Þjóðviljinn - 14.01.1978, Qupperneq 16
MSÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 14. jandar 1978
j-nacTTT^P
TILKYNNING
til launagreiðenda er hafa í
þjónustu sinni starfsmenn
búsetta í Hafnarfirði, Garða-
kaupstað og Kjósarsýslu.
Samkvæmt heimild i 7. tölulið 103 gr.
reglugerðar nr. 245/1963, er þess hér með
krafist af öllum þeim er greiða laun
starfsmönnum búsettum i Hafnarfirði,
Garðabæ og Kjósarsýslu, að þeir skili nú
þegar skýrslu um nöfn starfsmanna hér i
umdæminu, sem taka laun hjá þeim, nafn-
númer, heimilisfang og gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu
kaupgreiðanda til að tilkynna er launþeg-
ar hætta að taka laun hjá kaupgreiðanda
og þeirri ábyrgð er kaupgreiðandi fellir á
sig, ef hann vanrækir skyldur sinar sam-
kvæmt ofansögðu eða vanrækir að halda
eftir af launum upp i þinggjöld, sam-
kvæmt þvi sem krafist er, en i þeim tilvik-
um er hægt að innheimta gjöldin hjá kaup-
greiðanda, svo sem um eigin skuld væri að
ræða.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði
og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn i Kjósasýslu.
Ljósmyndasýning
„.Photographies ”
önnur sýningarvika
Sýningin er opin alla daga frá kl. 17.00 til
kl. 22.00 til 22. janúar i franska bókasafn-
inu að Laufásvegi 12. Sýndar eru 75 ljós-
myndir eftir 6 af frægustu ljósmyndurum
Frakklands.
Okkur vantar
góða ibúð, sem fyrst, helst i miðbænum
eða nágrenni hans.
Baldur óskarsson og
Ingibjörg G. Guðmundsdóttir
simi: 2 39 64.
Múrarameistari
getur bætt við sig verkefnum, helst úti á
landi. Upplýsingar i simum 24954 og 20390.
Keflavík
Þjóðviljann vantar blaðbera i Keflavik.
Upplýsingar i sima 1373.
r
Hinar snoturlegu ieigufbdftir BreiMalshrepps. Mynd: Ortjfc.
Guöjón Sveinsson skrifar:
Gott dæmi um driftina
Atvinnumál
Eftirfarandi fréttir hafa
Landpósti borist frá Guöjóni
Sveinssyni á Breiödalsvik:
Inngangur
Um miöjan sept. sendi ég
svokallaöar „slides”myndir til
koperingar á pappír og áttu þær
siðan aö fylgja fréttapistli, sem
ég var báinn aö lofa aö senda
Þjóöviljanum. Eftir mánaöar-
biö geröi ég fyrirspurn til fram-
kallara, þvi mig var fariö aö
lengja eftir myndunum. Ég fékk
þau svör, aö þær væru alveg á
næstu grösum, heföu m.a. lent
„I verkfallinu”. En I gær, 20/12,
bárust þær I mínar hendur, liö-
lega 3 mánuöum eftir aö ég
sendi þær. Þetta vil ég kalla
undur og stórmerki á þessari
öld hraöa og tækni, — en svona
getur nú samt skeö. Og tir þvi
þessar myndir eru komnar, þá
er best að reyna aö róta til i hug-
arfylgsnunum og pára einhvern
fréttatexta með. Aö visu las ég
„Bréf úr Breiðdal” á siðum
þessa blaðs á dögunum, og hef
ég engu þar við að gæta, þvi þaö
var gott i alla staði.
fullri atvinnu I landinu”. Ég
held, að svartur blettur hljóti að
vera á tungu þeirra höfunda.
1 svipinn er hér gerður út einn
bátur, 80 tonn. Hann var á rek-
netum i haust, en hefur ekkert
veriö hreyföur i hálfan annan
mánuö. Má þvl segja, aö bjart-
ara fcafi veriö yfir útgerö hér
fyrir tveimur árum, en þá gerö-
um viö hálfan togara og tvo
stærri báta. Þrjár trillur reru
héöan i sumar og öfluöu þokka-
lega. Virðist afli á handfæri
vera aö glæöast.
Opinberar fram-
kvæmdir
Lokið var viö aö steypa þekju
á nýja bryggjuhausinn, en þó er
nokkuð langt i land, aö viölegu-
pláss sé fullnægjandi. Byggja
þarf viölegukant upp meö grjót-
fyllingunni, sem gerö var i
fyrra, svo gott verði. Nú geta
akip einungis lagst viö hausinn,
sem er um 30 m. langur. Viö
hann er lika fremur ókyrrt, ef
ylgja er i sjó. Er þvi nýr viö-
legukantur mjög brýnn, og von-
ast er til aö haldið veröi áfram
meö hann að sumri.
Veriö er að ljúka viö byggingu
þriggja leiguibúöa á vegum
hreppsins. Er hver um sig lið-
lega 100 ferm. og viröast þokka-
leg hús. Byggingarkostnaöur er
13-14 milj. á hvert, og eru þau þá
fullfrágengin, meö uppgeröum
lóöum. Yfirsmiöur er örn
Ingólfsson, byggingameistari.
Nú er nýja sláturhúsiö aö
veröa fokhelt. Er þess vænst, aö
taka megi þaö i notkun á kom-
andi hausti og er varla seinna
vænna, ef slátrun á I framtiöinni
ekki aö ná fram á jólaföstu. Þá
er I byggingu steypustöö á veg-
um Eliasar P. Sigurössonar, og
er slik stofnun oröin mikil nauö-
syn.
Guöjói SveÍBUM.
Það sem allt stendur og fellur
meö, i öllum plássum og raunar
I þjóöfélaginu I heild, er
atvinna, og þvi bóka ég hana
fyrst. 1 haust var nokkuö jöfn og
góö atvinna hér, einkum meöan
sláturtiö stóö yfir, eöa frá miöj-
um sept. til 7. nóv. Hefur hún
aldrei staöiö lengur, enda slát-
urhúsiö hér meö öllu ófullnægj-
andi og leyfir ekki stærri lógun
en um 400 fjár á dag, en sláturfé
fjölgar hér ár frá ári.
A sama tima og slátrun stóö
yfir var hér litilsháttar sfldar-
söltun. Saltaö var I liölega 1700
tunnur. Er þetta fyrsta söltun
hér siöan 1967, og mátti segja,
aö hún væri fagnaöarefni, því
alltaf er viss stemmning yfir
þessari starfsemi, og gamlar
minningar rifjuðust upp hjá
fólkinu, sem við hana vann.
En sföan um miöjan nóv. hef-
ur veriö dauft yfir atvinnulifinu.
Frystihúsiö lauk starfsemi sinni
I fyrstu viku september og hefur
ekki fariö I gang siöan. Er nú
veriö aö freista þess aö koma
nýja hlutanum I gang, en hann
er búinn aö vera I byggingu slö-
an 1972. Er ekki ofsagt aö hægt
gengur og ráöamönnum til
sóma i hvivetna. Einhverjar
vonir eru meö aö húsiö fari I
gang I janúarlok eöa i byrjun
íebrúar n.k.. Annars er bygg-
ingarsaga þessa húss gott dæmi
nm „driftina” i atvinnumálun:
landsbyggðarinnar sl. 4 ár. Hér
eru þvi 16 manns á atvinnuleys-
isskrá og eru raunar fleiri
atvinnulausir þótt þeir hafi e'ski
látiö skrá sig. Finnst mér þetta
ekki passa viö ummæli vissra
blaöa, „aö tekist hafi aö halda
Bygging frystíhússins hófst 1972, stendur enn yfir, og er allsendis
évist hvenær henni lýkur.
Mynd: Guðjón.
Byrjaö var aö sld upp fyrir sláturhúsinu I ágústlok. Húsiö fremst á
myndinni, er gamla kaupfélagshiislö, byggt 1906. Þar er nú mötu-
neyti sláturhússmanna og svefnpláss.
Mynd: Guöjón.