Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 15
Föstudagur 31. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 í minningu góðrar konu Antonie Lukesova Fædd 22.11. 1886 Dáin 14.12. 1976 Antonie var fædd i Prag i Tékkóslóvakiu, þar sleit hún barnsskónum, lifði sin æskuár og þar stóð heimili hennar. Atvikin höguðu þvi þó þannig, að hún fluttist hingað til íslands fyrir nitján árum, átti hér heima æ siðan, og var til grafar borin hér i Reykjavik, skemmsta dag ársins, hinn 21. desember siðastliðinn. Antonie var og er i minum aug- um góðvild, gleði og auðmýkt fyr- ir lifinu, séu þessir eiginleikar þess umkomnir að holdgast i einni persónu. Trúlega hefur hún þolað sitt af hverju i tveim heims- styrjöldum, i þessu fallega en marghrjáða landi i Mið-Evrópu, enda leit hún á smáræði með þolinmæði. Ég held, að hún hafi aldrei á þessum 19 árum, skilið til fulls lifs- og hugsanaháttu okkar hér i tryggu steinhúsunum á kalda landinu með smáu áhyggjurnar. Ég var krakki þegar ég kynnt- ist henni fyrst og mér verða alltaf sérlega minnisstæð augun hennar, sem margt höfðu séð og umbáru allt. Auk þess lumuðu þau á glettni, og áttu létt með að tárast i þökk yfir mörgu þvi, sem okkur hér þykir kannski ekki mikilsvert. Einkennilegt að hugsa til þess, að aldrei gátum við talað saman, hún kunni aðeins nokkrar setningar islenskar sem dugðu henni, ég var enn ver að mér i móðurmáli hennar. En allt skildist og komst til skila á báða bóga. Það var einkar notalegt og lær- dómsrikt fyrir stressaðan táning að dvelja nokkra stund i návist þessarar rólegu og mildu konu. Svo liðu árin og sama tryggðin og umhyggjan fylgdi börnum min- um, þegar þar að kom. Antonie sætti þvi að missa sjón- ina og verða hjálparvana að mestu siðasta árið, sem hún lifði, en naut þá einstakrar umhyggju dóttur sinnar og barnabarna. Þá hugsaði ég stundum um það, að bágt ættu blindir islendingar, en bágar þó útlendingar, búsettir hér, sem sæta sömu örlögum, og hafa ekki einu sinni not af blessaða Rikisútvarpinu okkar. En þessu tók Antonie æðrulaust, eins og öðru. Nú er hún horfin þessi elsku- lega babúska, sem lengst af stóð eins og klettur úr hafinu i um- hverfi sinu og lét hvergi haggast. Skarð er nú fyrir skildi hjá hálf- systkinum minum og móður 0 Kynnið ykkur af- sláttarkjör Rafafls á skrifstofu félagsins, Barmahlfð 4 Reykja- Tökum að okkur nýlagnir í hús, vík, sfmi 28022 og I viðgeröir á eldri raflögnum og versluninni að Austur- raftækjum. götu 25 Hafnarfirði, simi 53522. RAFAFL SVF. Rafmagnseftirlitsmaður Starf rafmagnseftirlitsmanns er laust frá og með 1. febrúar næstkomandi. Laun eru eftir launaflokki B-15. Flokksstjóri Starf flokksstjóra II i rafmagnsiðngrein er laust nú þegar. Laun samkvæmt launa- flokki B-15. Umsóknarfrestur um störfin er til 10. janúar næstkomandi. Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum til rafveitustjóra sem veitir nánari upplýsingar um störfin. Rafveita Hafnarfjarðar. Húsbyggjendur EINANGRUNARPLAST Getum afgreitt einangrunarplast á Stór- Reykjavikursv æðið með sluttum fyrir- > vara. Afhending á byggingarstað. Borgarplast hf. Borgarnesi Simi 93-7370 Helgar- og kvöldslmi 93-7355. þeirra. Ég finn sárt til með þeim, svo og stjúpsystkinum mínum þeim Marcelu og Beno. Ég og börnin min þrjú kveðjum Antonie Lukesovu i ástúð og þökk. Guðrún Ægisdóttir. 6 óskum félagsmönnum sambands- félaganna og samstarfsmönnum farsæls komandi árs. Þökkum samstarfið á liðna árinu. Málm- og skipa- smiðasamband r Islands isœlasta bilafjölskyldan á flslands Maxda929 Oskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegs nýs árs og þökkum viðskiptin á liðnum árum. BÍLABORG HF. pennar Fyrir skóla, skrifstofur, viöskiptalíf. Gefa ætíö áferöarfallega jafna línu. Engar slettur, klístrar ekki. Endingargóöar skiptanlegar fyllingar. Reyniö HAUSER GLISS AGNAR K.HREINSSON HF. UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN HAFNARHÚSINU V. TRYGGVAGÖTU SÍMI: 16382 PÓSTHÓLF 654, R.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.