Þjóðviljinn - 13.02.1977, Blaðsíða 11
Sunnudagur 13. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 11
Helgi Gfslason: SamstaOa.
Höggmyndir
og grafík
Fyrstu einkasýningar ungs lista-
manns, sem nýkominn er frá
námi erlendis, er alltaf beöiö
nieö nokkurri eftirvæntingu. Um
þessar mundir heldur Helgi
Gislason sina fyrstu sérsýningu á
höggmyndum og grafik i Nor-
ræna húsinu. Heigi á aö baki langt
listnám, hann stundaöi fyrst nám
viö Myndlista- og handiöaskóia
tslands á árunum 1965-1970 og
hélt siöan til framhaldsnáms viö
Valands-listaháskólann i Gauta-
borg, þar sem hann dvaldi á ár-
unum 1971-1976. Þaö er oröiö
nokkuö langt um liöiö siöan nýr
myndhöggvari, i klassiskum
skilningi þess orös, kom fram á
sjónarsviöiö i islenskri list, og þvi
viröist sýning Helga mjög tima-
bær og ber aö fagna henni.
Verkin, sem Helgi sýnir, eru öll
figúratif, og aö þessu leyti er hann
frábrugðinn eldri starfsbræörum
sinum hér heima, sem um langt
skeiö hafa aöallega unnið i ab-
strakt formum. Jafnframt má
benda á, að i verkefnavali er
Helgi skyldari yngri kynslóð is-
lenskra málara og grafiklista-
manna, sem horfið hafa frá ab-
strakt málverkinu og gert mann-
inn og heim hans að aðalviöfangs-
efni sinu.
Myndir Helga sýna manneskj-
una I umhverfi sinu á nokkuö
raunsæjan og hversdagslegan
hátt, ýmist þá hlið sem snýr að
manninum sjálfum, i andlits-
myndum og innimyndum, eða
ytri hlið hans, lif mannsins út á
við i atvinnulifinu.
Fyrstu verkin sem vekja at-
hygli á sýningunni eru raanna-
myndir úr steinsteypu. Notkun
steinsteypu i styttur er nokkuð
óvanaleg, i hugum okkar er þetta
efni frekar bundið við stór
geómetrisk form. Meðferð Helga
á steypunni er lika sérstök, áferð-
in minnir á leir, enda er frum-
myndin mótuð úr þvi efni og sið-
an steypt upp I steinsteypu. Hin
sérkenniiega grófa áferð mynd-
anna er i fullu samræmi við
formin, sem eru kyrrstæö og
massif og nálgast stundum að
vera luraleg. Steypan er óþjál og
með henni er erfitt að ná fram
hnitmiöuöum áhrifum i formi og
lit. t slðustu mynd sinni af þessu
tagi, Ása (nr 1. i sýningarskrá),
hefur listamaðurinn náð betri
tökum á efninu, steinsteypuform-
ið er orðið meira lifandi, áferðin
fingerðari og greinileg framför
frá fyrri myndum. En ef til vill
njóta eiginleikar steinsteypunnar
sin þó best i tveimur gólfmyndum
af liggjandi konum, þar sem slök
form mannslikamans i láréttri
stööu koma skemmtilega fram.
Loks eru á sýningunni nokkrar
andlitsmyndir úr brenndum leir,
en i þvi efni er auðveldara að ná
fram hnitmiöuðum áhrifum meö
þessari grófu áferð. Þótt þessar
myndir séu nokkuö klassiskar,
bera þær vitni um persónulegan
og hrjúfan stil höfundar, eins og
t.d. Göran (nr. 14i sýningarskrá).
Annar stór þáttur I sýningunni
eru smærri verk i þröngu um-
hverfi, eins og t.d. Norskan við
gluggann (nr. 18 i sýningarskrá).
Fyrirmyndinni er komið fyrir i
herbergishorni með glugga, sem
jafnframt er birtugjafi, en hornið
setur hins vegar umhverfinu tak-
mörk. Konan og stóllinn eru hugs-
uð sem heill massi og engin skýr
skil á milli þeirra. Inntakið verð-
ur þvi einangrun og einmanaleiki.
Loks hefur Helgi gert nokkrar
lágmyndir úr skipasmiðastöð,
þar sem viðfangsefnið er maöur-
inn og vinnan. 1 þessum verkum
skiptir umhverfi mannsins miklu
máli, en nokkuð skortir á læsilega
uppsetningu og skýra efnismeð-
ferð, einkum I lágmyndunum úr
steinsteypu.
Með silkiprenti og tréristum
Framhald á 22 siðu
Irma KukkasjSrvi : Skjól
„Með jákvæðu hugarfari”
Það hefur vart farið
fram hjá áhugafólki um
myndiist/ að nýr sýn-
ingarsalur, Gallerí Sólon
Islandus, hefur veriö
starfræktur hér í borg frá
því síðla hausts. Tvær
samsýningar hafa þegar
verið haldnar þar á verk-
um yngri og eldri mynd-
listarmanna, og á dögun-
um var opnuð fyrsta
einkasýningin í Gallerí-
inu. Egill Eðvaldsson
sýnir teikningar gerðar
með blýanti og litkrít.
Dagbókarbrot
Höfundurinn hefur látiö setja þá
yfirlýsingu á prent I sýningar-
skrá aö allar séu myndirnar
gerðar „meö jákvæöu hugar-
fari”. Hvaöa merking, sem
kann að felast i jákvæöu hugar-
fari, þá bera þær helst ein-
kenni dagbókarbrota, þar sem
timinn hefur máö út skarpar út-
linur atvika, en skilaö fram
smáatriöum, hversdagsiegum
myndtáknum, sem þó veröa
ekki staöfærö I tima og rúmi —
heldur sem brot af atviki, upp-
lifun eöa minningu. Þótt vissu-
B
Eglll Eövarösson: Flogiö heim meöLoftleiöum.
lega megi finna I þessum verk-
um snertipunkta viö popplist og
súrrealisma, þá er biliö milli
myndtákns og veruleika aldrei
upphafið aö fullu — heldur er
gjarnan umbreytt og gefin ný
merking meö formrænum sam-
likingum. Egill notar flóru ým-
issa myndtákna, sem oft jaöra á
mörkum draums og veruleika,
allt frá litlum filmubút eftir S.
Eisenstein til ópal-pakka, sem
þó tengjast saman af samræöis-
senu, sem næstum ávalit er til
staöar og veröur rauöi þráöur-
inn i þessum samsettu minning-
arbrotum. Inntakiö veröur þvi
oft hversdagslegar skyndi-
myndir, á mikillar Igrundunar,
þar sem samræöisstellingum er
fléttaö inn i hversdagsleg
myndtákn. Hér er hvorki pré-
dikaö né skilgreint, heldur hafa
myndirnar einatt yfir sér fin-
gerðan og ljóðrænan blæ — auk
kimni. 1 þessu inntaki felst, ef til
vill, hiö jákvæöa hugarfar?
Ólafur Kvaran.
BLÓMALÍMJR
og það ekki að ástæðu-
lausu því að þær samræma
fallegt útlit og fjölbreytni
í útfærslu.
Og meira til - þær er auð-
velt að þrífa og þær end-
ast vel.
Spyrjið, hringið eða skrif-
ið og biðjið um litmynda-
bækling. Við tökum mál,
skipuleggjum og teiknum
- ykkur að kostnaðarlausu.
Við gerum einnig tilboð
án skuldbindinga af ykkar
hálfu.
Þið getið því sjálf - eða
með okkar aðstoð - uppfyllt
óskir ykkar um góðar eld-
húsinnréttingar á hagstæðu
verði.
IíAGIf
Suðurlandsbraut 6, Glerárgötu 26,
Reykjavík. Akureyri
Sími: (91) 84585. Simi: (96) 21507.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími:..............
Nýr litmyndabæklingur.
Óska eftir bæklingi með upplýsingum um Haga framleiðsluvörur.