Þjóðviljinn - 29.07.1977, Blaðsíða 1
UOmiUINN
Föstudagur 29. júli 1977 —42. árg. 162. tbi.
FARMANNASAMNINGARNIR:
íhaldstengslin
Þjóðviljinn á morgun: Tengsl stjórnar
Eimskips við Flugleiðir, ísal, Islenska
aðalverktaka, Shell, Sjóvá, Garðar Gisla-
son h.f., ísbjörninn, Sölumiðstöðina og
flokksvél Sjálfstæðisflokksins.
Hásetaverkfall yfirvofandi
Engar viðræður við matsveina
Það er biðstaða í deilum háseta og matsveina við
skipaútgerðina, og hafa engir fundir verið boðaðir.
Synir Reykjavíkur
á sólskinsdegi
í hvertsinner sésttilsólar liggja menn eins og
hráviði í sólbaði út um allan bæ. Þennan
föngulega pilt rákumst við á við Miklu-
brautina á fjórða sólardegi sumarsins. Fleiri
sóldýrkendamyndir eru á síðu 2 inni í blaðinu.
— Ljósm. —eik—
Sjá síðu 2
Bankastjóri ábyrgur
fyrir Hótel Heklu
Framsóknarflokkurinn gerir
þaö ekki endasleppt. Alltaf
verður eitthvað til þess að beina
athygli manna að fjármála-
umsvifum forystunnar. Nú sfðast
Hekla, áður Hótel Hof. Hótelið er i
eigu Húsbyggingasjóðs Fram-
sóknarflokksins, og hefur nú
komist i sviðsljósið vegna deilu
starfsmanna um skiptingu launa.
Þá kemur upp úr dúrnum, að for-
maður stjórnar sjóösins er
Hannes Pálsson, aðstoðarbanka-
stjóri Búnaðarbankans.
Um starfsemi Búnaðarbankans
gilda lög nr. 28 frá 1976. Þar segir
i 10. gr.:
„Ekki mega bankastjórar reka
sjálfir atvinnu, ekki vera i stjórn-
— stríðir
gegn lögum
Búnaðar-
bankans
um atvinnufyrirtækja eða hafa
með höndum önnur launuð störf
nema samþykki bankaráðsins
komi til.”
Hannes Pálsson er bankastjóri
við Búnaðarbankann. Þaö skiptir
engu máli að hann er aðstoðar-
bankastjóri, ábyrgð hans og
skyldur gagnvart bankaráðinu og
lögum þeim sem um bankann
gilda eru hinar sömu. Hann gerir
meira en að sitja i stjórn atvinnu-
fyrirtækis. ItnBh er formaður
stjórnar Húsbyggingasjóðsins,
sem á og rekur Hótel Heklu, þó að
daglegur rekstur sé i höndum
starfsfólks.
1 lögum um Bankaeftirlit segir
aö það skuli fylgjast með þvi að
innlánsstofnanir fylgi lögum og
reglum sem þar um eru settar á
hverjum tima. Það er þvi augljóst
að bankaeftirlitiö hefur hér verk
að vinna.
1 stjórn Húsbyggingasjóðs
Framsóknarflokksins eru Hannes
Hermangiö er gjöfult
íslenskir aðalverktakar grœddu 150
Samkvæmt nýframiagðri
skattskrá Reykjanesumdæmis
greiðir hermangsfyrirtækið ts-
lenskir aðalverktakar 110, 4
miljónir i gjöld samtals.
Þar af er tekjuskattur fyrir-
tækisins 66,7 miljónir. króna.
Þetta þýðir að nettohagnaður
fyrirtækisins á sfðasta ári hefur
verið 148,1 miljón króna.
tsl. Aðalverktakar greiða sið-
an um 26 miljónir i aöstööugjöld
til þriggja hreppa i umdæminu.
1 íslenskum Aðalverktökum
mætast eins og menn vita helstu
braskhagsmunir ihaldsins og
miljónir i fyrra
Framsóknar. Thorsararnir
ráða þarna lögum og lofum með
dyggum stuðningi SIS.
Það er ekki nema von að þeir
sem svona vel hagnast á hern-
um vilji hafa hann hér sem
iengst. en„.
Hannes Pálsson, aðstoðarbanka-
stjóri, formaður Húsbyggingar-
sjóðs Framsóknarflokksins, sem
á og rekur Hótel Heklu.
Pálsson, formaður, aðstoðar-
bankastjóri, Jón Aðalsteinn
Jónsson, kaupmaður, banka-
ráðsmaður i tJtvegsbankanum,
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri, bankaráðsmaður i
Landsbankanum, Tómas Arna-
son, gjaldkeri Framsóknar-
flokksins, Steingrimur
Hermannsson, ritari Fram--
sóknarflokksins, Guðný Laxdal,
kaupmaður, og Alvar óskarsson
starfsmaður fulltrúaráðs Fram-
sóknarfélaganr.a i Reykjavik.
A fundi háseta og útgerðar-
innar i fyrrinótt slitnaði upp úr
samningum og létu fulltrúar i
samninganefnd kaupskipaeig-
enda þung orð falla i garð háseta
af þvi tilefni, þótt vandi sé að
koma auga á að slikt flýti fyrir
samningum.
Það eina sem eftir er að semja
um i þeirri deilu eru beinar kaup-
kröfur hásetanna, en hásetar
telja sig vera orðna aftarlega á
merinni i þeim efnum.
1 deilu matsveina og skipaút-
gerðar hefur litið gerst undan-
farinn sólarhring, en eftir þvi sem
seinast fréttist voru menn að gera
sér vonir um að einhver hreyfing
færi að komast á viðræður
þessara aðila.
Það fer að styttast i verkfall ef
ekki verður samið næstu daga.
Hafa bæði matsveinar og hásetar
boðað verkfall frá 12 á miðnætti á
sunnudag ef samningar hafa ekki
tekist fyrir þann tfma.
Má þvi reikna með löngum og
ströngum fundum um helgina.
eng
Gœslan kannaöi afla
11 v-þýskra togara á
tveimur mánuðum
Tveir langt
yfir marki
Frá því 3. júni sl. hefur Land-
helgisgæslan fariö um borð I 11
vestur-þýska togara til þess að
kanna aflasamsetningu. 1
tveimur tiifelium hefur þorskur
verið langt fram úr eðlilegum
hiutföllum, miöað við það að ein-
ungis 12% af heildarafla V-
Þjóðverja hér við land má vera
þorskur.
Þröstur Sigtryggsson, skip-
herra hjá gæslunni, sagði i gær að
i fyrradag hefði verið fariö um
borð i fjóra togara út af Suð-
Austurlandi, 30-35 milur út af
Hvalsbak. Allir togararnir hefðu
verið með möskvastærð 155 mm
eða meira.
Togarinn Berlin BX 673 hefði
eftir lOdaga að veiðum verið með
93 tonn,23 af þorski 29,5 af grá-
lúðu, 32,5 af karfa, 8 tonn af ufsa
og hefði þvi 24,7% af aflanum
verið þorskur. Togararnir Geste-
miinde BX-760 og Husum Sk 102
hefðu verið með 5,4% og 9,6%
þorsk i sinum afla. Togarinn Karl
Wieber hafði verið 12 daga á
veiöum og var með 80 tonn af
blönduöum fiski óflokkuöum.
Varöskipsmenn fylgdust með hali
hjá honum og komu aðeins tveir
þorskar upp i þvi.
Afli togarans Gestemtínde var
kannaður i Berufjarðarál 3. júni
sl. eftir aö hann hafði verið 13
daga á veiðum reyndist aflasam-
setningin vera 65 tonn þorskur, 70
tonn karfi, 35 tonn ufsi og 10 tonn
Framhald á bls. 18.
Staldrað við í
Skaftafelli og i
Kerlingarfjöll-
um
Sjá siöur 8 til 11