Þjóðviljinn - 27.11.1977, Page 5
Sunnudagur 27. növember 1977 WÓÐVILJINN — SIÐA S
af er/endum vetivangi
„Kóraninn eina
leiðsögn okkar”
Senúda þriöji, patriarki kop-
tisku kirkjunnar i Egyptaiandi,
hélt fyrir skömmu föstu i
Markúsardómkirkjunni i Kairó
44 biskupar kirkjunnar tóku þátt i
föstunni meö honum. Patrfarkinn
virtist þreyttur og niöurdreginn.
Koptiska kirkjan, sem þorri
Egypta aöhylltist áöur en Arabar
lögöu landiö undir sig á sjöundu
öld, er ennþá fjölmenn, þótt
margt hafi yfir hana gengiö
gegnum aldirnar. Taliö er aö um
sex miljónir manna heyri henni
ennþá til. En nú óttast egypsku
koptarnir aö válegir atburöir
kunni aö vera i vændum fyrir þá.
Dauöarefsing fyrir
að kasta trú
Rikisstjórn og þing Egypta-
lands hafa undanfariö haft til
umræöu aö gera lögmál Kórans-
ins, bibliu Múhameðstrúar-
manna, aö landslögum. Meöal
annars hefur verið upp á þvi
stungiö aö hver sá, sem kasti
Múhameðstrú, skuli engu fyrir
týna nema lifinu.
„Sósialismi er vantrú.” „Tak-
markanir fæðinga eru villutrú.”
Setningar eins og þessar heyrast
nú oft i prédikunum
Kiúhameðskra trúarleiötoga i
Egyptglandi. Eitt helsta blaö
landsins-, Al-Akbar, fagnaði falli
Indiru Gandhi i Indlandi sérstak-
lega vegna þess, að óviöeigandi
væri aö konur færu meö völd.
Enn lengra ganga strangtrúar-
söfnuðir eins og Iðrunar- og aftar*
hvarfsfélagið svokallaöa, sem
varpa sprengjum inn i kvik-
myndahús og myröa stjórnmála-
menn, sem ekki þykja nógu sterk-
ir i trúnni.
Hvarvetna um hinn múha-
meöska heim á sér staö trúarleg
vakning, sem á sér margar miöur
skemmtilegar hliöar.
„Framvegis munum viö hlita
íeiðsögn Kóransins,” sagöi Zia ul-
Hak hershöföingi, eftir aö hann
steypti stjórn Alis Bhutto I Pak-
istan af stóli meö valdaráni i júli.
Hershöföingi þessi, sem kvaft
vera mjög strangtrúaöur, inn-
leiddi i réttarfar Pakistans
Sjarla, þaö er aö segja réttar-
reglur samkvæmt erföavenjum
Islams. í samræmi viö þaö var
fariö aö refsa spilltum embættis-
mönnum með opinberri hýöingu,
en þaö haföi ekki skeö i manna
minnum þar ( landi.
Olíudollarar —
áhrifamikið
trúboðstæki
1 Máritaniu á Atlantshafsströnd
stjórnaöi landsfaöirinn, úld
Dadda, fyrstu ráðstefnu múha-
meöska trúboöa i Afriku. 1
Malasiu hafa samtök Múhameös-
trúarmanna krafist þess, aö ara-
biskt letur veröi tekiö upp. 1
Tyrklandi krefst svonefndur
Hjálpræöisflokkur þess, aö allar
leikmannaumbætur frá þvi i tiö
Atattirks verði afnumdar.
Þessi nýja alda Múhameös-
trúar ris einnig á Vesturlöndum. í
Westend i Lundúnum hefur mikil
og skrautleg moska veriö reist.
Margir svartir Bandarikjamenn,
aö sögn svo skiptir hundruöum
þúsunda, hafa snúist til Múha-
meðstrúar að dæmi hnefaleika-
meistarans Muhammad Ali.
Saúdiarabiskt timarit segir, aö
koma veröi þvi I kring aö „einnig
ameriska meginlandiö snúist til
réttrar trúar.”
Olludollararnir skipta miklu
máli við útbreiöslu Múhameös-
trúar. Þess gætir i Sómalilandi,
múhameösku landi frá fornu fari,
en sem fyrir nokkrum árum
snerist til sósialisma. Nú eru
Sómalir komnir upp á kant viö
Menn eru hýddir opinberlega fyrir að drekka
bjór, handhöggnir fyrir stuld og geta jafnvei átt á
hættu að missa höfuðið, ef þeir kasta trúnni. Margjr
Múhameðstrúarmenn hafa af ýmsum ástæðum
fyllst aukinni andúð á vestrænum siðum og halla sér
aftur að 13 alda gömium reglum trúarbragða sinna.
Sadat: hlkar vift aft gera Kóran-
inn aft laadalftgam.
Gaddafl LtbfaferaeU: olfadalir
eru sterk rftksemd.
Aftaka I Jemen: „syndin” skal upprætt meö forneskjulegri grimmd.
Sovétmenn og þiggja mikla
aðstoö frá Saúdi-Arabiu. í
Kartúm, höfuðborg Súdans, hefur
vændishúsum veriö lokaö vegna
saúdiarabiskra áhrifa.
Libia er ekki síður strang-
múhameðsk, enda þótt ráöa-
menn þess lands telji sig ólikt rót-
tækari en valdhafa Saúdi-Arabiu,
og Kaddafi Libiuleiötogi beitir
lika sinum oliudollurum til út-
breiðslu trúarinnar. Fyrir sex
árum lét hann loka öllum kirkjum
kristinna manna i landinu. Tveir
afriskir þjóðarleiðtogar Bongo I
Gabon og Bokassa keisari i Miö-
Afriku, sem uppaldir voru i
kaþósku, turnuöust til Múha-
meöstrúar I von um efnahags-
aöstoö frá Libiu. Bokassa snerist
aö visu aftur til kaþólskunnar,
þegar honum þótti Kaddafi ekki
eins rausnarlegur og hann haföi
átt von á.
1 þvi sósialiska lýöveldi Suöur-
Jemen, þar sem menn voru um
skeiö tómlátir um trúmál, er nú
aftur boöiö upp á múhameösk rit
— enda fær rikiö nú drjúgan
skilding frá oliurikinu Kúvæt.
Kristnin — trúar-
brögð nýlendukúgara
Þessi endurreisn Múhameös-
trúar er þó ekki oliufénu einu aö
þakka. Þessi þróun hófst þegar aö
lokinni siöari heimsstyrjöld.
Þegar Evrópurikin uröu aö
sleppa nýlendum sinum i Afriku
og Asiu, þar á meðal i Arabalönd-
um, kom i ljós aö menn þar litu
almennt á kristnina sem trú kúg-
aranna frá Evrópu og kristni-
boöar voru litnir sömu augum og
stjórnsýslumenn og kauphöldar
frá sömu löndum. Kristniboö-
arnir voru sakaöir um aö reyna
aö eyöileggja menningu hinna
hörundsdökku þjóöa, og var sú
ásökun ekki rakalaus meö öllu.
Afturhvarfiö til Múhameöstrúar
varð hjá allmörgum liöur i leit aö
eigin þjóölegum verömætum.
Frelsishreyfing Alsírmanna háöi
i átta ár striö gegn Frakklandi
undir hálfmánamerkinu. 1
sumujn nýju rikjanna var reynt
að nota Múhameöstrúna til aö
brúa bilið milli ólikra og sundur-
þykkra þjóöa og þjóöflokka.
Stjórnir Alsirs og Marokkó
reyndu þannig aö hafa hemil á
Berbum, sem voru meö sjálfs-
stjórnartilhneigingar, og hiö
sama reyndi Iraksstjórn viö
Kúrda, en meö litlum árangri. 1
nýjum afriskum rikjum eins og
Mali og Máretaniu varö
Múhameöstrúin þjóölegt samein-
ingartákn, en i báöum þessum
rikjum búa nokkrir þjóöflokkar.
Barátta gegn fátækt og vanþróun
var einnig háö i nafni Múhameös
spámanns.
Þaft allra helgasta I Mekka: vaxandl Ahril Sddl-Arahfn
Heimsveldi
i fjármálum
Sósialismi og Múhameöstrú
voru lengi kallaöar andstæöur.
En svo er ekki lengur allsstaöar.
Ráöamenn i Alsir og Egypta-
landi, svo og Bhutto i Pakistan og
Kaddafi i Libiu voru i engum
vandræðum meö að finna i
Kóraninum greinar, sem vanda-
laust var aö túlka sem boðorö um
sósialisma. Aörir strangtrúar-
menn beittu sér harkalega gegn
þessu, svo sem Múslimbræður,
egypskt leynifélag, sem barðist
gegn stjórn Nassers meö undir-
róðri og sprengjutilræöum.
Nasser svaraði með þvi aö loka
fólk þetta þúsundum saman inni i
einangrunarfangabúöum, þar
sem margt af þvi sætti pynd-
ingum. En þaö fékk griðland og
peninga i Saúdi-Arabiu.
Þetta eyöimerkurland, sem er i
krafti oliunnar orðið heimsveldi i
fjármálum, hefur sérlega sterka
stööu I múhameöska heiminum
vegna þess, að þaö er vagga
trúarinnar sjálfrar. A hverju ári
koma miljónir manna sem pila-
grimar til Mekku, helgustu
borgar Islams. Pilagrimsför til
Mekku er eitt af fimm atriðum,
sem allir sanntrúaöir Múhameös-
trúarmenn veröa aö hlita. Hin
fjögur atriði eru: Aö viöurkenna
Alla sem hinn eina guö, biöjast
fyrir daglega, gefa ölmusur og
fasta.
Hýðing fyrir að
kyssast
1 Saúdi-Arabiu og nokkrum
smárikjum á Arabiuskaga er
Kóraninn ekki einungis biblia,
heldur lögbók. Þar eru þjófar
handhöggnir, fyrir hjúskaparbrot
mega menn eiga von á aö veröa
grýttir, morðingjar eru háls-
höggnir opinberlega og vinstri-
menn ofsóttir sem guölastarar. 1
réttarfari þessara landa hafa
engar framfarir orðiö frá upphafi
trúarinnar fyrir 13 öldum.
Úlemarnir, sérfræðingar i
réttarreglum Kóransins, kenna
Vesturlöndum um allt iilt, sem
gengur yfir lönd Islams, valda-
rán, borgarastriö, áframhaldandi
neyö almennings, ásókn i bila og
sjónvarp og ferðir til Vestur-
landa, þar sem hvorki er bannað
áfengi né vændi. „Vesturlönd
hafa ekki fært okkur annaö en
synd og óhamingju,” segja þessir
skriftlæröu. Og stjórnmálamenn
taka gjarnan undir þaö — til að
beina reiði þegnanna frá sjálfum
sér. Margar stjórnir reyna nú
meö miskunnarlausum reglum
Kóransins aö halda þegnunum
undir aga. 1 einu Persaflóarikinu
var leigubilstjóri hýddur fyrir aö
hafa spilað kasettu meö „siö-
spillandi söngvum” fyrir far-
þegana og sömu hegningu fékk
ungt par, sem sést haföi kyssast á
baðströnd. Útlendingar sleppa
ekki heldur. Þýsk stúlka, sem
nauðgað haföi veriö af tveimur
Saúdi-Aröbum, fékk 20 svipuhögg
fyrir að hafa veri klædd á ögrandi
hátt.
Sprengjuhótanir
Vestrænum siöum á aö útrýma.
Boumedienne, rikisleiötogi Alsir,
hefur afnumiö sunnudaginn sem
fridag, en það haföi sá dagur
veriö frá þvi I tiö Frakka þar i
landi. Hann hefur einnig tekiö á
ný upp hiö gamla timatal
Múhameöstrúarmanna, það er aö
segja aö miöa upphaf timatalsins
viö Hidsjra, flótta Múhameös
spámanns frá Mekku til Medinu
áriö 622. Vestrænir kvikmynda-
framleiöendur, sem gera vilja
kvikmyndir um Múhameö, eiga
ekki sjö dagana sæla, þvi aö
Múhameðstrúarmenn telja þaö
argasta guölast aö sýna spá-
manninn á mynd. öfgamenn hóta
aö sprengja i loft upp þau kvik-
myndahús, sem dirfist aö sýna
kvikmyndir af spámanninum.
Meöal Múhameöstrúarmanna
eru aö visu hófsemdarmenn, sem
mótmæla öfgunum, og þeir hafa
viöa áhrif. Þeir benda til dæmis á,
aö gagnkvæmt trúarofstæki
Múhameöstrúarmanna og krist-
inna manna f Libanon hafi átt
drjúganþátt i borgarastriðinu þar
I landi, sem enn er ekki fyllilega
séö fyrir endann á. 1 Pakistan
tókst þeim llka aö draga úr opin-
berum hýöingum meö þvi aö
benda á aö þaö heföu i rauninni
ekki verið múhameöskir lands-
menn, sem fyrstir innleiddu þann
siö, heldur bresku nýlenduherr-
arnir. Og i Egyptalandi kvaö
Sadat — sem leggur mikið upp úr
þvi aö hafa vináttu Vesturlanda
— hafa i bili stöövaö umræöurnar
um aö innleiöa réttarreglur Kór-
ansins sem landslög. Hann hefur
meira aö segja variö fjárfúlgu
mikilli til byggingar sjúkrahúss á
vegum kopta.
(Byggt á Der Spiegel, dþ)