Þjóðviljinn - 07.03.1976, Side 16
16 StÐA — ÞJrtDVILJlNN Sunnudagur 7. mars 1976.
Tónlistar-
nemendur
biöja um
leiðréttingu
mála sinna:
Nemendur i framhaldsdeildum
Túnlistarskólans i Reykjavik
hafa i ýtarlegri greinargerð
itrekað beiðni sina til stjornvalda
um námslán sér til handa. 1 sam-
tali við tvo fulltrúa nemenda Tón-
listarskóians, þær Þórunni
Björnsdóttur og Margréti
Gunnarsdóttur kom fram, að þau
telja sig afskipt hvað snertir út-
hlutun námsíána til þessa. Með
hliðsjón af fyrirhugaðri endur-
skoðun námslánakerfis þjóðar-
innar vilja nemendur þvi ftreka
fyrri málaleitan sina um jafn-
rétti við aðra þá, er starfsnám
stunda.
Tónlistarnámið er oft i senn langt, erfitt, krefjandi og kostnaðarsamt,
sögðu þær Margrét (t.v.) og Þórunn. Þess vegna gera nemendur Tón-
listarskólans nú tilkall til námslána og benda á, að menntunin sé horn-
steinn tónlistarlífsins og því sist þýðingarminna en önnur framhalds-
menntun.
Tónlistarnám er
starfsmenntun
Ekki tómstundagaman
Þeir þrir höfuðþættir tónlistar-
iðkunar, sem jafnframt tengjast
framhaldsnámi við Tónlistar-
skólann eru: Tónlistarkennsla á
grunnskólastigi, kennsla i hljóð-
færaleik og hljóðfæraleikur (ein-
leikarar). Allt eru þetta hom-
steinar litriks tónlistarlifs, sem
viðurkennt er nauðsynlegt hverju
þjóðfélagi.
— Einmitt þess vegna sögðu
þær Þórunn og Margrét, — viljum
við ekki viðurkenna það álit
margra að tónl.nám sé eitthv.
tómstundagaman. Þetta er erfitt
og krefjandi nám, engu þýðingar-
minna en önnur framhalds-
menntun. Við þykjumst þvi eiga
tilkall til þess, að verða ekki enn
einu sinni sett utangarðs við veit-
ingu námslána.
— Menntunarkröfur eru mjög
miklar, sögðu þær stöllur. T.d.
má nefna kröfurnar tilþeirra sem
kenna hljóðfæraleik eða hyggjast
verða einleikarar. Enginn nær
þeim áfanga án þess að undir-
gangast margra ára stift undir-
búningsnám áður en hann kemst í
sjálft aðalnámið og þannig er
þetta á mörgum öðrum sviðum.
Auk þess kostar námið sinn
skilding i bóka- og „tækjakaup-
um”.-
I greinargerð nemenda
Tónlistarskólans segir m.a.:
„Af framansögðu má ljóst vera
að nám sem stefnir að starfi á
hinum ýmsu sviðum tónlistariök-
unar er starfsmenntun. Það verö-
ur að meta það til jafns við annað
nám sem stefnir að þjálfun hlut-
aðeigandi til ævistarfs. Þetta
nám getur þvi ekki frekar en
annað starfsnám flokkast undir
tómstundagaman þeirra sem það
stunda, heldur ber að líta á það
sem fullt starf. Hér eins og ann-
ars staðar er aðstaða nemenda
afar misjöfn, svo að i mörgum
tilfellum er þeim fjárhagslega
torvelt, jafnvel gjörsamlega
ómögulegt að stunda það nám, er
hugur þeirra stefnir að án utan að
komandi aðstoðar. Þetta sjónar-
mið hefur verið viðurkennt i
reynd með opinberum stuöningi
viö námsmenn á flestum öðrum
sviöum, i formi námslána. Þau
eru til þess ætluð að jafna aðstöðu
þeirra sem stefna að æðri starfs-
menntun. Við höfum fært rök að
þvi hér á undan, að tónlistarnám
á æðra stigi, er fullkomlega hlið-
stætt námi i öðrum æðri mennta-
stofnunum landsins.”
— gsp
Kopararm-
bönd
gera gagn!
SINGAPORE Læknar sem
saman voru komnir á ráðstefnu i
Singapore til að ræða gigtarlækn-
ingar, telja sig hafa nokkra stað-
festingu á þvi, að hjátrU þeirra
sem ganga með kopararmbönd.
sér til heilsubótar sé á rökum
reist. Athugun á 300 gigtarsjUk-
lingum þótti benda til þess, að sá
helmingur þeirra sem haföi vanið
sig á kopararmböndin væri
heldur betur á vegi staddur. Og
þar að auki grennri og léttari á
sér.
Þessi jákvæðu áhrif eru rakin til
þess, að litið eitt koparmagn,
uppleyst i svita, geti borist inn i
iikama manns um hUðina.
(j| ÚTBOÐ m
Tilboð óskast i eftirfarandi fyrir Hitaveitu
Reykjavikur.
1. Þenslustykki af ýmsum stærðum og gerðum.
— Opnunardagur tilboða 20. april 1976.
2. Loka af ýmsum stærðum og gerðum. — Opn-
unardagur tilboða 21. april 1976.
3. Stálpipur af ýmsum stærðum. — Opnunar-
dagur 23. april 1976.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, Reykjavik.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frtkirkjuvegi 3 — Sími 25800 > , " •
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
viö vinsæl lög
Tökum lagiö
HÆ!
Þakka bréf in og ég vona að flestir hafi verið ánægðir rneð ,, ryksugu
lagið”. 1 dag tökurn við fyrir garnalt óskalag sern þeir félagar SIMON
AND GARFUNKEL endurvöktu á sinurn tirna á LP-plötunni „Bridge
Over Troubled Water”. Það heitir: Bye bye love.
BYE BYE LOVE
F C
Bye bye love
F C
Bye bye happiness
F C
Hello loneliness
G7 C
I think I’m gonna cry
F C
Bye bye love
F C
Bye bye sweet caress
F C
Hello emptiness
G7 C
I feel like I could die
G7 C
Bye bye my love, goodbye.
C G
There goes my baby
C
With someone new
G
She sure looks happy
C
I sure am blue
F
She was my baby
G
Till he stepped in
G7
Goodbye to romance
C
That might have been.
C-hljómur
C D
(í )
c D
h -h (jómur
l
Cc7- hljómur
Verkfallsstyrkur
Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavik-
ur hefur ákveðið að veita félögum styrk úr
vinnudeilusjóði. Styrkur verður veittur
fjölskyldum með 3 börn *eða fleiri undir 16
ára aldri, enda hafi framfærandi ekki þeg-
ið laun i verkfallinu i febrúar.
Umsóknarfrestur er til 10. mars n.k. og
þurfa umsækjendur að framvisa félags-
skirteini og sjúkrasamlagsskirteini eða
öðru óyggjandi vottorði um fjölskyldu-
stærð á skrifstofu félagsins að Hagamel 4.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur