Þjóðviljinn - 25.01.1976, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 25. janúar 1976.
Umsjpín: Þórunn Sigurðardóttir
Betri festingar á
endurskinmerkin
Sé kvartað undan festingun-
um á endurskinsmerkjunum,
einkum þeim sem eru næld i föt
og hanga i spotta. Þau detta
oftast nær eftir nokkra daga,
ekki sist af börnum. Þessi merki
þurfa að vera fest svo dyggi-
lega, að tryggt sé að þau sitji
föst; annars er ekkert gagn af
þeim.
Er dýrara
að versla úti
á landi en
í Reykjavík?
Okkur hefur löngum gengið illa að sinna
landsbyggðinni hér á siðunni, en hér er litil
bragarbót, — samanburður á verði á
nokkrum algengum matvælum og timbri á
ýmsum stöðum á landinu. Og það kemur i
ljós að það er nokkru dýrara i flestum
tilfellum að versla á landsbyggðinni en i
Reykjavik, þótt ekki sé það alveg einhlitt.
I.eggst flutningskostnaður á vörugjaldið úti á
landsbyggðinni, en i þeim tilfellum sem
verðið er lægra út á landi en i Reykjavik, má
gera ráð fyrir að vcrðmismunurinn stafi af
þvi að varan er á nýrra verði i Reykjavik og
verðið á eftir að hækka á landsbyggðinni
þegar nýjar birgðir berast.
m
*
i
fjiigiii I n UJÍíWM'TŒl
2ZP’***
fnfcfrbiffiir
3?
3 C/5
n a;
o« J
w £
« 5J ^ ®
S, © ^
Samanburður á útsöluverði
nokkurra vörutegunda i
1. Hagkáup Skeifunni 15 Rvik
2. Breiðholtskjör Rvik
3. Laugavegsbúðin Rvik
4. Verslunin Hvammur Ólafsvik
5. Kaupfélag dýrfirðinga Þingeyri
6. Kaupfélag isfirðinga Isafirði
7. Verslunin Valberg ólafsfirði
8. KEA Akureyri
9. Kaupfélag n-þingeyinga Kópaskeri
10. Kaupfélagið Fram Neskaupstað
11. Kaupfélag skaftfellinga Vik
sr 85 Ei CT tn Qé v>
n 7T c- s C? O- 7T or
5’ C * X & •3*
o 7? 7T 85 c © ” c o» 3 c **
l. cr C •-<
e.t. 257 278 185 65
101 288 308 203 70
100 293 340 203 66
105 298 318 193 71
e.t. 278 310 203 83
100 280 311 199 90
101 e.t. 320 218 85
e.t. 270 324 211 e.t.
e.t. e.t. e.t. 191 82
100 278 337 209 84
e.t. e.t. 339 195 75
verði á mótatimbri (1 metri
Samanburður á
(1x6))
1. Völundur Rvik
2. Húsasmiðjan hf. Súðavogi 3 Rvik
3. Byggingarvöruverslun Jóns Fr. Einarssonar Bolungarvik
4. Tómas Björnsson Akureyri
5. Kaupfélag n-þingeyinga Kópaskeri
6. Kaupfélagið Fram Neskaupstað
169. kr.
146 kr.
172 kr.
175 kr.
220 kr.
175 kr.
sparnaðar
hornið
Útsölur
að
hefjast
Sparnaðarhornið minnir á út-
sölurnar, sem nú eru að hefjast.
Einkum bendum við á útsölur á
ýmsum efnum, eða fiikum sem
má sauma úr. Oft er litill
sparnaður i að versla á útsölum,
þar sem fólk kaupir þar stund-
um hluti, sem það hefur tak-
mörkuð not af. En þeir og þær
sem geta saumað geta gert góð
kaup i efnum, sem seld eru á
lækkuðu verði, bútum eða t.d.
kápum, kjólum og jökkum, sem
eru úr góðum efnum og tilvalið
að sauma úr t.d. barnaföt.
Geymsluþol og dagstimplun
I mörg ár hafa neytendur hér
á landi kvartað undan þvi að
dagstimpla vanti á flestar mat-
vörur, en næsta sumar kemst i
lög reglugerð um dagstimplun
og innihaldsmerkingu á unnum
kjötvörum. En þótt ennþá sé
erfitt fyrir neytendur að vita
hversu gamla vöru þeir eru að
kaupa, eru seljendur skyldugir
að selja ekki vöru sem er eldri
en svo sem tilgreint er i ,,hand-
bók fyrir matvælaeftirlitsmenn
og aðra sem við matvælaeftirlit
og framleiðslu fást”. 1 handbók
þessari er skýrt gefið upp
geymsluþol ýmissa matvæla, og
segir ennfremur að dagstimpill
skuli vera á umbúðum með
skýrum stöfum. Við ætlum að
birta hér lista yfir meðal-
geymsluþol ýmissa matvæla, en
i öllum tilfellum eiga þessar
vörur að vera geymdar i sér-
stökum kæliskáp eða kæliborði i
versluninni.
Meðalgeymsluþol
Ekki loftþéttar umbúðir:
Hráar pylsur (vinarpylsur,
medisterpylsur) 1-2 dagar.
Kjöt, niðursneitt 1-3 dagar.
Svinakjöt, niðursneitt 3 dagar.
Hrá lifur 3 dagar.
Viðkvæmt álegg 3 dagar.
Flestar soðnar og léttreyktar
pylsur, svo og soðið eða létt-
reykt álegg 5 dagar.
Vörur i loftþéttum umbúðum:
Soönar eða ósoðnar, léttreyktar
kjötvinnsluvörur (lægri daga-
fjöldinn á við lifrakæfu, soðið
svinakjöt (skinka), kálfakjöts-
sneiðar, grisasultu o.fl.) 8-10
dagar.
Reykt medisterpylsa (sé hún
ekki látin liggja i of sterku ljósi)
15 dagar.
Svinakjöt, reykt við einirunna-
eld 20 dagar.
Spægipylsa og reykt flesk 20
dagar.
Hngikjöt og hákarl 20 dagar.
Tilbúinn matur:
Kjöt- og fiskréttir i sósu eða
hlaupi (degi styttra eða svo, um
sumartimann) 3-4 dagar.
Réttir, gerðir úr mjölefni (t.d.
pönnukökur og grjónaréttir) 5-6
dagar.
Réttir fyrir kalt borð 2-3 dagar.
Réttir úr nýjum skeldýrum og
eggjum 2-3 dagar.
Kjöthakk og -fars skal selja
sama dag. Kjöt má ekki hakka i-
dagvöruverslun. Steikur, sem
fylltar eru með nýju grænmeti,
ávöxtum og steinselju skal selja
samdægur.
Látið frá
ykkur heyra
Við viljum hvetja lesendur
til þess að skrifa okkur eða
hringja ef þeir hafa hug-
myndir i sparnaðarhornið.
geta t.d. bent á skemmtilega
heimatilbúna hluti, ódýru
vöru o.s.frv. og einnig ef þeir
vilja kvarta undan einhverju
(t.d. verðlagi, þjónustu, vöru)
og komum við þvi þá á fram
færi i ..gæti verið betra”.Látið
heyra frá vkkur. siminn er
73586 og ef þið skrifið þá
merkið bréfin ,,Til hnifs og
skeiðar”.
GÆTIÐ YKKAR
Á LEIKFÖNGUM,
SEM FYLLT ERU
MEÐ SVAMPI
Þessi fallega dúkka var
næstum búin aö valda
dauöa 2ja og hálfs árs
telpu í AAalmö. Barninú
var bjargað á síðustu
stundu, en þaö var orðið
meðvitundarlaust, eftir
að hafa troðið upp í sig
tættum svampinum sem
dúkkan var fyllt með.
Dúkkan er þýsk, og hefur nú
verið bönnuð sala á henní.
Ástæðn fyrir þvi að hún er svona
hættuleg, er sú að höfuðið má
auðveldlega losa af búknum, og
þá er greiður aðgangur að
svampfyllingunni, en tættur
svampur er mjög hættulegur og
getur auðveldlega kæft barn
sem treður honum ofan i sig.
Tættur svampur er mikið not-
aður i fyllingu á leikföngum,
púðum og fleiru, en þess þarf
ætið að gæta vel að ekki sé hægt
að komast auðveldlega að hon-
um, ef smábarn er á heimilinu.
Það er t.d. ekki nóg að hafa
tættan svamp i plasti innan i
púðaveri með rennilás, þvi þá er
mjög auðvelt fyrir barn að opna
lásinn og rifa plastið i sundur.