Þjóðviljinn - 13.02.1977, Blaðsíða 23
Sunnudagur 13. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — StÐÁ 23
TEIKNARi
Kompunni hefur borist
mikið og gott myndefni
frá 12 ára strák í Kópa-
vogi. Hann heitir Kjartan
Arnórsson og á heima á
Hraunbraut 14. Kjartan
er faeddur í Reykjavík
árið 1965, en átti heima
fyrstu árin í Mosfells-
sveit. Þegar hann var á
sjöunda ári flutti fjöl-
skyldan til Skotlands og
dvaldi þar rúmlega tvö
ár. Þau bjuggu við St.
Patrick Square í Edin-
burgh, það er skammt f rá
Princess Street og mið-
borginni. Kjartan gekk
þar í skóla og náði góðu
valdi á ensku og hefur
haldið henni við síðan
hann kom heim. Nú er
hann í Kársnesskólanum
og líkar þar prýðilega.
Kennarinn hans, Hanna
Dóra Pétursdóttir, hefur
gott lag á krökkunum,
enda finnst Kjartani
stundum gaman í skólan-
um. Skemmtilegast
finnst honum í teikningu
og svo í frimínútunum.
Það er eðlilegt, teikning
er hans aðaláhugamál,
og frímínúturnar eru
mikilvægur þáttur í
skólalíf inu. I' þeim hittast
krakkarnir og leika sér
saman.
Tvisvar í viku fer
Kjartan i tíma í Myndlist-
arskólann við Freyjugötu
og lærir leirmótun hjá
Katrinu Briem. í tóm-
stundum finnst honum
mest gaman að lesa góð-
ar bækur. Hann les helst
spennandi reyfara,
snjallar grinsögur og
vísindaskáldsögur eftir
höfunda eins og Ray
Bardbjury og Asimov.
Það kemur ekki að sök
þótt lítið sé til af þýddum
bókum af þessu tagi, því
áuk enskunnar getur
hann lesið sér til gagns á
Norðurlandamálunum og
dálítið þýsku.
Hér er örlitið sýnishorn
af teikningum Kjartans,
en þær eru mjög fjöl-
breytilegar, allt frá löng-
um myndasögum niður í
stakar teikningar og
skissur. Margar eru afar
fallegar í litum, en því
miðurgetur Kompan ekki
prentað í lit. I næstu blöð-
um fáið þið væntanlega
að sjá f leira eftir þennan
snjalla teiknara.
Kjartan Arnórsson hefur fyllt margar stflabækur af framhaldsmyndasögum og hér heldur hann á einni
sögu, sem einmitt er aö fæöast um þessar mundir. A bak viö sést f nokkra bekkjarfélaga Kjartans, en
myndin er tekin i Kársnesskóla sl. fimmtudag.
—Mynd: —gsp
Boltarnir Vélmenni