeins eftir að þroskast. Sá
upphafstónn er hann sló með
fyrstu bók sinni á eftir að ná innri
fyllingu, en hann er þessi:
Við getum lagst i grasið og horft á
blóm, ort um það og súngið. Og
fuglarnir sýngja með okkur. Svo
ódýr er hamingjan. Svo góður er
okkur heimurinn. En við erum
ekki nema fá sem getum þetta.
Sumir vinna dag og nótt afþvi
þeirkunna ekki annað. Sumir sjá
aldrei fugl eða blóm afþvi að vel-
ferðarþjóðfélagið er búið að
drepa alla fugla og öll blóm.
Sumir strita alla ævi til að
skrimta. En sumir leggjast i
grasið afþviaðhúngrið leggur þá i
grasið.
við, eða eigum við að berjast fyrir
það og helga þvi hluta af ljóðum
okkar og saungvum. Þessu
verður hver að svara fyrir sig.
Ráðgjafi
Allendes
forseta
Chile
drepinn
SANTIAGO 27/7 — Ráðgjafi
Allendes, forseta Chile, var
drepinn I morgun rétt hjá heimili
sinu. Var þetta Arturo Araya
Preters, sem hefur verið ráðgjafi
rikisstjórnarinnar um hermál, og
var hann jafnframt yfirmaður i
hernum. Var hann skotinn með
byssu, en fyrst höfðu árásar-
mennirnir varpað handsprengju
inn i garð Preters, þó án þess að
hæfa hann. Var strax farið með
manninn á sjúkrahús, en lézt
hann fljótlega eftir að þangað var
komið.
Allende forseti kom á sjúkra-
húsið. strax þcgar vitnaðist um
morðið og hef ir nú fyrirskipað,
að láta gera allsherjarleit að
morðingjunum, sem er álitið.að
séu úr röðum hægri öfgasinna. Er
þá trúlegt, að sé um að ræða sömu
mennina og stóðu fyrir mis-
heppnaðri uppreisnartilraun I
fyrra mánuði. Hafa þeir áður
reynt ýmislegt til þess að hrella
rikisstjórn Allendes, en litt tekizt.
Kerðafélagsferðir.
Sunnudagur kl. 13.00.
Gönguferð um Hellisheiði að
Kolviðarhól. (Gamla gatan).
Verð kr. 300.00. Farmiðar við
bilinn.
Um verzlunarmannahelgina
verða farnar niu ferðir. Þær
verða auglýstar nánar siðar.
Feröafélag Islands,
öldugötu 3, simar, 19533 og
11798
Kokkurinn mælir
með Jurta!
0 Í 1 jiiíta ^ smjörliki U J
\XM lurt. I
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Tvær SÉRFRÆÐINGSSTÖÐUR
(hálft starf) i brjóstholsskurðlækn-
ingum, eru til umsóknar á brjóst-
holsskurðdeild LANDSPÍTALANS.
Til greina kemur að ráða einn sér-
fræðing i fullt starf.
Kaup og kjör skv. gildandi kjara-
samningum.
Umsóknir með upplýsingum um
náms- og starfsferil sendist til
stjórnarnefndar rikisspitalanna
fyrir 1. sept. 1973, en veiting er
miðuð við 1. janúar 1974. Nánari
upplýsingar veita forstöðumaður
handlækningadeildar Landspital-
ans eða framkvæmdastjóri rikis-
spitalanna.
Reykjavik 27. júlil973.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SlM111765
Kemur þetta fólk okkur ekkert
Lausar stöður
Staða fulltrúa i Tryggingastofnun ríkisins. Launakjör
samkvæmt kjarasamningum starfsmanna rikisins.
Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, sendist
Tryggingastofnun rikisins fyrir 23. ágúst n.k.
Reykjavik, 25. júli 1973.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS