Þjóðviljinn - 16.10.1977, Page 3
Sunnudagur 16. október 1977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Christian Barnard framdi fyrstu
aðgerðina og hlaut fyrir heims-
frægð
Vísindi og
samfélag
Það vakti mikla hrifn-
ingu fyrir tíu árum þegar
suðurafríski skurðlæknir-
inn Christian Barnard
græddi í fyrsta sinn nýtt
hjarta í dauðvona sjúkling/
kaupmanninn Louis
Washansky. Washansky
lifði í átján daga eftir að
aðgerðin var f ramin á hon-
um í desember 1967.
Ýmsir færir skurðlækn-
ar fetuðu í fótspor Barn-
ards, þungt haldnir hjarta-
sjúklingar fengu nýja von,
spádómar voru allir hinir
glæsilegustu. Nú segja
margir, að þessi bjartsýni
hafi verið amk tíu, ef ekki
tuttugu árum á undan tím-
anum.
Louis Washansky fékk manna
fyrstur nýtt hjarta — en hann lifði
aðeins átján daga eftir það.
Arið 1968 var reynt að græða
nýtt hjarta i 101 sjúkling. Af þeim
er aðeins einn enn á lifi. Einn af
þeim 47 sjúklingum er fengu nýtt
hjarta 1969 er á lifi, en þrir af
þeim sautján sem gengust undir
þessa róttæku aðgerð árið 1970.
Aðgerðum fækkar
Síðan hefur hjartaflutningum
heldur fækkað, en I fyrra var gerö
31 slik aðgerð i heiminum, þar af
21 i Bandarikjunum. Og margt er
i veginum fyrir framförum á
þessu sviði. Það gengur hægt að
láta þeim sjúklingum fjölga sem
lifa aðgerðina af lengur en i eitt
ár. ( Til dæmis lifir aðeins einn af
hverjum fimm sem fá nýtt hjarta
i Bandarikjunum svo lengi). í
öðru lagi gengur það hægt að
komast til botns i ástæðum fyrir
þvi, að mannslikaminn hafnar ut-
anaðkomandi liffæri og koma i
veg fyrir að þau virki. 1 þriöja
lagi eru nothæf lifandi hjörtu úr
nýlátnu fólki mjög fá.
Skynsamlegt að reyna
Adrian Kantrowitz heitir
bandariskur skurölæknir sem
framkvæmdi hjartaigræðslu að-
eins fjórum dögum eftir að Barn-
ard komst á forsiður heimsblaða.
1 nýlegu viðtali sagði hann sem
svo: Það var skynsamlegt að
reyna þetta, vegna þess að athug-
anir á rannsóknarstofum voru
komnar á visst stig, og við vissum
ekki, hvort neikvæð viöbrögð
Tfu árum eftir fyrstu aðgerð:
Vöktu hjartaf lutningar
of mikla
b j artsýni?
Það er ekkert að hinni verklegu framkvæmd. Erfiðleikarnir hefjast
siðar.
mannslikama við utanaðkomandi
vef myndu verða alvarlegri eða
auðveldari en viðbrögð hundslik-
ama. Og við vorum ekki einir á
ferð — kollegi minn Shumway
kom nokkrum vikum siðar til
dæmis. Það er einmitt oft þannig i
visindum að þegar timi er kominn
til að vinna ákveðið verk, þá er
það reynt á nokkrum stöðum i
einu eða svo gott sem.
Lyf eöa gervihjarta
En Kantrowitz hætti eftir þrjár
hjartatilfærslur. Af ýmsum
ástæðum.
Ég er skurðlæknir. Og það kom
á daginn, að vandinn við að gera
þessar aðgerðir útbreiddar var
ekki bundinn við skurðlækningar
heldur voru ljónin i veginum
ónæmisvandamál. Og hvorki ég
né samstarfsmenn minir hafa
neina sérstaka hæfileika til að
leysa þau mál.
Við vorum seigir við að leysa
verkleg vandamál segir
Kantrowitz ennfremur, en hann
hefur fundið upp hjartastilli og
„hálft” gerfihjarta. Hjartaflutn-
ingar voru i þann tima verkfræði-
legt vandamál: spurt var að þvi,
hvernig maður getur tekið hjarta
út úr kerfinu án þess að það
hrynji saman, sett annað hjarta I
staðinn og látið það starfa.
Kantrowitz telur rétt að menn
haldi áfram, einkum að einbeita
sér að þvi að rannsaka mögu-
leika á þvi að koma i veg fyrir að
likaminn hafni hinu nýja liffæri.
En hann ákvað að hætta sjálfur
eftir að hann komst að þeirri
niðurstöðu, að hann gæti ekki
neinu bætt sjálfur við þá reynslu
sem safnað hafði verið.
Sjálfur hefur hann mesta trú á
að það takist að búa til gerfi-
hjarta sem geri hjartaflutninga
ónauðsynlega. Hann hefur eina
slika hjartavél á vinnustofu sinni,
sem hefur „slegið” 220 miljón
sinnum siðan 1972. En þangað til
þessi maskina hefur verið endur-
bætt og fullkomnuð munu skurð-
læknar að likindum halda áfram
að græða mannshjörtu i likama
dauðvona hjartasjúklinga.
Skynsamleg bölsýni
Dr. Richard Lower við Lækna-
háskólann i Richmond, Virginiu,
er einn þeirra sem heldur áfram.
Fjórir af 18 sjúklingum sem hann
hefur grætt hjarta I siðan ’68
eru enn á lifi. Tveir af sex sem
fengu nýtt hjarta i fyrra og i ár.
Dr. Lower segir að hann og
félagar hans séu enn það sem
hann kallar „skynsamlega böl-
sýnir” á að þeim fjölgi sem lifa
aðgerðina af. Félagi hans , dr.
Thomas sem fæst sérstaklega við
hin róttæku viðbrögð likamans
við nýju liffæri segir sem svo:
Mestur vandi er að búa til lyf,
sem ræðst aðeins gegn þeim hluta
ónæmiskerfisins sem er virkastur
i þvi að hafna ágræddum vef — en
leyfir um leið öðrum hlutum
þessa sama kerfis að starfa
áfram svo að sjúklingurinn geti
varist smitandi sjúkdómum.
Til skamms tima hafa þau lyf
sem tiltæk voru haft þau áhrif, að
þau hafa lamað gjörvalt það kerfi
sem ver likamann gegn sýkingu.
Þetta þýddi, að þótt sjúklingurinn
ekki biði bana af þvi að likami
hans hafnaði hinu nýja hjarta, þá
dó hann af sýkingu. En 70-90% af
fólki með nýtt hjarta deyr einmitt
af afleiðingum einhverskonar
smits.
Er rétt að halda áfram?
Að visu virðist nú vera að rofa
til með það, að til verði lyf, sem
velur „réttan” hluta
ónæmiskerfisins til að ráðast á.
En samt spyrja menn sjálfa sig
að þvi, hvort árangurinn sé ekki
svo litill og óviss, að það sé vafa-
mál hvort nokkurt samfélag eigi
að láta ýmsa bestu sérfræðinga
sina eyða gifurlegum tima og
fjármunum i áframhaldandi
hjartaflutninga.
Robert Vatch heitir maður sér-
fróður um siðferðileg vandamál
visinda. Hann segir sem svo: Ef
ég ætti sjálfur við alvarlegan
hjartasjúkdóm að striða, þá
mundi ég persónulega vafalaust
velta fyrir mér möguleikum
igræðslu. En þegar litið er á mál-
ið i heild, þá efast ég mjög um að
hvetja ætti — eða jafnvel leyfa —
að sérþekking og fjármunir séu
notaðir með þessum hætti. Þeim
mætti verja betur.
—byggt á IHT)
Öryggis-
ráðstöfun
Lítið tæki en nytsamt, leka-
straumrofi kallast það; örugg-
asti varnarbúnaðurinn gegn
þvi að tjón, hætta og óþægindi
skapist af rafmagni.
Lekastraumrofi rýfur straum-
inn á stundinni ef það leiðir út.
Er hann i rafmagnstöflunni
hjá þér?
Sjálfsögð öryggisráðstöfun á
heimilum og vinnustöðum.
Forðist eldsvoða og slys.
Leitið nánari upplýsinga.
I
'RAFAFL
framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna
Skólavörðustig 19. Reykjavík
Símar 21700 2 80 22
Leggjum nýtt - lögum gamalt