Þjóðviljinn - 25.01.1976, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 25.01.1976, Qupperneq 3
Sunnudagur. 25. janúar 1976. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 3 iOMCf • •Sf. *j.,\ :■•• JgSHSBí^* * * « «-•- 5a ■:. « fe • : • ss • f ■ÆSM ■■■■ JM—1»8 a & 5 « , »-»MB» ■ v.., * —» «■■;■: ■ \ ■ B VtaMll«« & « < ;:&%■ ímhI s * w,j\ VÍKÍWhHhR í : ■ » ® f f , IPps X ■ :■, ■ ■ \ \ ■ : » • /\ ./ _ (IhhB^ -«!!# -i .k • J>?c ii|:a:K»!L*®, .1 ss»* ■ Aður en rætt er um framtak Norr. hússinsskal aðeins vikið að starfsaðstöðu isl. grafiklista- manna, þvi hér eins og annars staðar eru ýmsir þættir saman- tvinnaðir. Fyrst skal nefna það að tæki og efni til grafikgerðar eru óhemju dýr og lúxustolluð, og er varla á færi einstaklings að koma sér upp verkstæði á skömmum tima. íslenskir grafikmenn hafa að visu fengið inni á verkstæðum Handiðaskólans, enda sumir kennarar við þá stofnun, en skiljanlega eru tækifærin þar ónóg. Þessi mál hafa oft verið reyfuð á opinberum vettvangi, en ætið án þess að ákveðnar tillögur hafi komið fram um það hvernig megi leysa úr vandræðunum á einfaldan máta. Um langan aldur hefur verið starfandi Úthlutunarnefnd lista- mannalauna, skipuð af Alþingi, og hefur um margt þjónað flokks- pólitiskum hagsmunum. Þessir aurar sem nefndin hefur slett i allar áttir, til fátækra og rikra, kæmu betur að gagni samansafn- aðir til stuðnings einhverju einu málefní, t.d. ef skerfur mynd- listarmanna hvers árs styddi eina listgrein, myndlistarmenn fengju þá aðstöðu sem sárlega vantar: grafiklistarfólk fullkomið verkstæði: myndhöggvarar vinnustofur: vefarar textilverk- stæði: o.s.frv. o.s.frv. Nú sem stendur eru listamannalaun ölmusa, mikil niðurlæging islenskri myndlist. Ef þetta draumaverkstæði grafikfólks væri starfrækt af fullum krafti, þá væri hugsanlegt að endurgjalda i verkum þann stuðning sem opinberir aðilar láta i té, eitt eintak af hverri mynd mundi þá smám saman greiða kostnaðinn, — áfram- haldandi eintakaf jöldi gæti borgað verkmenntuðum kunnáttumanni sem hefði umsjón með verkstæðinu og væri lista- fólkinu til aðstoðar. A þvi er ekki nokkur vafi að tilvera svona verkstæðis mundi stuðla að ódýrari myndverkum og jafnari dreifingu meðal almennings. Út frá sjónarmiði listkynningar er framtak Norræna hússins virðingarvert, hvernig svo sem til tekst en með tilliti til þróunar bókasafnsmála (sem hefur leitt af sér minnkandi sölu á bókum og hefur verið rökstutt og sannað af rithöfundum), þá er hugsanlegt að þróunin geti orðið myndlistar- fólkinu i óhag og slegið vopnin úr höndum þess. 011 málefni myndlistarinnar eru i miklum ólestri og er löngu kominn timi til að islenskir myndlistarmenn stofni með sér stéttarfélag (samanber stéttar- félag norskra myndlistarmanna) og skipuleggi, ráðstafi og stjórni þeim þáttum sem myndlistina snerta. Ekki aðeins dreifing grafikverka er fálmkennd, heldur er öll listaverkadreifing skipu- lagslaus og ófullnægjandi, innkaup listasafna villandi og um of háð listmati einstaklinga, o.s.frv. I Norræna húsinu eru nú sýnd 172 verk af þeim 180 verkum sem munu verða til útlána þegar þar að kemur. Ógjörningur er að fjalla um einstök verk, hvað þá að gagnrýna framlag listamann- anna af örfáum myndum, sumir eiga ekki nema eitt verk eins og t.d. norsku myndlistarmennirnir (28 listamenn og 34 verk). En sjálfsagt er að gleðjast yfir ágætum árangri þegar svo vill verða. Af dönunum er rétt að nefna Palle Nielsen og Poul Skov Sörensen. Finnarnir Lauri Ahlgrén og Out i-Heiska nen standa fyrir sinu. Norðmennirnir Knut Flatin, Atle Færöy, Yvonne Hjertling og Ole Johan Jörud eru sannfærandi i fáum verkum. Frá Sviþjóð virðist Gunnar Norman fágaðastur. Islensku myndlistar- mennirnir eiga verk á sýningunni og hafa flest verið á sýningum áður. NÍELS HAFSTEIN SKRIFAR UM MYNDLIST NORRÆN GRAFlK Listlánadeild Fer ekki best á þvi að vitna i sýningarskrána: ,,A fundi Norræna grafikbandalagsins, sem haldinn var i Norræna húsinu i Reykjavik i júni 1972, var fyrir alvöru byrjað að ræða mögu- leikana á þvi að koma á fót norrænni listlánadeild i Reykja- vik. Else Mia Sigurðsson, þá settur forstjóri Norræna hússins, sýndi máli þessu mikinn áhuga og tók þátt i að semja nákvæma áætlun, og svo fór að sótt var um styrk til Norræna menningar- Mynd eftir finnann Lauri Ahígrén (f. 1929), gerð áriö 1973 meðsérf- graflskum hætti: Lit er þrýst I gegnum opna fleti á þéttofnum vef úr silki, monyl og nyloni, en hefur áður verið undirbúinn með sérstökum fylli eða á Ijósmyndatæknilegan hátt. Mynd úr myndaflokknum Orfeus og Eyrydike III eftir danann Palle Nielsen (f. 1920). Myndin er skorin i dúk og þrykkt á pappir. 1974. Litografia eftir norsku listakonuna Marianne Heske (f. 1946). Ljós- myndafilma er færð yfir á álplötur með sýru og er hver litur þrykktur af sér plötu. Æting eftir sviann Georg Krallis (f. 1937). Koparplata er þakin sýru- heldum grunni, með sérstökum verkfærum er teiknað i þá hluta lians sem eiga að gefa liá pappirinn. Með mislöngum sýruböðum er hægt að ná fram styrkleik i tónum, frá ljósu idökkt. Vatnslitaþrykk eftir Barböru Arnason (1911-1975). Myndin er skorin i tréplötur og þrykkt á pappir, hver litur fyrir sig. Ath. Hvað pappirinn gcgnir stóru hlutverki i áfcrð myndarinnar. sjóðsins til kaupa á grafikverkum i þessa listlánadeild. Myndirnar skyldu gefnar Norræna húsinu og verða þar til útlána, á sama hátt og bækurnar i bókasafninu. Þegar i upphafi var ákveðið að myndirnar yrðu ekki eingöngu til útlána i Reykjavik, heldur einnig að hægt yrði að lána þær út frá öðrum bókasöfnum islenskum, sem Norræna húsið hefur sam- starf við. Norræni menningarsjóðurinn veitti styrk til listaverkakauþ- anna 1974, og voru siðan keyptar 180 myndir á sýningu Norræna grafikbandalagsins i Bergen i mai 1975. Norræn dómnefnd valdi myndirnar.” Grafiklistin var um langt árabil nokkur hornreka i islenskri list- framleiðslu, það var útbreidd skoðun að grafikmynd væri eftir- prentun annars verks og þar af leiöandi litils virði, fjöldi eintaka þótti lika rýra gildi þeirra. A siðasta ári var eftirtektarvert hvað grafiksýningar voru margar og margbreytilegar i sýningar- húsum Reykjavikur, tækni og út- færslumáti listafólksins heillaði þá sem gera miklar kröfur, og siðast en ekki sist eru grafik- myndir ódýrar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.