Þjóðviljinn - 26.02.1977, Side 7
Laugardagur 26. febrúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA — 7
Annars er þaö kannski lýsandi dæmi um riku
þjóðirnar i heiminum, aö þær munu nú leggja um
0,15%-0,20% af því, sem þær hafa
til ráðstöfunar, til aöstoöar viö hinn hungraða heim.
Enn um íslendinga
og þróunarlöndin
Þaö var um þaö leyti er fjár-
lagafrumvarpiö var til umræöu
á Alþingi I desembermánuöi s.l.
aö ég kvartaöi siöast yfir vilja-
leysi og tómlæti Alþingis og
stjórnvalda vegna Aöstoöar Is-
lands viö þróunarlöndin, svo og
um áhugaleysi manna yfirleitt
um allt er varöaöi þróunarlönd-
in og þróunaraöstoö.
Aö visu höföu nokkrar um-
ræöur veriö um þróunarlöndin i
fjölmiölum siöustu mánuöina á
undan og margir mætir menn
lagt þar orö I belg, bæöi stjórn-
málamenn, embættismenn og
aörir sem látiö hafa sig málefni
þróunarlandanna einhverju
skipta. Þrátt fyrir þaö vænti ég
ekki mikilla breytinga á fjár-
veitingum hins opinbera til þró-
unaraöstoöar.
Ariö 1976 haföi aöstoö Islands
viö þróunarlöndin fengiö 12.5
milj. króna til aö sinna skuld-
bindingum sinum. 1 frumvarp-
inu fyrir áriö 1977 var gert ráö
fyrir aö stofnunin fengi 13 milj.
króna. En viti menn, þá geröist
undriö; þegar frumvarpiö kom
til annarrar umræöu kom I ljós,
aö fjárveitinganefnd Alþingis
haföi hækkaö framlagiö til Aö-
stoöarinnar hvorki meira né
minna en upp i 25 miljónir
króna. Mér varö þaö á aö hugsa,
aö senniiega væru dagar krafta-
verkanna ekki Iiönir þrátt fyrir
allt. Eitthvaö likt þessu held ég
aö aörir hafi hugsaö, sem fylgst
hafa meö þessum málum.
Þeim sem ekkert þekkja til
málsins þykir eflaust einum of
sterkt til oröa tekiö, aö tala um
undur og kraftaverk. Til glöggv-
unar er ekki úr vegi aö skjóta
inn smávegis um þrautagöngu
Aöstoöar tslands viö þróunar-
löndin frá þvi aö lögin um hana
voru samþykkt á Alþingi voriö
1971.
Allan þann tima hefur stofn-
unin veriö meira og minna
óstarfhæf vegna fjárskorts.
Alþingi hefur einfaldlega ekki
fariðeftir eöa tekiö mark á fjár-
beiönum hennar. Og eftir ab is-
lendingar gerðust aöilar aö
samnorrænu samvinnuverkefn-
unum i Kenya og Tanzaniu áriö
1973, svo og norræna landbún-
aðarverkefninu I Mbeya i Tanz-
aniu, hefur verið hægt meö
naumindum aö kria út fjármagn
til aö standa viö skuldbindingar
þar. Meira aö segja hefur komiö
fyrir, að fá varö aukafjárveit-
ingu eitt árið vegna þess aö
Alþingi sinnti ekki fjárbeiöni
svo aö hægt væri aö standa við
geröa samninga.
t þessu tilfelli er þvi ekkert
mikið aö taka sér i munn orð
eins og undur og kraftaverk. En
þaö geröist ýmislegt fleira
þennan umrædda desember-
mánuö. Islendingar afþökkuöu 1
milj. dollara fjárstyrk frá þró-
unarsjóöi S.Þ., en þessi styrkur
átti aö fara til rannsókna hér á
landi.
tslendingar höföu áöur fengiö
frá þessari sömu stofnun_um 1
milj. dollara á árunum 1971-’76
og var þetta þvi i annað sinn
sem tsland átti aö fá sömu upp-
hæð I næstu fimm ár.
Þaö er þvi ekkert skritið þótt
menn veröi undrandi þegar
fyrst er hækkaö framlag Að-
stoðarinnar um helming og siö-
an afþakkaður 1 milj. dollara
styrkur. En það hefur nefnilega
viðgengist sú forsmán um langt
árabil, aö viö höfum þegiö álit-
legar fjárfúlgur úr ýmsum al-
þjóölegum þróunarsjóöum á
sama tima, og litiö sem ekkert
hefur verið lagt á móti af okkar
hálfu til hinna snauðu þjóöa
heimsins. Þaö er þvl full ástæða
til þess aö lýsa yfir ánægju sinni
meö þaö aö stjórnvöld og
Alþingi skuli nú snúa viö blaö-
inu. Sennilega mun þaö fyrst
vera núna á þessu ári sem is-
lendingar eru ekki i minus hvaö
varöar þróunaraöstoö. Þaö er
aö visu spor i þá átt að islend-
ingum takist einhverntima I
framtiðinni að framkvæma i
raun margitrekaöar samþykkt-
irS.Þ. þess efnis, að aðildarrlk-
in láti 1% þjóðartekna sinna
renna til aöstoöar við þróunar-
löndin (þaö mark hefur nú
reyndar veriö fært niður I 0,7%).
Rétt er aö minna á, að Alþingi
hefur lýst yfir vilja sinum til
þess aö ná 1% markinu, þvi aö i
lögunum um Aöstoö Islands við
þróunarlöndin er gert ráð fyrir
þvi, aö þessu marki veröi náö
sem allra fyrst.
Sem stendur mun aðstoö okk-
ar viö þróunarlöndin vera um
0.05% af þjóðartekjum okkar,
en þetta fjármagn sem viö lát-
um af hendi er mestmegnis
skylduframlög til ýmissa þeirra
stofnana Sameinuðu þjóöanna,
sem sinna þróunaraöstoö.
Það væri ekki úr vegi aö
benda á þaö til samanburöar, aö
frændur okkar á Norðurlöndum
hafa gert mikið átak til aö ná
þessu marki,t.d. munu sviar nú
þegar hafa náð 1% markinu og
danir og norðmenn viö það aö ná
þvi.
Annars er þaö kannski lýsandi
dæmi um riku þjóðirnar I heim-
inum, aö þær munu nú leggja
um 0.15-0.20% af þvi sem þær
hafa til ráöstöfunar til aöstoöar
viö hinn hungraða heim. Og ef
marka má orö McNamara
bankastjóra Alþjóöabankans
þá munu riku þjóðirnar i heim-
inum fjarlægjast fremur en
nálgast markmið Sameinuðu
þjóðanna að iönrikin leggi 0,7%
þjóðartekna sinna I opinbera
þróunaraöstoð. Allt ber aö sama
brunni; þrátt fyrir itrekaöar
viljayfirlýsingar, ótal skýrslur
og ræður, þá viröist bilið milli
rikra þjóöa og snauöra alltaf
aukast. Um 700 miljónir manna
i heiminum búa viö fátækt og
hungur og 500 miljónir til viö-
bótar lifðu við hungur áður en til
efnahagskreppu kom fyrir
nokkrum árum. ólæsum hefur
fjölgaö frá 1960 um 60-70 miljón-
ir, atvinnuleysi i þróunarlönd-
unum eykst. Fyrir tveimur ár-
um náöi tala atvinnulausra 300
miljónum. Til viðbótar þessu er
óskaplegur barnadauði, heil-
brigðisþjónusta vægast ömur-
leg, farsóttir fara eins og logi
yfir akur, enda nóg um fórnar-
dýrin þar, sem eymdin er mest.
Annars eru tölur tilgangslaus-
ar, þvi að þær virðast ekki vekja
marga til umhugsunar um þaö
ástand, sem rikir i heiminum i
dag. Þvert á móti virðast vera
hér menn, sem telja það
heimsku aö afþakka peninga úr
sjóðum fátæka fólksins i heim-
inum, loksins þegar stjórnvöld
sýndu þá reisn aö láta veröa af
þvi.
Að lokum langar mig ab vitna
hér i orö Jóns Sigurðssonar for-
stjóra þjóðhagsstofnunar i er-
indi sem hann flutti á fundi i
Rotaryklúbbi Reykjavikur 24.
nóv. s.l., en þar taldi hann að Is-
lendingar ættu aö stefna mark-
visst að þvi á næstu 7 árum að
láta 0,7% þjóöartekna renna til
þróunaraðstoðar. Jón sagði orð-
rétt: „I fjárlagafrumvarpinu
fyrir árið 1977 má telja bein
framlög til þróunaraöstoðar
tæplega 190 miljónir krdna. Mér
þykir þetta helst til stuttur
fyrsti áfangi, en gæti þó gengið,
ef ákveöið væri aö auka framlög
til verðugra verkefna af þessu
tagi um 300 milj. króna (á
verölagi fjárlagafrumvarps
1977) áriö 1978 og síöan um 300
milj. króna á ári næstu fimm ár-
in. Með þessum hætti kæmumst
við langleiðina að 0,7% markinu
á næstu 7 árum; til þess aö ná
þvi þarf fyrst og fremst stjórn-
málaiegan viljastyrk”.
Undir þessi orö Jóns vil ég
taka heils hugar og geri ráö
fyrir að margir aðrir séu sama
sinnis. Þaö væri vissulega
ánægjulegt ef stjórnvöld sýndu
slika reisn og myndarskap, en
er ekki til of mikils mælst? Það
er aldrei aö vita, þvi dagar
kraftaverkanna virðast ekki
vera liönir ennþá.
Björn Þorsteinsson,
menntaskólakennari.
Ahugamenn
um bifreiðaíþróttir
ísaksturskeppni bifreiðaiþróttaklúbbs
FÍB verður haldin á Leirtjörn við tJlfars-
fell sunnudaginn 27. febr. nk. klukkan
15:00.
Keppendur mæti með bifreiðar sinar kl.
14.00
Stjórnin.
Blikkiðjan Garöahreppi
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmfði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
Gólfteppahreinsunin
Hjailabrekku 2
Tek í hreinsun og þurrkun allskonar teppi og
mottur. Fer í heimahús ef óskað er. Sfmar
41432 og 31044.
Hefst stórútflutningur á hrauni úr nágrenni Hafnarfjaröar?
Verður Hafnarfjarð-
arhraun selt úr landi?
Vegna nútímabyggingatækni er
vaxandi áhugi um allan heim á
fyliiefnum i steypu, bæöi léttum
og þungum. 1 sumum löndum eru
menn farnir aö veröa uggandi um
aö þessi efni gangi hreinlega til
þurröar, og þá þarf aö leita eftir
þeim til annarra landa, þar sem.
af meiru er að taka. Sem dæmi
.1 hina gifurlegu eyöslu á fyll-
ingarefnum má nefna aö
þjóöverjar nota árlega milli 5 og
lOmiljónir kúbikmetra af þessum
efnum. Svo aö menn áltisigá
þessum tölum er vert aö geta
þess, aö allur vikurinn viö Búrfell
frá Skjólkviagosinu 1970 er um
50 milj. kúbikm., þannig aö þjóö-
verjar gætu eytt honum öllum a
einum 10 árum.
Eftir Vestmannaeyjagosiö 1973
kom til tals útflutningur þaöan á
vikri, en máliö mun aldrei hafa
komist af umræöustigi. Nú hefur
Þjóðviljinn hins vegar haft spurn-
ir af þvi, aö verið sé aö undirbúa
sölu á miklu magni af einhvers
konar fyllingarefnum eöa hrauni,
sem tekiö veröi I nágrenni Hafn-
arfjarðar, til Bandarikjanna.
Þjóöviljinn sneri sér til for-
svarsmanna B.M. Vallá til aö
grennslast fyrir um sannleiks-
gildi þessarar fréttar. Ekki var
þvi neitaö aö einhverjar viöræður
viö erlenda aöila væru i gangúen
framkvæmdastjórinn vildiekkert
um málið segja ,,aö svo stöddu".
Hins vegar mættum viö tala viö
þá eftir mánuö; þá yröu málin
ljósari.
Nú þarf I sjálfu sér ekkert aö
vera athugavert viö þaö að selja
vikur úr landi, en ekki er vafi á aö
Islendingum erhollast aö vera vel
á verðií þessum efnum, þóaönóg
sýnist vera hér af grjótinu. Sam-
kvæmt lögum um náttúruvernd
er hverjum og einum jaröeiganda
heimilt malar-, grjót-, sand- og
gjallnám I landi sinu, ef þaö
skemmir ekki friölýstar náttúru-
myndir. Hins vegar geta sveitar-
stjórnir bannað slikt jarörask aö
fenginniumsögn náttúruverndar-
nefndar viökomandi sveitarfé-
lags, ef hætta er talin á aö meö
þvi veröi sérkennilegu landslagi
eða merkum náttúruminjum
raskað. Skjóta má ákvöröun
sveitarstjórnar til menntamála-
ráöuneytisins, ef ágreiningur
veröur og úrskuröar þaö end-
anlega i málinu.
Þetta ákvæöi I lögunum er eins
og sjá má ákaflega teygjanlegt,og
sennilega eru lögin of rúm þannig
aö ekki væri hægt aö koma I veg
fyrir aö landeigandi gæti selt úr
landi allt aö þvi heilu fjöllin, ef
honum byöi svo viö aö horfa.
—hs.