Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 7
Sunnudagur 16. mai 1976. ÞJÓÐVILJiNN — SÍDA 7 jgí '- m . y-Mii , n V í ÆSKUFÖLK, VERKAFÓLK Á fundi hjá Alþýðu- ba nda lagsf élaginu í Reykjavík flutti Svanur Kristjánsson lektor fram- söguerindi um þátttöku æskufólks og verkafólks í starfi flokksins, en hana taldi hann háskalega litla. Margt var athyglisvert í erindi Svans og fer endur- sögn á því hér á eftir. Svanur kvaðst i upphafi með æskulýð eiga við fólk undir þri- tugsaldri sem ekki væri verka- fólk. En verkafólk væri i ræðu hans faglært og ófaglært verka- fólk, sem vinnur erfiðisvinnu. Ef til vill er, sagði hann, ekki mjög margt sameiginlegt með þessum hópum tveim. En eitt er mjög mikilvægt og það er sú stað- reynd, að báðir þessir hópar koma litið, allavega alltof litið, við sögu i starfi Alþýðubanda- lags. Þetta kemur bæði fram i fundasókn, þátttöku i almennu starfi Abl og svo blátt áfram i þvi að þessir hópar eru tiltölulega fá- mennir a.m.k. i flokksíélaginu i Reykjavik. Gegn sjálfsánægju Þetta er uggvænleg þróun, sem menn hafa haft alvarlega til- hneigingu tiíað hundsa. Þarna er á ferð sama háskalega sjálfs- ánægjan sem kemur fram i ýms- um plöggum eins og drögum að stjórnmálaályktun 1974, þar sem segir að sigurvegarar kosning- anna þá um sumarið séu Abl. og Sjálfstæðisflokkurinn, og að ,,A1- þýðubandalagið hefurá hinn bóg- inn eflst og vaxið jafnt og þétt og aukið fylgi sitt við hverjar kosn- ingar hin siðari ár.” Þarna er ekki litiö á það, aö Sjálfstæðis- flokkurinn hafði unnið 6,5% at- kvæða i þessum kosningum, feng- ið 42,5% og hafði ekki haft hærra hlutfall siðan 1933. En Alþýðu- bandalagið hafði aðeins bætt við sig 1,2% atkvæða frá 1971 Og var ekki orðið eins öflugt atkvæða- lega og það var þegar það var stofnað 1956. Þeir sem fóru Mér sýnist að minna fari fyrir æskufólki i Abl. nú en var um tima — sumt af þvi unga fólki sem kom inn i allrikum mæli 1967—71 fór aftur úr flokknum. Hluti þess hefur unnið i pólitisku starfi — i háskólanum, iðnnemasamtökum, eða þá i samtökum sem talin eru „til vinstri” við Alþýðubandalag- ið, þótt sú staðsetning geti orkað tvimælis. Það er vissulega þýðingarmik- ið að gera sér grein fyrir þessu brotthvarfi og afleiðingum þess að þetta fólk segir heldur neikvæð tiðindi af reynslu sinni i Alþýðu- bandalaginu. Nú má segja sem svo, að það hafi hvort sem var ekki verið neinn ávinningur i mörgum þeirra sem kjósa að starfa „til vinstri”. Það fólk er gjarna i leit að sálufélögum, nýrri fjölskyldu, afstaða þess er meira eða minna trúarleg. Og i sambandi við gagn- rýni þessa fólks má taka það fram, að við islenskar aðstæður errétt að hafna hugmyndum Len- ins um útvalinn hóp samsæris- manna sem „færir” verkalýðnum byltinguna. Gagnrýni En á hitt er að lita, að aðrir þeirra sem hafa horfið úr Abl. eða vilja ekki taka þátt i starfi þess hafa mikið til sins máls þegar þeir gagnrýna flokkinn. Þeir telja, að þar sé um of einblint á þingstarf og kosningafylgi, en vanrækt fjöldabarátta — á vinnu- stöðum, i skólum, i ýmsum fé- lagsmálahreyfingum o.s.frv. Þá hefur þaðiog haft neikvæð áhrif á þetta fólk, hve valdalaust Alþýðu- bandalagsfélagið i Reykjavik reynist — ákvarðanir eru i reynd teknar annarsstaðar — i þing- flokki, af ráðherrum ef flokkurinn á aðild að stjórn, i miðstjórn, eða á ritstjórn Þjóðviljans. Þetta finnst þeim allt draga úr póli- tiskri umræðu og gildi hennar, minna frekar á borgaralegan flokk en sósialiskan. Hverjir eru í forystu? Alltof litil þátttaka verkafólks i flokksstarfinu á sér ýmsar sögu- legar orsakir. Þar segja til sin á- hrif neyslusamfélags, langs vinnutima, þá er verkafólk i þeirri merkingu, sem ég nota hér, minnkandi stétt tiltölulega i sam- félagi þar sem millistétt stækkar ört. Hér við bætist að það er hefð i flokknum að menntamenn séu mikils ráðandi. t yfirliti yfir menntun þing- manna sem hafa setið á Alþingi 1923—71 kemur i ljós: Háskólapróf.................. Stúdentspróf...........•..... Starfsmenntun................ Gagnfræðapróf................ Barnaskólapróf............... eða minna (Ath: i hverjum dálki eru nú- verandi flokkar og fyrirrennarar þeirra — ihaldsflokkur, sósial- istaflokkur o.s.frv. Með starfs- menntun er i reynd einkum átt við kennaraskóla, samvinnuskóla, bændaskóla og sjómannaskóla). Miðað viö önnur Norðurlönd er það sérislenskt fyrirbæri hve margir háskólamenn og stúdent- ar eru i forystuliði verklýðsflokk- anna beggja. t Sviþjóð voru 65% þingmanna (1962) ekki með neiu próf umfram barnaskólanám. Danski sósialdemókrataflokkur- inn var stofnaður á áttunda tug fyrri aldar. Þegar Viggo Kamp- mann var árið 1960 kosinn for- maður flokksins þótti það nokkuð varasamt, þvi að hann var há- skólagenginn. Frambjóöendur Ef að litið er sérstaklega á frambjóðendur Alþýðubanda- lagsins og fyrirrennara þess, þá kemur þetta út (Ath: skoðaðir eru allir frambjóðendur i einmenn- ingskjördæmum 1931—59, eftir það þrir efstu menn i öllum kjör- dæmum — en að þvi er Reykjavik varðar eru tekin fjögur efstu sæt- in frá 1931—1974) Fram til 1949 eru verkamenn i meira en fimmtungi framboðs- sæta. Siðan hefur það hlutfall minnkað og náði ekki 10% i kosn- ingunum 1971 og 1974. En það skal tekið fram, að samt er Albl. með hæst hlutfall allra flokka, af verkafólki i framboði. Bændur eru um 10% frambjóð- *3q Cfl .2 xL d Á 2 ed Um 2 < < 3? < 42,1% 55,2 28,4 52,4 25,0 • 9,5% 10,3 3,0 7,1 28,6 23,5% 24,2 29,8 20,2 21,4 12,7% 10,3 20,9 8,3 10,7 12,2% 17,9 12,0 14,3 enda, iðnaðarmenn og fólk úr ýmsum þjónustugreinum eru önnur 10%. Þetta hlutfall hefur haldist nokkuð stöðugt. Stærstir hópar frambjóðenda Alþýðubandalags og fyrirrennara þess eru 1) kennarar og skóla- stjórar 2) rithöfundar og blaða- menn 3) framkvæmdastjórar og forstjórar ýmislegra stofnana eða fyrirtækja. Siðan 1956 hefur hlut- ur þessara hópa aukist nokkuð jafnt og þétt. 1974 voru þeir 72% frambjóðenda. Ástæöur Astæðurnar fyrir þessari þróun eru margskonar. Rikjandi hug- myndafræði, hugmyndir um að við búum i þjóðfélagi „hinna jöfnu tækifæra”, að „hver sé sinnar gæfu smiður” koma þar við sögu. Rikjandi mat á vinnu og skólagöngu. Verkafólk hefur með ýmsum hætti fengið trú á menntamönnum en vantrú á sjálfu sér. En menntamenn hafa afturá móti trú á forystuhæfileik- um sjálfra sin (gildi sérþekkingar o.fl.). Útkoman er siðan svo, að mjög mikið fer fyrir þvi fólki i flokkn- um sem kenna má til menningar- róttækni. Þetta fólk stundar gjarna einhverskonar millistétt- arstarf (kennarar, leiklistarfólk, opinberir starfsmenn, rithöfund- ar, blaðamenn o.s.frv.). Það les góðar bækur, sækir leikhús, sinfóniutónleika. Er á móti hern- um og bandariskri heimsvalda- stefnu. Hefur áhuga á verndun gamalla húsa og les sunnudags- blað Þjóðviljans af kostgæfni o.s.frv. Áherslur t sjálfu sér er ekkert rangt við þetta. Spurningin er hinsvegar sú, hvort þessari menningarrót- tækni hætti ekki til að missa sjón- ar á nokkrum höfuðatriðum i stjórnmálum. Að minnsta kosti leggja ekki áherslu á þau sem skyldi. Ég á við stéttabaráttuna sjálfa, baráttu fyrir jöfnuði i þjóðfélaginu, baráttu fyrir mann- sæmandi kaupi fyrir dagvinnu, fyrir breytingum á þjóðfélaginu — og þar með verkalýðnum sjálf- um. Áherslu á það, hvaða stéttir mynda grundvöll þjóðlifsins. Við skulum ekki gleyma þvi, að það ætti að vera hlutverk mennta- manna að berjast gegn þeirri hugmyndafræði, sem hindrar þróun og þroska verkalýðsstétt- ar. Hvaö ber aö gera? Ef að spurt er hvað skal til bragðs taka þá er sjálfgert að nefna markmið eins og meira lýð- ræði innan flokksins, meiri áhrif flokksmanna, meiri umræðu. Baráttan sé viðtækari — þ.e. ekki bundin við þing og kosningar. Það má einnig benda á praktisk atriði eins og blátt áfram það, að skrif- stofan sé betur rekin, að ekkert standi á framkvæmdaratriðum. Þá er mjög nauðsynlegt að berjast i öllum áróðri gegn rikj- andi hugmyndafræði. Og þar und- ir fellur að við beitum okkur fyrir öðru matiá gildi vinnu og skóla- göngu. Við þurfum ekki endilega skýrari stefnuskrá en við nú höf- um, en allavega skýrari stefnu. Ég veit vel að breytingar sem um munar eru erfiðar i framkvæmd. En við verðum að muna, að sósialiskur flokkur verður að varðveita sérkenni sin, annars á hann það á hættu að úrkynjast og verða að kosningamaskinu. 1 þeim efnum er þróun Alþýðu- flokksins viti til varnaðar. Sósial- istar eiga að móta stefnu sina sameiginlega. Og fylgja henni eftir, fela fulltrúum sinum að fara eftir henni og sjá til þess að svo sé gert. Vanrækslusyndir okkar eru margar. Það væri ofmælt að segja að við flytum sofandi að feigðarósi. En kannski erum við i þessum efnum eins og milli draums og vöku.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.