Þjóðviljinn - 21.12.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 21. desember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 23
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
Tveir skemmtilegir leikir
Nú þegar frí er í
skólanum er gaman að
fara í leiki, og þá skaðar
ekki að leikirnir séu til
þess fallnir að skerpa
minnið og bæta stafsetn-
inguna.
Orðin í orðinu.
Þessi leikur er ágætur
til að þjálfa menn í rétt-
ritun. Bæði ungir oq
gamlir geta tekið þátt í
honum og skemmt sér
prýðilega. Allir þurfa
blýant og blað. Þú velur
eitthvert langt orð t.d.
UAAFERÐARMIÐSTÖÐ
og segir þátttakendum að
skrifa það efst á blaðið,
svo eiga þeir að skrifa
fyrir neðan öll orð, sem
þeir geta búið til úr stöf-
unum í þessu eina orði.
Úr UAAF E RÐ ARAAIÐ-
STÖÐ er hægt að búa til
orðeinsog: ferð, umferð,
miðstöð, miðar, far, ör,
mör, röð, stör, för raf,
ermi og fleiri og fleiri.
Best er að takmarka
tímann við fimmtán
mínútur. Sá sem finnur
flest orð vinnur.
KROSSGÁTAN
SKÝRINGAR:
Lárétt: 1. sjávardýr 6. vondir 7. reið 8.
ekki gamla, 11. slá 12. net (stórt).
Lóðrétt: 1. fjaðrir fugls (aðrar en
flugf jaðrir), 2. gangflötur 3. slóttug 4.
kötturinn 5. plantan 9. kvenkenning
sem byrjar á hringa- 10. matarveisla.
FELIX
Einu sinni þegar ég var
um það bil sjö ára átti ég
kött sem hét Felix. Eitt
skiptið ætlaði ég að fara
út í búð með Felix, en
mamma sagði mér að
fara ekki með hann með
mér. En ég þrjóskaðist
við og fór með hann.
Þegar ég kom að búðinni
fór ég inn. Þegar ég var
kominn inn sleppti ég
Felix á gólfið, en hann
hljóp út um dyrnar, yfir
götuna og undir kyrrstæð-
an bíl. Ég náði í hann,
fór aftur inn í búðina og
setti hann aftur niður
á gólfið, en hann hljóp
aftur út og beint und-
ir rauðan jeppa sem
var á f leygiferð eftir göt-
unni. Hann rak upp ógur-
legt væl og haltraðist upp
á gangstéttina, en jeppinn
keyrði áfram. Ég tók fár-
veikan köttinn upp og
gekk með hann
heimleiðis, hálfgrátandi.
Þegar heim kom fórum
við mamma til afa og
spurðum hann hvað við
ættum að gera. Hann
hringdi í lögregluna og
bað hana að koma strax.
Eftir um það bil fimm
minútur kom lögreglan
og ætlaði að taka Felix
með sér, en þá var hann
dáinn. AAamma sagðist
ætla að halda honum og
jarða hann, og það gerði
hún líka.
AAagnús ólason, 12 ára,
Lindagötu 58
Minnispróf.
Flestir hafa rekið sig á
hve erfitt getur verið að
muna hluti sem maður er
kannski nýbúinn að sjá
eða lesa. Það getur verið
ergilegt á prófi að koma
ekki fyrir sig nafni eða
ártali sem spurt er um þó
maður hafi kannski
marglesið kaflann fyrir
próf ið. Hvers vegna svik-
ur minnið svona? Hérna
er leikur til að prófa
minnið.
Farðu fram í eldhús og
taktu til ýmsa smáhluti
sem þú raðar á bakka:
gulan blýant, sykurmola,
svart tvinnakef li,
servíettu, armband,
skyrtuhnapp, vasabók,
f immtíukrónupening,
skóreim, Ijósmynd,
tekskeið, ilmvatnsglas,
rakblað, kartöf lu,
rjómakönnu, epli,
umslag, buddu, vasaklút,
brauðsneið, teiknibólu,
kryddbauk og penna.
Þú lætur bakkann á
borðið og þátttakendur f á
að virða f yrir sér hlutina í
eina minútu, þá breiðir þú
dúk eða handklæði yfir
bakkann. Nú eiga allir að
skrifa niður ð blað það
sem þeir muna.
Sá sam man f lest, varla
man nokkur allt, vinnur.
ÓLI
PRIK
Pun ktur, pun ktur,
komma, strik.
Þetta er hann öli Prik.
Hálsinn mjór
og bumban stór.
Hendur, hendur.
Á fótum Óli stendur.
Eyra, eyra,
Því Óli þarf að heyra.
Hár, hár, hár,
og þá er Óli klár.