Þjóðviljinn - 06.11.1976, Side 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. nóvember 1976
l>Ó|{OniM It
a i»i( missov
ÚSFREVJA
A SANDI
II n m
8^^ #;
:• ,
-*' -vi-
PUí*-;
ífl
Athöfn eftir Dieter Asmus frá Hamborg.
„Þýskir nútímagrafík” frestað
Flutt á Kjarvalsstaði
vegna stærðar
Sýninguna átti að halda i
Bogasal og opna nk. laugardag
en þegar til kom reyndist sýn-
ingin svo viðamikil, að þaö hefði
orðiö að skipta henni niöur i
a.m.k. 2 sjálfstæðar sýningar i
þéttri upphengingu ef sýna hefði
átt allar myndirnar. Svo vel
vildi til að Vestursalur Kjar-
valsstaða losnaði óvænt á tfma-
bilinu 27. nóvember — 14. des.,
og var þá ákveðið að flytja sýn-
inguna þangað, — en þaö skeði
ekki fyrr en búið var að senda
öll boðskort á sýninguna i Boga-
sal. Eru boðsgestir vinsamlega
beðnir að athuga þetta og að
kortin gilda að sjálfsögðu á sýn-
inguna að Kjarvalsstöðum, sem
verður opnuð laugardaginn 27.
nóvember.
— Hér er ótvirætt um aö ræða
einn merkasta myndlistarvið-
urð á þessu ári hérlendis. Fé-
lagið Germania stendur aö sýn-
ingunni i samvinnu við Instutit
fur Auslandbeziehungen i Stutt-
gart. Bragi Asgeirsson hefur
tekiö aö sér að sjá um uppheng-
ingu og framkvæmd sýningar-
innar i Reykjavik ásamt félög-
um i Islenskri Grafik.
Þessi mynd er ein af mörgum myndum Asgrims Jónssonar úr
Husafellsskógi, máluð árið 1950.
Haustsýning Ásgríms-
safns opnuö í dag
A morgun verður haustsýning
Asgrimssafns opnuö, og er hún
44. sýning safnsins.
Aöal uppistaða þessarar sýn-
ingar eru vatnslitamyndir,
málaðar á hálfrar aldar tima-
bili, og nokkrar þeirra sýndar I
fyrsta sinn nú.
Viðfangsefni Asgrims Jóns-
sonar i þessum myndum eru
m.a. blóm, Þjórsárdalur,
Borgarnes, Húsafell, Þingvellir
og Reichenhall i Þýskalandi, en
þar var Asgrimur um tima sér
til heilsubótar árið 1939. Málaði
hann þar nokkrar vatnslita-
myndir, sem varðveittar eru I
Asgrimssafni.
Eins og undanfarin ár kemur
út á vegum Asgrimssafns nýtt
jólakort. Er það prentað eftir
oliumálverkinu Vor á Húsafelli,
en sú mynd vakti mikla athygli
á Asgrimssýningunni á Kjar-
valsstöðum. Þetta kort er gert i
tilefni af aldarafmæli Asgrims
Jónssonar, og verður aldrei
endurprentað.
Asgrimssafn, Bergstaöa-
stræti 74, er opiö sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga frá
kl. 1,30-4. Aðgangur ókeypis.
Þrjú á palli — Halldór Kristinsson, Edda Þórarinsdóttir og Troels Bentsen.
Þrjú á palli á þjóölagahátíö í Svíþjóö
Nú um helgina er haldin nor-
ræn þjóölagahátið i Stokkhólmi.
Aö þessari hátið standa:
Sænska musiknetet, Nómus,
Sænska rigskonsertar, Menn-
ingarnefnd Stokkhólms og Nor-
ræni menningarmálasjóöurinn.
Til hátiðarinnar er boðið
söngtrióum og kvartettum, sem
leggjá áherslu á að túlka þjóð-
lega tónlist með nútimablæ,
samtals 15 eða 16 flokkum.
Fulltrúar Islands á hátiðinni
eru Þrjú á palli. Þau syngja og
leika á hljómleikum, sem
haldnir eru nú um helgina i
gamla þinghúsinu I Stokkhólmi.
I Þrjú á palli eru: Edda
Þórarinsdóttir, Halldór
Kristinn og Troels Bentsen.
Kontrabassaleikari þeirra er
Rikharöur Pálsson.
Norskir
styrkir
til list-
rannsókna
Oslóarborg veitir styrk að
upphæð krónur 12 þús. norskar
til að kanna list Edvards
Munchs og er hann veittur til
norðurlandabúa. Ekki eru
geröar kröfur til aldurs eða
menntunar en stjórn borgar-
listasafnanna I Osló veitir
styrkinn eftir ábendingu frá
forstööumanninum. Syrknum
fylgir húsnæði. Borgarlista-
söfnin I Osló áskilja sér for-
gangsrétt til að birta niöurstöð-
ur af rannsóknum.
Umsókn með upplýsingum
um menntun og tilgang rann-
sókna sendist fyrir 20. nóv. 1976
til Oslo kommunes kunstsam-
linger, Munch-museet, PB 2812,
Kampen, Oslo 5.
Þá veitir Oslóarborg 4000
kr.n. styrk úr Amaldus og
Laura Nielsens sjóði til að rann-
saka norska málaralist.
Umsóknir sendist fyrir 20. nóv.
á sama stað.
Ennfremur veitir Oslóarborg
styrk til að kanna list Gustavs
Vigelands að upphæö kr. 12. þús.
norskarog áskilur sér forgangs-
rétt til að birta niðurstöður
rannsókna. Umsóknir sendist
fyrir 20. nóv. á sama staö.
JÓN AUÐUNS
Líf og lífsviö-
horf sr. Jóns
Auöuns
Komin er út hjá Skuggsjá
bókin Lif og lifsviðhorf eftir sr.
Jón Auöuns.
Höfundur kemur viða við,
segir frá uppruna sinum, upp-
vaxtarárum, bæði i Isafjarðar-
kaupstað og á gömlu vestfirsku
stórbýli og þeim mönnum, inn-
lendum og erlendum sem hann
telur einkum hafa mótað lifsvið-
horf sin. Hann greinir frá af-
stöðu sinni til ýmissa guðfræði-
kenninga, kynnum sinum af
ráðgátum dulsálfræöinnar og
hugsanlegum skýringum á
þeim. Sr. Jón segir frá kynnum
sinum af listamönnum, skáld-
um menntamönnum og alls kon-
ar fólki. örlagasögu sumra las
hann sem barn á gömlum leg-
steinum, öörum kynntist hann á
uppvaxtar- og námsárum og i 43
ára preststarfi.
Bókin er 292 bls. og fylgir
henni skrá yfir mannanöfn.
Húsfreyjan
á Sandi
Þóroddur Guðmundsson hefur
sent frá sér bókina Húsfreyjan á
Sandi, Guðrún Oddsdóttir. Það
er Skuggsjá sem gefur bókina
út. Er hún 232 bls. og fylgir
nafnaskrá.
Guðrún Oddsdóttir var kona
rithöfundarins Guðmundar
Friðjónssonar og móðir Þór-
odds sem bókina skrifar.
A bókarkápu stendur ma.:
Lifsbarátta Guðrúnar Odds-
dóttur var lengst af erfiö. Þau
Sandshjón áttu löngum við fá-
tækt að strfða, en heimiliö stórt,
börnin voru 12 að tölu. Þá varð
heilsuleysi og ástvinamissir
hlutskipti hennar, hún missti
tvö barna sinna og sjálf lifði hún
mann sinn. En Guðrún var and-
lega sterk og sigraðist á öllu
mótdrægu með sálarró og heið-
rikju þess hugar, sem eingöngu
sterkum konum er gefinn.
Af sjónar
hrauni,
austfirskir
þættir
Skuggsjá hefur gefiö út bók-
ina Af sjónarhrauni, austfirskir
þættir eftir Eirik Sigurðsson.
Hún er 192 bls. og fylgir henni
nafna- og heimildaskrá.
í þáttunum kennir margra
grasa. Sagt er frá prentlist og
blaðaútgáfu á Eskifirði,
ábúendatal Dísastaða er rakið
og einnig er itarleg lýsing á
Fossárdal og byggðinni þar. Þá
er sagt frá listamönnunum
Finni Jónssyni og Jóhannesi
Kjarval og dr. Stefáni Einars-
syni og móður hans Margréti á
Höskuldsstöðum i Breiðdal.
Loks er nokkurt safn þjóð-
sagna úr Borgarfirði eystra.