Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 13
Föstudagur 31. desember 1976 ÞJÓDVILJINN — SIDA 13
RAGNAR ARNALDS, FORMAÐUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS:
óttast þá tilhugsun undanfarna
mánuöi aö kosningar skelli fljót-
lega yfir. En nú liöur hins vegar
óöum að þvi, aö þeir fari aö skelf-
ast meira þá áhættu, sem þvi
fylgir fyrir flokkinn, að sitja með
ihaldinu i stjórn, þegar kemur að
næstu kosningum.
Framsóknar-
flokkurinn
Ýmsir forystumenn Fram-
sóknarflokksins hafa betra nef
fyrir pólitik en svo, að þeir finni
ekki á sér, aö flokkurinn hefur
verið á hraöri niöurleið seinustu
tvö árin. Flokkurinn var i tals-
verðum uppgangi á árunum 1959-
1967 og jók þá hlutfall sitt meðal
kjósenda úr 25.7% i 28.1%, en lét
siðan undan siga i kosningunum
1971 (25,3%) Og 1974 ( 24,9%).
Seinustu árin hefur flokkurinn
misst mikið fylgi meðal ungs
fólks og styrkur samtaka ungra
framsóknarmanna er nú aðeins
svipur hjá sjón miðað við það,
sem áður var.
Jafnframt hefur fólki orðið það
ljósara en áður, að flokkurinn hef-
ur valið menn i ýmsar mikilvæg-
ar trúnaðarstöður,sem sjálfireru
á kafi i fjármálavafstri i eigin-
hagsmunaskyni. Forystumenn
flokksins hafa sem sagt ekki
skynjað, hversu fráleitt er fyrir
flokk, sem kennir sig við sam-
vinnuhugsjón og félagshyggju, að
raða misjafnlega virtum fjárafla-
mönnum i lykilstöður á vegum
flokksins, og þetta er nú að koma
flokknum i koll. Eins og oft vill
vera, hafa sögusagnir um
„afrek” þessara manna verið
nokkuð ýktar, en þó er ástæðu-
laust að loka augunum fyrir þvi,
að fjármálahirð Framsóknar-
flokksins hefur varpað rýrð á
flokkinn með umsvifum sinum i
seinni tiö.
Flest bendir til þess, að Fram-
sóknarflokkurinn biði eftir heppi-
legu tilefni til að sprengja rikis-
stjómina og vinna sig á ný i álit
hjá kjósendum. En forystumenn-
irnir vilja þó biða enn um sinn
með kosningar og láta hugsanleg
ágreiningsefni við samstarfs-
flokkinn koma skýrar i ljós. Hins
vegar vita þeir, að verði flokkur-
inn enn i stjórn þegar gengið
verðurtil næstu kosninga, verður
flokkurinn i augum kjósenda með
hættulega slagsiðu til hægri.
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Sálarástandiðhjá forystu Sjálf-
stæðisflokksins er talsvert flókn-
ara en i Framsóknarflokknum.
Astæðan er sú, að hjá Sjálfstæð-
ismönnum er miklu meira
sundurlyndi og forystuleysi. Þar
eru ekki lengur tvær meginfylk-
ingar, sem takast á, heldur marg-
ir hópar. Aðeins litill hluti af
þessum hörðu átökum kemur
fyrir almenningssjónir, en þó eru
þess ýmis dæmi frá liðnu ári, t.d.
itrekaðar árásir Vísis á Gunnar
Thoroddsen og árásir Sverris
Hermannssonar og Ragnhildar
Helgadóttur á sama ráðherra,
árásir Dagblaðsins á Geir Hall-
Framhald á næstu siðu