Þjóðviljinn - 31.10.1976, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 31.10.1976, Blaðsíða 19
Sunnudagur 31. október 1976 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 19 Haraldur Framhald af 18. siðu. Islenskra blaða til aö kynna Mikka mús hérlendis, Sigurður þýddi textann en myndamótin fengum við að utan. Léttar og spennandi framháldssögur þóttu ómissandi i þá daga Fyrsta veturinn vorum við td. með Helskipiö eftir Traven, ágæt saga en þýðingin varð dálitið ósamstæð þvi allir þýdd- um við hana á vixl, og stundum gripu aðkomumenn i verkiö! Opnara nú Ýmislegt sem þótti eðlilegt þá, verkar sjálfsagt undarlega á nútimafólk. Blööin voru ákaf- lega lokuö fyrir pólitiskum and- stæðingum. Það var undir hælinn lagt, aö hægt væri aö fá inni með ritdóm um höfund sem bendlaöur var viö hina flokkana nema það væru eintómar skammir. Sigurður Nordal gat ekki fengið birtan i Morgun- blaðinu ritdóm um bók eftir Laxness, Heimsljós, að ég held, nema umsögn um Sólon Island- us væri látin fylgja með! Hætta á hentistefnu! — Ekki þarf ég aö kvarta yfir ritskoðun af hálfu flokksins á Þjóðviljanum á þesum tima. Við höfum liklega veriö svona góðir á linunni sjálfir! Brynj- ólfur Bjarnason sem hafði stýrt Verkalýðsblaðinu kom aldrei nálægt Þjóðviljanum nema hann skrifaöi grein og grein. Ugglaust hefur hann þó rætt málefrii ’blaðsiris viö Einár, enda var með þeim fullur sam- hugur. Þó man ég einu sinni eft- ir þvi, meðan ég var á Þjóðvilj- anum, að Brynjólfur kom aö rit- skoða. Þannig var að Guðrún Lárusdóttir þingmaður, kona Sigurbjörns i Asi, hafði drukkn- að voveiflega i Tungufljóti. Þótti tilhlýðilegt að rita greinarstúf til minningar um hana, þetta var að sumarlagi og Einar i Utlöndum. Brynjólfur las greinina yfir og gerði enga athugasemd, en hann mun hafa viljað koma i veg fyrir allan strákskap. Það er svona þegar maður á bágt með að bera fulla respekt fyrir tilverunni og er kannske dálitið tækifærissinn- aöur gagnvart dægurmálum.” Svo mælir fyrsti blaða- maöur Þjóðviijans úr sæti sinu innan viö múrvegginn og tekur siðan að huga á ný að bókum og kortum. I MIÐPUNKTI Q VIDSKIPTANNA Rauðararstig 18 Vetrarverö i sólar- hring með morgunveröi: Eins manns kr. 2.500 2ja manna kr. 4.200 Vetrarverð i viku meö morgunverði: Eins manns kr. 13.500 2ja manna kr. 22.600 HÓTEL HOF b PðSTSENDUM TROLOFUNARHRINGA 3lol)iiniifs ILrifsson IL.mrv.iurai 30 .. éNim 10 209 • Bjarni Benediktsson frá Eftir átökin 30. mars 1949. Lögregluþjónar með kyifur og brotnar rúður i alþingishúsinu. Hofteigi Einn af svipmestu blaðamönnum Þjóðvilj- ans á 40 ára göngu blað- sins er Bjarni Benedikts- son frá Hofteigi. Hann var í föstu starfi hjá Þjóðviljanum á árunum 1950 til 1957, en bæði á undan og eftir ritaði hann i blaðið að staðaldri. Bjarni var lengi aðalrit- dómari Þjóðviljans, en hann þurfti einnig að sinna almennri blaða- mennsku, og ritaði pólitískar greinar. Bjarni var afkastamikill þýðandi og skáldverka- höfundur, en hann lést langt f yrir aldur f ram ár- ið 1968. Hér fer á eftir grein eftir Bjarna er birt var á æskulýðs- siðu Þjóðviljans árið 1951 i til- efni þess að liöin voru 2 ár frá hinum minnisstæða degi, 30. mars, þegar lögreglu og hvit- liðum var sigað á friðsaman mannfjölda á meðan meirihluti þingmanna var að samþykkja inngöngu i Atlantshafsbanda- lagið. Þess má geta að Bjarni tók saman kver um þá atburði og nefndist það „Þjóðin og kylfan”. Greinin sem hér fer á eftir bar fyrirsögnina Minning og spá Vetur á Alþingi. Ennþá man ég sólskinið yfir Islandi fyrir tveimur árum. Snjór var af jörðu, og við geng- um frakkalaus i sunnanblænum. Það var tekiö að vora i noröur- höfum. En þaö var vetur á Alþingi Islendinga. Og það rikti nótt i hugum flestra sem þar bjuggu. Þvi þar var setið á svikráöum viö vorið okkar og sólina, og frelsi okkar brugguð fjörráö. Miðvikudagurinn 30. marz 1949 rann upp hlýr og heiður. En sið- an eru þungir skuggar og sortn- uð sól tengd nafni hans og minn- ingu. Bjarni Benediktsson frá Hofteigi: Hinn sól- bja rti svarti- dagur Kunni til verks Ennþá vitjar hann min oft, þessi dagur: skuggi hans yfir söguna bak viö dýrð náttúrunn- ar. Klukkan fjögur, þegar orust- unni var lokiö, fór ég heim með strætisvagninum. Hægri hand- leggur minn var nær aflvana, þvi þar hafði sá slegið sem kunni til verks sins — og ég virði hann fyrir það. En ég var lika meö kúlu i hnakkanum, og ein- hvern veginn hafði ég tapaö nokkru af skinninu á nefinu. 1 staðinn týndi heimdellingurinn kylfu sinni, og ef hann skyldi sakna hennar skal ég visa hon- um á hana. Ég fór aftur i bæinn um kvöldið, og hitti Einar Braga á Miðgarði. Við gengum þaðan niður i miðbæ, og bárum gæfu til að vera hundeltir með táragassprengjukasti eftir Austurstræti, yfir Hótel tslands- grunninn, eftir Aðalstræti og út að Tjörn. Þvi þennan dag var hver maöur i Reykjavik annað- hvort virkur stuðningsmaður laga og réttar i landinu eða virkur fjandmaður þeirra. Við austanmenn vorum fjandmenn þeirra, eins og gefur að skilja, og þá er ekki um annað að gera fyrir vinina en kenna okkur að lifa. Með lögum skal land býggja. Hinn þröngi stígur. Gasgrátriir reikuðum við suð- ur með Tjörn, og hugðumst ganga eftir Frikirkjuvegi til baka inn i bæinn. En það eru einmitt trúarbrögðin sem vara mann við hinum breiða vegi og benda manni á þann þrönga sem til lifsins liggur. Og það var einmitt i námunda guðshússins sem okkur varð ljóst að breiða gatan til bæjarins var ófær grátnum augum okkar. Gasský- in stigu upp af bænum, og það var mikið uppstreymi, enda heiöur himinn og stjörnur á lofti. Ég hef sjaldan sér skáld- legri sýn, enda verður minning- in um 30. mars arfgeng með islenskum kynslóðum, og skáld framtimans munu varpa á þann dag enn sterkara sannleiksljósi en við erum máski fær um. — Og þess vegna snerum við af leiö og tókum hinn þrönga Skálholtsstig sem liggur á brekkuna. Við vorum enn lengi á ferli — og i staðinn fyrir gas lögreglunnar stigu til lofts þykkir reykir úr brennandi grindahjalli borgaralegs sið- ferðis á tslandi — og borgara- legs þjóðskipulags. Liðinn dag- ur hvarf úr huga okkar, en viö hlýddum þeirri spá um framtiðina sem hann þuldi okk- ur i opin eyru. Til sjálfs sín barna Stórveldi og þjóðniðingar geta barið og fangelsað eina smáþjóð eins og ekkert sé. Þeir geta leitt hana inn i morðfélag gegn öðr- um þjóðum. Þeir geta gert unglinga að manndrápurum. Siðan geta þeir bannað þessari þjóð að reisa yfir sig kofa. Þeir geta svipt hana hverju verkefn- inu á fætur öðru, heilum at- vinnugreinum, svo hún missi i einu bæði brauðið og siðferðis- þrekið. Þeir geta fengið afurða- söluna i hendur þjófum og ræn- ingjum og stolið frá henni mörk- uðum eins og fara gerir. Og þeir geta gert sjálfa sig að skóþurrk- um og snýtuklútum útlendinga Það liða nokkur ár. Og þjóðin þegir, og okið þyngist. En þó eru það ekki ónýt ár. Þvi undir niðri, i þögn og skugga, elnar þjóðinni þungur móður, eins og eldur getur geisað i iðrum jarð- ar þótt Hekla sé köld. Smátt og smátt skilst þjóðinni að hún hef- ur verið svikin, frelsi hennar týnt. Einn dag ris hún upp — ef til vill i siðustu forvöð, en þó nógu snemma til að bjarga þvi sem bjarga þarf. Hinn sólbjarti svartidagur 1949 minnti okkur á þann forna sannleik að sá herra sem ber sina þjóð verður ekki langlifur i landinu, enda eru verk hans ekki hliðholl honum. Spáin sem lá i loftinu þetta marskvöld I hittiðfyrra var þessi: Nú er borgaralegt þjóðskipulag á íslandi feigt. Þeir berja okkur til sjálfs sin bana. — Tveimur árum nær Tvö ár eru liðin. Það er ennþá sama sólskinið yfir Islandi. En þeir sem böröu okkur árið 1949 eru tveimur árum nær endalok- um sinum áriö 1951. Svona nákvæmlega telur timinn stund- ir þeirra. En fólkið á Islandi er þeim mun nær sigri sinum. Þvi timinn telur einnig þær stundir. Spáin okkar fer að rætast, hún sem kvaddi okkur á fund sinn frá sorg þessa myrka kvölds. Þeir mega kalla þaðhótun, hinir dauðadæmdu, ef þeir viija. Mér er það hugstæöust og gleðilegust sannreynd um örlög þjóöar minnar undir sumarmálin i ár. Hin eilífu vötn íslands Ritdómar Bjarna Bene- diktssonar frá Hofteigi voru með mjög persónu- legum blæ, hann lagði í þá heitar tilfinningar og mikla boðun. Hann boðaði ást á íslandi og lausn al- þýðu úr ánauð, þetta var honum eitt. Vel sjást þessi einkenni í ritdómi sem hann nefndi „Við lindirnar" og hér birtist hluti af: „Ég man að þegar ég kom heim úr skólanum á vorin var niöur Jökulsár á Brú þungur og sterkur i eyrum mér og fyllti Bjarni frá Hofteigi um Kristin Andrésson allan dalinn upp á brúnir. Eftir nokkra daga var hann hljóön- aður og mikil þögn i dalnum. Að lesa bók Kristins Andréssonar, Eyjuna hvitu, er eins og að vera kominn heim á vori, heim til Is- lands frá önn dagsins, og heyra nið fjótsins fylla byggðina, nið- inn af hinum eilifu vötnum Is- lands. Þvi Kristinn Andrésson situr undir fjallinu þar sem Is- land kemur upp, hjá steininum þar sem ljóðið er ort og frelsis- óskin rikir. Viö lindir tslands, kaldavermslin sem ekki geta frosið. Er nokkur stefna réttari i lif- inu en sú að vera trúmaöur og verkamaður nýrrar mannfé- lagsskipanar á jörð og i landi, starfa aö upplýsingu fátækrar alþýðu, vera þátttakandi i þján-' ingu og draumi heimsins, en skilja þó verklegri skilningi að ættjöröin er vinnustaöur manns og sérgrein. Kristinn Andrésson er sósialisti og hefur fullskyggnt auga fyrir einingu heimsins og samstöðu gjörvallrar alþýðu. En eins og öðrum góðum marx- istum bæði fyrr og siðar varð honum sá skilningur enn frekari hvatning til að ljúka sem stærstu dagsverki á þeim stað i heiminum sem örlögin kjöru honum ættjörð. Sýn yfir veröld- ina af sjónarhóli heimalandsins, sýn yfir heimalandið af sjónar- hóli veraldarinnar — það er hin skyggna sýn sem sér i gegnum hlutina. Heimurinn er einn. En hér er okkar vinnustaður. Við skiljum tsland fyrir heiminn, og heiminn i tákni Islands’.’ (Þjv. 24. júni 1951).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.