Þjóðviljinn - 17.07.1977, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 17.07.1977, Qupperneq 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. júll 1977 Marit Bockelie: Málshættir SAMA Mönnum til myndlistarhressingar á miðju sumri birtum við nokkrar svartlistarmyndir sem Marit Bockelie hefur gert um málshætti sama. Ekki fylgja myndum þessum upplýsingar um það, hvernig málshættirnir hljómi, en þær gefa allavega mjög þokkafulla hugmynd um ýmislegt það sem einkennir þjóðlif þessara granna okkar i Norðanverðri Skandinaviu. Alaska Framhald af bls. 4. eindatækjum, sjónvarpsskerm- um og tölvum, og sérstök eftir- litsstöð var byggð i Valdez til aö fylgjast með lögninni. Þannig átti að vera hægt að gripa inn i ef ein- hvers staðar kæmi i ljós bilun. Þetta tækniundur kostaöi átta miljarða dollara, og þurfti tuttugu þúsund verkamenn til að byggja það. Leiðslan var 1300 km löng og á henni voru fjölmargar dælistöðvar. Eftir fáeinar vikur streymir svo þessi heimskauts- olia inn á bandariskan markaö. Talið er aö hún geti gert banda- rikjamönnum kleift að minnka oliuinnflutning um fjóröung. En vegna þessa mikla tilkostnaðar og óralangs flutnings er mikil hætta á að þessi olia veröi mjög dýr; oliufélögin óttast jafnvel að hún verði tæplega samkeppnis- hæf á frjálsum markaði Banda- rikjanna. Það gæti þvi farið svo að oliufélögin fyndu enga oliu- kaupendur og yrðu að sitja uppi með miklar óseldar birgðir; — yrði það hlálegur endir á þessu ævintýri. Bilanir Hitt er svo annaö mál, hvort tæknibúnaðurinn allur reynist eins vel og til var ætlast, og hvort ekki kemur i ljós, að ótti um- hveríisverndunarmanna hafi við rök að styðjast. Bilunin, „sem ekki átti að geta oröið” i Ekofisk. hefur mjög dregið úr trú manna á þeirri tækni, sem á að fyrirbyggja öll slys; sumir álita jafnvel að helsti tilgangur hennar sé að friða almenningsálitið og svara rökum umhverfisverndarmanna. Það er þvi tæplega neitt undrunarefni aö þegar skuli hafa komiö i ljós bilanir á oliulögninni fyrstu vikurnar sem hún var starfrækt. Snemma i júli varð mikill oliuleki i leiðslunni, og þurfti þá aö stööva oliurennslið i 64 ti'ma. Viku siðar varð spreng- ing i einni dælustööinni, sex menn særðust og aftur þurfti að stöðva oliurennslið. (Byggt á Le Nouvel Observateur og Information.) TlS^ — — Geðdeild Landspítalans — (útboðsverk IV) Tilboð óskast i að fullgera B, C, X) og E álmur af húsi Geðdeildar Landspitalans, Reykjavík. Verktími er frá 1. sept. 1977 til 31. des. 1979. Verkinu er skipt i fimm verkhluta. Verktaki tekur við húsinu tilbúnu undir tréverk. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, frá þriðju- deginum 19. júli 1977 gegn 40.000.00 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 16. ágúst 1977, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 SUMARFERÐ ...Verkakvennafélagsins Framsóknar verður Iaugardaginn 6. ágúst. Farið verð- ur i Þjórsárdalinn og Sögualdarbærinn skoðaður. Kvöldverður að Flúðum. Áríðandi að tilkynna þátttöku sem fyrst til skrifstofunnar. Stjórnin. r Artúnshöföasamtökin Aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 19.7.1977 klukkan 16.00 i matstofu Miðfells h/f Funahöfða 7 Reykjavik. Auk aðalfundarstarfa verða umræður um bréf frá borgarstjóra. önnur mál. Mætið stundvíslega. Stjórnin. ÍBÚÐ ÓSKAST Barnlaust reglusamt par i framhaldsnámi óskar að taka 2ja-3ja herbergja Ibúð á leigu frá 1. ágúst. Leigutlmi minnst 1-2 ár. Einhver fyrirframgreiðsla möguleg. Vinsamlega hringið I sima: 40690. Innilegustu þakkir færum við ykkur öllum, sem á einn eða annan hátt vottuðu okkur samúð og vinarþel við andlát og jarðarför Björns Konráðs Sigurbjörnssonar, óðinsgötu 8a, fylgd til Selfoss, hjálpsemi og veitta virðingu þar og annarstaðar Dagbjört ólafsdóttir Jónina Björnsdóttir Leifur Björnsson Sigurbjörn Björnsson barnabörn og tengdabörn Ingþór Sigurbjörnsson. V--" — '

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.