Þjóðviljinn - 14.01.1978, Síða 1
DIOÐVIUINN
Laugardagur 14. janúar 1978 — 43. árg.í^. tbl.
Dagblöðin hækka
Lausasöluverð 90 kr. frá sunnudeginum
Frá og með 15. þessa mánaðar tekur gildi hækkun á áskriftar-
verði og þjónustu dagblaðanna.
Áskriftarverðið verður 1.700 kr. á mánuði og þvf innheimt kr.
1.600 fyrir áskriftina i janúar. 1 lausasölu mun hvert blað kosta
90 kr. frá sunnudeginum en grunnverð auglýsinga verður 120 kr.
dálksentimeterjnn.
leggur
úr höfn á hádegi
RÓA UPPÁ LOFORÐ
Garðar Valdimarsson.
Er hægt að
híndra
skattsvindl?
Garðar Valdimarsson: 500
mál frá þvi ég tók við emb-
ætti. Skattahækkanir upp á
80—90 miljónir króna I um 80
málum sem úrskurðuð hafa
verið.
SJÁ 8. SÍÐU
Jéa Armann: Ekkl búinn aft
leggja árar I bát.
Jón Ármann
er enn I
framboðs-
hug-
leiðingum
t viðtali við Þjóðviljann i
dag segir Jón Ármann
Héðinsson, alþingismaður
m.a., uin framboðshug-
leiðingar sinar:
„Sé ekki hljómgrunnur
fyrir minu starfi i Alþýöu-
flokknum, en hins vegar
sterkur hljómgrunnur meðal
einhverra annarra manna,
kann svo að fara aö ég hug-
leiði, eða við fleir'i., að upp-
fylla slíkar óskir.” Jón
Ármann segist ekki skilja þá
yfirlýsingu að „siðbótamenn
hafi sigrað i flokknum” i
prófkjörinu sem viða hefur
fariö fram á vegum Alþýðu-
flokksins og mótmælir hann
svona orðatiltæki sem
„upphrópunarkjaftæði”.
SJA 13. SIÐU
Gífurleg óánægja kom fram á fundlnum
á Akureyri í gær
500 loðnusjómenn gerðu i
gærkvöldi eftir 4 tima langan
fund samþykkt i átta liðum sem
m.a. fól i sér aö ákveðið var að
halda til veiða á hádegi i dag i
trausti þess loforös forsætisráð-
herra að grundvöllur loðnuverðs-
ákvörðunar, aðallega vinnslu-
kostnaður fiskim jölsverk-
smiðjanna og reksturskostnaður
skipanna, yrði endurskoðaður
fyrir næstu veröákvörðun 15.
febrúar. t samþykktinni er m.a.
lagt til að fulltrúar sjómanna og
útgerðarmanna fari til nágranna-
landa að kynna sér rekstur fiski-
mjölsverksmiðja. Jafnframt er
lagt tilað við næstu verðákvöröun
verði einungis miðað við vel
reknar verksmiðjur á tslandi.
Miklar umræður urðu á
Akureyrarfundinum og var
auðheyrt að hásetar vildu
almennt halda stöðvuninni áfram
en 2—3 skipstjórar létu á sér
skilja að þeir ætluöu út og þegar
sú óvissa var upp komin var fall-
ist á þá málamiðlun sem
samþykkt tillagnanna felur i sér.
Tveir skipstjóranna sem voru
sendir á fund forsætisráðherra,
þeir Magni Kristjánsson á Berki
NK og Björn Þorfinnsson á Fifli
GK sögðust i gær vera ánægðir
með niðurstöðu fundarins og
töldu hana og innsiglinguna koma
loðnusjómönnum til góða i
framtiðinni. Björgvin Gunnars-
son, skipstjóri á Grindvikingi GK,
var hins vegar ekki ánægður, en
ekki viss um að önnur betri lausn
hefði verið i sjónmáli úr þvi ekki
var hægt að breyta lögunum.
Er þeir þremenningar gerðu
grein fyrir suðurför sinni kom
fram að Ólafur Daviðsson, odda-
maður yfirnefndar, heföi viður-
kennt að vanþekkingar gætti i
mati sinu á einstökum liðum við-
miðunargrundvallarins.
A fundinum á Akureyri voru
auk þess samþykktar tillögur um
að samtök sjómanna og L.i.ú.
beiti sér fyrir þvi að þingmenn úr
öllum flokkum flytji frumvarp
strax eftir þinghlé um nýtt loðnu-
verð sem gildi aftur fyrir sig til
áramóta. Jafnframt var
samþykkt tillaga um að
sjómannasamtökin beiti sér fyrir
þvi aö loðnuveiðisjómenn fái
greittfyrir löndun. — S.dór/e.k.h.
Sjá samþykkt slðu 15
Víkjaþau?
Þessi húsaröð á að vikja fyrir
glerhallarskipulagi borgar-
stjórnarmeirihluta ns i
Reykjavik. Timinn hefur rýmt
afgreiðslu sína' sem var I hús-
inu fremst á myndinni og á
baksiðu blaðsins i dag er rætt
við ibúa I „Hótel Vik”, sem
einnig eiga að vikja.
Sjá baksiðu
Búnaðarbankinn fær kauptilboð í Votmúla:
Viljum ekkert pukur
Segir oddvitinn í Sandvíkurhreppi, en
bankastjórinn vill engar upplýsingar gefa
Eins og marga rekur ef-
laust minni tiL stóð mikill
styrr um jörðina Votmúla í
Sandvíkurhreppi á sínum
tíma. Hreppsnefnd Selfoss
samþykkti fyrir nokkrum
árum að kaupa jörðina á 30
miljónir króna, en vegna
almennra mótmæla íbúa á
Selfossi var fallið frá
þeirri ákvörðun.
Búnaðarbankinn eignaðist
siðan þessa umdeildu jörð vegna
skulda eigandans og hefur verib
tiltölulega hljótt um Votmúlann
siðan. Nú hefur það hinsvegar
gerst, aö bankinn hefur fengið
kauptilboð i jörðina og fékk
hreppsnefnd Sandvikurhrepps
bréf þar að lútandi frá bankan-
um, dagsett 28. desember sl.
Viröist svo, aö nú eigi að pukra
með sölu Votmúlans, þvl Stefán
Hilmarsson bankastjóri i Bún-
aðarbankanum var ófáanlegur til
að láta blaöinu nokkrar upplýs-
ingar i té um sölu jarðarinnar.
Hann sagöi, að málið væri i deigl-
unni og ófrágengið enn. Hrepps-
nefnd Sandvikurhrepps ætti eftir
að fjalla um málið og einnig
jarðanefnd. Stefán sagöi, að mál-
ið hefði ekki komið fyrir banka-
ráð.
Páll Lýðsson oddviti Sand-
vikurhrepps sagðist hinsvegar
hafa bréf upp á það, aö bankaráð
Búnaöarbankans hefði fjallað um
málið og samþykkt kauptilboðið.
Páll sagði, að sá þrjátiu daga
frestur, sem hreppsnefndin hefur
samkvæmt Jaröalögum vegna
forkaupsréttar, yröi örugglega
nýttur til fulls. Sá frestur veröur
útrunninn 28. janúar. Páll sagðist
telja að bankanum bæri fyrst og
fremst upplýsingaskylda um
Hvaða dropi er arrí
5. janúar birti
Þjóðviljinn f aít með
fyrirsögninni „Ég er svo
ARRI", þar sem greint
var frá því er einn
hluthafa í Dropa hf.
hringdi í fréttamann
Þjóðviljans. Formaður
stjórnar Dropa hf. er
fyrrverandi yfirmaður
ábyrgöardeildar Lands-
bankans, Haukur Heiðar.
t gær barst svo Þjóöviljanum
athugasemd frá þessu huldu-
fyrirtæki, Dropa hf. Reyndist
það vera til húsa að Suöurlands-
braut 14, þar sem einn
hluthafanna hefur atvinnu-
rekstur. I athugasemdinni
sverja fimm hluthafanna það af
a
ser aft hafa hringt i frettamana
Þjóðviljans og liggur greinilega
mikið við að koma þeirri yfir-
lýsingu á framfæri.
Yfirlýsingin er svona:
„Vegna greinar I 3. tbl.
Þjóöviljans á öftustu slöu, frá 5.
janúar 1978 með yfirskriftinni
,,Ég er svo ARRI”, svo og i
sambandi við grein Svarthöfða I
5. tbl. Visis á bls. 2, frá 6. janúar
þetta kauptilboð. Hann sagðist
telja, að I þessu máli ætti ekkert
pukur að vera, og vildu bændur
ekki aö sllkt viögengist I þeirra
banka.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér, eru það
nokkrir fasteignasalar og hrossa-
kóngar úr Reykjavik, sem gert
hafa tilboö I Votmúla, og er veröiö
þeim hagstætt og útborganir með
óvenju góðum kjörum.
Agúst Þorvaldsson bóndi á
Brúnastööum, sem á sæti I jarða-
nefnd Arnessýslu og er jafnframt
I bankaráði BÚnaöarbankans,
vildi að sin yrði að engu getið I
þessu máli, en visaði á Stefán
Valgeirsson formann bankaráðt
ins. Ekki náöist I Stefán I gæ^
þrátt fyrir itrekaðar tilraunir.
1978, viljum við undirritaðir
hluthafar i Dropa hf. taka fram
að enginn okkar hefur átt
samtal við Þjóðviljann um
málefni fyrirtækisins. —
Reykjavik 13. janúar 1978.
Guðmundur Gislason
Emanúel Morthens
Alfreð Eliasson
Þórhallur Þorláksson
Sigurður Arnason.”
Og svo stendur semsé spurn-
ingin: Hver hluthafa i fyrirtæk-
inu Dropi hf. Suðuriandsbraut
hringdi i Þjóöviljann? Hver er
þá arri?
Erlendu skuldlmar 128 miljarðar
Sjá síðu 15