Þjóðviljinn - 07.03.1976, Side 5
Sunnudagur 7. mars 1976. toJáÐVlLJINN — SIÐA 5
Grænlandsmynd eilifðarinnar.
i hvers konar samfélagi munu þau lifa?
Ný pólitísk hreyfing
á Grænlandi
Það væri rangt að halda þvi
fram, að islendingar væru áhuga-
lausir um næstu granna okkar,
grænlendinga. Enda væri það
harla einkennilegt ef svo væri —
svo margar eru hliðstæður á þeim
vanda sem grænlendingar glima
við i dag og þeim erfiðleikum sem
við höfum orðið að glima við og
höfum ekki leyst enn.
t báðum tilvikum er um að
ræða smáþjóðir sem lifað hafa i
einangrun við tiltölulega einhliða
atvinnulif. Báðar eiga svipaðra
hagsmuna að gæta að þvi er
varðar verndun fiskimiða. Báðar
hafa þurft að sækja rétt sinn til
sjálfstjórnar og sjálfstæðis i
hendur danskrar nýlendu-
stjórnar.Báðar þurfa að geraþað
upp við sig, með hvaða hætti
verðmætum hefðbundinnar
menningar og lifshátta verður
bjargað yfir i nútimann, sem
ryðst yfir þjóðirnar með miklum
hraða og afli. Hvernig hægt sé að
taka við tæknivæðingu og
vitundariðnaði án þess að týna
sjálfri sér. Taka við nútimanum á
forsendum eigin þarfa. Og siðast
en ekki sist: hvernig unnt er að
hrinda ásælni stórvelda og auð-
hringa sem berja að dyrum ýmist
með herstöðvasamninga upp á
vasann eða með tilboð i náttúru-
auðlindir.
Það er þvi ekki nema eðlilegt að
hin fræga sýning Inúkshópsins
yrði til. Og ýmsir menn ágætir
hafa sótt Grænland heim og
skrifað um vandamál landsins af
ágætum skilningi og samúð. Ég
minni t.d. á skemmtilegt framlag
Asa i Bæ og Einars Braga til
þessara mála.
Það sem
ólíkt er
En auðvitað er margt ólikt með
islenskum og grænlenskum
vandamálum þrátt fyrir hlið-
stæðurnar. Þeir eru fjórum
sinnum fámennari en við.
Menning þeirra og sjálfstraust
enn viðkvæmari en okkar.
Gliman við að innbyrða
„nútimann” góðar og illar hliðar
hans, hefst allmiklu siðar hjá
grönnum okkar en hér, en sú
innrás verður þá þeim mun stór-
felldari og háskalegri. Það er þvi
ekki að undra þótt allmargir
menn hafi látið i ljós efa um að
grænlendingar fengju lifað þær
sviptingar af, ótta um að þeirra
biði að verða ráðlausir og áhrifa-
litlir annarsflokks ibúar á mikilli
hráefnastassjón, mæltir á fátæk-
legri dönsku. Aðrir hafa svo reynt
að safna röksemdum fyrir þá von,
að grænlendingum takist sjálfum
að ráða þróuninni til sjálfstæðrar
tilveru, þvi sannast sagna eru
þeir einir allra smárra veiðiþjóða
norðurhjarans sem eiga nú slika
möguleika. Móguleika sem stað-
festa mætti með stofnun eigin
þjóðrikis.
Þessar spurningar eru mjög á
dagskrá nú. Bæði vegna þess, að
það hefur komið i ljós, að Efna-
hagsbandalagið, sem Danmörk
er nú aðili að, hefur mikinn hug á
að fella náttúruauðæfi Grænlands
(oliu, málma ofl.) inn i fram-
tiðaráform sin. Og svo vegna
vaxandi pólitiskrar vitundar
grænlendinga og umræðu sl. 3-4
ára um aukið sjálfsforræði og
heimastjórn.
Tilraunir
En eitt af þvi sem sýnir vel hve
erfið vigstaða grænlendinga er,
er sú staðreynd, að þeim hefur
enn ekki tekist að koma sér upp
pólitiskri hreyfingu með mark-
sækinni stefnuskrá.
Hingað til hafa tvær tilraunir
verið gerðar, en þær hafa ekki
hlotið nægilegan hljómgrunn til
að heppnast. Á miðjum siðasta
áratug reyndi hópur grænlenskra
menntamanna að stofna flokk
sem nefndist INUIT, sem einkum
setti á oddinn jafnréttismál,
kröfur um jafnan rétt danskra og
grænlenskra þegna. Þessi hópur
hratt af stað umræðu um sam-
bandið við Danmörku, sem all-
margir tóku þátt i, ekki sist yngra
fólk. En flokkur þessi dó eftir
nokkur ár, vegna þess að honum
tókst ekki ab ná að ráði út fyrir
fremur þröngan hóp til lengdar,
né heldur að vinna bug á miklum
samgönguerfiðleikum i þessu
mikla landi.
Næstur varð Knud Hertling,
siðar grænlandsráðherra, til þess
að stofna flokk, SUKAQ, sem átti
að vera einskonar grænlenskur
sósialdemókrataflokkur, en
honum tókst ekki heldur að sann-
færa grænlendinga um kosti póli-
tiskra samtaka til baráttu fyrir
sameiginlegum málum.
Áfram
Af þessum sökum hafa þær
raddir heyrst að það væri yfir
höfuð ekki jarðvegur fyrir skipu-
lögð pólitisk samtök i Grænlandi.
En meðal þeirra sem andæfa
slikri kenningu eru nokkrir
áhrifamenn eins og Lars Emil
Johanesen, sem nú er annar af
þingmönnum Grænlands á
danska þinginu, og fyrirrennari
hans, Moses 01sen.,Asamt þriðja
manni, Jonathan Motzfeldt hafa
þeir stofnað nýtt blað, sem nefnist
Hluti af innrás nútimans.
„Sujumut” (Afram) og á það að
verða stofn að nýrri pólitiskri
hreyfingu.
Lars Emil Johanesen segir i
nýlegri grein um hreyfingu þessa,
að hann efist ekki um að hún eigi
sér framtiö ef að hún, n.b. getur
mætt pólitiskum þörfum ekki
aðeins litils hóps menntamanna
heldur þörfum alls almennings og
byggt á raunsæjan hátt á þörfum
grænlensks samfélags i dag.
Þingmaðurinn segir m.a.:
Aödragandi
„Margra ára fjarstýring og
einhliða boð frá Kaupmannahöfn
hafa að sjálfsögðu leitt til þess, að
mikill hluti grænlendinga eru i
óvissu um þá möguleika sem
samfélag þeirra hefur upp á að
bjóða. Það nægir að lita á
atvinnulifið heima á Grænlandi,
sjá hverjir það eru sem þar ráða
ferðinni. Allavega eru það ekki
grænlendingar.
Ég er þeirrar skoðunar, að póli-
tisk meðvitund almennings sé
forsendan fyrir þvi að skipulögð
pólitisk starfsemi verði virk. Og
þvi tel ég lika að slik póiitisk
vakning sé nauðsynlegur undan-
fari þess að stofnaður sé einn eða
fleiri pólitiskir flokkar á Græn-
landi.”
Lars Emil Johanesen segir að
hann og áðurnefndir félagar hans
hafi frá þvi 1971 reynt að hvetja til
slikrar vakningar. Það hafi verið
freistandi fyrir þá að reyna að
koma sér upp flokksvél — einkum
þegar þeir hafi lent i.þvi að verja
„óvenjulega” stefnu sina and-
spænis rammefldum dönskum
þjóðfélagsstofnunum. En þeir
hafi, með tilliti til fyrri mistaka,
ekki viljað flýta sér i þessum
efnum, heldur reynt hver um sig
að efna til umræðu, safna áhang-
endum. Nú hafa þeir komist það
langt áleiðis, sem fyrr segir, að
blaðið SUJUMUT er orðið veru-
leiki. Lars Emil telur, að það
muni ekki liða á löngu þar til
SUJUMUT verður að pólitiskum
flokki, og hann telur einnig, að
hreyfingin geti reitt sig á stuðning
um 10.000 kjósenda og er það
mikið fylgi á Grænlandi — ibúar
þar munu 40-50 þúsundir.
Stefnuskrá
Stefnumál SU J UMUT-hreyf-
ingarinnar munu enn i deiglu..
enda eiga þeir þrir foringjar sem
áður voru nefndir sér ólika póli-
tiska fortið. En i nýlegu tölublaði
hefur Moses Olsen, sem mun
einna róttækastur i hópnum.lagt
fram drög að stefnuskrá fyrir
hreyfinguna, og er hvatt til op-
innar umræðu um hana.
1 þessum drögum segir að aðal-
.márkmið hreyfingarinnar sé að
„skapa samstætt og starfhæft
samfélag sem getur tekið örlög
sin i sinar eigin hendur ba'ði með
ábyrgri nýtingu auðlinda landsins
og með naubsynlegum tilfærslum
(?) að utan. Þetta þýðir ekki að
hafnaðsé jákvæðum tengslum við
einn eða neinn utan Grænlands".
1 drögunum er itrekað, að
grænlendingar vilji ekki eiga
aðild að Efnahagsbandalaginu. 1
launamálum verði stefnt eins ört
og unnt er að launajöfnuði.
Atvinnulifið beri að reka fyrst og
fremst með tilliti til hagsmuna
veiðimanna, sjómanna, fjár-
bænda og annars verkafólks og
stefna skal að aukinni samstöðu
vinnandi fólks með eflingu sam-
vinnuhreyfingar. Erlenda fjár-
festingu skal þvi aðeins leyfa. að
ekki séunnt að útvega grænlenskt
fjármagn, enda sé svo gengíð frá
samningum. að þeir séu hag-
kvæmir grænlenskri alþýðu.
Um sjávarútveg segir: Viö
berjumst fyrir fiskveiðilögsögu
sem á hverjum tima tryggir að
fullu hagsmuni okkar, einnig að
þvi er varðar aðra hluta hins
danska rikis.
Heimastjórn og auðlindir
Um heimastjórnaráforni segir.
að þau verði grænlenskir stjórn-
málamenn sjálfir að móta i sam-
ræmi við grænlenskan hugsunar-
hátt og réttarvitund. Mælt er með
þvi að rammalög um heimastjórn
verði sett sem fyrst og kveðið á
um. i hvaða röð heimastjórn
tekur að sér verkefnin.
Þá segir i drögum Mosesar
Olsen. að heimastjórn sem ekki
hafi fulla stjórn yfir auðlindum i
landinu og umhverfis það muni
aldrei risa undir nafni. Þvi verði
löggjöf og samningar um nýtingu
auðlinda að kveða skýrt á um
það. að land og auðlindir tilheyri
þeim sem hafa fasta búsetu i
landinu (Selstöðufvrirkomulagið
á dagskrá rétt enn einu sinni). Og
að nýtingu auðlindanna verði
stjórnað af þjóðkjörnum full-
trúum og arðurinn komi græn-
lenskri alþýðu til hagsbóta. Þá
eru og ákvæði um hlutdeild
„fastra búsetumanna" i störfum
að oliuvinnslu og námagreftri og
fleira i þeim dúr.
Stefnuskrárdrög þeirra
, SUJUM UT-manna verða ekki
rakin hér nánar. Þau benda til
nokkuð opinnar vinstristefnu sem
likleg má þykja til góðra undir-
tekta hjá þjóð sem frá fornu fari
ermótuðaf viðhorfum sameignar
og samvinnu. Að þvi er varðar
sambandið við Danmörku þá
mundi ýmsum sjálfsagt þvkja að
i skjali þessu gæti full mikillar
varfærni. En hæpið er að gera til-
raun til að dæma um þá varfærni.
nema að ráða yfir drjúgri þekk-
ingu á grænlenskum veruieika.
Arni Bergmann tók saman.