Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.11.1976, Blaðsíða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. nóvember 1976 l>Ó|{OniM It a i»i( missov ÚSFREVJA A SANDI II n m 8^^ #; :• , -*' -vi- PUí*-; ífl Athöfn eftir Dieter Asmus frá Hamborg. „Þýskir nútímagrafík” frestað Flutt á Kjarvalsstaði vegna stærðar Sýninguna átti að halda i Bogasal og opna nk. laugardag en þegar til kom reyndist sýn- ingin svo viðamikil, að þaö hefði orðiö að skipta henni niöur i a.m.k. 2 sjálfstæðar sýningar i þéttri upphengingu ef sýna hefði átt allar myndirnar. Svo vel vildi til að Vestursalur Kjar- valsstaða losnaði óvænt á tfma- bilinu 27. nóvember — 14. des., og var þá ákveðið að flytja sýn- inguna þangað, — en þaö skeði ekki fyrr en búið var að senda öll boðskort á sýninguna i Boga- sal. Eru boðsgestir vinsamlega beðnir að athuga þetta og að kortin gilda að sjálfsögðu á sýn- inguna að Kjarvalsstöðum, sem verður opnuð laugardaginn 27. nóvember. — Hér er ótvirætt um aö ræða einn merkasta myndlistarvið- urð á þessu ári hérlendis. Fé- lagið Germania stendur aö sýn- ingunni i samvinnu við Instutit fur Auslandbeziehungen i Stutt- gart. Bragi Asgeirsson hefur tekiö aö sér að sjá um uppheng- ingu og framkvæmd sýningar- innar i Reykjavik ásamt félög- um i Islenskri Grafik. Þessi mynd er ein af mörgum myndum Asgrims Jónssonar úr Husafellsskógi, máluð árið 1950. Haustsýning Ásgríms- safns opnuö í dag A morgun verður haustsýning Asgrimssafns opnuö, og er hún 44. sýning safnsins. Aöal uppistaða þessarar sýn- ingar eru vatnslitamyndir, málaðar á hálfrar aldar tima- bili, og nokkrar þeirra sýndar I fyrsta sinn nú. Viðfangsefni Asgrims Jóns- sonar i þessum myndum eru m.a. blóm, Þjórsárdalur, Borgarnes, Húsafell, Þingvellir og Reichenhall i Þýskalandi, en þar var Asgrimur um tima sér til heilsubótar árið 1939. Málaði hann þar nokkrar vatnslita- myndir, sem varðveittar eru I Asgrimssafni. Eins og undanfarin ár kemur út á vegum Asgrimssafns nýtt jólakort. Er það prentað eftir oliumálverkinu Vor á Húsafelli, en sú mynd vakti mikla athygli á Asgrimssýningunni á Kjar- valsstöðum. Þetta kort er gert i tilefni af aldarafmæli Asgrims Jónssonar, og verður aldrei endurprentað. Asgrimssafn, Bergstaöa- stræti 74, er opiö sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1,30-4. Aðgangur ókeypis. Þrjú á palli — Halldór Kristinsson, Edda Þórarinsdóttir og Troels Bentsen. Þrjú á palli á þjóölagahátíö í Svíþjóö Nú um helgina er haldin nor- ræn þjóölagahátið i Stokkhólmi. Aö þessari hátið standa: Sænska musiknetet, Nómus, Sænska rigskonsertar, Menn- ingarnefnd Stokkhólms og Nor- ræni menningarmálasjóöurinn. Til hátiðarinnar er boðið söngtrióum og kvartettum, sem leggjá áherslu á að túlka þjóð- lega tónlist með nútimablæ, samtals 15 eða 16 flokkum. Fulltrúar Islands á hátiðinni eru Þrjú á palli. Þau syngja og leika á hljómleikum, sem haldnir eru nú um helgina i gamla þinghúsinu I Stokkhólmi. I Þrjú á palli eru: Edda Þórarinsdóttir, Halldór Kristinn og Troels Bentsen. Kontrabassaleikari þeirra er Rikharöur Pálsson. Norskir styrkir til list- rannsókna Oslóarborg veitir styrk að upphæð krónur 12 þús. norskar til að kanna list Edvards Munchs og er hann veittur til norðurlandabúa. Ekki eru geröar kröfur til aldurs eða menntunar en stjórn borgar- listasafnanna I Osló veitir styrkinn eftir ábendingu frá forstööumanninum. Syrknum fylgir húsnæði. Borgarlista- söfnin I Osló áskilja sér for- gangsrétt til að birta niöurstöð- ur af rannsóknum. Umsókn með upplýsingum um menntun og tilgang rann- sókna sendist fyrir 20. nóv. 1976 til Oslo kommunes kunstsam- linger, Munch-museet, PB 2812, Kampen, Oslo 5. Þá veitir Oslóarborg 4000 kr.n. styrk úr Amaldus og Laura Nielsens sjóði til að rann- saka norska málaralist. Umsóknir sendist fyrir 20. nóv. á sama stað. Ennfremur veitir Oslóarborg styrk til að kanna list Gustavs Vigelands að upphæö kr. 12. þús. norskarog áskilur sér forgangs- rétt til að birta niðurstöður rannsókna. Umsóknir sendist fyrir 20. nóv. á sama staö. JÓN AUÐUNS Líf og lífsviö- horf sr. Jóns Auöuns Komin er út hjá Skuggsjá bókin Lif og lifsviðhorf eftir sr. Jón Auöuns. Höfundur kemur viða við, segir frá uppruna sinum, upp- vaxtarárum, bæði i Isafjarðar- kaupstað og á gömlu vestfirsku stórbýli og þeim mönnum, inn- lendum og erlendum sem hann telur einkum hafa mótað lifsvið- horf sin. Hann greinir frá af- stöðu sinni til ýmissa guðfræði- kenninga, kynnum sinum af ráðgátum dulsálfræöinnar og hugsanlegum skýringum á þeim. Sr. Jón segir frá kynnum sinum af listamönnum, skáld- um menntamönnum og alls kon- ar fólki. örlagasögu sumra las hann sem barn á gömlum leg- steinum, öörum kynntist hann á uppvaxtar- og námsárum og i 43 ára preststarfi. Bókin er 292 bls. og fylgir henni skrá yfir mannanöfn. Húsfreyjan á Sandi Þóroddur Guðmundsson hefur sent frá sér bókina Húsfreyjan á Sandi, Guðrún Oddsdóttir. Það er Skuggsjá sem gefur bókina út. Er hún 232 bls. og fylgir nafnaskrá. Guðrún Oddsdóttir var kona rithöfundarins Guðmundar Friðjónssonar og móðir Þór- odds sem bókina skrifar. A bókarkápu stendur ma.: Lifsbarátta Guðrúnar Odds- dóttur var lengst af erfiö. Þau Sandshjón áttu löngum við fá- tækt að strfða, en heimiliö stórt, börnin voru 12 að tölu. Þá varð heilsuleysi og ástvinamissir hlutskipti hennar, hún missti tvö barna sinna og sjálf lifði hún mann sinn. En Guðrún var and- lega sterk og sigraðist á öllu mótdrægu með sálarró og heið- rikju þess hugar, sem eingöngu sterkum konum er gefinn. Af sjónar hrauni, austfirskir þættir Skuggsjá hefur gefiö út bók- ina Af sjónarhrauni, austfirskir þættir eftir Eirik Sigurðsson. Hún er 192 bls. og fylgir henni nafna- og heimildaskrá. í þáttunum kennir margra grasa. Sagt er frá prentlist og blaðaútgáfu á Eskifirði, ábúendatal Dísastaða er rakið og einnig er itarleg lýsing á Fossárdal og byggðinni þar. Þá er sagt frá listamönnunum Finni Jónssyni og Jóhannesi Kjarval og dr. Stefáni Einars- syni og móður hans Margréti á Höskuldsstöðum i Breiðdal. Loks er nokkurt safn þjóð- sagna úr Borgarfirði eystra.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.