Þjóðviljinn - 07.03.1976, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 07.03.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 7. mars 1976. ÞJÓÐVILJINN'— SÍÐA 9 BRÉF UM BARNA- LEIKRIT Þaö er ekki alltaf auðvelt fyrir fullorðið fólk að geta sér til um tilfinningar barna, t.d. af hverju þeim þykir gaman eða ekki. Foreldrar og aðrir uppalendur, þeirra á meðal fóstrur og kennar- ar hafa tækifæri til að athuga við- brögð barnanna við hinar marg- vislegustu aðstæður. Siðustu árin hafa kennsluform i ýmsum greinum tekið þeim breytingum, að börn eru hvött til að starfa sjálfstætt, eða vinna saman i smáhópum. Þau skila úr- Kolrassa á kústskafti er prýðileg skemmtun lausnum sinum á ýmsan hátt m.a. með leikrænni tjáningu eða dramik. I mannfélagsfræði reyna börnin að setja sig i spor hinna fjarlæg- ustu þjóðflokka. t íslandssögu eru löngu horfnir kappar endurlifgað- ir. I móðurmálskennslu fá sagn- orð og lýsingarorð sýnilega merkingu osfrv. Leikræn tjáning sem kennslu- form lifgar upp á kennslu, hvetur börnin til samvinnu, hvetur þau til að tjá sig með likamanum, með svipbrigðum og i mæltu máli. Auk þess eflir þetta sjálfstraust nemendanna og vekur gleði þegar sæmilega tekst til. Þessi formáli er til Utskýringar á þvi, hversu hrifin ég varð þegar ég sá Kolrössu á kUstskaftinu i Iðnó. Þar finnst mér leikarar og höfundar stiga Ut Ur hinum hefð- bundna ramma og nálgast börnin sem skynsamar verur, en höfða um leið sterkt til imyndunarafls þeirra og ævintýraþrár. Og nota leikararnir m.a. þau vinnubrögö sem ég minntist á að reynt væri að fá börnin til að nota i skólan- um. Kolrassa sjálf er ævintýra- persóna, sem hrifur meö sér ósköp venjulega litla stUlku og ósköp venjulega stóra stUlku eitt- hvað Ut i buskann. Með hjálp ljósa og hljóma þeysa þær á kUsti til fjarlægra landa og meira að segja um aldir aftur á bak i timatalinu. Leiktjöldin eru einföld og sýningin öll þannig að börnin sjá kannski sina eigin möguleika til listsköpunar eftir að hafa horft á svona leiksýningu. „Kolrassa á kUstskaftinu” er þvi hin ákjósanlegasta skólasýn- ing og væri óskandi að sem flest börn á barnaskólaaldri fengju tækifæri til að sjá þessa sýningu Leikfélags Reykjavikur. Með bestu þökk fyrir skemmti- lega, athyglisverða og nýstárlega sýningu. Bryndis Gunnarsdóttir, kennari. ÓDÝR OG GÓÐUR Bragðgóður á brauði, enda gerður úr Gouda og Óðalsosti. Skerið hann helst .með strengskera. Bráðnar vel og því hentugur til matargerðar. Byggjum upp borðum ost. ostur evkurorku léttír hmd '»- v- Bökamarkaóurinn Í HÚSI IÐNAÐARINS VIÐ INGÓLFSSTRÆTI Aðalfundur Byggingasamvinnufélags starfsmanna rikisstofnana verður haldinn á skrifstofu félagsins, Hverfisgötu 39, fimmtudaginn 11. mars n.k. og hefst kl. 17. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsstjórnin. EINANGRUN Tilboð óskast i efni til pipueinangrunar (vatnsvarin stein- ull eða Polyuretan) fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð 26. mars 1976, kl. 11:00f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 gili °\ /S

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.