Þjóðviljinn - 25.01.1976, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 25.01.1976, Qupperneq 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 25. janúar 1976. Héöinn Valdimarsson var formaður Dagsbrúnar I 15. ár. — Hér talar Héöinn á útifundi 1. mai Kvikmynd um Gagarín MOSKVU (APN) Gorkikvik- myndaveriö í Moskvu hefur hafið töku kvikmyndarinnar „Þannig hófst ævintýrið”, sem fjallar um æsku Júri Gagarins. ftg vil ekki skilgreina kvik- myndina sem ævisögu, þótt hún byggist á raun verulegum atburöum, segir kvikmyndatöku- stjórinn, Boris Grigorjev. Við reynum, m eð þvi að hafa sann- sögulcgar staðreyndir sem bak- grunn, að bregða upp mynd af manni, sem mótast i nýju sam- félagi, að lýsa samræmdum og sönnum persónuleika. Atburðarásin nær aftur til striðsáranna. Vegna alvarlegs sjúkdóms föður Gagarins gat fjöl- skyldan ekki flutt burtu heldur varð að vera um kyrrt á hernumdu svæði. Júri var þá 7 ára gamail. Heimabær hans var frelsaður eftir hálft annað ár. Striðið markaði djúpt spor i líf Gagarins. Kvikmyndahandritið skrifaði hinn kunni sovéski rithöfundur Juri Nagibin. Sögufélagsbúðin Framhald af 24. siðu. manna mest hefur unnið að þvi að mennta háskólamenn með þvi að útvega þeim og visa á bækur. Stærsta átak félagsins á liðnum árum eru Aiþingisbækur islands og er nú búið að gefa út allar gerðarbækur þingsins frá 1560—1750 og eru það alls 13 bindi en hið 14. kemur út á þessu ári. Björn segir að þá hafi fylgt félaginu frá upphafi að það geti ekki fylgst með og séu þvi eldri bækurnar langt undir kostnaðár- verði. Hins vegar hafi þær verið gefnar út i takmörkuðu upplagi og um ieið og þær eru þrotnar kemst verðið upp úr öllu valdi hjá fornbókasölum. Hann nefndi alþingisbækurnar sem dæmi en þær fyrstu eru þrotnar. Blaðamaður rennir augum yfir hillur. Hér eru Landsyfirréttar- dómar og hæstaréttardómar á gjafverði, Jól á Islandi, islenskir ættstuðlar, Sýslulýsingar með skýrslu um hverja sýslu á landinu um 1750, Stiftamtmenn og amt- menn á tslandi, Lögréttumanna- tal o.s.frv. Björn dregur fram Ævisögu Jóns Guðmundssonar eftir Einar Laxness og segir Jón hafa verið fyrsta reykvikinginn, sem eitthvað kvað að i landsmálum næstan á eftir Þorkatli mána, vaskekta tómthúsmannsson úr Reykjavik. Þau Ragnheiður gripa 2 bækur sem þau segja að litið hafi verið auglýstar en verðskuldi það svo sannarlega. önnur er Stjórnarráð íslands 1904—1961 i tveimur bindum eftir Agnar Kl. Jónsson. Þetta er saga verklegra fram- kvæmda i landinu á 20. öld, segir Björn, þvi' að þær hafa meira og minna verið unnar af rikinu. Hin er Heklueldar eftir Sigurð Þórarinsson, falleg bók og vel samin. 1 samræmi við hugsjón Sögu- félagsins að sinna Reykjavik hefur það gefið út Safn til sögu Reykjavikurog eru bindin orðin 3 alls. Þau eru Kaupstaður i hálfa öld 1786—1836 og Bæjarstjórn i mótun 1836—1872. Ef menn eiga rætur i Reykjavik þá fá þeir að vita hvað forfeður þeirra voru að sýsla með þvi að glugga i þessar bækur. Þriðja bókin i þessum flokki var gefin út i tilefni af þjóð- hátfðogheitir Reykjavik i 1100 ár og er ritgerðarsafn um borgina. Siðastnefnda bókin er til i sér- stöku hátiðarbandi sem snilling- urinn Hafsteinn Guðmundsson gerði. Ragnheiður skýst inn i pinulitla panelklædda skonsu og kemur þaðan með bolla, sjóðandi kaffi og kökur. Þetta er borið á borð og nú er eins og við sitjum i húsa- kynnum þurrabúðarmanns um aldamót, en ekki i bókabúð i miðborg Reykjavikur árið 1976. Svona lætur Ragnheiður lika að bestu viðskiptavinum sinum. Hún segir frá þvi þegar hún stóð fyrir utan i sumar og var að mála glugga og hurð. Það væri engu likara en fólk kæmist i annað tempó þegar bilaniður væri fjarri. Það hefði gefið sér tima til að stoppa og spjalla við sig. Ýmist hafi fólk rekið i rogastans yfir þessu uppátæki sinu og spurt hvort hún ætlaði þá ekki bara næst að leggja i Hákot eða verið mjög hlyntog ákveðið strax að ganga i Sögufélagið. Ragnheiður segist vera fylgj- andi verndun Grjótaþorps og að velja félaginu þennan stað sé óbeinn þáttur i stuðningi við þá hugmynd. Margir skemmtilegir islend- ingar leggja leið sina i litlu búðina hennar Ragnheiðar. Það er t.d. hópur af körlum, algerlega sjálf- menntuðum, sem kaupir hverja einustu bók. Þeir eru margir hverjir hættir að vinna og grúska fyrir sig. Þessir gömlu karlar minir, segir Ragnheiður. Tryggð þeirra er svo yfirtak að þeir hafa upp á staðnum án þess að hann hafi nokkurn tima verið aug- lýstur. Mikill sagnfræðiáhugi blundar með islendingum. Að lokum uppljóstrar Björn að mikill atburður sé i vændum. Á næstunni komi út hjá Sögufélag- inu bókin Grænland á miðöldum eftir Olaf Halldórsson handrita- Iræðing. Þar komi fram nýjustu rannsóknir á islenskum heim- ildum um Grænland og Vinlands- ferðir. Efnið i heild sé tekið til nýrrar rannsóknar. Félagsmenn Sögufélagsins út um allt land eru hvattir til að gefa sig fram i litlu búðinni hennar Ragnheiðar sem tilheyrir Garða- stræti 13b eða hringja þangað i sima 14620. Opnunartimi er frá 2 til 6. GjFr King Framhald af 15. siðu. King Crimson upp enn á ný. Skömmu siðar var svo gefin út ömurleg hljómleikaplata: „Earthboúnd” með KC 3 -r Pete Sinfield. En Pete Sinfield hóf fljótlega upptökur á sóló-plötu, sem kom út 1973: „Still” og er ein af merki- legri King Crimson plötunum. Sinfield stofnaði hljómsveit upp úr stúdíómúsiköntum þeim er hann notaði á plötunni, og hét hljómsveitin A Bowl Of Soup, en hún flosnaði fljótlega upp. I henni voru: Sinfield, gitar, söngur, synthesizer/Phil Jump: hljóm- borð/Richard Brunton: gitar/Min: trom m ur/S te ve Dolan: bassagitar. Þeir félagar Boz, Mel og Ian stofnuðu strax hljómsveit ásamt Alexis Korner, Peter Thorup og Gaspar Lawall (slagverk), sem hét Snape, en siðan hafa þeir leikið i svo mörgum hljómsveit- um að ekki veitti af heilli grein til viðbótar til þess að gera þvi skil. En Mel Collins leikur nú mest með Kokomo, Ian Wallace er i Steve Marriott All Stars, ásamt Steve, Greg Ridley og Mickey Finn (gtr) og Boz Burrell er bassaleikari i Bad Company, svo ekki þurfa þeir að kvarta. Robert Fripp endurreisti King Crimson i júli 1972. 1 KC 4 voru: Fripp, John Wetton, bassaleikari og söngvari, Bill Bruford, trommuleikari, Jamie Muir slag- verkshamrari og David Cross, fiðluleikari og flautu- leikari. Nú, John Wetton hafði næst á undan verið i Family og lék t.d. inn á best seldu plötu þeirra „Bandstand”, áður hafði hann verið i Mogul Trash, en i þeirri hljómsveit voru nokkrir af þeim sem nú eru i Average White Band. Bill Bruford var i Yes, og hafði að þvi er mér skilst tekið við af Gunnari Jökli i Syn. Jamie Muir kom úr jassheiminum, hafði verið i samheild sem nefndist Music Improvisation Company og rokk-jass-grúppunni Boris (sem tronimuieikari). 1973, velgengni að lokum King Crimson hlaut nú meiri viðurkenningu en nokkru sinni fyrr, og átti Muir eflaust mestan hlut i þvi. En þvi miður hætti sá merkilegi maður i mars 1973, til þess að ganga i klaustur (!). En Muir skildi tónlistaráhrifin eftir og Crimson hélt áfram hinni nýju jassuðu stefnu sinni. Ein breið- sklfa kom út með Muir og Crimson „Lark’s Tongues In Aspic” og er hún eina sönnun ágætis Muir. Sem fjögurra manna hljóm- sveit stóð Crimson af sér 3 reisur til Ameriku, og liggur ein breiðskifa frá þvi timabili, „Star- less & Bible Black” og er hlið 2 „live”. 1974, Fripp leysir Crimson upp Litið fréttnæmt gerðist svo i King Crimson fyrr en i júni 1974 er David Cross var rekinn, og Crimson hélt áfram sem trió. Trióið sendi frá sér eina plötu áður en hún leystist upp i septem- ber 1974, „Red” en á þeirri plötu eru Dadvid Cross, Mel Collins, Ian McDonald, Marc Charig og Robin Miller gestir. Áður en Fripp ákvað að leysa hljómsveitina upp stóð til að fá Ian McDonald enn á ný inn i hljómsveitina, en það hefði verið mikill fengur. Eftir að King Crimson hætti hefur komið út ein ,,live”-plata sem nefnist „USA” og er hún þó-pokkuð skárri en „Earthbound”. John Wetton bauðst strax staða i Roxy Music og lék hann með þeim um tima, en gerðist siðan meðlimur i peningahljómsveit- inni Uriah Heep. Bill Bruford lék með Roy Harper og Chris Spedd- ing i Roy Harper og Trigger, hann lék auk þess i Gong og Pavlovs Dog. Fripp hefur siðan haldið kon- serta með Eno, en þeir gáfu út plötu saman 1973: „Fripp & Eno”. Siðan hefur Fripp verið að kenna ýmsum listamönnum sál- fræðilega og tæknilega gitar- kennslu, meðal nemenda hefur t.d, verið Robin Trower. ,,A Young Person’s Guide To King Crim- son” Annars er Robert Fripp i þann veginn að verða búinn að safna saman efni á „Best of”-plötu King Crimson, sem kemur til með að heita þvi skemmtilega nafni „A Young Person’s Guide To King Crimson” sem þessi grein gæti einnig að hluta kallast. — H.I.A. Kommar Framhald af bls. 9. brcfið). félagsfra-ðingurinn Stcf- an Amstcrdamski og hcimspck ingurinn Lcsek Kolakowski. ()g sem fvrr scgir. telja menn að rekja megi bein tengsli við bréf sem þetta til þeirra hugmynda tim margra afla kerfi. pólitiskan plúralisma i sósialisku þjóðlélagi. sem italskir og franskir kommún- istar hafa verið að refia. Og Kissinger Ekki má i þessu samhengi gleyma þeim aðilum, sem miklu hræddastir eru við nýjungar i stefnu vestur-evrópskra komm- únista og breytingar á afstöðu annarra flokka til þeirra. Þar. með er átt við Kissinger og aðra mótendur bandariskrar utan- rikisstefnu. Kissinger þreytist ekki á þvi að láta það i ljós, beint og óbeint, að Bandarikin muni ganga mjög langt i þvi að reyna að hindra samstarf kommúnista við sósialista eða þá aðra flokka (kristilega demókrata á Italiu) sem leitt gæti til myndun sam- steypustjórna. t þvi ljósi ber ein- mitt að skoða nýlegar fréttir um mútugjafir CIA til italskra flokka: það á að styrkja þá gegn freistingunni. Kissinger hefur mjög á lofti hættur þær sem Nató kunni að stafa af sliku samstarfi. En þar að auki getum við vitnað i nýleg ummæli i Washington Post sem voru á þessa leið: Kissinger óttast miklu meira sósíalisma á Italiu en Iriðsamlega sambúð við Sovétrikin. Vegna þess að slikur sósialismi hefði miklu meira að- dráttarafl fyrir verkamenn i Yestur-Evrópu en hinn sovéski... AB. Vísindi Framhald af bls. 4. var rannsóknanefnd, sem á að skila áliti nú i vor. Til þessa hefur verið stungið upp á þvi, að bannað verði að nota freonefni i lykteyð- andi efni. En iðjuhöldum er illa við slikt bann og segja að það muni leiða til aukins atvinnuleys- is. Enskir visindamenn hafa lika verið efins um slikt bann. Þeir segja að náttúran sendi fjórum sinnum meira af klórefnum út i stratosferuna en iðnaðurinn; auk þess eru uppi kenningar um það, að náttúran stjórni með sjálfvirk- um hætti þykkt ozonlagsins. Menn halda þvi fram, að núver- andi vitneskja manna um hring- rás klórs og nitrogens i náttúr- unni sé ófullnægjandi. Meðal fræðimanna virðist þvi uppi ágreiningur um þær póli- tisku ákvarðanir sem á að taka i málinu, en þeir eru hinsvegar sammála um „faglegar stað- reyndir”. Til dæmis segir J. Lovelock, leiðandi breskur sérfræðingur i þessum efnum I Nature, aö ef menn haldi áfram að sleppa freon án takmarka út I andrúmsloftið þá geti það leitt til „hættu- ástands” — enda þótt hann vilji enn ekki gripa til banns. Hugsanlegri takmörkun á framleiðslu freonefna i Bandarikjunum yrði að fylgja eftir með hliðstæðum ráðstöfun- um annarsstaöar. lönaðarins bíö- ur að finna efni sem geta komið I staðinn fyrir freonefni og ganga beint inn i hringrás náttúrunnar en trufla hana ekki. (Information). ALÞÝÐUBANDALAG Neskaupstaður: Sjóðakerfi sjávarútvegsins er efni helgarerindis fyrir almenning sunnudag 25. janúar kl. 16 I Egilsbúð (fundarsal). Málshefjandi Jóhann K. Sigurðsson útgerðar- stjóri. Umræður og fyrirspurnir. — Allir velkomnir. Stjórn Alþýðubandalagsins. Opiö hús í Kópavogi. Opið hús fyrir unglinga á aldrinum 12—16ára verður sunnudaginn 1. febrúar frá klukkan 8—11 i Þinghól. Diskótek. AB i Kópavogi. Árshátíð kópavogsmanna Árshátið Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldin 7. febrúar. Leiktrió mun spila fyrir dansi. Skemmtiatriði auglýst siðar. Þorra- matur verður á borðum. Athugiö að sala aðgöngumiða fer fram þriðjudaginn 3. febrúar frá klukkan 20.30 til 2200. Þá verða einnig tekin frá borð. Miðinn kostar kr. 1.750 og þeir sem koma eftir matinn greiða kr. 600.— Stjórnin. Féiagsmálanámskeið i Kópavogi Alþýðubandalagið i Kópavogi mun efna til félagsmálanámskeiðs á næstunni. Leiðbeinandi verður Jóhann Geirdal. Námskeiðið tekur sjö vikur miðað við eitt kvöld i viku. öllum er heimil þátttaka og tilkynnist hún stjórnarmönnum, sem veita nánari upplýsingar. Asgeir, 43357, Baldur 41962, Grétar 43231, Margrét 40047, Ragna Freyja 42462 og Þor- leifur 32308. Stjórnin Viö þökkum af alhug þá miklu vináttu og samúð sem okk- ur var sýnd við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar og tengdaföður Jóns B. Hjálmarssonar prentsmiðjustjóra Brúnavegi 12 Laufey Karlsdóttir, Aðalheiður Jónsdóttir, Erlendur Björnsson, Hjálmar Jónsson, Sigriður Erla Jónsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.