Þjóðviljinn - 16.10.1977, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. október 1977.
Málgagn sósíalisma,
verkalýðshreyfingar
og þjóðfrelsis.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar
Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldssan.
Umsjón meö sunnudagsblaöi' Arni Berg-
mann
Auglýsingastjóri: úlfar Þormóösson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Siöumúla 6. Simi 81333.
Prentun: Blaöaprent hf.
Þetta eru 100
miljarðar
Á sunnudaginn var voru færð rök að þvi
hér i Þjóðviljanum, að með uppbyggingu
fiskistofnanna og bættri nýtingu sjávaraf-
urða ættum við Islendingar að geta aukið
útflutningstekjur okkar um 100 miljarða
króna á nokkrum árum, máski einum ára-
tug, en það samsvarar 2 miljónum króna á
hvert heimili i landinu.
Þessa tölu.100 miljarða.sundurliðum við
þannig:
1. Botnfiskafla telja fiskifræðingar að
hægt sé án rányrkju að tvöfalda á
nokkrum árum, sé rétt á málum haldið.
Slik aukning botnfiskafla þýðir nýja 50
miljarða i útflutningsverðmæti, þótt
ekki sé að neinu leyti reiknað með
bættri nýtingu aflans, og verðlag á er-
lendum mörkuðum áætlað óbreytt.
2. Loðnuaflann telja fiskifræðingar unnt
að þrefalda frá afla siðasta árs á
skömmum tima án rányrkju, — fyrst og
fremst með þvi að bæta aðstöðuna til
móttöku og vinnslu i landi. Slik afla-
aukning á loðnuveiðum ætti að geta gef-
ið nýja 20 miljarða i útflutningsverð-
mæti. Er þá gert ráð fyrir að verulegur
hluti aflaaukningarinnar verði á sumar-
og haustveiðum, en þá er loðnan verð-
mætust. Hins vegar er ekki reiknað með
bættri nýtingu eða úrvinnslu frá þvi sem
nú er.
3. Fiskifræðingar telja að innan fárra ára
ætti að vera mögulegt að veiða hér 80
þús. tonn af sild án rányrkju. Væri slikt
sildarmagn lagt niður i dósir og selt
þannig úr landi væri útflutningsverð-
mætið um 17 miljarðar króna. Við leyf-
um okkur ekki svo mikla bjartsýni að
þetta tækist að fullu i bráð,og valda þar
markaðsvandamál, sem finna þarf
lausn á, — en við teljum mjög varlegt að
áætla að sildin gæti gefið okkur 5 milj-
arða.
4. Við eigum sem kunnugt er ákaflega
marga möguleika til að bæta nýtingu og
úrvinnslu aflans, þvi eins og málum er
háttað nú er alltof algengt að við flytj-
um út litt. unna vöru. Við leyfum okkur
að halda þvi fram, að með skipulögðu
átaki til að bæta nýtingu og úrvinnslu
ætti á nokkrum árum að vera hægt að
auka útflutningsverðmæti loðnu- og
botnfiskafla á hvert landað tonn um
20%. — Þetta þýðir um 25 miljarða i
aukið útflutningsverðmæti, og er þá
gert ráð fyrir þeirri aflaaukningu, sem
miðað var við hér að framan.
— Þarna eru þá komnir, þessir 100 milj-
arðar, sem tala$ var um hér i byrjun, en
það samsvarar tveimur miljónum króna á
hvert heimili i landinu, og er jafnhá upp-
hæð og Þjóðhagsstofnun áætlar nú verð-
mæti alls vöruútflutnings okkar á þessu
ári.
Þvi fer þó viðs fjarri, að hér hafi verið
taldir upp allir þeir möguleikar, sem við
eigum i sjávarútvegi og hvað varðar úr-
vinnslu sjávarafla. Hér hefur aðeins verið
rætt um botnfiska, loðnu og sild, en öllu
öðru sleppt, — þar á meðal kolmunna og
krabbadýrum. Þvi siður hafa hér verið
teknir með i dæmið þeir miklu fram-
leiðslumöguleikar, sem við eigum á vett-
vangi annars iðnaðar en fiskiðnaðar, m.a.
i tengslum við landbúnaðinn.
Til hvers er Þjóðviljinn að rifja þetta
upp, kann einhver að spyrja.
Svarið er þetta: — Við teljum nauðsyn-
legt að allur almenningur geri sér ljóst,
hversu fjarri þvi fer, að atvinnuvegir okk-
ar íslendinga séu óhjákvæmilega að kom-
ast i þrot.
í fyrsta lagi teljum við slikt nauðsyn-
legt, til að fólk skilji að enginn nauður rek-
ur okkur i fang fjölþjóðlegra auðhringa.
í öðru lagi teljum við slikt nauðsynlegt
svo að verkafólk og öll vinnandi alþýða
geri sér ljóst, að á komandi árum ætti
þjóðarbúskapur okkar að geta staðið und-
ir mun betri lifskjörum en almenningur
býr við nú, og þvi engin ástæða til að láta
deigan siga i kjarabaráttu láglaunafólks.
í þriðja lagi teljum við skylt að vekja at-
hygli á þeim miklu möguleikum, sem við
blasa, i þvi skyni að undirstrika mikilvægi
réttrar stefnu i islenskum atvinnumálum
á næstu árum. Auðvitað næst ekki ýkja
mikill árangur, nema unnið sé markvisst
og skipulega að skynsamlegri atvinnu-
uppbyggingu. Og vart þarf að taka fram,
að uppskeran verður sjaldan mikil, ef
byrjað er á þvi að éta upp útsæðið. Þar
gilda sömu lögmál bæði á sjó og landi.
— k.
Lif i læknis hendi
Herra Emsworth sagöi aö hér
væri ekki um þaö dæmi aö ræöa
aö tiltekinn maöur væri flæktur i
venjulegar hiröuleysisathafnir.
Hann lýsti athöfnum dr. Wests,
sem haf öi fariö meö riffil til húss
skurölæknisins, hlaöiö hann og
skotiö dr. Thompson i bakiö meö
þeim afleiöingum aö hinn siöar-
nefndi lést svo til samstundis.
Sú staöreynd sem athuga þurfti
var, sagöi hr. Emsworth hvort
svona hegöun væri sæmandi
manni f læknastétt.
Chrislchurch Press (Nýja
Sjáland)
Vfsindin efla alla dáð
Rannsóknastarfshópur i
Michigan, sem hefur einbeitt sér
aö þvf aö komast aö þvf í hvaöa
átt svinsrófur snúast, hefur kom-
ist aö þvi, aö 50% svinsrófna
hringsnúast eins og klukkuvisar,
17,8% snúast gegn klukkuvisum
og 31,3% snúast i báöar áttir.
Useless Information eftiir P.
Steiner.
Dagana 1. til 10. nóvember n.k.
veröur haldiö námskeiö um út-
reikninga og hönnun stein-
steypuvirkja fyrir starfandi verk-
fræöinga, tæknifræöinga og nem-
endur á siöasta námsári i bygg-
ingarverkfræöi.
Verkfræöiskor Háskóla islands
stendur fyrir þessu námskeiöi I
samráöi og samvinnu viö Verk-
fræöingafélag islands, og hef-
ur fengiö Ervin Poulsen,
ingeniördocent, viö dönsku verk-
fræöiakademiuna f Kaupmanna-
höfn, Danmarks Ingeniöraka-
Mengjavandamál?
Satt best aö segja höföu tölur
mjög truflandi áhrif á Dick
Rutkowski. Hann gat blátt áfram
ekki taliö.
Þegar hann var handtekinn i
Carson City 1 Nevada fyrir aö
gefa út of mikiö af gúmitékkum
demi, tiiþess aöflytja fyrirlestra
og skipuleggja æfingar fyrir þátt-
takendur f námskeiöinu.
Tilgangur meö þessu námskeiöi
er tviþættur. Annars vegar aö
kynna þátttakendum helstu
fræöilegar nýjungar á sviöi stein-
steypuútreikninga og hins vegar
aö kynna nýjustu staöla og hönn-
unaraöferöir, sem nú ryöja sér til
rúms, einkum gegnum starfsemi
CEB.
Július Sólnes, prófessor, hefur
skipulagt námskeiöiö og veröur
jafnframt Ervin Poulsen til aö-
komst lögreglan aö þvi, aö hann
átti einni konu meira en hann
haföi rétt til.
— Spyrjiö mig ekki aö þvi
hvernig þetta geröist, sagöi hann.
Allt og sumt sem ég veit er aö ég
vaknaöi einn morgun og þarna
var hún, aukakonan
Daily Express.
stoöar. Veitir hann frekari upp-
lýsingar um námskeiöiö (simi
25088).
Væntanlegir þátttakendur eru
beönir um aö tilkynna þátttöku
sina i námskeiöinu til skrifstofu
Verkfræöingafélags Islands, simi
19717, sem fyrst. Fjöldi þátttak-
enda er takmarkaöurviö 40, og er
þvi árlöandi aö láta skrá þátttöku
sina og greiöa þátttökugjald, kr.
10.000,- til skrifstofu VFl, Braut-
arholti 20, Reykjavik —•
(Fréttatilkynning).
Ekki mun af veita
Forseti borgarráös, meölimir
ráösins og starfsmenn ásamt
konum þeirra hlýddu á guösþjón-
ustu i Mikkjálskirkju sunnudag-
inn 26. júni.
Sókarprestur messaöi og eins
og venja er til leit hann á borgar-
ráö og baö fyrir borginni.
Kirkjutimarit
Menningarneyslubilun
Herra ritstjóri. Spurningin er:
hve gaumgæfilega les fólk þaö
sem þaö eraö lesa? Spurningin er
borinfram vegna reynslu sem viö
höfum nýskeö oröiö fyrir. Eintak
af góöri skáldsögu var lagt fyrir
menn og þaö var ekki fyrr en hún
var komin I hendur þrettánda les-
andans aö eftir þvi var tekiö aö
hluta úr allt annarri bók haföi
veriö skotiö inn I skáldsöguna.
Þetta var beim mun undarlegra
sem svo vildi til aö þar sem þetta
innskot var bundiö inn, hætti
setning I miöjum kliöum en fyrsta
blaösiöan úr innskotsbókinni
byrjaöi á nýjum kafla. Persónur
og umhverfi voru einnig allt önn-
ur.
Yöar einlægur
C.R. Edgeley, forstjóri The
Times Book Company Ltd.
The Times.
Stjórnarskrá er þarfa-
þing
Robert Popejoy, átján ára aö
aldri var sektaöur um sjö dollara
fyrir aö fá sérbita af hamborgara
ókunnugs manna i Oklahoma.
City. Dómarinn komst svo aö
oröi:
— Þaö er eölislægur réttur
hvers manns aö njóta hamborg-
arans sins i friöi, einkum fyrir
þaö verö sem nú er á þeim.
BÍaö i Oklahoma
Mannfræði
Tvær hollenskar stúlkur munu
reyna aö sanna þaö fyrir rétti I
Haag, aö þær séu umskiptingar.
Hafi veriö skipt á þeim fyrir 23
árum. Stúlkurnar sem báöar eru
nú giftar konur, ætla aö stefna
foreldrum hvorrar annarrar, eöa
eigin meintum foreldrum og
leggja fram kröfu um lögmæta
viöurkenningu réttra foreldra.
Stúlkurnar fæddust meö fimm
mirnltna millibili I sjúkrahúsi i
Leyden sjöunda desember 1038.
önnur þeirra var alin upp sem
Lena Alberta van Duyn, dóttir
landbúnaöarverkamanns og skirö
til Hollensku mótmælenda-
kirkjunnar. Hin var nefnd Aad af
van Vegten fjölskyldunni sem lét
skira hana til kaþólskrar trúar og
ól hana upp meö þrettán öörum
börnum sinum.
Stúlkurnarhittust í fyrsta sinn I
brúökaupi fyrr á þessu ári. Þær
voru furöu slegnar yfir þvi hve
hvor þeirra um sig reyndist likj-
ast \ útliti fjöskyldu hinnar.
Evening Standard.
NÁMSKEIÐ í STEINSTEYPU