Þjóðviljinn - 14.01.1978, Page 13
Laugardagur 14. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 13
Jón Ármann Héðinsson, alþingismaður
„Margir hafa fært þaö i
tal við mig, að ég œtti
möguleika að halda áfram
störfum á alþingi”
Einn af þeim þingmönn-
um Alþýðuflokksins/ sem
Ijóst er að verða ekki á
þingi fyrir flokkinn næsta
kjörtimabil# er Jón
Ármann Héðinsson/ sem til
margra ára var kjör-
dæmakjörinn þingmaður
Alþýðuf lokksins í Reykja-
neskjördæmi/ en yfir-
standandi kjörtímabil
landskjörinn þingmaðúr.
Ástæðan fyrir þessu eru
úrslit í prófkjöri flokksins
sem haldið var í kjördæm-
in. Því vakti það forvitni
blaðamanns að sjá auglýs-
ingu frá þingmanninum í
Alþýðublaðinu þar sem
hann auglýsir viðtalstima
um ,/þingmál/ kosningar
og fl." og brá blaðamaður
sér suður í Hafnarfjörð í
fyrirtækið Hreifa en á
skrifstofu þess auglýsir
Jón sig til viðtals.
Fyrst spurbum við Jón um álit
hans á prófkjörum i Alþýðu-
flokknum og á þeirri endurnýj-
um, sem virðist ætla að verða á
þingliði flokksins i kjölfar þeirra
prófkjöra.
„Við vorum allir jákvæðir
gagnvart þvi að hafa prófkjör”,
sagði Jón. „Það sem menn
tortryggöu var hversu viðtækt
prófkjörið ætti að vera. Við töld-
um, að i jafnlitlum flokki og
Alþýðuflokkurinn er, kynni að
fara svo i hita baráttunnar,
að utanaðkomandi hópar hefðu ef
til vill úrslitaáhrif á niður-
stöðurnar.
Prófkjöriö fór úr
böndunum
„Ég ætla ekki að dæma um
niðurstöður prófkjörsins á einn
eða annan hátt, en það hefur sýnt
Uig að utanflokksmenn hafa tekiö
þátt i okkar prófkjöri, og einnig i
öðrum prófkjörum.
— Varstu ánægður með það
hvernig að prófkjöri Alþýðu-
flokksins i Reykjaneskjördæmi
var staðið?
„Það er ekkert leyndarmál
neinum sem til þekkja að það fór
raunverulega aö ýmsu leiti úr
böndunum.
Við frambjóðendur höföum
fengið dreifibréf frá formanni
flokksins þar sem hann lagði
áherslu á heiðarlega og drengi-
lega baráttu. Þeir á Suðurlandi
riðu á vaðið og þar fór allt fram,
það ég best veit, með fullum
drengskaparvinnubrögðum. Við
hér höfðum komið okkur saman
um að gefa út eitt blað sameigin-
lega, og samkvæmt undirritun
fundargerða hélt ég að ekki ætti
annað að aðhafast, og reyndar
héldum við það, við fjórir.”
— Þið fjórir?
„Við sem urðum lægri að tölu
til i prófkjörinu.
Það var svo mat hinna að þeir
mættu berjast eins og þeim sjálf-
um sýndist, og ég er ekki að gagn
rýna það útaf fyrir sig. Við þessir
fjórir vorum kannski of miklir
bókstafstrúarmenn, og fórum
þess vegna ekki i beinan slag við
félaga okkar.”
— Sýnist þér að úrslit
prófkjörsins hér i Reykjaneskjör-
dæmi muni verða til þess að veita
Alþýðuflokknum meira brautar-
gengi en td. i tveimur siðustu
kosningum?
„Þessu er ómögulegt að svara
með jái eða neii. Það kemur i ljós
i vor. Hitt er óneitanlegt að próf-
kjörið hefur haft jákvæð áhrif að
minu mati. A niðurstöðuna vil ég
ekki deila á einn eða annan hátt.
Ég tel að fólk hafi sýnt mér gott
traust þó það hafi safnast meira á
aðra. Það er allt i besta lagi með
þaö.
Það vil ég undirstrika, að á
flokksþingum og öðrum fundum,
kom það alltaf fram, að nú ætti
fólkið að fá að ráða. Það hefur þó
veriðspurt: Fékk fólkið að ráða,
og fékk þaöað vera I friði?En það
er annarra að dæma um það en
min.
Áskoranir víöa
aö
Af þvi fer sögum, að á fundi
meðal stuðningsmanna Alþýðu-
flokksins, þar sem saman komu á
annað hundrað manns, hefði ver-
ið samþykkt áskorun á þig að
taka að þér fyrsta sæti á lista
flokksins i kjördæminu, þrátt
fyrir niðurstöður prófkjörsins.
Hvað hefur þú um þetta að segja?
„Mér er ekki kunnugt um þessa
ályktun. Hreinlega ekki, og dreg
það i efa að þetta séu réttar
fregnir”.
— Og þá sé einnig rangur sá
orðrómur, að margir hafi komið
Blaðberabió í dag
Hafnarbió. Laugardaginn 14. janúar kl
13.00
VERÖLDIN HLÆR
Gamanmyndasyrpa með
ABOTT og COSTELLO
Hafið samband við afgreiðsluna, ef þið
hafið ekki fengið miða.
Þjóðviljinn s: 8 13 33
Jón Ármann Héðinsson: Ef ég fer fram á óháðum lista hvolfist allt
við. Bæði hjá Alþýðuflokknum og öðrum. Svo mikið veit ég.
þar sem mitt fólk og min ætt hef-
ur starfað fyrir þennan flokk
þegjandi og hljóðalaust i áratugi
og gert það vel. Ég þekki flokks-
fólk hringinn i kring um landið, og
ég tel þetta fólk ekki hafa verið
siðspillt á nokkurn hátt.
Og ég mótmæli svona oröatil-
tæki, sem ég tel upphrópunar-
kjaftæði.
Hver tapaöi?
— Þvi er ekki að neita, að þau
fjögur kjörtimabil sem þú hefur
setið á þingi fyrir Alþýðuflokkinn
i þessu kjördæmi hefur fylgi
flokksins minnkað, og verulega
nú tvö siðustu kjörtimabil.
Hefuröu trú á þvf, að framboðs-
listi, sem settur yrði fram eftir
niðurstöðum prófkjörsins, muni
vinna til baka þingsæti það, sem
þú hefur tapað i kjördæminu?
„Ég tel mjög miklar likur á þvi.
Ég vil minna á að i siðustu þing-
kosningum var ég allan timann
inni þar til utankjörstaðaatkvæði
voru talin, þaö munaði ekki meiru
en þvi.
Þaö er hægt að gefa ákveðnar
skýringar á þessari þróun, en þaö
yrði of langt mál, og kannski
bundnar um of við ákveðna menn
persónulega, og ég vil ekki fara út
i það i blaðaviðtaii.
Ég er ekki viss um að rétt sé að
orða þetta svo að ég hafi tapað
þingsætinu. Þarna kom annað
til.”
Þá hvolfist allt viö
að máli við þig og hvatt þig til að
hætta ekki þingmennsku?
„Það hafa mjög margir fært
það i tal við mig að ég ætti ein-
hvern möguleika á að koma inn á
alþingi. Þetta eru verkamenn,
óbreyttir sjómenn og æðstu emb
ættismenn. Ef flokkurinn kærir
sig um min störf áfram, þá er ég
tilbúinn, aö öðru leyti hafði ég
ekki hugsað mér að skipta mér af
landsmálapólitik um óákveðinn
tima.
—- Sá orðrómur hefur verið á
lofti um nokkurn tima, og virðist
frekar styrkjast, að náið sam-
band sé með þér, Félagi óháðra i
Hafnarfirði, Sigurði Helgasyni,
fyrrv. bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins i Kópavogi og fl. manna,
sem eru óánægðir með þróunina i
isl. stjórnmálum, um það að eiga
sameiginlega aðild að framboði i
Reykjaneskjördæmi, og ef til vill
viðar. Geturðu sagt eitthvað um
þetta?
„Ég veit ekki hvort það er rétt
orðaval, að segja að sterkt sam-
band sé á milli okkar. Ég leyni
þvi ekki að ýmsir menn hafa talað
við mig, bæði minir flokksmenn
og ýmsir úr öðrum flokkum, að ég
ætti með einhverjum hætti
möguleika á að halda áfram
störfum á alþingi. Ég er nú einu
sinni þannig gerður að ég hef
aldrei viljað fara i heljarstökk-
um, en talið það gæfusamlegra að
fara skref fyrir skref með nokkru
öryggi, en slikur taktur virðist
ekki vera i samræmi við buslu-
gang þjóöfélagsins i dag.”
Ekki í dag
— Þýðir þetta, að komi flokk-
urinn ekki til þin og fari þess á leit
við þig aö þú farir i framboð á
hans vegum, munir þú huga að
sjálfstæðu framboöi I kosningun-
um I vor?
„Ég mundi ekki segja það 1
dag. Þaö er langt i það enn þá. Sé
ekki hljómgrunnur fyrir mfnu
starfi i Alþýöuflokknum, en hins
vegar sterkur hljomgrunnur
mebal einhverra annarra manna,
kann ab fara svo ab ég hugleibi,
eba vib fleiri, ab uppfylla sllkar
óskir.”
Ekki annarra
úrkosta meö
Alþýöublaöiö
— Alþýðublaðið hefur nú um
nokkurra missera skeiö verið
rekiö af Visi með fjárstuðningi
frá Norðmönnum og staðfest af
formanni Alþýðuflokksins, að
þannig verður það næstu sjö mán-
uðina amk. Hvað þykir þér um þá
þróun, að Alþýðublaðið skuli vera
rekið með þessum hætti?
„Þetta er auðvitað óæskileg
þróun. Mér er Ijóst, þar sem ég
annaðist rekstur blaðsins með
öðrum manni i 17 mánuði, ab við
erum neyddir til að taka þetta
skref fremur en að láta blaðib
deyja.”
— Þýðir þetta að innanlands
var ekki hægt að leysa rekstrar-
erfiðleika Alþýðublaðsins?
„Ég hefði haldið að það væri
hægt, en útgjöld blaðsins hafa
hækkað svo ört, að menn réðu
ekki lengur við vandann.”
Viö erum litlir
karlar
— Finnst þér ekkert óeðlilegt
við það, að Norðmenn, sem um
þessar mundir sækja mjög i
islenskar auðlindir með einum
eða öðrum hætti, skuli með þessu
vera búnir að blanda sér i daglegt
lif stjórnmálamanna hérlendis?
„Ég veit ekki hvað þeir komast
langt inn i okkar umsvif með
þessum hætti. Persónulega hef ég
gagnrýnt Norðmenn mjög á
Alþingi, bæði fyrir framkomu
þeirra á markaðssvæðum okkar
tslendinga svo og i öðrum hags-
munamálum okkar, þar sem þeir
hafa veriö mjög þversum. En ég
tel það óskylt þv\hvort þeir hjálpa
blaðinu nú um tima.”
— Ekki af þeirra hálfu gert til
að eiga hönk upp i bakiö á ykkur
Alþýðuflokksmönnum i ásælni
þeirra eftir isl. auðlindum, og þá
kannski sjálfum þér, sem hve
harðast hefur gagnrýnt þá á
alþingi?
„Ég held að viö séum engir
bógar til þess að þeir reyni aö
hcngja á okkur neinn snaga.”
Upphrópunar-
kjaftæöi siö-
bótarmanna
— Telurðuað Alþýðuflokkurinn
sé meiri eöa minni verkalýðs-
flokkur eftir þær breytingar, sem
augljóslega eru nú að eiga sér
stað innan hans?
„Ég vona að staða hans breyt-
ist ekki. Hins vegar skil ég ekki
þá yfirlýsingu, aö einhverjir sið-
bótamenn hafi sigrab i flokknum.
Ég er búinn að þekkja Alþýöu-
flokkinn frá þvi að ég var barn.
— Heldurðu að Alþýðuflokkur-
inn ynni þetta tapaða þingsæti ef
til þess drægi, að þú létir undan
þeim eindregna og almenna vilja
kjósenda að gefa kost á þér til
þingmennsku á óháöum
framboðslista?
„Nei. Þá hvolfist allt viö. Þaö
er alveg augljóst mál. Bæöi hjá
Alþýðuflokknum og mörgum öör-
um. Svo mikiö veit ég. — úþ.
Eftirskrift
Frá þvi var skýrt i Dagblaðinu
á fimmtudag, að til tals hefði
komið innan Alþýðuflokksins að
Jón Armann skipaði þriðja sæti
listans við alþingiskosningarnar.
Vegna þessarar fréttar litur
blaðamaður svo á, að hluti þeirra
viðræðna, sem hann átti við Jón
Armann, og hann leit þá á sem
viðræðu er ekki væri til birtingar,
sé ekki tveggja manna tal, og
skýrir hér með frá þvi, að
formaöur uppstillingarnefndar
kjördæmisráðsins, Hrafnkell
Ásgeirsson og sá kandidatinn,
sem annað sætið hlaut i prófkjör-
inu, Karl Stefnir Gubnason komu
ab máli vib Jón Armann og ræddu
þann möguleika vib hann ab hann
skipabi þribja sæti framboös-
listans vib kosningarnar i vor.
Ekkert var ákvebib i þeirri
viöræðu, en þó var á Jóni ab
skilja, ab hann lokabi ekki þeim
möguleika.
t þessu sambandi er rétt að
geta þess, að sá sem þriðja sætið
hlaut samkvæmt skuldbindandi
prófkjöri flokksins, var Gunn-
laugur Stefánsson, og yrði
tilfærsla væntanlega að flokkast
undir brot á prófkjörsreglum
flokksins. —úþ.
Er
sjonvarpió
□
Skjárinn
Sjónvarpsver^ stca.ði
B ergstaða st r<ati 38
simi
2-19-40