Þjóðviljinn - 16.05.1976, Síða 23
Sunnudagur 16. mai 1976. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 23
Áður óþekkt mynd eftir
Rembrandt er fundin
Það er metnaður allra lista-
safna á Niðurlöndum að eiga
mynd eftir mcistarann Kem-
brandt. Biskupssafnið svonefnda
i Utrecht i HoIIandi var ekki eitt
af þeim gaefusömu. En nú hefur
veriðúr þvi bætt: Forstöðumaður
safnsins fann áður óþekkta mynd
eftir Rembrandt árið 1974, og
eftir tveggja ára starf hafa sér-
fræðingar komist að þeirri niður-
stöðu að myndin sé „ekta”.
Hollendingar fara að öllu með
gát þegar heyrist um listaverka-
fundi, enda eru þeir hvekktir af
snjöllum fölsurum. Fyrir
nokkrum árum komust þeir t.d.
að þvi að tvær myndir sem áttu að
vera eftir Vermeer voru falsaðar.
Forstöðumaðurinn fann
myndina á heimili einu i Hollandi
austanverðu af hálfgerðri til-
viljun — hann var þar þeirra
erinda að kaupa styttu af guðs-
móður. Honum datt strax Rem-
brandt i hug, og hefur það hugboð
reynst rétt.
Myndin er frá 1626 og er þvi
með elstu myndum sem til eru.
422 myndir eru til eftir meistar-
ann svo vitað sé, og eru þær
fyrstu merktar árinu 1626. Sér-
fræðingar hafa komið sér saman
um að kalla myndina „Skirn
geldingsins”, en efni hennar er úr
Postulasögunni.
. Ekki er vitaö hve mikið verð i
safnið i Utreeht varð að gjalda
Rembrandtmyndina, en giskað er
á sem svarar 220 miljónum
króna.
AFERLENDUM
iBÓKAMARKAÐI
Cubism and Abstract Art.
Alfred H. Barr, Jr. Secker and
Warburg 1975.
Um aldamótin siðustu varð
mikil upplausn, nýsköpun og
tilraunastarfsemi i listum. Bók
þessi fjallar um forsendur þeirra
breytinga sem þá urðu og
breytingarnar sjálfar, hún kom i
fyrstu lit 1936 og er nú talin sigilt
verk um listastefnur á fyrri hluta
20. aldar. Hér cr fjallað um
málaralist, myndhöggvaralist,
byggingarlist, listiðnað, prentlist,
ljósmyndun, leiklist og kvik-
myndalist. Höfundurinn rekur
vixlverkanir milli hinna ýmsu
greina og sýnir fram á hvernig
kúbisminnog abstrakt list mótaði
flestar aðrar listgreinar og hver
þróunin varð þegar fram i sótti.
Hér eru fjölbreytilegar upp-
lýsingar um listastefnur,
sýningar og rit um listir þau 200
mynda úr hinum ýmsu greinum
lista. Upplýsingar fylgja um
helstu listamenn timabilsins.
Margir leikfangaframleiöendur hafa að undanförnu lagt sig mjög fram
um að hafa á boöstólum sem nákvæmastar eftirlikingar af þeim búnaöi
scm notaöur var í heimsstyrjöldinni siöari. Franskur framleiöandi hcf-
ur búiö til þetta ömurlega lcikfang sem hér er sýnt: nákvæina eftirlik-
ingu af húsarústum eftir loftárás.
rpnwiM
f l 2000-151)0—- m 5B0=450f360 = 1000m 250=200=mj^
croWní
tAtA*
L W MW —
CAR200
Verð: 9.733
CROWN
L_ M M M M
m
• s», vot. , ________
O'TCXE % ifi'Cw .............
>1 « tN «. e „a » i«ie *«»
ÉRt MW 88 98 102 K>9
* TUNING
or ínce
E
( •/.
4
CAR300
Verð: 12.892
CSC702
Verð: 24.116
8 rása segulband
+ útvarp.
CSC902
Verð: 31.665
Stereo segulband
+ útvarp.
VOUiUl
4I TUtit
O j 1 S 3 -4 Q •
cscsooo
Verð: 16.555
8 rása segulband.
CSC802
Verð: 16.555
Stereo segulband.
Athugið!
Setjum viðtœkin í samdœgurs
Skipholti 19, við Nóatún
Sknan 23-800 og 23-500
Klapparstíg 26
sími 19-800
BUÐIRNAR
/
CROWN
Áskriftasíminn
er 17505
ÞJOÐVILJINN
Húsbyggjendur
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt cinangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæöiö með stuttum fyrir-
vara. Afhending á byggingarstað.
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Simi 93-7370
Helgar- og kvöldsimi 93-7355.