Þjóðviljinn - 31.10.1976, Side 7
Sunnudagur 31. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Aldrei brýnni þörf
fyrir gott blaö en nú
Sú gamla verkalýðskempa,
Jón Rafnsson, bjó enn i Vest-
mannaeyjum, þegar Þjóðviljinn
kom fyrst út en það var tveim
árum áður en Jón hóf að ferðast
útum allt land fyrir Kommún-
istaflokkinn og i þágu verklýðs-
hreyfingarinnar.
Þegar við heimsóttum Jón nú
fyrir skömmu á heimili sinu i
húsi öryrkjabandalagsins i
Reykjavik minntist hann þess
með ánægju, hve mikil liðsbót
það hefði verið á sinum tima,
þegar Verkalýðsblaðið breyttist
i dagblað — Þjóðviljann.
— Það kostaði mikið starf i
flokknum og meðal verka-
manna að koma sér upp dag-
blaði, sagði Jón. Ma. þurfti að
safna áskrifendum bæði i
Reykjavik og úti á landi og ég
man, að okkur tókst að fá tals-
vert marga nýja áskrifendur i
Vestmannaeyjum. Með tilkomu
Þjóðviljans fengum við nýtt
vopn, sem við notuðum óspart
og það hefur ekki brugðist von-
um okkar.
— Hvað er þér efst i huga nú,
þegar blaðið okkar er orðið fer-
tugt?
— A þessum timamótum er
mér einkum tvennt i huga:
Allt frá þvi er Þjóðviljinn hóf
göngu sina hefur hann verið
leiðandi afl i daglegri kjarabar-
áttu alþýðunnar og aldrei vikið
frá málstað hennar. Þetta verð-
ur ekki sagt um önnur islensk
dagblöð.
I annan stað hefur Þjóðviljinn
verið eina dagblaðið he'rlendis
sem aldrei hefur vikið hárs-
breidd frá kröfunni um brottför
hers af islenskri grund og al-
geru hlutleysi tslands gagnvart
hverskyns hernaðarbandalög-
um.
Um þessar mundir býr islensk
auðstétt sig undir alvarlega
árás á samtakafrelsi alþýðunn-
ar með lagasetningu og hefur
þvi islensk alþýða aldrei haft
brýnni þörf fyrir gott dagblað en
einmitt nú. — Megi Þjóðviljinn
verða sem best hlutverki sinu
vaxinn i þeirri hörðu baráttu
sem framundan er, fyrir lifs-
hagsmunum og samtakarétti is-
lenskrar alþýðu!
—vl
Úrvalið er
á efri hæðiimi
Við bjóðum yður að koma og
skoða eitt glæsilegasta
húsgagnaúrval landsins, sem
við sýnum á efri hæð
verzlunar okkar í Skeifunni 15.
HÚSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
Skeifan 15 Sími 82898
Einstök kjör í boði.
í mörgum tilvikum 20% út og
eftirstöðvar greiðist á 18 mán-
uðum.
Skeifan 17
s. 84515 — 84516
Endurbyggjum
bílvélar
Við endurbyggjum flestar
gerðir benzín- og dieselvéla.
Rennum sveifarása.
Plönum hedd og vélarblokkir.
Borum vélarblokkir.
Rennum ventla og ventilsæti.
Eigum ávallt varahluti í flestar
gerðir benzín- og dieselvéla.
■
■
■
Launagreiðendur
Valdið starfsmönnum yðar
ekki óþægindum.
Gerið skil á orlofsfé fyrir
10. hvers mánaðar.
PÓSTGÍRÓSTOFAN
Orlofsdeild
Smfðum Neon-
og plastljósaskilti.
Einnig ýmis konar hluti úr
Acríl plasti.
Neonþjónustan hf. Smiðjuvegi 7.
Sími 43777