Þjóðviljinn - 14.01.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.01.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. janúar 1978 WÓÐVILJINN — SIÐA 5 MYNDIR OG TEXTI: GFR Yiðtal viö Jón Kjartansson, formann Verkalýös- félags Vestmannaeyja vinna og verkafóik Verkalýðsfélögin í Eyjum komu því inn I siðustu samninga að I íliki- Alþýðuhúsið var reist af verkamönnum I Vestmannaeyjum i sjálfboða- mjölsverksmiðjunum væru saunaböð. Hér er Jón Kjartansson viö vinnu á verstu kreppuárunum. Það er nú aðalsamkomustaður vcrka- saunabaðið i Fiskimjölsverksmiðjunni við Strandveg. lýðsfélaganna þar. Verkalýðsmál í Eyjum Jón Kjartansson er formaöur Verkalýösfélags Vestmannaeyja og hefur verið það siðan 1972. Laugardagsmorguninn 17. des- ember kl. 9 stundvislega bankar blaðamaður Þjóðviljans upp á hjá Verkalýðsfélaginu i húsi þess að Miðstræti 11 iEyjum til þess að fá viötal hjá Jóni og er það fúslega veitt. Hann býður til sætis undir þeim höfðingjum Karli Marx og Lenin heitnum sem hanga þar á vegg ásamt heimatilbúnum vegg- spjöldum úr siðasta verkfalli. Svo hefst samtalið. — Hversu margir eru I Verka- lýðsfélaginu, Jón? — Þeir voru um 250 skv. siðustu talningu. — Hvernig er félagsstarfiö? — Þaö hefur heldur batnaö á siöustu árum og einnig samvinna félagssins viö Verkakvennafélag- iö Snót og Sjómannafélagiö Jöt- unn en hún var ekki góö þegar ég tók viö áriö 1972. Annars er hér félagsdoöi eins og viðast hvar annars staöar og erfitt aö fá fólk til aö koma á fundi. Þaö er mikið unniö og fólk notar þá frekar fri- timann til aö skemmta sér. Viö i forustunni erum kannski lika for- pokaöir i flutningi á þvi sem viö viljum koma á framfæri, ættum td. aö fara meira út á vinnustað- ina sjálfa. — Nú hefir þú sjálfur orö fyrir aö vera rðttækur. Eru almennir félagar róttækir? — Það má taka félagiö sem spegilmynd af pólitiskri skiptingu hér i bænum. Ætli hlutföllin séu ekki svipuö. Þvi miður er fólk ákaflega ómeövitaö um pólitiska stööu sina i þessu stéttskipta þjóöfélagi. — Kom ekki til kasta Verka- lýösfélagsins i gosinu. — Jú, jú og þaö var hálfgert neyðarástand. Viö vorum eigin- lega geröir útlægir úr bænum og aörir máttu koma hingaö undir yfirskini alls konar sjálfboöa- mennsku. Hingaö valdist viss manngerö, gullgrafarar sem viö köllum. Þetta voru duglegir menn sem vildu helst vinna allan sólar- hringinn og voru með kröfugerð á hendur öllu og öllum. Viö vorum i mjög erfiöri aöstööu og þegar viö gerðum kröfur um kjarabætur vorum við afvopnaðir með þvi að hér var veriö aö vinna björgunar- starf. Þaö sauö upp úr nokkrum sinnum og þar sem flestir lands- menn höföu látiö eitthvaö af hendi rakna i sameiginlegan sjóð vor- um viö litnir óhýru auga fyrir aö- geröir okkar og mikiö skammað- ir. Sá sem þiggur er alltaf háður gefandanum. — Hvers konar aðgerðum beitt- uö þiö ykkur fyrir? — Viö hömruöum þaö td. I gegn að unnið yrði á vöktum i stað þess aö vinna 12-14 tima á sólarhring. — Eru þessir svokölluðu gull- grafarar hér enn? — Þeir voru hér þar til hreinsun var lokiö. En þetta á lika viö um marga af mtnum mönnum. Þetta eru haröduglegir menn sem vilja helst vera á kafi i vinnu allan sól- arhringinn og hugsa eiginlega ekki um annaö. — Hefur ekki gosiö breytt miklu fyrir verkalýösfélagiö? — Jú, geysimiklu. Viö vorum fyrir gos meö ágætt trúnaöar- mannakerfi en nú höfum viö varla viö aö skipa nýja trúnaöar- menn. Þeir gömlu komu ekki til baka eöa skiptu um vinnu. Mér hefur fundist aö atvinnullfiö hér væri ekki eins stööugt og áöur. Það er ekki komin sú ró sem var. Menn tolla siöur á sáma staö. — Nú er fyrst og fremst fisk- vinna hér I Eyjum. Réöi fólk sig i svipaöa vinnu upp á landinu meö- an áö var þar? — Nei, þaö var rétt hending ef fólk réöi sig I fisk og var þaö ma. af þeirri ástæöu aö frystihúsin i Reykjavik voru ekki til aö hrópa húrra fyrir. Þau eru ákaflega óaölaöandi miöað viö frystihúsin hér. Þaö var lika aö mörgu leyti gott aö fólk kynntist einhverju öðru en fisk og slori. — Hvernig slappst þú sjálfur út úr gosinu? — Eg fór ekki illa út úr þvi. Ég haföi nóg aö starfa og bjó I ölfus- borgum. Bæöi ASl og hin al- mennu verkalýðsfélög lögöu mik- ið af mörkum til hjálpar og lán- uðu ma. ölfusborgir. Ég held jafnvel aö þeir sem lentu þangaö hafi sloppiö einna best út úr þeirri andlegu raun sem gosiö var. Og viö megum ekki gleyma þvi, Vestmannaeyingar, hvaö viö sluppum vel þrátt fyrir allt. Þaö má segja aö viö höfum ekki misst úr eina einustu máltiö. — Þú minntist áöan á aö aöbún- aöur i frystihúsum I Eyjum væri betri en i Reykjavik. Má kannski segja aö aðbúnaður á vinnustöð- um hér sé yfirleitt til fyrirmynd- ar? — Margir vinnustaðir hér eru til algerrar fyrirmyndar og hafa alltaf veriö heldur framarlega. Þaö út af fyrir sig er hlutur sem ber aö leggja áherslu á. Ég get nefnt sem dæmi aö i siöustu samningum náðum við þvi fram aö i fiskimjölsverksmiöjunum væri bæði saunaböð og sturtur og sérskápar fyrir fatnað. Þvi hafa verkalýðsfélög ekki náð fram annars staðar. Einnig komum við þvi inn i samningana að i þessum sömu verksmiöjum væri einangr- aöir klefar þar sem verkamenn heföu afdrep fyrir hávaöa og hita. — Er mikill hávaði á þessum vinnustööum? — Já, gifurlegur. Viö létum mæla hann og reyndist hann var frá 90 decibel og upp I 106. — Hvar eru hættumörkin talin? Framhald á 18. siöu t siöasta verkfalli geröu verkamenn veggspjöld og hanga þau ná á skrifstofum Verkalýösfélags Vestmannaeyja. Hér er eitt þeirra. A stærstu myndinni stcndur: Togarasjómennirnir Geirnefur Hallgrimsson (t.v.) og Guðlaugur guöfaðir Glslason (t.h.) segja aö munur sé aö vinna aöeins til kl. 5.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.