Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 3
Föstudagur 31. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Eru fjölbýlishús- in í Breiðholtinu BRUNAGILDRUR? Anna Lilja Gestsdóttir: Reyndiaöbrjótast reykkófiö meö 4 neyddist til aö — Ég var ein heima með fjór- um börnum minum þvi eigin- maðurinn er á sjúkrahúsi um þessar mundir, sagði Anna Lilja Gestsdóttir. —Skömmu eftir að dóttir min kom heim slokknuðu skyndilega öll ljós og við heyrð- um læti frammi á gangi. Við reyndum að komast alla leiðina niður stigana, en mökkurinn varð fljótlega svo þykkur og megn, að við urðum að hörfa aftur inn i ibúðina. Dóttir min, sem er tólf ára, hélt á tveggja ára gömlum bróður sinum og missti hann i stiganum þegar reykurinn var að verða henni ofviða, svo við þökkuðum fyrir að komast heil á húfi inn i ibúð- ina aftur. Elsta barnið, þrettán ára son- ur minn, rauk þá út á svalir og klifraði alla leiðina niður enda þótt ég reyndi að telja honum hughvarf, en hinum börnunum tókst mér að halda sæmilega ró- legum enda þótt ferðalagið mis- heppnaða niður stigana hefði komið okkur úr jafnvægi. Við fórum svo út á svalir rétt fyrir hálftiu og stóðum þar i kuldanum i um einn og hálfan tima áður en okkur var bjargað niður. Þá voru tviburarnir litlu, þessir tveggja ára, orðnir ansi slæmir þar sem þeir eru veikir i lungunum og ég var lika orðin dösuð svo ég bað slökkviliðs- mennina um að taka mig niður i næstu ferð, en þeir voru þá önn- Sex geymsiur gjöreyðilögðust og aðrar skemmdust mikið. Eldsupptök áttu sér stað þar sem Ijós- myndarinn stendur og eins og sjá má er milliveggurinn inn i næstu geymslu, þar sem Anna Lilja Gests- dóttir stendur brunninn niður. Sannarlega ekki glæsilegt um að litast þarna. Myndir: — eik. um kafnir við að flytja fólk af efri hæðunum. Við sváfum svo hjá vinafólki okkar eftir þetta erfiða kvöld, en i dag kemur rafmagn aftur i ibúðirnar svo að vonandi fellur allt i sæmilegan farveg aftur lyrir áramótin. —gsp Sótti mörg börn fram á gang og hjálpaði út Ég heyrði mikla smelli i ofn- unum hérna klukkan rúmlega hálfniu og skömmu siðar fór raf- magnið af, sagði Guðberg Hall- dórsson. — Konan min hljóp þá upp á 4. hæö á meðan ég fór i simann og reyndi að hringja á slökkviliðið, en áður en ég fékk samhand rofnaði allt simasam- band viö húsið. Ég fór þvi á eftir konunni og við rákum þau börn sem komin voru fram á gangana niðurá 1. hæð og lyftum þeim þaðan yfir svalirnar okkarog niður á jörð. Ég hjálpaði lika konu með þriggja mánaða gamalt barn yfir svalirnar hjá mér, en þegar ég reyndi siðan að fara aftur fram og sækja fleira fólk var allt orðið svart af reyk og ég varð að hörfa til baka. Guðberg sagöi að tiu mínútum eftir að eldurinn kom upp hefði ekki verið um neitt annað að ræða fyrir fólk en að loka ibúðunum sinum vel og biða úti á svölum eftir aðstoð. Ekki hefði verið viðlit að komast upp á efstu hæð og þaðan i gegnum sérstakar dyr yfir f næsta stigahús... til þess hefði reykurinn verið alltof megn. —gsp Allir stiga- gangar fyllt- ust af reyk á örfáum mínútum Gylfi Ölafsson var einn þeirra ibúa sem var að hreinsa drasl úr geymslunum og koma þvi upp á vörubila með aðstoð vélskóflu. Hann sagði að allir stigagangar hefðu fyllst af reyk á skömmum tima eftir að eldurinn kom upp, og ekkert hefði þýtt að reyna að komast út, eða yfir i næsta stiga- gang, með þvi að nota ganga hússins. — Það sváfu þrir eða fjórir i ibúðunum sinum i nótt, sagði Gylfi. — Hinir fengu allir inni hjá vinum og kunningjum, auk þess sem okkur var tilkynnt að það væri opið hús á Hótel Esju á vegum Rauða Krossins. í Æsufelli 2 eru 43 ibúðir á átta hæðum og eru ibúar samtals 139 talsins. Allar geymslur eru á neðstu hæðinni, eða i kjallara, og gjöreyðilögðust sex þeirra. I flestum hinna urðu skemmdir einnig verulegar. A ibúðarhæðum hússins var ekki um að ræða neinar skemmdir nema e.t.v. smávægilegar af völdum reyks i stigagöngum. Þær skemmdir höfðu ekki verið kannaðar i gær, né heldur hugsanlegar reyk- skemmdir i sjálfum ibúðunum. —gsp Guðberg . Halldórsson lyfti mörgum börnum yfir svalirnar hjá sér, en hann býr á 1. hæö. Hér er hann með einn kunningja sinn úr blokkinni, Erlend Pálsson, i fanginu. Guöberg Halldórsson: Gylfi Ólafsson: Þau komust öll i hann krappan I fyrrakvöld. Frá vinstri eru þær ntæðg- ur Þórhildur Elisabetog Anna Lilja, en siðan kemur Sævar Guðmunds- son ásanil börnum sinum þeim Arna Eyberg og Sólveigu Birnu. Sævar Guömundsson: Vissi af börnunum einum heima og varö að hlaupa alla leiö — Ég var staddur suður i Kópavogi þegar eldurinn braust út, sagði Sævar Guðmundsson, einn ibúanna i Æsufelli 2, þegar hann var spurður um atburða - rásina i fyrrakvöld.— A heimleið- inni lenti ég i langri bilakeðju sem myndaðist vegna flugeldasýning- ar skáta, og mjakaðist lestin litiö sem ekkert áfram. Ég var svona heldur á hraðferð heim, þarsem konan min var að vinna og börnin ein i ibúðinni. Mig grunaði hins vegar ekkert illt þegar slökkvibilar fóru að geys- ast framhjá mér á Breiðholts- brautinni og það var ekki fyrr en ég sá úr fjarska að jólaseriurnar utan á blokkinni og öll ljós i ibúö- unum höfðu slokknað.að mér datt i hug að eldur kynni að vera laus heima. É g reyndi þvi að troðast áfram á bilnum, en gafst fljótlega upp, lagði honum við vegarkantinn og hljóp alla leiðina upp eftir sem fætur toguðu. þegar ég kom heim var slökkvistarf i fullum gangi og mérvarsem beturfer tilkynnt aö börnin min þrjú, sem eru á aldrinum þriggja til tólf ára, væru komin út úr ibúðinni okkar i aðra ibúð á 1. hæð, og þar væru þau óhult. Manni létti svo sannar- lega við þau tiðindi. —gsp Ikveikja? i gær rannsakaöi rann- sóknarlögreglan af fullurn kraftibugsanlegeldsupptök i Æsufelli 2. Y’firheyrsla vitna stóð yfir en Þjóðviljinn for- vitnaðist um gang mála, og var.einna helst talið að um ikveikju hefði verið að ræða. Þaö hafði þó ekki fengist staðfest i gær.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.