Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 17
Sunnudagur 16. mai 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
Stjörnuþoka
Einar Vilberg: Starlight.
Steinar h/f. 004
Ugglaust heföi aldrei veriö
fjallaö um nýútgefna plötu
Einars Vilberg hér i dálkunum,
ef undirritaöur heföi ekki rekist
á Einar i mannfjöldanum i
Lækjargötu eftir göngur 1. mai.
Hann stóö ráövilltur einsog
nýfallinn engill innanum stétt-
visa verkalýöinn þrieina og varf
aö leita sér aö leigubil. Hér voru
merkin, stundin var komin.
Plata Einars er sú þriöja frá
sögulegri innkomu hans i popp-
heiminn. Otgefandinn hefur
upplýst aö útgáfan hafi kostaö
mikla vinnu og fjármuni. Timar
i upptöku og vinnslu uröu 160, og
má þaö teljast i meira lagi.
Kostnaöur var 2—2,3 miljónir
viö aö koma fyrstu 1500 eintök-
unum á markaö. Ekkert er þvi
til sparaö. Þeir sem undirleik-
inn annast eru færustu menn i
bransanum. Platan er þvi hvort
tveggja i senn, yfirlýsing ungs
útgáfufyrirtækis og vitnisburö-
ur um getu þeirra sem leika á
hljóöfæri i poppi. Skoöum nú
nánar hvort Einar á erindi sem
erfiöi á markaðinn.
Oll lögin á plötunni eru eftir
Einar sem og textar sem eru á
ensku. Tónlistin er byggö upp af
rokkfrösum meö hægu biti. Lög-
in nálgast þaö sum aö vera
ballööur. Flest þeirra hljóma
kunnuglega i eyrum, nokkur er
auövelt að ættfæra. Star-
collector, fyrsta lag á hliö a,
er meö millikafla úr lagi
Bowies, Hang on to yourself.
Annað lagiö á sér hálfbræöur I
lögum eftir Lennon og Gylfa
Ægisson, etc. Þaö er meinlaust.
Rokk er þannig. Stef og frasar
flækjast um, eiga sér speglanir
og endurspeglanir svo hundr-
uöum skiptir. Spurningin er
hvernig Utsetning og hljóðfæra-
leikur er, hvort textar og upplif-
un gera lögin áheyranda þekki-
leg. Og þar skitur Einar i nytina
sina. Ensku textarnir eru illa
samdir, skáldinu tekst ekki aö
koma fátæklegum hugmyndum
sinum i orö svo vel sé, enda hef-
ur hann ekkert vald á málinu.
Þaö sem meira er, hann skilur
ekki hljómfall ensku, getur ekki
fellt máliö aö hijómunum. Hann
apar eftir en getur þaö ekki einu
sinni. Islenskir hafa lengi þurft
aö sitja undir þeim ósköpum aö
popparar sem tæpast eru mellu-
færir á máli engilsaxneskra
isöngljóðum sinum ekki tjáö sig
á ööru máli. Einar rennir sér á
rassinum onl gryfjuna til
Gunnars Þóröar, Spilverksins
og allra hinna. Textar Einars
eru þvi stórt lýti, óskapnaöur.
Þær hugmyndir sem Einar
reynir að tjá á þessu framandi
máli eru lika heldur klénar.
Starcollector find me,
starcollector try to find me,
syngur hann biöjandi. Þegar
hann loksins dettur niöur á
sæmilega hugmynd I Nowhere,
um konuna sem tekur
söngvarann meö sér I för út á
ystu nöf, mögulega I glötunina,
þá er þaö i million dollar silver
cadillac sem þau keyra út i
buskann. Má ég þá heldur biöja
um draumadis á þvottaefnis-
pakka.
Þannig er efniö á plötu Einars
vanhugsaö, óvandaö. Og þrátt
fyrir mörg góö nöfn er undir-
leikurinn slappur. Gunnar
Þórðarson, Ásgeir Oskarsson
Þóröur Árnason og Jakop Magg
standa sig slælega. Undirleikur-
inn nær aldrei aö hefja rödd
Einars upp, sem veitir ekki sist
af. Hún er hljómlitil, blæbrigðin
eru engin, hvergi tekst aö
spenna upp meö mismun rödd-
unar og undirleiks. Þar skiptir
væl Spilverksins engu. (Þaö
annast bakraddir I nokkrum
lögum). Þaö er helst aö Þórður
eigi rispur góðar i
Starcollector og Nowhere en
þær sólóur koöna niöur, hann
fær ekki næöi til aö ná sér á
strikiö og upp. Þar er eins og
fyrr að kenna mullulegum
undirleik.
Þaö dæmist þvi rétt vera aö
kostnaðarsamt framtak Steina
h/f hafi mistekist. Vonandi lær-
ir stjórn þessa fyrirtækis sem og
aðrir aöstandendur af reynsl-
unni. Útgáfa sem þessi er skaö-
leg. Hún tekur tima og tækifæri
frá þeim sem frekar eiga viö
okkur erindi og lengir enn
svartnættið i alþýöutónlist
eyjarskeggja. Minnist þess á
komandi timum þegar þiö rekist
á plötuna Starlight á útsölum.
pb.
Sólskinsdagurmeö
BG og Ingibjörgu
1 siöaftansól á fjöröum vestra
erþaö vandi yngra fólks aö kýla
á hresstfylleri og si'öan ball meö
BG og Ingibj. þegar færi gefst,
og þá getur oft verið heljarins
stuð. Sú tónlist sem hljómsveit-
in leikur er tvimælalaust meö
þvi' skárra sem islenskum
áheyrendum er boöiö aö hlýöa á
viö slik tækifæri.
Fátt er þó um bjarta bletti i
Sólskinsdegi BG og Ingibjargar,
þvi vægast verður skifan aö
teljast heldur fátækleg viöbót
viö þaö er þegar hefur þjakaö
óskalagaþættina um árabil, og
seint eöa ekki viröist ætla aö
taka enda.
Á skifunni er allt i einum
graut. Þar má finna sjómanna-
lög sem heföu þótt góö á frivakt-
ina fyrir svona tiu árum, gömul
nokkur, góö erlend dægurlög
sem engin ástæöa er til aö setja
aftur og ver gerö á plötu, og
nokkur frumsamin lög hljóm-
sveitarmeölima, sem aö
undanteknu laginu Baldursbrá
eftir BG veröa aö teljast jafn litt
bjóöandi og önnur lög plötunn-
ar. Fátt er um fina drætti; helst
mætti þar til nefna oft ágætan
söng þeirra Ingibjargar og
Ólafs, og aö bakhliö plötuum-
slagsins er smekklega unnin og
prentuö.
Ingibjörg Guömundsdóttir'
Textar eru eftir þau i BG, og
Jónas Friörik semur einnig
nokkra. Jónasi tekst oft allvel
upp, en sama er ekki aö segja
um þau BG og Ingibjörgu, eins
og sjá má af eftirfarandi
úrdráttum úr kveöskap þeirra.
tlrlifsflóttatextanum Langtútá
sjó:
t landi er erUI og ys
til og frá,
og eintómir veggir scm rekst
maöur á.
Þegar af heimskunni hausverk
égfæ,
ég ræ, ég ræ, ég ræ, ég ræ.
Og úr kúrekatðffarabragnum
Hesta-Jói:
Hesta-Jói er haröur karl
af sér,
ekki vild’ann nokkur
mótisér.
Ef aö einhver mundi móöga
þennan mikla hestamann,
þá mundi hann skjóta beint
á hann.
Plötunni viröist vera þaö ætl-
aöafforráöamönnumhennar aö
komast i sem flesta óskalaga-
þætti, og jafnframt þaö aö vera
minningarvaki einhverskonar
gömlum ballgestum og hljóm-
sveitarmeðlimum sjálfum.
Ekki er óliklegt aö óskalaga-
formúlan gangi upp, en
minningarvaki er platan ekki
um böllin hjá BG og Ingibjörgu;
til þess heföi hljóöritun þurft aö
fara fram viö allt aörar og sann-
ari kringumstæöur.
BG og Ingibjörg er ágætis
dansstaöahljómsveit, en
óskandi væri aö hún héldi sig viö
þaö sviö.
HÞ.
Vantar yður
starfsfólk?
Höfum vinnufúst fólk vant marg-
vislegustu störfum.
Atvinnumiðlun stúdenta,
simi 15959
Hjúkrunar-
fræðingar!
Sjúkrahús Siglufjarðar óskar eftir hjúkr-
unarfræðingum til sumarafleysinga og i
föst störf.
Upplýsingar hjá forstöðukonu s. 96-71502
og framkvæmdastjóra s. 96-71669.
Staða yfirlæknis
við Sjúkrahús Siglufjarðar er laus til um-
sóknar nú þegar. Staðan veitist frá 1. sept.
nk. Umsækjendur hafi haldgóða reynslu i
skurðlækningum. Umsóknir berist stjórn
Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir 1. júli 1976
með upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Stjórn Sjúkrahúss Siglufjarðar.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Aðalfundur
verður haldinn i Iðnó sunnudaginn 23. mai
kl. 2.00 eh. Reikningar félagsins fyrir árið
1975 liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Stjórnin.
œ! Þróunarstofnun
\ Reykjavíkurborgar
ARKITEKT
TÆKNITEIKNARI
Þróunarstofnun Reykjavikurborgar óskar
að ráða nú þegar arkitekt með þekkingu á
skipulagsmálum og tækniteiknara.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til Þróunarstofnunar
Reykjavikurborgar Þverholti 15.
ÚTBOÐ
Tilboö óskast I bendistál I steypu fyrir Reykjavikurhöfn.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboöin veröa opnuö á sama staö, fimmtudaginn 10. júni
1976, kl. 14.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegl 3 — Sími 25800