Þjóðviljinn - 26.02.1977, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 26.02.1977, Blaðsíða 20
PJÚÐVILJINN Laugardagur 26. febrúar 1977 AOalsfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt aO ná i blaöamenn og aöra starfs-' menn blaösins i þessum símum-. Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348. @81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóöviljans I slma- skrá. Hringur Jóhannesson sýnir ad Kjarvalsstödum Afrakstur þriggja ára 1 dag ki. 14 opnar Hringur Jóhannesson listmálari sýningu á verkum sinum aö Kjarvals- stööum. Þar sýnir hann tæplega eitt hundraö myndir, 51 oliu- málverk og 43 teikningar unnar meö svartri merkikrit, blýanti, tússi, filtpenna ofl. — Málverkin á þessari sýningu eru afrakstur síöustu þriggja ára en teikningarnar spanna yfir 15 ára timabil. Ég grlp oft til teikninganna á vetr- um ýmist til aö hvíla mig á mál- verkinu eba til aö gera skissur aö og undirbúa málverkin, sagöi Hringur er blaöamaöur ræddi viö hann i gær. Hring ætti aö vera óþarft aö kynna þvi hann hefur skipaö sér i flokk fremstu myndlistar- manna þjóöarinnar. Hann hefur haldiö 11 meiriháttar einka- sýningar og tekiö þátt I fjölda samsýninga, innlendra sem erlendra. Nú á hann td. nlu olíu- pastelmyndir á norrænu farandsýningunni Oga mot öga sem hófst I Sokkhólmi I nóvem- ber sl. en hélt þaöan I ferbalag til allra höfuöborga Noröur- landa. 1 tilefni sýningarinnar hefur verið gerö litprentuö sýningar- skrá þar sem ferill Hrings er rakinn auk þess sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræöingur ritar grein um listamanninn og nefn- ist hún Raunsæi og hlutagildi. Þar segir ma. um siðustu við- burði I list Hrings: Hringur Jóhannesson viö eitt verka sinna „Máli Hringur eftir náttúr- unni, eru skil öll skarpari en fyrr, stórir fletir fá aö njóta sln og inn I umfjöllun málarans blandast Igrundanir um meö- ferð mannsins á henni og ábyrgö hans gagnvart henni. I gljáfægöum bilspegli sjáum viö veg vinda sig gegnum mýrar og móa, mjallhvlt mjöll er saurguð af förum eftir stórgerð bildekk, rafmagnsstaur speglast I tærri tjörn og andspænis straummik- illi flúö trónar voldugt veiöi- hjól.” Sýning Hrings verður opin kl. 16-22 virka daga en 14-22 laugar- daga og sunnudaga fram til 13. mars nk. Flestöll verkin eru til sölu og kosta frá 25-300 þúsund kr. —ÞH Ein kgw stund af rafmagni á 413 kr. Viö sögöum frá ótrúlega háu rafmagnsveröi I Grundarfirði i Þjóöviljanum fyrir skömmu, en þar kostaði ein kgw. stund um 55 kr. Þetta er vissulega geysi há upphæö, en maður einn, sem hringdi til okkar gat sagt frá enn hærra verði. Hann býr i Reykjavik og þegar siöast var lesiö af einum rafmagnsmæli hjá honum kom i ljós aö aðeins haföi veriö ey tt einu kgw. af rafmagni frá þvi siðast var lesiö af mælinum. Þegar svo reikningurinn kom hljóöaöi hann uppá 413 kr. fyrir þessa einu kgw. stund. Þó kostar hún sjálf ekki nema 9 kr. en þegar búiö var aö hlaða öllu ofaná, sem þar átti aö vera, var þessi eina kgw. stund komin uppi 413 kr. Þarna kom til mælaleiga, sölu- skattur og mörg önnur gjöld, sem varö til þess aö þetta eina kgw. var komið uppi 413 kr. _S.dór Arangur íslenskrar idnkynningar á fimm mánuöum 4,2 miljarða söluaukning, Mörg verkefni framundan í því að kynna íslenskan iðnað innanlands Stjórn Landssambands iðnverkafólks: Samningum sagt upp strax Hjá islenskum iönfyrir- tækjum, sem bæði starfa að framleiðslu og þjónustu hefur orðið 6% fram- leiðsluaukning á fyrstu fimm mánuðum i starfi „islenskrar iðnkynning- ar"/ og miðað við að heildarframleiðsluverð- mæti ísl. iðnaðar hafi num- ið um 70 miljörðum á árinu 1975 er um að ræða 4,2 miljarða aukningu. Má bæði beint og óbeint þakka þetta árangri þeirrar kynningarstarfsemi sem „Islensk iðnkynning" hefur beitt sér fyrir. Þessar upplýsingar og margar fleiri komu fram á blaðamanna- fundi meö verke.’nisráöi og fram- kvæmdastjóra „Islenskrar iön- kynningar, sem haldinn var I gær. Þar var og frá þvl skýrt aö frá þvi iðnkynningin hófst og til áramóta heföi veriö variö 14 miljónum til þessa og ætlaö væri aö verja 19-20 miljónum til iönkynningar fram til septemberloka þetta ár. Viö þessar tölur bætist siöan kostnaö- ur einstakra fyrirtækja, sem tek- Vara við ölinu Á fundi sinum I fyrradag sam- þykkti framkvæmdastjórn íþróttasambands Islands aö skora á Alþingi aö fella framkom- iö frumvarp um aö leyfa sölu á áfengum bjór. Framkvæmda- stjórnin telur aö framleiösla og sala á sterku öli sé einkum var- hugaverö unglingum og æsku- fólki. iö hafa þátt I sýningum iön- kynningar svo og kostnaöur bæjarfélaga. Framundan er aö halda dag iönaöarins á Sauöárkróki, Isa- firöi, Selfossi, Hellu, I tilefni 50 ára byggöarafmælis þess staöar og síöan i Reykjavik, og er gert ráö fyrir aö sá „dagur standi I allt aö viku”. Þá er ráögerö matvælakynning Framhald á bls. 18 tslenskur iönaöarmaöur aö störfum. Fundur i fullskipaöri stjórn Landssambands iönverkafóllcs, haldinn miövikudaginn 23.2. 1977, beindi þvi til aöildarfélaganna aö þau segi upp gildandi kjara- samningum, svo aö þeir renni út eigi siöar en 30. april, n.k., meö þaö aöallega fyrir augum aö vinna upp þá gifurlegu kjara- skeröingu, sem átt hefir sér staö undanfariö. I ályktun fundarins segir: „Tekur fundurinn undir þá kröfu er fram kemur I kjara- málaályktun siðasta A.S.l. þings, aö lágmarkslaun veröi ekki undir krónum eitt hundrað þúsund á mánuöi, tryggöum meö óskertri vlsitölu. Einnig aö fast veröi staö- iö á krónutölureglunni eins og hún er fram sett i áðurnefndri álykt- un. Þá vill fundurinn leggja sér- Framhald á bls. 18 Geimfararnir úr Saljút-5 lentir MOSKVU 25/2 — Sovésku geim-| fararnir tveir, sem dvalist höföu rúmar tvær vikur i geimrann-. sóknastööinni Saljút-5, lentu I dag heilu og höldnu norðaustur af Arkalyk I Kasakstan noröan- veröu, samkvæmt tilkynningu frá sovésku fréttastofunni Tass. Dvöl geimfaranna tveggja i rann- sóknastööinni úti i geimnum varö öllu skemmri en búist hafði verið; við. SVONA ER KJARASKERÐINGIN i Viö birtum i dag 25. dæmiö um kjaraskeröinguna siöustu þrjú ár. Dæmín sýna hversu miklu lengur en áöur verkamaður er nú aö vinna fyrir sama magni af vörum. — Við tökum eina vörutegund á dag. Upplýsingar um vöruveröiö höfum viö frá Hagstofu tslands en upplýsingar um kaupiö frá Verkamannafélaginu Dagsbrún, og er miöaö við byrjunarlaun samkvæmt 6. taxta Dagsbrúnar. 25. dœmi Mjólkurostur (45%) í smástykkjum, Verð: Kaup: Febrúarl974 ......kr.305,- kr. 166,30 Mai 1974..kr.376,- kr• 205,40 I dag, febrúar 1977.kr. 952,- kr. 414,80 NIÐURSTÖÐUR: 1. f febrúar 1974 (fyrir kjarasamningana þá) var verkamaður HOmínútur að vinna fyrir 1 kg. af 45% mjólkurosti. 2. i maí 1974 var verkamaður líka 110 mfnútur að vinna fyrir þessu sama magni af 45% mjólkurosti. 3. I dag, 26. febrúar 1977, er verkamaður hins vegar 138 minútur að vinna fyrir einu kílói af sams konar mjólkurosti. Vinnutiminn hefur lengst um 28 mínútur eða 25 - 26% hvort sem maður miðar við febrúar eða maí 1974. 45% mjólkurostur

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.