Þjóðviljinn - 21.12.1975, Page 9
Sunnudagur 21. desember 1975. WÓÐVILJINN — SIÐA 9
#
Flosi Olofsson
inusum
, teikningor
Hrni Elfnr
Leikiðlausum
hala á jólum
Hók Klosa Ólafssonar „I.eikið
lausum liala” er ein af þeim bók-
um á bókamarkaönum i ár, sem
vakið hefur talsvert umtal. Er i
hókinni fjallaö um menn og mál-'
efni i lettum dúr og viöa komiö
viö, raunar svo viða aö sumum
liefur þótt nóg um og hefur jafn-
vel komið til tals að lögbanna
þetta saklausa ritverk vegna
meintra ærumeiðinga, en lögbönn
eru mjög i tisku um þessar
mundir eins og kunnugt er.
Bókin ..Leikið lausum hala” er
i 32 köflurn og má segja að höf-
undur leiki lausum hala i orðsins
fyllstu merkingu þar sem hann
tekur á rás i þvi umhverfi, sem
hann hefur einhvers staðar kallað
óperettuþjóðíélag. Aningarstað-
irnir á þessu gönuhlaupi eru með
óhkindum og nægir i þvi sam-
bandi að nefna að formálinn er á
kinversku, en aðspurður kveðst
höfundur gjarnan vilja gefa
þegnum kinverska alþýðulýð-
veldisins kost á þvi að fá nokkra
nasasjón af islenskri menningu i
hnotskurn með hliðsjón af þvi að
alþvðuútgáfan i Peking hefur
mikinn hug á þvi aö gefa verk
Flosa út i viðhafnarútgáfu, að
sögn útgefanda.
Fyrri bækur Flosa ,,Slett úr
klaufunum” gefin út af Heims-
kringlu i hittifyrra og „Hneggjað
á bókfell” gefin út af Flosa i
Reykjavik i fyrra eru nú fágætar
og illfáanlegar að sögn höfundar
og svo verður vafalaust einnig um
þessa bók, sem gefin er út i tak-
mörkuðu upplagi.
Árni Elfar hefur myndskreytt
þessa bók eins og hinar fyrri og
þar er sannarlega réttur maður á
réttum stað. Hvort sem bók Flosa
á eftir að verða bannvara eða
ekki, má ganga út frá þvi sem
visu að hún eigi eftir að koma
mörgum i gott skap yfir hátiðarn-
ar og er ástæða til að taka undir
kjörorð höfundar: „Leikið laus-
um halda á jólunum”.
Smáauglýsingar Þjóöviljans
30.000 LESENDUR
WMM “U!"9’9
Jarðhiti til raforku
Kamtsjatkaskagi i Sibiriu aust-
anverðri er eitthvert mesta jarö-
hitasvæði heims. t Pázjetkadaln-
um standa gufustrókar viða upp i
loftiö og hverir hella um 350 smá-
lestum af sjóðheitu vatni i ána
Pázjetka á hverri klukkustund. A
mörgum stöðum er hiti jarðvegs-
ins nálægt suðumarki vatns niður
á meters dýpi.
Það er ekki að undra þótt ein-
mitt I þessum dal hafi verið reist
fyrsta jarðhitarafstöð Sovétrikj-
anna. Afköst hennar eru nú um
það bil fimm þúsund kilóvött.
Stöðin er mjög einföld að allri
gerð. Gufu er veitt beint inn i túr-
binur hennar. Siðan fer gufan inn
i þétta sem kældir eru með vatni
úr ánni. Stöðin er undir stöðugu
eftirliti visindamanna sem fylgj-
ast nákvæmlega með nýtingu
orkunnar og áhrifum brenni-
steinsefna á einingar stöðvarinn-
ar. Hér er safnað reynslu sem
notuð verður annarsstaðar.
Jarðgufurafstöðin i Pázjetkadalnum.
Bækuf $
HAUSTSKIP
eftir Björn Th. Björnsson. Ein sérstæðasta bók ársins. Hún opn-
ar ný og áður óbekkt sögusvið Islandssögunnar, hún greinir frá
þjóðinni týndu þegar valdsmenn seldu almúgafólk mansali,
eins og réttlausa þræla. Björn fer hér á kostum sem rithöfundur.
í SUÐURSVEIT
eftir Þórberg Þórðarson. Hér er að finna i einni bók æskuminn-
ingar Þórbergs, sem áður komu út i þrem bókum — Steinarnir
tala, Um lönd og lýði og Rökkuróperan — en auk þess fjórðu bók-
ina, sem nú er prentuð i fyrsta skiptið.
I M HfRSVKn
VATNAJÖKULL
texti eftir Sigurð Þórarinsson með myndum Gunnars Hannes-
sonar er fróðleg og afar falleg bók um þessa undraveröld frosts
og funa. Hrikaleiki einstakrar náttúru, sem hvergi er að finna
nema á íslandi, er aðalsmerki bókarinnar.
EDDA
LEIKRIT SHAKESPEARE VI
i þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Snilldarþýðingar Helga eru
löngu landskunnar. t þessu bindi eru leikritin: Rikharður þriðji,
óþelló, Kaupmaður i Feneyjum.
YRKJUR
eftir Þorstein Valdimarsson. Sjöunda ljóðabók þessa skálds mun
verða hinum mörgu lesendum hans ærið fagnaðarefni.
DAGBÆKUR ÚR ISLANDSFERÐUM 1871-1873
eftir William Morris. Höfundur, enskur rithöfundur og stjórn-
málamaður. var mikill aðdáandi tslands og segir i bók þessari
frá tveim ferðum sinum hingað,
EDDA ÞÓRBERGS
kvæðabók Þórbergs Þórðarsonar. Þar er að finna flest það sem
Þórbergur orti bundnu máli, — skáldskapur sem engan á sinn
lika.
FAGRAR HEYRÐI EG RADDIRNAR
Safn islenskra þjóðkvæða. „Hér getur að lita þjóðina með von-
um hennar og þrám, draumum bæði illum og góðum, sigrum og
ósigrum, sorg og gleði. Tærari skáldskap en sumar visur i þess-
ari bók er ekki að finna á islensku.”
VÉR VITUM EI HVERS BIÐJA BER
útvarpsþættir eftir Skúla Guðjónsson á Ljótunnarstöðum. Skúli
er löngu þekktur fyrir ritstörf sin. Hér getur að lita úrval á út-
varpsþáttum hans.
KYNLEGI R KVISTIR
eftir Maxim Gorki i þýðingu Kjartans Ólassonar. Þetta eru þætt-
ir úr dagbók skáldsins, sem bera mörg helstu einkenni endur-
minninga hans.
RAUÐI SVIFNÖKKVINN
eftir Ólaf Hauk Simonarson og Valdisi óskarsdóttur. Þetta er
einskonar opinberunarbók i ljóðum og myndum — einkar hag-
lega samsettum ljósmyndum teknum á þjóðhátiðarári.
Á þessu ári hafa ennfremur komið út nýjar prentanir að BRÉFl
TIL LARU og OFVITANUM. Aðeins fáein eintök eru eftir af
ÆVISÖGU SÉRA ARNA ÞÓRARINSSONAR, ÍSLENSKUM
ADLI og FRASÖGNU M.
DAGBÆKUR
WllllAM i
1B71MDRRIS1873
i OR
(SIANDSFERDUM
MAX'.Sl CORKi
MAL OG MENNING — HEIMSKRINGLA