Þjóðviljinn - 07.03.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓOVILJINN Sunnudagur 7. mars 1976.
PJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSlALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Frainkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Kitstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Frcttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsbiaði:
Árni Bergmann
Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skóiavörðust. 19. Sími 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
SPILLING, AFBROT, PÓLITÍK
Við höfum til þessa vanist þvi islend-
ingar að horfa úr nokkrum fjarska á
tiðindi af skipulagðri glæpastarfsemi. Á
hvita tjaldinu sjáum við stórgróða af
smygli, vændi, eiturlyfjasölu hrúgast upp
með keyptum góðvilja mútuþægra emb-
ættismanna, og ef eitthvað ber út af er
stutt i að óþægileg vitni gerist úr heimi
höll. 1 annan stað má nú á degi hverjum
lesa af yfirheyrslum yfir fulltrúum ým-
issa helstu stærstu auðhringa heims, að
það sé frekar regla en undantekning ef
meiriháttar viðskipti komast á um her-
gögn, oliu, flugvélar ofl. án þess að miklar
mútur séu greiddar til að smyrja með
fyrirgreiðslukerfi háttsettra manna. Nú
hafa fjársvikamál i tengslum við alvar-
legri glæpi færst miklu nær okkur. Nú
finnst mönnum sem mafiudólgar séu
komnir i næstu hús veifandi tilboðum sem
torvelt verður að hafna.
Þróun i þessa átt er vafalaust tengd þvi,
að lögmál þau er ráða atferli manna i
auðvaldsþjóðfélagi hafa verið að festast i
sessi, fá aukið vægi. Með öðrum orðum:
hver er sjálfum sér næstur og andskotinn
hirði þann aftasta. í frumskógarandrúms-
lofti slikrar samkeppni truflast fljótlega
hugmyndir, sem áður kunna að hafa átt
sér nokkra fótfestu um rétt eða rangt, lög
og glæpi. Hvað er hagnaður og hvað þjófn-
aður? Hvar endar umbunin fyrir skipu-
lagshæfni, hagsýni og aðrar dyggðir i
rekstri og hvar taka við bókhaldsbrellur,
skattsvik, fjárflótti, mútur? öll gildi
verða það teygjanleg að einna algengust
viðbrögð hjá almenningi þegar spyrst um
tiltekin fjársvik hafa verið þau að spyrja,
hvort þessi sem nú lenti i súpunni sé
nokkuð verri en aðrir. Hvort ekki séu allir
eins. Menn hrökkva ekki við fyrr en menn
eru farnir að hverfa, einn, tveir eða fleiri.
Kannski verður sljóleikinn það mikill,
innan tiðar að menn kippi sér ekki upp við
morð heldur.
Hér er m.ö.o. vikið að gamalkunnum
hugmyndum um samfélagslegt umhverfi
sem mótar framgöngu einstaklingsins:
hlutur sem liggur i pækli tekur i sig salt.
En það væri mikil yfirsjón hjá sósialistum
og öðrum vinstrisinnum að láta við það
sitja, að slá þessu föstu með nokkurri
sjálfsánægju i þá veru, að við höfum
svosem alltaf vitað hvernig þetta
auðvaldsþjóðfélag var.
Þau lögmál gróðahyggju sem áður voru
nefnd eru svo sterk og áleitin, að þau
munu i einhverjum mæli hafa áhrif á allar
pólitiskar hreyfingar sem ná nokkurri
stærð. Gegn þeim áhrifum er blátt áfram
lifsnauðsyn að berjast. I þvi samhengi
skal vitnað til óvenjulega sjálfsgagn-
rýninnar athugasemdar Sigurðar E. Guð-
mundssonar i Alþýðublaðinu fyrir
skemmstu: ,,Talsmenn jafnaðarstefn-
unnar hér á landi hafa alls ekki verið nógu
harðir gagnrýnendur alls kyns forréttinda
auðvaldsþjóðfélagsins, hvað þá nægilega
miklir boðberar siðbóta og nýs hugarfars.
Þvert á móti hafa þeir löngum látið glepj-
ast til að verða samdauna þvi kerfi, er
auðhyggjusinnarnir höfðu komið á lagg-
irnar”. Og öll vitum við hvernig þessi 'af-
sláttarhyggja hefur leikið Alþýðuflokkinn.
Það er alveg ljóst, að þeir boðberar stór-
felldra breytinga á þjóðfélaginu sem vilja
láta taka sig alvarlega, verða að sýna gott
og ótvirætt fordæmi, taka skýra afstöðu til
fjárglæfra og annarrar spillingar. Annars
verða þeir grunaðir um að vera
„samdauna” eða verða það i reynd.
Einn hluti slikrar afstöðu er að láta ekki
fræðilegar vangaveltur um orsakir
spillingar og glæpa né heldur efasemdir
um hvatir einstakra boðenda betra
siðgæðis dreifa huganum frá þvi sem
meira skiptir. En það er: að þeim seku og
hálfseku gefist ekki friður til að drepa á
dreif eða svæfa þær kröfur, sem nú eru
vakandi um bætt réttarfar, um raunveru-
legt jafnrétti fyrir dómstólum, um skjóta
og virka rannsókn, sem engum hlifir, á
samhengi þeirra ljósfælnu mála, sem nú
er allsstaðar um rætt, hvar sem þrir eða ■
fjórir islendingar eru komnir saman.
—áb
Fiktiö ekki
við veðrið
Greinargerð
um veður-
fræðilegan
hernað
Um þessar mundir hafa menn
auknar áhyggjur af tæknilegum
möguleikum til að hafa áhrif á
veöurfar og liðan manna, sem
nota mætti i hernaði.
Bandarikjamenn beittu fyrir
sig slikum aðferðum i hernaði
sinum i Vietnam, en margt nýtt
hefur komið til skjalanna siðan.
Enda eru þátttakendur afvopn-
unarráðstefnunnar i Genf að
velta fyrir sér drögum að samn-
ingi, sem á að banna hernað gegn
umhverfi mannsins.
Dr. Bhupendra Jasani er einn
af starfsmönnum hinnar virtu
Friðarrannsóknarstofnunar i
Stokkhólmi (SIPRI). í nýlegri
grein sem hann ritar i Ambio,
timarit Sænsku visindaakadem-
iunnar, heldur hann þvi fram, að
það sé tæknilega mögulegt aö búa
til risavaxnar flóðbylgjur til að
senda að ströndum andstæðinga
og svo skjóta göt á ozonlag and-
rúmsloftsins með þeim afleiö-
ingum að skaðlegir útfjólubláir
geislar komist i gegn.
Að sá i skýin
Hann segir að þegar séu
alkunnar aðferðir til að ,,sá”
efnum i ský sem leiöa til mikillar
úrkomu. Þessar aðferðir má nota
i hernaði til aö torvelda liðs-
flutninga andstæðingsins, einnig
mætti nota slika „sáningu i ský”
sem væri stunduð til lengri tima,
til að hafa áhrif á úrkomu á
Gróðureyðing I Vietnam:
ekki i mjög stórum stil enn....
vissum svæðum og þar með
afkomu fólks sem þar býr. Valda
t.d. með þvi móti matvælaskorti
meðal þeirra bænda sem skæru-
liðar hafa vistir sinar frá.
Ein hugsanleg afleiðing af þvi,
að slikar aðferðir eru alþekktar,
getur orðið sú, að dómi dr.
Jasani, að þjóðir fari að ás^ka
hvor aðra — með réttu eða röngu
— um að hafa valdið uppskeru-
bresti með skipulögðum þurrkum
eða þá flóðum.
Hann segir ennfremur, að eitt
af þvi sem sé sérstaklega iskyggi-
legt, að þvi er varðar „tilbúið
veöurfar”, sé það, að það er unnt
að hafa slik áhrif án þess að eftir
sé tekið.
Annars konar „sáning” getur
verið notuð annaðhvort til að tor-
velda eða fela innrás með þvi að
breiða þoku yfir innrásarliðið.
Dr. Jasani gerir einnig grein
fyrir þvi, hvernig koma mætti af
stað hvirfilbyljum. Þeir verða til
með eðlilegum hætti yfir höfum i
sambandi við lægðir og geta náð
afli sem svarar til miljóna smá-
Umhverfishernaður hófst þar, en
lesta af sprengiefni. Unnt væri
að „búa til” slika hvirfilbylji með
þvi að hafa áhrif á eðlilega upp-
gufun sjávar. Meðal annars
mætti gera þetta með þvi að
dreifa þunnu lagi t.d. af oliu yfir
sjóinn. Þessa tækni mætti tengja
við sáningu i ský til að beina
hvirfilbyljunum i vissa átt og láta
þá eyðileggja strandvarnir and-
stæðingsins.
Flóðbylgjur
og fleira
En margir praktiskir örðug-
leikar mundu koma fram i þessu
sambandi — eins og reyndar i
sambandi við aðrar þær tækni-
brellur til hernaðarþarfa sem dr.
Jasani fjallar um.
Það mætti til dæmis mynda
„gat” i ozonlagið með atóm-
sprengingu i andrúmsloftinu. En
vilji menn vita um áhrif sliks
verknaðar, þurfa þeir að hafa
mjög nákvæmt yfirlit um vind-
stöður allar, svo og hve ört ozon
mundi flæða inn i þá eyðu sem
myndast heföi.
Risastórar flóðbylgjur (tsun-
ami), sem stundum fylgja i kjöl-
far jarðskjálfta og fremja hin
mestu hervirki, mætti búa til með
keðju hnitmiðaðra sprenginga.
önnur aðferð væri sú að nota
kjarnasprengingar, annaðhvort
neðansjávar eða meðfram mikilli
isbreiðu, sem mundi renna i
sjóinn við sprenginguna.
Að skjóta
á heilann
Greinarhöfundur segir, að
þegar til lengdar lætur kunni það
að verða mögulegt að hafa áhrif á
hegðum einstaklinga með þvi að
fitla i stórum stil við rafmagns-
virkni á mannsheilann.
öll verðum við stöðugt fyrir
áhrifum smárra rafsviöa — frá
rafstraumi götuljósa, frá ýmsum
hlutum og fyrirbærum úti i
geimnum. Tilraunir hafa sýnt
fram á það, að styrkist þessir
kraftar þá minnkar starfshæfni
manna við það.
Dr. Jasani ber fram kenningu
um það, að ef að hægt væri að
auka þessi áhrif með þvi að
hleypa rafsegulbylgjum frá efri
lögum andrúmsloftsins niður, þá
megi með þvi móti draga úr
starfshæfni stórra hópa manna á
vissum svæðum.
Dr. Jasani bætir þvi reyndar
við þessar athugasemdir sinar,
að margt af þessari tækni sé
aðeins i orði en ekki á borði.
Nokkur hluti hennar getur gegnt
nytsamlegu hlutverki, en aðeins
við vissar veðurfræðilegar
aðstæður og á vissum svæðum.
Það sem helst dregur úr þeirrí
hættu, að þessum aðferðum verði
beitt er það, að erfitt er að tak-
marka áhrif þeirra við ákveðin
svæði, og það getur eins verið að
þær snúist gegn upphafsmönnum
sinum. Sér grefur gröf....
(Byggt á Rcuter)
Sovéskar bækur
og tímarit
(á ensku), hljómplötur og nótur. Opiö frá
kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19,
laugardaga ki. 10—12.
ERLEND TÍMARIT
Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð