Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 31.12.1976, Blaðsíða 9
Föstudagur 31. desember 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA — 9 Vinstristúdentar myrtir á lóö háskólans i Bangkok I Thailandi. Hægrisinnuö her- foringjaklika hrifsaöi þar til sin völdin i október, og er liklegust afleiöing þess valdaráns sú, aö vinstrisinnar munu i auknum mæli sameinast i vopnaðri baráttu, sem Ijúki meö sigri byltingarafla. Þeldökkir æskumenn i uppreisninni I Soweto, einu af úthverfum Jóhannesborgar. Hrunadans hins hvita veldis um sunnanveröa Afriku hefur eflt andófs- og uppreisnarhreyfingu þeldökkra manna I Suður-Afrlkulýöveldinu sjálfu kjark og áræöi. Stjórn Vorsters hefur reynt að verða sér úti um frest meö stofnun lepprikja og meö þvi aö etja svörtum þjóðum hverri gegn annarri, en fáir trúa þvi aö sú baráttulist dugi til lengdar. King Kong varö frægust þeirra mynda sem kvikmyndaiönaöurinn ber nú bumbur fyrir og fjalla helst um stórslys og ferleg skrlmsli. Auglýsingaherferöin ein kostaöi sem svarar tveim og hálfum miljaröi króna. Hér á myndinni liggur skrlmsliö dautt eftir aö hafa gengiö mikinn berserksgang I ástarraunum sinum. Bierman, austurþýskt skáld og söngvari, kommúnisti og andófsmaöur, á tónleikum I Köln. Yfirvöld I DDR notuðu tækifæriö þegar hann fór vestur um til tónleika- halds og geröu hann útlægan. Þau hlutu aö launum óvenju mikii og sterk mótmæli frá austurþýskum menntamönnum. (Jrgangur atómiönaöarins hefur valdiö vaxandi áhyggjum almennings. íbúar ýmissa bæja I Vestur-Þýskalandi böröust af mikilli fylgni gegn atómorkuverum, og þau orkuver uröu einnig afdrifarlkt hitamál I kosningum I Sviþjóö Enrico Berlinguer, leiötogi ftalskra kommúnista, gengur I forsetahöllina I Róm til pólitlskra viöræöna. Flokkur hans vann veigamikinn sigur I þingkosningum I júnlogkom þá greinilega íljós aðekkier unnt aö stjórna landinu án hans. Bandarlkin og Nató höföu þungar áhyggjur af stjórnmálaástandi á ttaliu. Jimmy Carter hnetubóndi sigraði Ford fcrseta i kosningaslag I Bandarlkjunum, sem þótti venju fremur tómlegur og marklltill. Carter er nú að týna saman i ráðuneyti sitt nálægt áramótum, og enn eru menn að spyrja eins og i upphafi kosningabaráttu: til hvers er þessi forseti auðug- asta rikis heims helst liklegur? . . Harold Wilson kveöur embætti sitt. Ariö 1976 var um margt ár fallinna foringja, og Wilson varö einna fyrstur til aö vlkja — sagöi af sér af sjálfsdáöum. Enda hef- ur enginn þótt öfundsveröur af aö stjórna Bretlandi, tröllriönu af atvinnuleysi og orkuskorti. Hvltir'hermenn I Ródeslu: eftir aö veldi portúgala I Afrlku'hrundi efldust skæru hreyfingar blökkumanna sem berjast gegn hvitu minnihlutastjórninni I Ródeslu. Nú hefur alllengi veriö þæft um dagsetningar á Ródesiuráöstefnu I Genf.en þaö er augljóst aö dagar stjórnar Ians Smiths eru taldir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.