Þjóðviljinn - 21.12.1975, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. desember 1975.
Guömundur Sæmundsson, Sigrún Finnsdóttir og dæturnar Edda og Linda.
Xtil hnífs
og skeidar
Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir
Marfa Einarsdóttir.
Alexander Guöbjartsson.
Hvað kosta jólin?
30 þúsund krónum i jólainnkaup
fyrir utan matinn, sem þau töldu
um 50% dýrari i ár en i fyrra.
„Ætli jólavikan kosti ekki einar
10 þUsundir i mat,” sagði Guð-
mundur. Þannig gæti kostnaður-
inn hjá þeim verið nálægt 40 þUs-
und krónum og ekki kváðust þau
kaupa minna i ár en i fyrra nema
siður væri.
Mæðgurnar Halldóra Valdi-
marsdóttir, Blöndubakka 14, og
Erna dóttir hennar voru i jólainn-
kaupum, og sagði Halldóra að
kostnaðurinn við jólin hjá hennar
fjölskyldu (4ra manna) yrði ná
lægt 40þúsundir, þar af um 20-30 i
jólagjafir.
„Það er miklu dýrara að versla
nUna en i fyrra, og kostnaðurinn
verður þvi mun meiri. Ég býst
ekki við að við spörum neitt sér-
staklega við okkur og matarinn-
kaupin verða væntanlega svip-
uð,” sagði Halldóra ennfremur.
Mari'u Einarsdóttur Hólmgarði
6, hittum við þar sem hún var að
skoða efni i Vogue og sagðist hún
ekki eyða miklu i jólagjafir i ár,
en kannski heldur meiru i mat.
„Ég vonast til að jólagjafir og
jólaföt á börnin kosti innan við 10
þúsund krónur, en ég sauma sjálf
á börnin sem eru tvö. Þaö er
geysilegur sparnaður i að sauma
sjálfur, ekki sist barnaföt, þau
eru mjög dýr. Það kemur af
sjálfu sér að við spörum fyrir
þessi jól, enda er ég við nám. Það
er heldur ekki ástæða til að binda
allar gjafir við jólin,” sagði
Maria.
„Þetta kostar vist tugi þús-
unda. Við erum bara tvö i heimili
— ætli jólagjafirnar einar kosti
ekki 20-30 þúsundir. Nei, maður
dregur ekki beint saman þótt
flestar vörur séu helmingi dýrari
i ár en i' fyrra,” sagði Gunnar
Gunnarsson frá Lambhól, þegar
við ræddum við hann.
Að lokum hittum við ungan
snæfelling, Alexander Guðbjarts
son sem er hér i Iðnskólanum.
„Ég er i skóla og hef úr litlu að
spila i sagði hann. ,,Ég eyði ná
lægt 10 þúsund i jólagjafir býst ég
við, en að öðru leyti losna ég við
kostnaðinn af jólunum þvi ég verð
hjá tilvonandi tengdaforeldrum
minum yfir jólin og þarf þvi ekki
að kaupa mat. Ég eyði varla
miklu meiru i ár en i fyrra, þótt
allt hafi hækkað,” sagði Alexand-
er að lokum.
Rætt við nokkra
vegfarendur í
bænum um
kostnaðinn
við jólahaldið
Nú er jólaundirbúningurinn i
hámarki og eyöslan væntanlega
sömuleiöis, aö minnsta kosti viöa.
Sá kostnaöur sem fylgir jólunum
er margvlslegur, bæði beinn og
óbeinn. Nær öli vinna leggst niöur
yfir jóiadagana og flestar fjöl-
skyldur eyða töluverðum fjár-
munum I aö halda jólin hátíðieg.
Hvort sem viö litum á jólin sem
trúarhátiö eða sem kærkomna
hvild i skammdeginu eöa eitthvaö
enn annaö, fylgja jólunum i lang-
flestum tilfellum aukin útgjöld.
Hjá sumum eru útgjöldin mikil,
öðrum minni, og stundum er það
ekki aðeins fjárhagurinn sem
ræöur. Kapphiaupiö viö aö
standast samanburð viö ná-
Gunnar Gunnarsson.
granna getur gengið hart að
buddu fjölskyldufóiks, sem hefur
þó kannski ekki \ir of miklu aö
spila fyrir.
Og allt er gert til að glepja okk-
ur á þessari hátiö, — allt i einu
verða ótrúlegustu vörur ómiss-
andi og hátiðin kannski mest hjá
þeim seni best tekst að ginna
kaupendurna.
Ekki má gleyma börnunum, en
jólin eru jafnan mikill viðburður i
lifi barna, ef þess aðeins er gætt
að spenna bogann ekki of hátt og
gera þau ekki svo spennt með
endalausum undirbúningi og um-
tali, að sjálf eftirvæntingin verði
meiri en ánægjan þegar til kem-
ur. Kannski er stærsta ánægjan
sem fylgir jólunum einmitt sú, að
þá loksins gefst fjölskyldum og
vinum tækifæri til þess að vera
sman i friði og ró, eða menn hvila
sig með góða bók eða matarbita.
Sú ánægja er einmitt þýðingar-
mest og skiptir miklu meira máli
en gjafir og glys.
Til þess að grennslast fyrir um
kostnaðinn við jólahaldið tókum
við tali nokkra vegfarendur i
bænum á dögunum og spurðum
þá hversu mikið jólin kostuðu þá
og þeirra fjölskyldur. Fyrst hitt-
um við 4ra manna fjölskyldu þau
Guðmund Sæmundsson, Sigrúnu
Finnsdóttur og dæturnar Eddu og
Lindu, en þau búa i Mávahlið 7.
Þau sögðust búast við að eyða um
Ársgamlar
smákökur
Guðrún benti okkur á að nú
væri sumstaðar hægt aö fá
danskar smákökur á gömlu
verði, sem væri i meira lagi
vafasamt. Kökurnar væru frá
þvi fyrir siðustu jól ef ekki eldri
og þvi orðnar bæði þurrar og
bragðvondar, farnar að molna.
Þessar gömlu smákökur munu
yfirleitt kosta um 150 krónur
pokinn, en umbúðirnar eru
glærar að mestu leyti og auðvelt
ætti að vera að sjá hvort
kökurnar eru gamlar i gegnum
umbúðirnar.
Kínverskir
sveppir
Sveppirnir i jólasósuna fást
nú i verslunum og er verðið æði
mismunandi. ödýrustu
sveppirnir sem við höfum rekið
okkur á eru kinverskir sveppir i
1/2 dósum á 215 og 228 krónur,
sem hlýtur að teljast injög
ódýrt. Þeir virðast fást allviða
(m a. i Breiðholtskjör) en eru
ágætir á bragðið, ekki sist I sós-
ur. Þeir. eru nálægt helmingi
ódýrari en sumar dýrustu teg-
undirnar.
Halldóra Valdimarsdóttir og Erna dóttir hennar.