Þjóðviljinn - 31.12.1976, Qupperneq 14
14 — StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. desember 1976
RAGNAR ARNALDS, FORMAÐUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Áramótahugleiöingarj
grímsson og nú seinast hörð árás
Ragnhildar Helgadóttur á Matth-
ias Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra. Þó hafa enn ekki sést bein
merki um klofningshótanir, og
ekki er vist, ef klofningur verður
hjá Sjálfstæðismönnum, að hann
byrji i þingliðinu.
Hitt eralltannað mál, að margt
bendir til þess, að nýr hægri sinn-
aður flokkur sjái dagsins ljós
fyrir næstu kosningar. Nýr hægri
flokkur, sem skirskotaði til ó-
ánægðra sjálfstæðismanna fengi
sennilega talsvert fylgi, a.m.k. á
Faxaflóasvæðinu, og væri liklega
öruggur um að fá menn kjörna á
þing, ef þekktir aðilar stæðu að
framboðinu. Ekki er með öllu frá-
leitt, að Dagblaðsmenn létu til
skara skriða, ef þeir teldu sig
komna sæmilega á þurrt með
fjárhag blaðsins og treystu sér til
að leggja blaðiði slika áhættu. En
það gætu lika orðið allt aðrir aðil-
ar.
Svo mikið er vist, að Sjálfstæö-
isflokkurinn er i meiri hættu i
næstu kosningum en oftast áður.
Eðli málsins samkvæmt mun
hann missa fylgi til vinstri, en
hann erekki siður i hættu af völd-
um sprengiframboðs hægri
manna.
Alþýöuflokkurinn
Staða Alþýðuflokksins i islensk-
um stjórnmálum er ákaflega
óviss. Flokknum hefur gengið illa
að ná fótfestunni aftur eftir. hrun-
ið mikla,sem fylgdi i kjölfar 12
ára stjórnarsamstarfs með Sjálf-
stæðisflokknum. Áframhaldandi
tap flokksins i seinustu kosning-
um, þrátt fyrir upplausn Samtak-
anna á sama tima, benti jafnvel
til þess, að flokknum yrði ekki
bjargað úr greipum dauðans. En
hin miklu mistök Sjálfstæðis-
flokksins i núverandi rikisstjórn
hafa vakið vonir hjá þeim for-
ystumönnum flokksins, sem fyrst
og fremst vilja byggja tilveru
flokksins á stuðningi óánægðra
Sjálfstæðismanna. Flokksstarf-
semi, sem miðast einkum við að
gera út á mið annars flokks er að
visu nokkuð glæfraleg, eins og
reynsla Alþýðuflokksins seinustu
árin sýnir, en getur heppnast i
þetta sinn. Hins vegar gæti fram-
boð nýs hægri flokks eyðilagt þá
von með öllu — og meira til.
Nokkrir ungir menn i Aþýöu-
flokknum hafa beittsér fyrir þvi,
að Alþýðuflokkurinn vekti á sér
traust með baráttu fyrir bættu
pólitfsku siðgæði og betra réttar-
fari. Margt hefur þar verið skyn-
samlega sagt. En þeir hafa orðið
nokkuð einhæfir, staðnað i litt
sönnuðum fullyrðingum og ofleik-
ið hlutverk sin. A móti hverri
einni skynsamlegri aðfinnslu
hafa komið tiu gróusögur og
staðleysur. Þannig vinnubrögð
geta orðiö dagblöðum að gagni i
lausasölu en verða aldrei flokkum
til fylgisauka.U
Staðreyndin er sú, að Björn
Jónsson, forseti Alþýðusam-
bandsins, er eini forystumaður
Alþýðuflokksins, sem viröist
skilja til fulls, hvað þarf til þess,
^Dæmi um þetta er áróðurinn
gegn Kröfluvirkjun. Hann hefur
magnastmjög ikjölfar eldgossins
og vandamálanna, sem þvi hafa
fylgt. Ef Kröfluvirkjun kemst i
gang einhvern timann á næstu
mánuðum, sem má heita stór-
merkilegt, þvi að ekki er lengri
timi liðinn en 1 1/2 ár, siðan
bygging virkjunar hófst, er harla
óliklegt, að Alþýðuflokkurinn
hagnist á ábyrgðarlausri and-
stöðu sinni við þetta nauðsynja-
mál. Fari hins vegar svo, að
raunverulegt gos verði á Kröflu-
svæðinu, hið annað sem þar hefur
orðið.siðan land byggðist, er ekki
Frá Flokksráösfundi Alþýðubandalagsins.
að verkalýðsflokkur veki á sér
traust. Hann hefur beitt sér fyrir
skeleggari afstöðu flokksins i
ýmsum málum með samvinnu til
vinstri, og i rauninni hefur Björn
Jónsson bjargað þvi sem bjargað
varð af áliti flokksins.
Menn velta þvi fyrir sér, hvort
innganga Karvels Pálmasonar i
Alþý ðuflokkinn muni verða
flokknum til styrktar svo að um
muni. En ljóst virðist vera, að
Alþýðuflokkurinn getur ekki
vænst fylgisaukningar frá
Samtökum frjálslyndra og vinstri
manna nema i Vestfjarðakjör-
dæmi og meðal nokkurra fyrrver-
andi fylgismanna Björns Jóns-
sonar á Akureyri. Hins vegar er
komið á daginn, að margir fyrri
fylgismenn Samtakanna og þá
einkum úr Möðruvallahreyfing-
unni, sem upphaflega kom úr
Framsóknarflokknum, telja sig
ekki eiga annars staðar heima en
i Alþýðubandalaginu. Hins vegai
verða sjálfsagt einhverjir reiðu
búnir að halda starfsemi Samtak
anna áfram, a.m.k. að nafninu til
oger það miður, ef þeir einangra
sig i vonlausu flokksstarfi, þai
sem hér er um að ræða ýmsa
ágæta vinstri menn.
IV.
Sókn Alþýðubandalagsins
Vafalaust dylst það fáum, að
Alþýðubandalagið er i öruggri
sókn, eins og það hefur rauna
verið jafnt og þétt nú um árabil
Alþýðubandalagið hefur þó ekki
haft i frammi sérstakan bægsla
gang til að vekja á sér athygli 0{
ekki gefið sig að vafasömun
æsingamálum til að krydda
stjórnarandstöðuna.
Alþýðubandalagið hefur haft
forystu um stefnumótun á svið
orkumála, ekki siður i stjómar.
andstöðu en i rikisstjórn, og hefur
nú nýlega gefið út vandað rit un
stefnu sina ásamt itarlegustu
upplýsingum um allar hliðar
orkumála, sem settar hafa verið
fram i islensku riti.
Skattamálin
í skattamálum hefur þingflokk
ur Alþýðubandalagsins mótað
skýra stefnu i öllum megi'n-
atriðum og lagt fram tillögur,
sem vakið hafa mikla athygli.
Þar er ekki um að ræða óraunhæf
yfirboð, eins og t.d. um afnám
tekjuskatts, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur verið með. Alþýðu-
bandalagið telur óhjákvæmilegt
að viðhalda tekjuskattinum til
tekjujöfnunar. I tillögum okkar
hafa veikustu þættir skattakerfis-
ins verið dregnir fram i dags-
ljósiö og undanfarin þrjú ár
höfum við lagt fram á Alþingi
útilokað, að sá rauðglóandi
fjandi, sem þvi stjórni, geri
Alþýðuflokknum nokkum greiða.
En hafa þá engin mistök verið
gerðvið Kröflu,eins ogfullyrter?
Einu mistökin, sem gerð hafa
veriö við Kröflu voru þau, að
ekki skyldu boraðar vinnsluholur,
áður en bygging virkjunar hófst,
heldur tvær grynnri rannsóknar-
holur, sem reyndust ekki gefa
fullnægjandi upplýsingar. En á
þetta benti enginn, svo að mér
væri kunnugt, þegar ákvörðunin
var tekin, og alltaf er auövelt að
vera vitur eftir á. Sveinbjörn
Björnsson, eðlisfræðingur, sem
meðal annarra hefur gagnrýnt
þessi mistök réttilega, segir i
dagblaðinu Visi 1. des. s.l.:
„Menn töldu liklegt, að svæðið
yrði svipað og Námaf jallssvæðið,
þar sem komin var mikilreynsla.
Og i ársbyrjun 1975 var ekkert
það komið fram, sem benti til
þess, að svæðið væri öðru visi en i
Námafjalli. Það var kannski fyrst
með holu 4, sem varð hver, að i
ljós kom, að svæðiö var afbrigði-
legt. Menn fór eiginlega ekki að
gruna þetta að neinu ráði fyrr en
á þessu ári”. Hér kemur
Sveinbjörn einmitt að kjarna
þessa máls.
nákvæmt yfirlit um skattlaus
fyrirtæki i Reykjavik.
Enginn vafi er á þvi, að tillögu-
gerð Alþýðubandalagsins i
skattamálum hefur þegar haft
mikil áhrif, eins og sjá má i nýju
skattafrumvarpi, sem fjármála-
ráðherra hefur lagt fram, en þar
er breytt öllum þeim atriðum,
sem við höfum lagt mesta áherslu
á: fyrningarreglum, vaxtafrá-
drætti, áætlun tekna á einstak-
linga sem telja fram litlar tekjur
af störfum við eigin rekstur, og
bann við aðnota rekstrartaptil að
lækka tekjur, sem koma úr ann-
arri átt. Hitt er annað mál, að i
ýmsum tilvikum eru breyting-
arnar stórgallaðar, og raunar
veit enginn hvort þetta frumvarp
verður nokkurn timann að lögum
vegna ósamkomulags stjómar-
flokkanna.
samningaviðræðna við breta og
Efnahagsbandalagið um veiði-1
heimildir á Islandsmiðum á kom-
andi árum, þótt hverjum heilvita
rnanni ætti að vera ljóst, að
fiskurinná íslandsmiðum erekki
til skiptanna.
Hin einarða stefna sem Alþýðu-
bandalagið hefur fylgt í land-
helgismálinu undir forystu Lúð-
víks Jósepssonar, er nú stefna
stjórnarandstöðunnar allrar og
flestra helstu fjöldasamtaka i
landinu. Andstaðan gegn nýjum
samningum um landhelgina er
þegar orðin svo almenn og út-
breidd, að ekki er sennilegt, að
rikisstjórnin lifi þess háttar til-
raun af, ef æstustu talsmenn
nýrra samninga halda málinu til
streitu.
Andstæöurnar
Landhelgismálið Þurta að skýrast
I þriðja lagi mætti nefna land-
helgismálið. Sú stefna sem Ál-
þýðubandalagið hefur beitt sér
fyrir, að engir samningar verði
gerðir um undanþágur erlendra
rikja á ofveiddum miðum lands-
ins, hefur hlotið mjög almennan
hljómgrunn. Á slðastliðnu ári
hraktist rikisstjórnin úr einu vig-
inu i annað, þar til hún hafnaði
loks i Oslóarsamningnum að
þingi loknu.
Ráðherrarnir hafa aö undan-
förnu reynt að berja sér á brjóst
og telja fólki trú um að Oslóar-
samningurinn hafi leitt til þess,
að bretar séu nú horfnir úr is-
lenskri landhelgi, — a.m.k. i bili.
Flestum er þó ljóst, að bretar
voru u.þ.b. að gefast upp, þegar
þeir voru skornir niður úr snör-
unni af islenskum ráðamönnum.
Og allir ættu nú að sjá, að bretar
hefðu i seinasta lagi horfið af Is-
landsmiðum nú i árslok 1976, þeg-
ar þeir sjálfir og Efnahagsbanda-
lagið taka sér 200 milna land-
helgi. Með Oslóarsamningnum
vannst þvi aðeins einn mánuður,
þ.e. desember en hins vegar hefur
samningurinn það i för með sér,
að við höfum verið tilneyddir að
standa viðsamninginn við vestur-
þjóðverja, sem rennur ekki út
fyrr en i desember 1977 og gefur
þjóðverjum 60 þús. tonn af fiski
næsta árið.
Jafnframt fylgdi það Oslóar-
samningnum, að dyrunum var
haldið opnum til frekari
Sókn Alþýðbandalagsins bygg-
ist á málefnalegri samstöðu með
stórum hluta þjóðarinnar. Hún
byggist á sömu meginviðhorfum
og Alþýðubandalagsmenn fylgdu
á nýafstöðnu þingi ASl. Alþýðu- |
bandalagið leitast við að gera
andstæðurnar i þjóðfélaginu ljós-
ar hverjum manni, svo að fólkið i
landinu eigi sem skýrast val milli
hægristefnu og vinstristefnu, Það
leitast við að skapa sem breiðasta
samfylkingu fyrir kröfugerð i
anda sósialisma og félagshyggju
og reynir hverju sinni að knýja
fram málefnalegan sigur, þar
sem það reynist unnt.
Það var eftirtektarvert á ASI-
þingi, að sundrungaröfl á vinstri
væng, öfl sem stöðugt leitast við
að véfengja og draga úr forystu-
hlutverki Alþýðubandalagsins i
verkalýðshreyfingunni, máttu sin
einskis á þessu þingi. Flest bendir
til þess, að máttlitlir klofnings-
hópar i röðum vinstri manna,
sem nokkuð hafa blómstrað á
seinni árum, séu nú smám saman
að visna upp.
A Alþýðusambandsþingi
heppnaðist afar vel að fylkja
vinstri mönnum saman undir
sósialiskri forystu, og árangur
vinstri manna á ASI-þingi er vis-
bending um það sem koma skal á
stjómmálasviðinu.
Ég óska lesendum Þjóðviljans
og landsmönnum öllum gæfu og
gengis á nýju ári og sendi Aiþýðu-
bandalagsmönnum um land allt
hjartanlegar baróttukveðjur.